Dagur - 08.01.1958, Side 7
Miðvikudaginn 8. janúar 1958
D A G U R
7
FRÁ BÓKAMARKAÐINUM
(Framhald af 2. síðu.).
sjálfs, og tileinkuð íslenzkum
vélstjórum með þakklæti og virð
ingu sögumanns.
Jessen skólastjóri er danskur
og segir bókin fyrst frá uppvaxt-
arárum hans í Danmörku, mörg-
um ævintýrum og og baráttu og
uppeldi á danskri grund. En síð-
an verða þáttaskil. íslendingar
báðu um duglegan og fæi-an vél-
stjóra til að vera leiðbeinandi
hér á landi í byrjun vélaaldarinn
ar. Jessen varð fyrir valinu og
Daninn dugði vel og settist hér
að. Með 40 ára starfi hefur Jess-
en unnið íslenzkum atvinnuveg-
um ómetanlegt gagn og honum
er það fyrst og fremst að þakka
hve íslenzkir vélstjórar þykja
framúrskarandi færir í sinni
grein. Hin nýja bók er skemmti-
lestur og hún er líka hin merk-
asta heimild fyrstu 40 áranna á
vélaöld þjóðarinnar og síðast en
ekki sízt er hún ágætlega rituð
ævisaga um einn af mætustu
þegnum landsins á þessari öld,
og er höfundi og útgefanda til
sóma.
NÝ BÓK:
Frá Kotá til Kaiiada
eftir
JÓNAS STEFANSSON
Akureyri 1957.
Þetta er fróðleg bók og
skemmtileg, og þá sérstaklega
fyrir Akureyrarbúa og Eyfirð-
inga. Hér er það „Eyfirzkur
Jónas Stefánsson.
Vestur-íslendingur“ sem sögurn-
ar segir, og þær eru margar og
býsna fjölbreyttar. Hér er ekki
aðeins sagt frá tuttugu ára dvöl
vestan hafs, aðallega í Kanada,
en einnig í Bandaríkjunum, held
ur er fullur helmingur bókarinn-
ar, 112 bls., aðallega saga Akur-
eyrar á þriðja tug ára beggja
megin við aldamótin. Er hér
margvíslegur fróðleikur, og ssgir
höfundur látlaust og létt frá, en
einnig all ýtarlega og skýrt frá
mönnum og málefnum og kemur
víða við. Eru hér jafnvel frásagn-
ir sem telja má nauðsynlegar
leiðréttingar á skráðum atriðum
í sögu Akureyrar o. fl. (Sbr. bls.
81—83 og 84—85).
Síðari helmingur bókarinnar er
frásögn af dvölinni vestan hafs,
og kennir þar margra grasa. Eru
margir kafla þessara afar fjöl-
breyttir og skemmtilegir og
býsna víðtækur fróðleikur um
ýmsa Vestur-íslendinga, kunna
og ókunna, og eru hér m. a. marg
ar ágætar mannlýsingar í stuttu
máli. Inn á milli eru víða skarp-
legar athugasemdir til skýringar
og frekari fyllingar, þótt ekki
heyri beinlínis söguþræðinum til.
— Yfirleitt er hér geysimikill
fróðleikur og nýstárlegur, og frá
sögn víða bráðskemmtileg, og
stórskopleg inn á milli, og er þvi
hreinn skemmtilestur. —
Jónast Stefánsson fluttist heim
aftur með Vestmannahópnum,
sem heimsótti „gamla landið" á
Alþingishátíðinni 1930, og hefur
síðan átt heima á Akureyri.
Helgi Valtýsson.
Eldri-dansa klúbburinn
heldur dansleik í Alþýðulnísinu
laugardaginn 11. janúar, kl. 9
síðdegis. Aðgöngumiðasala ler
fram í Alþýðuhúsinu fimmtu-
dags- og föstudagskvöld, frá kl. 8
—10 e. h. — Eldri félagar sæki
miða sína fyrra kvöldið. Eiga
annars á hættu að tapa þeirn.
S t j ó r n i n.
ORLON-DYNEL
LOÐKÁPUR
Sterkar og fallegar-
3 litir.
