Dagur - 26.04.1958, Qupperneq 8
8
Bagxjb
Laugardaginn 2G. apríl 1958
Viðtal við Þorstein Einarsson, íþróttafulltrúa:
íþróttir sumar o
Þorsteinn Einarsson, íþróttafulltrúi ríkisins, var lrér á ferð
fyrir sl. mánaðamót og greip blaðið tækifærið til að leggja
fyrir hann nokkrar spurningar og ræða við hann um íþrótta-
málin á Norðurlandi.
Hvert var einkum tilefni komu
þinnar norður?
För mín hingað noi'ður varðaði
ýmiss konar verkefni hér á Ak-
ureyri, Húsavík og frammi í
Eyjafirði. Eitt erinda minna var
að sitja ársþing íþróttabandalags
Akureyrar, en fyrri þingdagur
þess var miðvikudagurinn 26.
marz sl. Það er ávallt lífrænt að
sitja þessi ársþing héraðssam-
bandanna eða íþróttabandalag-
anna.
Viltu fræða okkur eitthvað um
íþróttasambönd og íþróttahéruð?
Eins og kunnugt er eru þessi
sambönd samtök þeirra félaga,
sem vinna að íþróttum í hverju
íþróttahéraði. Samkvæmt íþrótta
lögum frá 1940 var landinu skipt
í 28 íþróttahéruð. íþróttahéruðin
eru misstór, t. d. eru Múlasýsi-
urnar báðar, ásamt Neskaupstað
og Seyðisfirði, eitt hérað (ÚÍA)
og Ólafsfjarðarkaupstaður ásamt
sveitinni annað. Hér á Akureyri
mynda 6 félög íþróttabandalagið.
Félagafjöldi er um 1100, og eru
þar af um 300 konur. Þar sem
bæjarfélagið veitir þessum sam-
tökum málefnalegan og fjárhags-
iegan stuðning, þá er bezta kvitt-
un félagssamtakanna til bæjar-
íélagsins sú, að þau dragi upp
nokkra mynd af starfi sínu í þágu
æskulýðs bæjarins, og íþróttafé-
lögin sex hafa á liðnu starfsári
gengist fyrir iðkun 12 íþrótta-
greina af þeim 17, sem nú eru
iðkaðar hérlendis og hefur iðk-
endafjöldinn verið sá, að hann
nemur því, að um 1600 manns,
þar af 400 konur, hefðu iðkað
eina og sömu íþróttagrein. Sam-
svarandi tala fyrir starfsárið
1956 var um 1000. Mun tilkoma
innilaugarinnar og bættrar að-
stöðu við útilaug, svo og þýzki
knattspyrnuþjálfarinn, eiga höf-
uðþáttinn að þessari aukningu.
Hvaða íþrótt finnst athyglis-
verðust hér?
Athyglisverðust er iðkun
sk a utaíþróttarinnar. Skautaf élag
Akureyrar er eina íslenzka fé-
lagið, sem gengst fyrir verulegri
iðkun skautahlaups og ísknatt-
leikjar. Notuðu íþróttamenn ann
arra byggða sér eins vel þau
svellalög, sem náttúran bíður
upp á eða ynnu að skautasvæð-
um, þá myndi þessi ágæta vetr-
aríþrótt skipa verðugan sess með
þjóð, sem býr við heimskauts-
baug. Er það ekki fordæmi gott,
að leita upp til fjallavatna þegar
í september? Því ekki að heim-
sækja fjöll og heiðar meðskauta-
iðkanir eins og skíðaíþróttir? —
Ferð þeirra skautamannanna til
Noregs er gott dæmi um
íþróttamennsku og frammistöðu
þeirra félaga á alþjóðlegu
skautamóti í Lille-Hammer var
góð, og frábær var fæmi Björns
Maldurssonar í Þrándheimi, þar
sem hann hlaut viðurkenningu
fi'á hendi hins fræga skauta-
hiaupara Hjalmars Andersen.
Þegar eru áhrif hinnar bættu
sundaðstöðu komin fram. Tímar
Birgis Þórissonar sýna þessi áhrif
bezt.
Knaitspyrnan?
Þó að 1. flokks lið ÍBA hafi
fallið úr 1. deildarkeppninni á sl.
ári, þá bætti sigur 3. flokks gegn
3. fl. íþróttabandalags Akraness,
sem eru íslandsmeistarar, upp
þetta tap. Val Ragnars Sig-
tryggssonar í landslið í heims-
meistarakeppni, svo og val Jak-
obs Jakobssonai' í pressulið, og
að hann fór sem lánsmaður í
Færeyjaför með Knattspyrnufél.
Reyni í Sandgerði, sýna að á
Akureyri alast upp góðir knatt-
spyrnumenn.
Róður?
