Dagur - 05.02.1958, Side 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
AGU
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn. 12. febrúar.
XLI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 5. febrúar 1958
9. tbl.
Magnús E. Guðjónsson,
bæjarstjóri.
Guðmundur Guðlaugsson,
forseti bæjarstjórnar.
Tveir starfandi dýralæknar hér
Hingað er kominn nýr dýralæknir, Ágúst Þorleifsson, er
hefur nýlokið námi í Osló og er hann tekinn til starfa. Eru
því tveir starfandi dýralæknar hér, hann og Gudmund Knut-
zen héraðsdýralæknir og hafa þeir skipt með sér verkum.
Ágúst, sem hingað er ráðinn í
samráði við SNE, hefur eftirlit
með búfjárræktarstöðinni að
Lundi cg verður þar til viðtals á
morgnana til kl. 11 (sími 1533, en
heimasími 2462). Síðan skipta
dýralæknarnir með sér verkum,
eftir því sem þeim þykir bezt
henta.
Þá hafa þeir ákveðið að hafa
nætur- og helgidagavakt aðra
hvora viku, og er það auglýst á
öðrum stað í blaðinu í dag og
verður svo fyrst um sinn. Er
þetta þörf nýbreytni þegar mikið
er að gera og alvarleg tíðindi
gerast í búfjárræktinni.
Foreldrafundir
Tveir foreldrafundir hafa verið
haldnir í Oddeyrarskólanum á
Akureyri, þann 15. og 17. jan. sl.
Á fyrri fundinum flutti Eiríkur
Sigurðsson, skólastjóri, ávarp og
ræddi þar ýmis mál hins nýja
skóla, svo sem skólahúsið, hvern-
ig það reynist, lestrarstofu o. fl.
Þá flutti Theódór Daníelsson,
kennari, erindi um samband
heimilis og skóla og hve mikil-
vægt það er í uppeldis- og
skólastarfi, að foreldrar og kenn-
arar ræðist við. Að því loknu
skoðuðu foreldrar skólahúsið, og
að síðustu ræddu þeir við for-
eldra barna sinna um nám barn-
anna.
Tilhögun síðari fundarins var
hinn sama að öðru en því, að þá
flutti Eiríkur Stefánsson, kenn-
ari, erindi fundarins og var það
um uppeldismál almennt. Lagði
hann áherzlu á góðar, uppeldis-
legar venjur barnsins í æsku.
Þessa fundi sóttu 80 manns auk
kennara skólans. Voru foreldrar
ánægðir með að fá þetta tækifæri
til að kynnast skólanum, og var
þar lagður fyrsti grundvöllur að
kynnum foreldra við hið nýja
skólaheimili á Oddeyri.
Dýralæknirinn, G. Knutzen,
hefur haft feikna mikið að gera, lnn
en nú bætast einnig ný verkefni
við. Fyrst og fremst það, sem að
ofan greinir, um búfjárræktar-
stöð SNE og í öðru lagi er fyrir-
hugað að taka upp strangt hrein-
lætiseftirlit í fjósum í héraðinu.
En það hefur lengur verið van-
rækt en skyldi. Júgurbólga er
hinn alvarlegasti sjúkdómui' og
mjög útbreidd. Henni þarf að
segja stríð á hendur. Ennfremur
því ástandi í hreinlætismálum,
sem ekki telzt viðunandi.
Fyrsli lundur nýju bæjarsljórnarinnar
Fyi'sti fundur hinnar nýkjörnu
bæjarstjórnar var haldinn síð-
degis í gær að viðstöddum öllum
bæjarfulltrúunum og mörgum
gestum.
Steinn Steinsen setti fund, en
Helgi Pálsson, aldursforseti,
stýrði fundi þar til forsetakjör
hafði farið fram.
Guðmundur Guðlaugsson var
endurkjörinn forseti bæjar-
stjórnar, en varaforseti Björn
Jónsson.
