Dagur - 29.03.1958, Blaðsíða 7

Dagur - 29.03.1958, Blaðsíða 7
Laugardaginn 29. marz 1958. D AGUR 7 Sigrún Jóhannesdóttlr frá Espigrund r' Fáein minningarorð Sigrún Jóhannesdóttir frá Espigr Við Sigrún Jóhannesdóttir kynntumst fyrst á Grund, þar sem við vorum bæði vinnuhjú hjá þeim Magnúsi Sigurðssyni og Guðrúnu Jónsdóttur, sem var systir Önnu móður Sigrúnar. Við störfuðum að vísu sitt í hvorum verkahring, Sigrún við búið undir stjórn Guðrúnar, eg við verzlunina, undir stjórn Magnúsar. En þó að Magnús væri fyrst og fremst mikill verzlunar- maður, var hann einnig athafna- samur bóndi. Það lá því jafnan breið brú milli þessara verka- hringa og mörkin ekki skýr að ýmsu leyti. Eg var því oft í sam- verki með vinnuhjúum búsins. Eg veitti því þegar athygli, að Sigrún vann öll sín störf hljóðlát og af stakri alúð og verklagni. Aldrei heyrðist hún mögla, þótt starfið væri stundum allerfitt og ekki sem þrifalegast. Hún var gláðlynd, en gat ekki talizt kát, en þó gamansöm í sínum hóp, og næmt auga hafði hún fyrir því, se'm broslegt var í háttum og tali manna. Hún var mjög jafnlynd og sá eg hana aldrei bregða skapi. Húsmóðirin lét það venjulega falla í hennaf hlut að annast um þá heimamenn, sem urðu að liggja rúmfastir dag og dag. Það stárf leysti hún af hendi af sömu alúðinni. og önnur. Mér duldist ekki að hún hefði bæði her.dur og hjarta til að verða afbragðs hjúkrunarkona. Og það hefði hún áreiðanlega orðið, ef hún hefði lagt það fyrir sig. Þegar á barnsaldri komst Sig- rún í kynni við fátæktina og snemr/pti mun henni hafa orðið það ljóst að fátæktin var böl, sem lagði stein í götu fyrir heilbrigð- an þroska og eðlilegar þarfir. Og í huga þessarar vel gefnu stúlku hefur á ungum aldri skapast andspyrna gegn þessu böli, án þess þó að þessi tilfinning ætti sér fast form eða farvegi, og sennilega án þess hún væri sér þess fyllilega meðvitandi þá þeg- ar. En áreiðanlegt er það, að þ.essi kennd — andspyrnan gegn fátæktinni — varð einn af sterlc- ustu eðlisþáttum hennar, sem síðar varð að framkvæmd. Þegar hún fór að vinna fyrir kaupi, utan heimilis síns, lét hún það ganga til að bæta úr þörfum foreldra sinna, það sem það hrökk til. Hún vandist snemma á sparsemi og nýtni, sem fylgdi henni alla ævi síðan. Sigi'ún var sönghneigð og Ijóð- elsk, og sá er grunur minn að hún hafi verið nokkuð hagmælt, enda ekki langt að sækja það, þar sem faðir hennar, Jóhannes Þórðarson, var prýðilega hag- mæltur. En ekki flíkaði Sigrún því. Þó hafði eg einu sinni undir höndum greinarkorn eftir hana, sem kom út í blaði okkar ung- mennafél., og var nánast einkar Vorið snoturt ljóð í óbundnu máli. Sig- rún hafði þýða og blæfagra söng- rödd, sem fór mjög vel í samsöng. Sigrún var að öllu eðli sínu kynborið barn sveitarinnar. Hún unni einlæglega gróinni jörð og grænum haga. Henni þótti vænt um húsdýrin og gerði allt, sem hún gat til að þeim liði sem bezt. í gveitinni stóðu rætur eðlis hennar og athafna djúpt í jörð. Þar undi hún hag sínum bezt í samfélagi við gróður og húsdýr, og gat ekki hugsað til að slíta sig þaðan. Hún þráði að eiga sjálf yfir að ráða jörð og áhöfn. Sá draumur hennar rættist nokkru eftir að hún giftist eftirlifandi manni sínum, Jóni Kirstjánssyni kennara. Þá fengu þau ábúð á jörð í átthögunum. Þar gat hún hlynnt að gróðri og málleysingj- um með sinni mjúku og hlýju hjúkrunarhönd. Og síðasta hand- takið hennar var að hlynna að húsdýrunum sínum. í minningum mínum um Sig- rúnu ríkir hlýhugur og þakklæti til hennar fyrir alla okkar sam- veru og öll handtökin hennar á búi okkar hjóna á Grund, og ekki sízt fyrir alúðina og vinarþelið, sem hún bar ávallt til dætra okkar. Eg sendi eftirlifandi eigin- manni hennar hugheilar samúð- arkveðjur, sem nú í annað sinn er sviptur ástríkum lífsförunaut. Megi ævikvöld hans verða sem bjartast og hlýjast. Hólmgeir Þorsteinsson. NÝJA-BÍÓ h-Vðgöngumiðasala opin kl. 7—9.: Um helgina: Fj ormemiinganur iMjög spennandi ameríski stórmynd frá villta vestrinu. Aðalhlutverk: JOHN HODIAK og JOHN DEREK Næsta mynd: ALLT Á FLOTI Amerísk söngva- og gaman- mynd í litum. Aðalhlutverk: ESTER WILLIAMS FERNANDO LAMAS ogJACK CARSON 20, 30 og 40 lítra. VORTÐ, 1. hefti þessa árs, er ný- komið út og er að vanda fjölbreytt að efni og góður lestur. Þetta hefti ltefst á „Veðmálinu" eftir Frímann Jónasson, þá er frá- sögnin „Drengur eða telpa“, þýdd af Helga Valtýssyni, leikþátturinn „Pétur heimski og prinsessan" í þýðingu H. J. M., og „Skór kon- ungsins", þýtt af sarna, framhalds- sagan „Börnin við járnbrautina“ og margt fleira til skemmtunar og fróð- leiks. - íngólfur Davíðsson (Framhald af 8. síðu.) 40—70% meira í geymslu, vegna hýðisskemmdanna. Hér á landi eru kartöflur sjaldan fullþrosk- aðar við upptöku. Hýðið er þá mjög viðkvæmt fyrst í stað. En það þykknar og styrkist eftir nokkra geymslu á sæmilega hlýj- um stað á haustin. Eftir það þola þær betur flutning og þurfa að komast í svala vetrargeymslu. Við áttum eitt sinn doktor í gróðurfræðum. Sá varði með sóma doktorsritgerð um hunda- súrur, en er nú háskólakennari vestan hafs. Hollenzkir eiga tvo gulrótardoktora. Hvenær megum við vænta þess að efnilegir, ungir menn velji sér rannsókna- og doktorsritgerðaefni um einhver atriði, í t. d. kartöflu- eða kál- rækt? Véla- og búsáhaldadeild - Nautgriparæktin (Framhald af 5. síðu.) —140 gripir alls, þar meðtalin allmörg naut, sem lánuð eru út um sveitir. Verið er að þyggja stórt og myndarlegt fjós að Lundi, ásamt áburðar- og heygeymslum. Þeg ar það er fullgert, er ætlunin að færa starfsemina frá Grísabóli að Lundi og Rangárvöllum. Búfjár- ræktarstöð kostar mikið fé, en gefur lítið í aðra hönd í beinum -tekjum. Enn munu þeir bændur til, sem telja því fé á glæ kastáp, sem til hennar er varið. En ef lit- ið er á þann glæsilega árangur, sem þegar hefur náðst, þurfa bændur ekki að barma sér. Kýrnar á sambandssvæði SNE standa nú líklega fremst á landi hér um mjólkurmagn og afurða- getu. Fyrsta og stærsta takmark- ið er að halda þeim árangri, sem þegar hefur náðst, og er það út af fyrir sig mjög' þýðingarmilcið. t öðru lagi munu menn vilja ná lengra og verður það ekki gert á annan hátt en með fullkominni rannsókn, eins og hægt er að gera á búfjárræktarstöð, og verður væntanlega gei't. Þeir, sem ekki vilja vera. með í slíku félagsstarfi, hljóta að forpokast í þessari atvinnugrein og er það ekki samboðið eyfirzkum bænd- um. Fyrstu stjórn SNE skipuðu: Halldór Guðlaugsson, Jónas Kristjánsson og Björn Jóhanns- son. Nú er stjórnin þannig skip- uð: Jónas Kristjánsson, Jón G. Guðmann og Kristinn Sigmunds- son. Sá síðastnefndi var kosinn í stjórnina í stað Halldórs Guð- laugssonar, sem setið hafði þar frá upphafi. — RD. Sameiginlegar páskasamkomur verða haldnar í Nýja-Bíó, eins og undanfarin ár, á föstudaginn langa og páskadag kl. 4.30 e. h. — Mikill söngur og hljóðfæraslátt- •. — Verið velkomin á þessar samkomur. Börn innan 8 ára verða að vera í fylgd með full- orðnum. — Fíladelfía, Hjálpræð- isherinn, S j ónarhæðarsöf nuður- inn. Fíladelfía, Lundargötu 12. — Páskasamkomur okkar verða þannig: Skírdag: Almenn sam- koma k. 8.30 e. h. — Föstudaginn langa: Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. — Páskadag: Almenn sam- koma kl. 8.30 e. h. — 2. páskadag: Almenn samkoma kl. 8.30 e. h. — Söngur með guitarundirleik. — Allir hjartanlega velkomnir. Hjálpræðisherinn. Pálmasunnu- dag kl. 14: Sunnudagaskóli. Al- menn samkoma kl. 20.30. — Mánudaginn 31. marz kl. 17: Heimilissambandið. Kl. 20.30: Æskulýðssamkoma. — Skírdag kl. 20.30: Almenn samkoma. — Föstudaginn langa kl. 20.30: Al- menn samkoma. — Á páskadags- morgun kl. 8: Upprisufagnaðar- samkoma. Kl. 20.30: Hátíðarsam- koma. Kl. 14: Sunnudagaskóli. — 2. páskadag kl. 20.30: Almenn samkoma. — Verið hjartanlega velkomin á samkomurnar. Dagur fæst keyptur í Sölu- turninum, Hverfisgötu 1, Rvík. Dánardægur. Maron Sölvason, Ránargötu 26, varð bráðkvaddur á miðvikudaginn var. Hann verð- ur jarðsunginn frá Akureyi-ar- kirkju 2. apríl. Kirkjan. Messað i Akureyrar- kiréju n.k. sunnudag (pálma- sunnudag) kl. 2 e. h. — Þessir sálmar verað sungnir: 25 — 202 — 142 — 144 — 203. 