Róður er stundaður sem íþrótt
aðeins í Reykjavík og á Akur-
eyri, en Akureyri ei' eini staður-
inn, sem á konur sem róðraiðk-
endur. Til þess að fullkomið
samræmi fáist í róðurinn hér og
i Reykjavík, þurfa ráðrariðkend-
ur á Akureyri að eignast viður- ;
kennda kappróðrarbáta af sömu
gerð og Reykvíkingar róa.
Handknattleikur?
Handknattleikur kvenna er
góður. Heimboð stúlknanna frá
Sandavogi í Færeyjum var Akur-
eyri til sóma, Frammistaða Ak-
ureyrarstúlknanna á Meistara-
móti íslands í utanhússhand-
knattleik á Sauðárkróki sl. sum-
ar var góð, er þær náðu 3. sæti
meðal 7 liða.
Mikilsvert er fyrir íþróttalíf
landsmanna, að á Akureyri séu
virkir íþróttamenn ,sem nýta þá
íþróttaaðstöðu, sem fengist hefur
á Akureyri með sundlauginni,
íþróttahúsinu og leikvanginum.
Þegar áhorfendasvæði, ásamt
búningsherbergjum liafa verið
reist við leikvanginn, skíða-
hótelið í Illíðarfjalli fullsmíð-
að, þá býr Akureyri að ein-
liverri þeirri beztu aðstöðu,
sem til er á íslandi nú til
íþróttaiðkana, að sumar- sem
vetrarlági.
Fram að því, að Jón Þorsteins-
son reisti íþróttahús sitt í Reykja
vík, þá voru það skólar landsins,
sem veittu íþróttafélögunum að-
stöðu til innanhúss íþróttaiðk-
ana. Hér á Akureyri er aðstaðan
enn á vegum skólanna, eða rétt-
ara sagt salir þeir, sem til eru,
hafa verið miðaðir við, hvað
stæi'ð snertir, iðkun skólaíþrótta.
Nú er þetta að breytast í sumum
ísl. kaupstöðum. Ráðagerðii' eru
uppi um að reisa íþróttahús, sem
hafa sali að gólfleti allt að 20x40
m., en búnir þeim útbúnaði að
skipta má salnum þvert í tvo
sali. Svíar, sem frá því 1939, í 11
ár, byggðu enga leikfimisali,
reisa nú slík íþróttahús, sem geta
svarað þörf skóla, íþróttafélaga
og' almennings. Slíkt íþróttahús
er nú afráðið að reisa í Hafnar-
firði. Hefur Alþingi samþykkt
fjárframlög til þessa húss, að því
marki er samgilti því fé, sem Al-
þingi þyrfti að veita í skóla-leik-
fimisal við Flensborg.
Nýtt íþróttahús.
Vegna þess, að nú eru salirnir
tveir í íþróttahúsi Akureyrar
orðnir ónógir barnaskóla og
gagnfræðaskóla, svo að rætt er
um byggingu salar við barna-
skólann á Oddeyri, sem gæti
leyst þarfir þess skóla og Gler-
árþorps, þá hefur þótt rétt að
athuga, hvort eigi sé rétt að
hætta við að reisa þriðja salinn
við íþróttahúsið og sameina
þarfir skólanna í Glerárþorpi og
á Oddeyri, svo og íþróttafélag-
anna og almennings, í einn stór-
an sal, sem má tvískipta með
færanlegum vegg, og reisa hann,
ásamt nauðsynlegum húsakynn-
um, norðan við íþróttavöllinn við
Klappirnar.
Myndi við þetta sparast mikil
fjárfesting og myndast aðstaða til
íþróttaiðkana skóla, félaga og
almennings, og það fyrir langa
framtíð. Jafnvel gætu þarfir ann-
arra þátta í bæjarlífi Akureyrar
leystzt með slíku húsi.
Málefni þetta kom til meðferð-
ar á þingi ÍBA, en enn er það á
byrjunarstigi. Málið hefur verið
kynnt skólastjórum barnaskól-
anna, fræðsluráði Akureyrar,
vallarnefnd og bæjarstjóra. Mun
það brátt verða lagt fyrir bæjar-
ráð.
Heildarslarf íþróttafélaganna?
Áður en eg hætti að ræða um
störf íþróttafélaganna að íþrótta-
riiálum, þá þykir mér rétt að
draga upp mynd af starfi þeirra
í tölum. Á árinu hafa félögin
greitt fyrir 315 keypt kennslu-
dagsverk (7 st.), en í-þegnskap-
arvinnu munu einstakir áhuga-
menn hafa innt af höndum um
150 kennsludagsverk. Munu
kennarar og leiðbeinendur hafa
verið alls rúml. 30. Stó.r ,,skóli“,
sem hefur 1600 nemendur, 12
námsgreinar og um 30 kennara.
Til viðbótar þessu koma svo
stjórnar- og nefndastörf, móta-
g vetiir
undirbúningur og framkvæmd
móta og keppnisferðalög.