Þessir menn voru kosnir í bæj-
arráð: Jakob Frímannsson, Björn
Jónsson, Bragi Sigurjónsson,
Jónas G. Rafnar og Jón G. Sól-
nes. — Varamenn: Guðmundur
Guðlaugsson, Jón B. Rögnvalds-
son, Helgi Pálsson, Stefán
Reykjalín og Árni Jónsson. Aðr-
ar nefndarkosningar verða vænt-
anlega birtar í næsta blaði.
Magnús E. Guðjónsson var kos-
bæjarstjóri. Um það starf
höfðu 2 sótt, hann og Jónas G.
Rafnar.
Magnús E. Guðjónsson kosinn bæjarstjóri
Guðm. Guðlaugsson kjörinn forseti bæjarstj.
Málefni Útgerðarfélagsins.
Svohljóðandi bréf var tekið til
meðferðar:
„Stjórn Útgerðarfélags Akur-
eyi'inga h.f. hefur á fundi sínum
3. febrúar bókað og samþykkt
eftirfarandi til að senda bæjar-
stjórn Akureyrarkaupstaðar:
Fyrirsjáanlegt er að rekstur Ú.
A. muni stöðvast næstu daga
nema skjót úrlausn fáist í fjár-
hagserfiðleikum þess. Leyfir
stjórn Ú. A. því að óska eftir, að
bæjarstjórnin taki að sér að
reyna að ná samningum við lán-
ardrottna félagsins um langan
gjaldfrest á lausaskuldum og eft-
irgjafir, eftir því sem mat á eign-
um félagsins gefur tilefni til og
að Akureyrarbær veiti ábyrgð
fyrir þeim hluta, sem lánaður
verður til langs tíma, ef það
reynist nauðsynlegt. Ennfremur
að Akureyrarbær tryggi rekstur
togaranna frá 1. febrúar til fe-
brúarloka."
Bæjarstjórnin samþykkti eftir-
farandi í tilefni bréfsins:
„Bæjarstjórn samþykkir að
verða við beiðni Útgerðai'félags-
ins og felur bæjarráði að ákveða
á hvern hátt samningar verða
upp teknir við lánadrottna fé-
Bændur munu vænta sér góðs
af hinum nýja og áhugasama
dýralækni í baráttunni við bú-
fjársjúkdómana og fyrir bættum
afurðum búpenings og bjóðá
hann velkominn til starfa.
Tekjur útfiutningssjóðs 383 millj.
Til 31. desember 1957 námu
tekjur Útflutningssjóðs 363 millj.
króna og greiðslur 359 millj. kr.,
en inneign í sjóði dag þennan var
3,6 milljónir króna.
Fyrstu daga ársins innheimti
Útflutnignssjóður um 5 milljónir
Stýrimannanámskeiði lokið á Ák.
Hinn 1. okt. sl. hófst hér á Ak-
ureyri námskeið í siglingafræði á
vegum Stýrimannaskólans í
Reykjavík. Nemendur voru 15 og
luku þeir allir prófi 31. janúar sl.
Aðalkennari námskeiðsins var
Baldur Sveinbjarnarson frá
Seyðisfirði. Stundakennarar voru
Þórir Sigui'ðsson, Ragnar Stein
bergsson og Konráð Erlendsson.
Prófdómarar voru þeir Karl
Guðmundsson, kennari við Stýri-
mannaskólann, og Þorsteinn
Stefánsson, Akureyri.
Námskeið þettn veitir nemend-
um rétt til að verða stýrimenn á
fiskiskipum, allt að 120 lestum, á
fiskveiðum við strendur landsins,
en síðar rétt til skipstjórnar á
skipum af sömu stærð. Aðal-
kennari námskeiðsins hefur beðið
blaðið að færa samkennurum
sínum, prófdómurum og nem-
endum sínum, svo og öllum
þeim, sem lögðu námskeiðinu
hjálparhönd, beztu þakkir.