VERZL. R. LAXDAL
Sýjar kvenkápur
um helgina.
VERZL. R. LAXDAL
Kvenstúdent
óskar eftir atvinnu liálfan eða
allan daginn. Góð málakunnátta.
Margt kernur til greina.
Afgr. vísar á.
Rarnanærföt
og barnaútibuxur tek ég að mér
að prjóna.
Antonia Erlendsdóttir
Lækjarg. 22. Sími 2154.
RRAGGI
eða geymsluskiir óskast keyptur
eða leigður. — Afgr. visar ti.
KJÓLFÖT,
lítið notuð, á háán og grannan
mann, lil sölu. Tækifærisverð.
Jón M. Jónsson
klæðskeri — Sími 1599.
Nilfisk-ryksuga
Scandia-barnavagn, hægindastóll,
stoppaður, allt sem nýtt, til sölu
með tækifærisverði.
Afgr. vfsar á.
r
„Islendingur“ og
Allamalla
í síðasta tölublaði Islendings
eru taldir upp hinir ágætu fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins
við bæjarstjórnarkosningarnar
hér, en ekki er það látið nægja,
heldur er smáklausa um hvern
þeirra fyrstu, og er þ>ar talið upp
gjörsamlega allt það, sem þeir
hafa sér til ágætis unnið og ým-
islegt gott sagt um persónur
þeirra, svo að kjósendum öllum
megi vera það fullljóst, að hvorki
séu þetta smámenni né illmenni.
Mér finnst ekkei't athugavert
við það, þó að flokksblaðið taki
þetta skýrt fram kjósendum til
öryggis, svo að þeir grípi síður
til hins mjög tiltæka blýants og
striki út að venju sinni.
En vinur minn einn var
hneykslaður á þessu og sagði, að
ef varan væri þekkt af öllum
kaupendum, og væri hún góð,
þyrfti ekki að grípa til svo mik-
illa 'og ákafra auglýsinga, slíkur
manngildis- og afrekasparðatín-
ingui' væri óþekktur meðal ann-
arra þjóða.
Það vildi svo vel til, að eg gat
rekið þetta ofan í hann. Eg hafði
nefnilega hjá mér blaðið Alia-
malla, sem gefið er út í kjördæm-
inu Bombomba í hinu nýja ríki
Ghana í Vestur-Afríku. Þetta er
kosningablað, og í því stendur í
lauslegri þýðingu:
„I cfsta sæti listans er Aghana-
boro, hinn mikli galdramaður,
sem hefur vald á tungli, sól og
stjörnum. Það var hann, sem lét
rigna á þurrktímanum í fyrra“,
o. s. frv. o. s. frv.
„f 2. sæti listans er Jojapoja,
hinn einarði og dugmikli veiði-
maður, sem þekkir frumskóginn
betur en nokkur annar. Það var
hann, sem drap ljónið í fyrra og
beit krókódílinn til bana í hitteð-
fyrra“, o. s. frv. o. s. frv.
„í 3. sæti er vinur vor allra
Hullumhæjanna, sem borinn er
og barnfæddur í öllum kjörklef-
unum, þar sem kosið verður. Það
var hann, sem át tvo soðna
kristniboða og einn hráan“, o. s.
frv. o. s. frv.
Svo er tekið fram í greininni
um tvo þá næstu á listanum, að
þeir hafi manna stærsta og feg-
ursta hringi í miðsnesinu og séu
þar að auki úrvalsmenn hinir
mestu.
Eg benti vini mínum á grein
þessa, og þá sljákkaði nú heldur
í karli.
Nei, þetta er gott hjá íslend-
ingi. Haldi hann bara áfram í
sama dúr, og þá mun eg lesa
hann mér til ánægju og gagns.
Kosninga-Jón.
Framboðslisti Aljiýðu-
bandalagsins á Ak.
Efstu menn listans eru þessir:
Björn Jónsson
Jón B. Rögnvaldsson
Jón Ingimarsson
Þorsteinn Jónatansson
Tryggvi Helgason
Guðrún Guðvarðardóttir
I. O. O. F. Rb. 2 — 107188V2
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju á sunnudaginn kemui' kl.