'Eftir messu verður tekið ó mótii .gjöfum til íslenzkra kristniboðsins í Konsó. K. R. Skíðamót. Innanfélags- 1mót í svigi og stökki fyrir drengi, 7—15 ára, fer fram við Miðhúsa- klappir sunnudaginn 30. marz. Einnig fer fram keppni í svigi stúlkna, sömu aldursflokk- um. — Farið verður frá sund- lauginni kl. 10 f. h. Kristján Geirmundsson taxi- dermist mun skrifa nokkra þætti um fugla hér í blaðið, sérstaklega farfuglana, er senn koma. Birtist fyrsti þátturinn í blaðinu í dag. Ást og ofurefli. Síðasta sýning er annað kvöld kl. 8. Aðgöngu- miðasími 1073. Notið síðasta tækifærið! Leiðrétting. í síðasta blaði var sagt að „Gamli Gullfaxi“ væri elzta flugvél loftflotans. Það er ekki rétt og átti að vera „sú flugvél íslendinga, sem lengst hefur verið í millilandaflugi". Karlakór Akureyrar hefur árs- hátíð sína í Alþýðuhúsinu 2. apríl næstk., eins og auglýst er í blaðinu í dag. Kórfélagar taki miða sína á sunnudaginn kl. 5—7. Dýralæknar. Helgidagavakt um helgina og næturvakt sæstu viku: Ágúst Þorleifsson, sími 2462. Bazar. — Verkakvennafélagið Eining hefur bazar í Verkalýðs- húsinu á pálmasunnudag (30. marz) kl. 4 e. h. (Framhald af 1. síðu.) nú þegar af þeim nokkra reynslu. Ennfremui' hefur Kaupfélag Ey- firðngna notað Ferguson-drátt- arvél á hálfbeltum til vöruflutn- inga innanbæjar, þegar mest var ótíðin og bílar komu ekki að fullum notum. Hvernig reynast beltin? Ásgrímur bóndi svarar því svo, að hann hafi þegar farið töluvert á dróttarvél sinni með hinum nýju heilbeltum og reynist þau fullkomlega eins vel og vonir stóðu til. En beltin þurfi að strengja mjög vel. Þau kostuðu yfir 15 þús. krónur. Hann segist ennfremur hafa dregið sleða með þrem tonnum' af þungavöru með beltavélinni, en sleðinn hafi þó verið óhentugur og ætlaður jarð- ýtum. Ásgrími reynist bezt að aka utan slóða og troðninga og troða sína braut sjálfur. í Oxnadal var aldrei rutt snjó af vegum í vetur, og þar hefur alltaf verið fært dráttarvélum og oft jeppum. Stefán Kristjánsson, Nesi, sem r.otað hefur beltavél Skógrækt- arinnar á Vöglum, hefur farið nokkrum sinnum yfir Vaðlaheiði og gengið vel. Jeppar hafa síðan getað farið yfir heiðina í slóð- inni. Hann segir að Ferguson á slíkum beltum^ muni komast leiðar sinnar í öllum venjulegum srijó. Þær muni líka geta dregið þung æki á hentugum sleðum. Hann gat þess einnig, að sérstak- lega gerðir dráttarkrókar, sem mjög væru notaðir í Noregi, bæði við vagna og sleða, auðvelduðu rnjög notkun vélanna. Ferguson- dráttarvélar á snjóbeltum gætu dregið 5—8 tonn á hentugum sleða, að því þar væri talið. Hér mundi reynslan einnig verða svipuð við. sömu aðstæður. — Beltadráttarvélarnai' ausa snjó yfir sig og ökumanninn í keyrslu. Hlífar eru því nauðsynlegar og e. t. v. létt hús, ef ferðast er í hörkuveðrum. Beltadráttarvélar eða snjóbílar? Reynsla sú af hinum norsku snjóbeltum og þingeysku snjóbíl- anna, ætti að forða Norðlending- um frá því að daga uppi eins og tröll. Fyrir næsta vetur verður að endurskoða flutningatækin, fá þau beztu, sem völ er á, en afskrá þau gömlu. Þitt land er mitt land (Fi-amhald af 2. síðu.) inn okkar Terrys hrundi til grunna. Það var of seint. Skilaboð Roosevelts voru af- hent þann 6. desember. Fimm ár- um seinna sagði keisarinn sjálfur Terry, að hefði skeytið komið einum degi fyrr, þá hefði hann bæði getað komið í veg fyrir árásina á Pearl Harbor og gert það. (Framhald.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.