Nemendur voru þessir:
Aðalsteinn Baldursson, Húsavík,
Aðalsteinn Friðfinnsson, Grund-
arfirði,
Bóas Gunnarss., Vogum,S.-Þing.,
Brynjar Júlíusson, Akui’eyri,
Einar B. Einarsson, Seyðisfirði,
Garðar Björnsson, Dalvík,
Guðmundur Olafsson, Akureyri,
Jóhannes Steinsson, Olafsfirði,
Jón E. Sigurgeirsson, Dalvík,
Kristbjörn Jónsson, Akureyi'i,
Kristinn Traustason, Olafsfirði,
Kristján E. Kristjánsson, Bol-
ungavík,
Sigurðui' Þorvaldsson, Siglufirði,
Stefán B. Bragason, Akureyri,
Sverrir Traustason, Árskógsstr.
AFMÆLISBLAÐ
í næsta tölublaði minnist
Dagur 40 ára afinælis síns.
króna af tekjum ársins 1957. Enn
á Útflutningssjóðui' óinnheimtar
um 15 milljónir króna tekjui'
vegna ársins 1957, (þ. e. söluskatt
síðasta ársfjórðungs og ýmislegt
fleira). Tekjui' Útflutningssjóðs
vegna ársins 1957 verða þannig
um 383 milljónir króna.
Ógreiddar, gjaldfallnar kröfur
á Útflutningssjóð voru taldar 31.
desember 1957 um 57 milljónir
króna, eða um 34 milljónum kr.
meiri en samanlögð inneign í
sjóði dag þann og óinnheimtar
tekjur vegna áx-sins 1957.
(Frá stjói'n Útflutningssjóðs.)
lagsins og hvernig ti'yggingu fyr-
ir áfi-amhaldandi reksti’i togar-
anna, minnsta kosti yfirstandandi
mánuð, vei'ður bezt fyrir komið.
Ennfi'emur hafi bæjari'áð fullt
eftirlit með rekstri félagsins
þennan tíma, t. d. með því að fela
sérstökum trúnaðai'manni bæjai'-
stjórnar ótakmarkað umboð bæj-
ai'stjórnar til daglegs eftii-lits
með öllum rekstx-i félagsins. —
Bæjai’stjórnin telur bi'ýna nauð-
syn bera til þess, að sem allra
fyrst fáist örugg vitneskja um
hvaða ráðstafanir ríkisstjórnin
hyggst gei-a til þess að tryggja
framtíðarrekstui' Útgerðarfélags
Akureyi’inga h.f., og samþykkir
því að kjósa þriggja manna nefnd
sem vinni með þingmönnunum
Frðjóni Skarphéðinssyni og Birni
Jónssyni, að málefnum félagsins
við ríkisstjórnina."
(Framhald á 8. síðu.)
„TOMMY STEELE“
Norðurlanda og
James menn hans
skemmta í Nýja-Bíó
í kvöld
Frægasti roklt-söngvari Norð-
urlanda, James Rasmussen, sem
kallaður hefur verið „Tommy
Steele“ Nirðurlanda, heldur
hljómleika í Nýja-Bíó í kvöld á
vegum Lionsklúbbs Akureyrar.
James og James-menn hans hafa
undanfarið lialdið rokk-hljóm-
leika í Reykjavík við mjög mikla
aðsókn og lirifningu áheyrenda.
Allur ágóði af hljómleikunum
í kvöld rennur til Ekknasjóðs
Akureyrar, en Lionsklúbburiim
hefur áður safnað kr. 7290.00 til
ágóða fyrir Ekknasjóðinn.
Tannhvöss fengdamamma
Frumsýning
Frú Emilía Jónasdóttir.
í gærkveldi
Frumsýning á sjónleiknum
„Tannhvöss tengdamamma“ hef-
ur dregizt meira en ætlað var,
sökum veikinda, en var haldin í
gærkveldi í Samkomuhúsi bæj-
arins í meðferð Leikfélags Akur-
eyrai'. Fi-ú Emilía Jónasdóttir
leikur aðalhlutverkið, sem gestur
félagsins, en leikstjói'i er Guð-
mundui' Gunnai'sson.
Vegna naums tíma verður sýn-
ingum hraðað og verðui* önnur
sýning í kvöld og næstu kvöld.
Fólki er bent á að tryggja sér
aðgöngumiða í tíma. (Sími 1073.)