Dagur - 21.05.1958, Blaðsíða 1

Dagur - 21.05.1958, Blaðsíða 1
Fylgizt með því, sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kemur nœst út fimmtu- daginn 29. maí. XLI. árg. Akureyri, miðvikudaginn 21. maí 1958 28. tbl. íþróttaheimsóknir um næsfu helgi Um næstu hclgi verður mikið um að vera á sviði íþrótt- anna hér í bænum. Flugfélagið annast margs konar flutninga eins og þessi mynd sýnir. — (Ljósmynd: Sn. Snorrason.) m Tugþúsuncla sparnaður fyrir bændur - Vöntun varahluta til landbúnaðarvéla ískyggileg ðndmu Nýlega er lokið dráttarvéla- námskeiði Búnaðarsamb. Eyja- fjai’ðar í Grenivík. Þar voru 20 vélar teknar upp og yfirfai’nar, undir handleiðslu í’áðunauts sambandsins, Ei'iks Eylands vél- fræðings, sem stjórnaði þessu námskeiði og öðrum hliðstæðum, er haldin hafa vei’ið hjá B. E. í vetur og voi’. Fyrsta námskeiðið hófst í Dal- vík í nóvember í haust og voi’u þar um 30 heimilisdráttarvélar teknar til viðgei’ðar. Næsta nám- skeið var í húsakynnum Búnað- ai’sambandsins á Akureyri. En minna varð úr því en skyldi vegna þess að samgönguei’fið- leikar skullu á og gei’ðu mönnum ókleyft að koma vélunum til bæjai’ins og í annan stað torveld- uðu þeir bændum að fara að heiman. Sparar bændum tugþúsundir. Ekki fer það milli mála, að dráttarvélanámskeiðin spara bændum tugi þúsunda í við- haldskostnaði véla sinna í heild. Byggist það auðvitað fyi'st og fi-emst á því, að þeir framkvæma sjálfir þá vinnu, sem annars yiði að kaupa á viðgerðarvérkstæð- um, Hagnaðuiinn er þó miklu meiri, því að bændui’nir, eða menn þeirra, kynnast vélunum að verulegu leyti á námskeiðun- um, og er það meðal annars und- irstaða þess að sæmilega vel og skynsamlega sé með þær farið í vinnu og hirðingu. Þetta er því stórfellt fjárhagsatriði og drátt- arvélanámskeiðin eitt hið þarf- asta, sem búnaðarsamtökin vinna að. Eyfirðingar eru líka svo vel settir um þessar mundir að hafa mjög hæfan og duglegan í’áðu- naut, þar sem Erik Eylands er. Nokkuð bar á því í vetur að vai’ahluti vantaði til vélanna, svo að ekk ivar hægt að standsetja að ekki var hægt að standsetja Vöntun varalilutanna. En einmitt þetta atriði er hið skuggalegasta um þessa mundir. Varahlutavöntun til búvéla yfir- liett er sva alvai’leg að trauðla verður úr því bætt í svo skjóti’i svipan, að hinn mikli vélakostur komi að fullum notum nú í sum- ar. Hér mætti telja upp margs konar varahluti í dráttarvélar og landbúnaðarverkfæi’i, sem hvergi fást í landinu. Þai’f ekki að lýsa því hver áhrif þetta hefur á fi’amleiðslustöi’fin. Hið venjulega svar við vöntun varahlutanna er gjaldeyi’isskortui’. — íslendingar hafa löngum búið við gjaldeyris- skort og er það fráleitt nýtt fyr- irbæii. En vegna gjaldeyrisvönt- unar í fjölda ára hefði mönnum átt að læi’ast meiri hagsýni í inn- flutningi véla yfirleitt. Fi'áleitt er það búmannlegt að flytja inn þann sæg vélategunda á svo að segja öllum sviðum vélvæðingar- innar til sjávar og sveita, sem raun ber vitni, og vitandi það, hvert gífui’legt fjái’magn liggur í þeim varahlutalagerum, sem hveri'i tegund verður að fylgja. Nú, á þessum tímum, sýnist viturlegra að flytja inn varahluti í stað nýrra véla, ef hvort tveggja er ekki gjörlegt. F egurðarsamkeppnin undirbúin Hin árlega fcgi»rðarsamkeppni kvenna mun fara fram í næsta mánuði og er undirbúningur þegar hafinn. Þessi keppni, hvað sem annai's er um hana að segja, vekur að vonum athygli, því að liin íslenzka fegurðardrottning mun nú sem fyrr einnig taka þátt í alþjóðlegri fegui’ðai'sarnkeppni, Miss Unuiverse, Miss Woi’ld og Miss Europe. Oft bíður fegurðar- dísanna frami og ágæt atvinna, auk ævintýra. „Ungfrú ísland fær ,góð vei’ðlaun eins og tíðkast hefur að undanföi’nu. Nú er augum rennt til fagux-ra kvenr.a venju fremur og virðist áhugi almennings fara vaxandi fyi’ir hinum nýja sið að meta konur til frægðar og vei’ðlauna. Væntanlegir þátttakendur