Myndi eigi svipur bæjarlífsins
verða tilkomuminni, ef eigi nyti
rekstrar þessa „skóla“? Um 6
tugir ára eru síðan hann var
stofnsettur hér á Akureyri, 1906,
og 1907 bárust áhrif hans um allt
land, þá voru íþróttagreinar hans
glíma, leikfimi og sund. Nú er
glíman horfin úr „skólanum“, og
eitt félaganna lét iðka leikfimi
1957 og voru iðkendur 17. At-
hyglisverð eru þessi breyttu
viðhorf og vildi eg óska þess, að
íþróttafélögunum á Akureyri
tækist að efla leikfimina og end-
urvekja glímuiðkanir. Nú, þegar
rætt er um á Alþingi, að fela rík-
isstjórninni að láta framkvæma
glímukennslu í öllum skólum, og
segjum svo að slíkt tækist, þá
væri eigi vanzalaust að íþrótta-
Þann 5. apríl sl. áttu tvíbura- |
bræðurnir frá Mýri í Bárðardal,
þeir Páll Helgi og Jón Jónssynir,
fimmtugsafmæli.
Páll H. Jónsson hefur lengi
verið kennari á Laugum í Reykja
dal. Hann hefur haldið merki
söngsins hátt á lofti í Þingeyjar-
sýslu, verið söngkennari við hér-
aðsskólann og húsmæðraskólann
á menntasetri sýslunnar, for-
söngvari í kirkju sveitarinnar,
form. í söngfélagasamtökum hér-
aðsins og stjórnandi Karlakórs
Reykdæla um langt árabil. Hann
hefur unnið ómetanlegt starf í
þessum þáttum menningarmála,
af því að hann ann þeim og vinn-
ur að þeim af heilum liug. Auk
þess hefur hann gefið sig að
skáldskap og fleiri fögrum list-
um. Kona Páls er Rannveig
Kristjánsdóttir frá Fremstafelli í
Kinn og eiga þau 5 börn. Og þeg-
ar hún kemur mér í hug verð eg
að gæta tungu minnar. Hún er
mér kærust kvenna í Reykjadal,
síðan það bar við fyrir svo löngu,
að ekkert okkar var þá farið að
hugsa um þrítugsafmæli, hvað þá
meir, að hún barg dreng frá
drukknun með snafræði. Tilvilj-
un gat hafa ráðið því, að hún var
og ungmennafélögin létu eigi
íþróttaiðkendur sína æfa glímu.
Sundlaugin.
Árið 1957 er fyrsta heila árið,
sem Sundlaug Akureyrar er rek-
in í hinu endurbætta formi. —■
Umgengni á sundstaðnum er með
ágætum, enda starfsfólkið mjög
samhent um að viðhalda þar vist
leika. Af heildarreikningi og
ársskýrslu um rekstur Sundlaug-
ar Akureyrar má lesa þennan
fróðleik.
Heildarreksturskostnaður 485.5
þús. kr. Rekstursstundir 3895 og
því reksturskostnaður á stund kr.
124.64.
Vegna afnota skóla eiga að
greiðast úr bæjarsjóði og ríkis-
sjóði 189 þús. kr.
Baðgestir í 2502 almennings-
tímum urðu 58163 eða 23 að með-
altali á rekstursst. Hefðu þeir átt
að greiða allan kostnað að fullu
hefði hver þurft að greiða að
meðaltali kr. 4.83, en þeir
greiddu að meðaltali kr. 2.53, svo-
(Framhald á 7. síðu.)
þarna nærstödd, en hitt ekki, hve
skjótt og giftusamlega hún brá
við á hættustund og fráleitt var
það tilviljun, að eg átti snáðann.
Eg mundi síðastur manna mæla á.
móti því, að Páll sé vel giftur.
Jón, hinn tvíburabróðirinn, er
bóndi að Fremstafelli í Kinn og á
fyrir konu Friðriku systur Rann-
veigar. Þau eiga 5 börn. Þeir
bræður, Jón og Páll, eru um
margt líkir og vel gerðir menn
báðir, mótaðir af þeim kjarna.
landsins og mannfólksins, sem
vex upp við rætui' öræfanna. En.
störf þeirra sýnast ólík. Jón yrk-
ir jörðina og á flest sín ljóð skráð
þar. Hann handleikur plóginn, en.
bróðir hans tónkvíslina, og víst
er munurinn mikill. En fjarri sé
það mér að dæma þar á milli. Hn.
trúlegt má þó telja, að ef söngur-
inn nær til hæða, muni ilmur
jarðai' einnig berast þangað.
Af margra ára samstarfi við
Pál á Laugum, og lítil en góð
kynni af Jóni á Fremstafelli, veit
eg, að báðir em þeir bræður
traustir og góðir samferðamenn,
og þá ótrauðastir til allra dáða,
þegai' góðum málum liggur
mést á. E. Ð.
Fimmtugi r bræður
Í1 S
Jón Jónsson. Páll H. Jónsson.