2 e. h. Sálmar: 4 — 201 — 105 —
59 — 584. — P. S. — Messað í
Lögmannshlíðarkirkju n.k. sunnu
dag kl. 2 e. h. — K. R.
Fundur í drengja-
deild kl. 10.30 f. h. á
sunnudaginn. — Silf-
urhnappa- og Ljós-
berasveitir sjá um fundinn. 14 og
15 ára drengir velkomnir. —
Fundur í stúlknadeild í kapell-
unni n.k. sunnudag kl. 5 e. h. —
Eyrarróasveitin sér um fundar-
efni.
Fermingarbörn. Börn, sem eiga
að fermast í Akureyrarkirkju á
komandi vori, eru beðin að koma
til viðtals í karkjukapellunni sem
hér segir: Til séra Kristjáns Ró-
bertssonar þriðjudaginn 14. jan.
kl. 5 e. h. Til séra Péturs Sigur-
geirssonar miðvikudaginn 15.
jan. kl. 5 e. h.
Kosningaskrifstofa Framsókn-
arflokksins er í Hafnarstræti
95. Sími 1443. — Opið til 10 á
hverju kvöldi. Þeir, sem fjar-
verandi verða á kosningadag-
inn, 26. þ. m., eru vinsamlegast
niinntir á að kjósa utan kjör-
fundar. Kosið er hjá sýslu-
mönnum, bæjarfógetum (borg-
arfógcta í Rvík) og hrepp-
stjórum. — Listi Framsóknar-
flokksins er B-LISTINN.
Hjúskapur. Á laugardaginn
voru gefin saman í hjónaband
brúðhjónin ungfrú Heiða Þórð-
ardóttir og Jón Geir Ágústsson,
byggingafulltrúi. Heimili þeirra
er að Möðruvallastræti 1, Akur-
eyi'i. — 21. des. sl. voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Halla
Kristmunda Siguroardóttir frá
Siglufirði og Gústaf Adolf Njáls-
son, Hvoli, Glerárþorpi. Heimili
þeirra verður að Hvoli. — 26.
des. voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju ungfrú
Guðbjörg Benedikta Kristins-
dóttir frá Ólafsfirði og Gylfi Jó-
hannsson, Munkaþverársti'æti 18,
Akureyri. Heimili þeirra verður
Munkaþverórstræti 18. — Enn-
fremur ungfrú Þórdís Árnadóttir
frá Ólafsfirði og Trausti Aðal-
steinsson frá Hrísey. Heimili
þeirra verður að Krabbastíg 4,
Akureyri. — 31. des. voru gefin
saman í hjónaband á Akureyri
ungfrú Sesselja Kristjana Guð-
bjartsdóttir og Hreinn Ófeigsson,
vélvirki. Heimili þeirra verður að
Oddeyrargötu 26, Akureyri.
Utankjörstaðaatkvæða. Fram
til bæjarstjórnarkosninganna,
26. þ. m., verður skrifstofa
bæjarfógeta opin alla virka
daga til kl. 18.30 og kl. 20—22
og á sunnudögum kl. 13—15.30.
Karlakór Akureyrar fer með
samsöng sinn og Luciuhátíð að
Freyvangi n.k. laugardag, ef veð-
ur og færi leyfa. Skemmtiskróin
mun óbi'eytt frá því sem var hér
á Akureyri fyrir jólin. Má vænta
þess að héraðsbúar sæti færi og
njóti góðrar skemmtunar. Söng-
skemmtunin mun byi'ja kl. 9.0,
en dansleikurinn síðan um kl. 11.
Atvinna!
1—2 stúlkur geta fengið atvinnu.
DÚKAVERKSMIÐJAN H.F.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Soffxa Otte-
sen, Sólvangi, Akureyri, og
Benedikt Bi-agi Pálmason frá
Hvassafelli, Eyjafirði. — Á að-
íangadagskvöll opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Lilja Árelíus-
dóttir, Geldingsá, Svalbarðs-
strönd, og Þoi'lákur Jónasson,
Vogum, Mývatnssveit.