eiga að vei’a á aldrinum 17—28 óra og koma einungis ógiftar konur til greina. Auglýst hefur verið eftir ábendingum um fagrar, ógiftar konur á þessum aldri, sendum í pósthólf .868 eða síma 19271, Reykjavík. DACUR kemur næst út fimmtudag inn 29. maí. Á 2. í hvítasunnu kl. 4 fer fram víðavangshlaup, sem er hluti Meistaramóts fslands í frjáls- íþróttum, og verða þar meðal keppenda margir af beztu þol- hlaupurum landsins. — Hlaupið vei’ður á íþróttavellinum og verður keppni hagað þannig, að Guðmundur líarl heiðraður Síðastl. miðvikudagskvöld var afhjúpuð í Fjórðungssjúkrahús- irxu brjóstmynd af Guðmundi Karli Péturssyni yfirlækni, sem stjórn sjúkrahússins hefur látið gei’a. Viðstaddir athöfnina voru stjórn sjúkrahússins, læknar og fleira starfsfólk sjúkrahússins, héraðslæknir og fleiri. Jónas Jakobsson, myndhöggv- ari, gei'ði brjóstmyndiná, sem er úr gifsi, en verðui’ síðar steypt í eir. Meistaramót í frjálsum íþróttum 1958 Meistaramótin í frjálsum íþróttum 1958, munu fara fram sem hér segir: Víðavangshlaup Meistaramóts fslands fer fram 26. maí á vegum íþi’óttabandalags Akux'eyrar. Drengjameistaramótið 7.—8. júní á veguh Frjálsíþróttaráðs Reykjavíkui’. Unglingameistai’amótið og Kvennameistai’amótið 28,—30. júní, bæði á vegum íþrótta- bandalags Akureyrar. Tugþraut, 10 km. hlaup, 4x800 m. boðhlaaup, fara fi’am 10,—11. júlí og aðalhluti Meistaramóts fs- lands 26.—28. júlí á vegum Fi’jáls íþróttasambands íslands (FRÍ) í Reykjavík. Sveinameistai’amótið 31. ágúst á vegum frjálsíþróttaráðs Rvíkur. r Ulför llaulvs Snorra- sonar ritstjóra var gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík sl. mánudag að viðstöddu fjölmenni. — Meðal viðstaddra var forseti Islands, forsætisráðherra og fleiri virð ingarmenn. Séra Sveinn Vík- ingur jarðsöng. Jarðarförinni var (itvarpað. Nokkrir vinir og samstarfs- menn Hauks Snorrasonar minnast hans lxér í blaðinu í dag. áhoi’fendur sjá sem mest af hlaupinu. Fyx-st er hlaupið 2 hringi á vellinum, síðan stói’an sveig norður á Gleráreyrar og endar síðan aftur á íþróttavellin- um. Strax að hlaupinu loknu hefst á vellinum handknattleiks- keppni milli Ármanns úrReykja- vík og Akureyringa. Á laugai’dag vei’ður keppni í köi’fuknattleik milli ÍR og Akureyrarfélaganna, keppt vei’ður í íþi’óttahúsinu. Karlakór Akureyrar Samsöngur Karlakórs Akur- eyi’ai’, sem haldinn var í Nýja- Bíó á Akureyri á uppstigningar- dag og endurtekinn sl. laugai’dag, var mjög vel sóttur og ágætlega tekið. Kórinn er í mjög góðri æfingu og var söngur hans fágaður og samstilltur. Stjói’nandi kórsins er Áskell Jónsson og einsöngvarar þeír Jóhann og Jósteinn Kon- ráðssynir og Eiríkur Stefánsson. Undii’leik annaðist Guðrún Ki'istinsdóttir. Karlakór Akureyrar fer í söngför til Suðurlands í byi’jun næsta mánaðar og fylgja honum óskir um fai’ai’heill. Kosningar til Búnaðar- þings Eins og áður hefur vei’ið getið, komu fi’am tveir listar til Búnað- ai’þingskosninga á aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjai'ðar í vetur. Var annar listinn borinn fi’am af meiri hluta fulltrúa fundai-ins og skipa hann þessir bændur. — B-listi: 1. Ketill Guðjónsson, Finna- stöðum. 2. Gai’ðar Halldórsson, Rifkels- stöðum. 3. Helgi Símonai’son, Þverá. 4. Sigui’jón Steinsson, Þór- oddsstöðum. Hinn listinn var borinn fram af 40 meðmælendum og skipa hann þessir menn. — D-listi: 1. Árni Jónsson, Háteigi. 2. Árni Ásbjai’nai-son, Kaup- angi. 3. Eggert Davíðsson, Möðru- völlum. 4. Jón Gíslason, Hofi. Ákveðið hefur vei'ið að kosn- ingai’nar fari fram sunnudaginn 29. júlí n.k., eða sama daginn og sveitastjórnarkosningarnai’. Kjósa ó tvo Búnaðai’þingsfull- trúa og tvo til vara fyrir næsta kjöi’tímabil. Undanfai’in fjögur ár hafa þeir Ketill Guðjónsson og Gai’ðar Halldói’sson setið á Bún- aðai’þingi fyrir Búnaðarsamband Eyjafjarðar.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.