Leiðrétting. í síðasta blaði var
það ranghermt að Árni Jóhann-
esson á Þverá hafi vei'ið aðal-
hvatamaður að stofnun Ári'oðans
í Öngulsstaðahreppi. Það var
Árni Jóhannsson í Kaupangi, síð-
ar aðalgjaldkeri hjá KEA á Ak-
ureyri.
Athugið! í þessu tölublaði
Dags hefst nýr greinaflokkut' er
nefnist „Verðlagning landbúnað-
arvara“. Á hann að veita hlutl.
fi-æðslu um þann þótt verðlags-
mála, sem nafn hans bendir til.
Ekkert annað blað hefur, enn
sem komið er, lagt þessi mál fyrir
á þennan hátt, þótt þau beri oft
á góma. Hins vegar er nokkur
fi'æðsla alveg nauðsynleg, og hef-
ur blaðið verið svo heppið að fá
Garðar Halldórsson bónda á Rif-
kelsstöðum til að draga saman
nokki-ar staði'eyndir til fróðleiks
fyrir lesendur blaðsins.
Leiðrétting. í grein minni:
„Mai'gur hyggur auð í annars
gai-ði“, í síðasta tbl. Dags, hafa
oi'ðið nokkrar meinlegar prent-
villui'. í 1. dálki, ofan til við
miðjan dálk, stendur: „ruglar því
samt“. Á að vera: „Neitar því
samt.“ — Litlu neðar stendur:
„boi’ið úr vörugeymslu“, á að
vera: „beint úr vörugeymslu.“ —
í öðrum dálki, ofarlega, stendur:
„hlaða upp rökstudda dóma“, á
að vera: „kveða upp rökstudda
dóma.“ — Neðarlega í sama dálki
stendur: „Kjötframleiðslan, sem
hann nefnir", á að vera „Kjöt-
magnstalan, sem hann nefnir." —
Litlu neðar, þar sem talað er um
sauðfjái'eign landsmanna, stend-
ur: „Það er“, í stað: „Það ár“. —
Og enn í næstu málsgi'ein: „vei'ki
til hækkaðs framleiðsluverðs“, í
stað: „lækkaðs framleiðsluvei'ðs.“
Innanfélagsskemmt-
un verður í Lands-
bankasalnum föstu-
daginn 10. jan. kl.
8.30 e. h. — Félags-
vist og dans.
Frá Austfirðingafélaginu. —
Austfirðingamótið verður vænt-
anlega haldið 1. marz næstk. —
Nánar auglýst síðar.
Verkakvennafél. Eining hefur
félagsvist í Verkalýðshúsinu
laugardaginn 11. jan. kl. 8 e. h. —
Konur eru beðnar að hafa með
sér kaffi og spil. — Nefndin.
Kvenfél. Hlíf heldur fund
mánud. 13. jan. n.k. kl. 9 e. h. í
Varðborg. — Dagskrá: Kosning
nefnda. Önnur mál. Skemmti-
atriði. Konur taki með sér kaffi.
Stjórnin.
St. Ísafold-Fjallkonan nr. 1 og
st. Brynja nr. 99 halda sameigin-
legan fund í Landsbankahúsinu
fimmtudaginn 9 .jan. kl. 8.30 e. h.
Fundarefni: 1. Vígsla nýliða. —
2. Hagnefnd skemmtir og fi'eeðir.
— 3. Dans. — Félagar, fjölmenn-
ið á fundinn. Æðsutemplarar.
RYKSUGA
til sölu, sem ný. Upplýs. á
Saumastofu Gefjunar.
Skautaskerpingar
Skipagötu 4, 2. hæð.
Happdrætti S. U. F.
Vegna þess live dregizt liefur
að full lokauppgjör bærust utan
af landinu hefur dráttur orðið á
birtingu vinningsnúmeranna. Nú
er sýnt, að full skil verði komin í
hendur happdrættisnefndar fvrir
15. þ. m. og verður þá innsiglið á
vinningsnúmerum rofið. — Vinn-
ingsnúmerin verða auglýst í blöð,
Lögbirtingi og útvarpinu.