Dagur - 21.05.1958, Blaðsíða 7
Miðvikviclaginn 21. maí 1958
D A G U R
7
ííankur Snorrason ritstjóri
(Framhald af 5. síðu.)
Þegar mér barst til eyrna and-
lát vinar míns, HauksSnorrason-
ar, flaug mér í buga niðurlag á
kvæði Gríms Thomsens um Egg-
ert Ólafsson: „Vandi er að skilja
lífsins herra.“
Við Haukur vorum um skeið
samverkamenn við blaðið Dag.
Eg get skröklaust vottað það, að
ánægjulegri og geðþekkari
starfsfélaga hef eg ekki eignast
fyrr né síðar.
Eg var kominn á efri ár, ellin
tekin að þjarma að mér og
heilsubrestur farinn að gera vart
við sig, en hann ungur og upp-
rennandi maður. Óskaði eg þá
einskis framar en að hann mætti
taka til fulls við störfum mínum
við Dág, enda varð sú raunin á.
Með okkur tókst svo haldgóð
vinátta, að'aldrei bar skligga á.
tfaukui' sendi mér vinarkveðju,
þegar eg var hálfníræður nýlega.
En örskömmu síðar var hann
burtkallaður úr þessum heimi frá
mikilvægum störfum og fannst
mér þá enn sannast, „að vandi er
að skilja lífsins herra.“
Nú sendi eg honum mína
hinztu kveðju og segi: Guð fylgi
þér, ljúfi vinur, á ókunna land-
inu og styrki ástvini þína, ekkju
og börn, systkini og aldraðan
föðúr.
Ingimar Eydal.
Haukur dáinn. — Óvænt og
átakanleg fregn. — Eg hef misst
einn úr hópi allra kærustu og
minnisstæðustu' vina minna og
félaga, bæði fyrr og síðar. Naum-
ast getur þó sá persónulegi miss-
ir minn kallast saga til næsta
bæjar, svo algeng og hversdags-
leg . sem sú saga er, enda má
maður manni segja þvílík tíðindi
harla oft og harla víða á lífsleið-
inni. Og hversu smávægilegur og
hraðfleygur hlýtur þó söknuður
minn og sorg að kallast, þrótt
fyrir allt, ef borið skyldi saman
við það reiðarslag harms og
kvíða, sem dunið hefur svo
skyndilega og óvænt yfir nán-
ustu ástvini og aðstandendur
þessa góða drengs, ástríka eigin-
manns og föðuf, sonar og bróður.
— Guð blessi slíka syi’gjendur,
huggi þá í harmi þeirra og gefi
þeim styrk og kjark til þess- að
standast þvílíkt áfall og regin-
raun. Því að „hvar mpn skjól og
frið að fá. .. . “ — ef hann liti eigi
í náð sinni og kærleika til þeirra
á svo döprum og dimmum stund-
um?
En stórum meira skarð er hér
íyrir skildi en það eitt, sem sigð
aauðans hefur höggvið svo
skyndilega í hóp alúðarvina og
samstarfsmanna og í frændgarð
vandamanna, ættingja og ást-
vina, þótt stórt sé það skarð
vissulega og standi autt og gap-
aridi eftir: — Þjóðin öll hefur
sannarlega ástæðu til að harma
þvílíkan missi, eins og ávallt
endranær, þegar góðir drengir og
óvenjulegir hæfileikamenn eru
hrifnir frá starfi í blóma lífsins
og leiddir af hulinni hönd — en
ærið sterkri og öruggri þó — út
af sviði mannlegra og jarðneskra
athaína og umsvifa og inn í þá
sali og svið tilverunnar,. sem
ayljast að tjaldabaki, en við trú-
um þó, að séu engu síður raun-
hæf og þýðingarmikil um eilífð
en sá vettvangur dagsins, sem
við hin dveljumst enn á og fáum
enn einan greint og gjörskoðað,
meðan augu okkar eru enn þá
slegin blindu og sjónhverfingum
efnisheims þess og tilverustigs,
sem við enn um sinn fáum eitt
skynjað og skilið — og þó vissu-
lega aðeins að harla takmörkuðu
leyti.
Mjög væri mér ljúft að rekja
við þetta tækifæri ýmsa minn-
ingaþræði frá fyrstu kynnum
okkar Hauks, nánu samstarfi
okkar um margra ára skeið og
allt til þess dags, að vegir skild-
ust og hann og fjölskyldá hans
fluttust alfari burt héðan úr
bænum og settust að í höfuð-
staðnum. — Allar eru þær minn-
ingar mjög á eina leið: bjartar og
kærar. — En það er bæði, að
óvenjulegar annir kalla að í
svipinn — og úr ýmsum og ólík-
um áttum — og eins hitt, að
margir aðrir menn hafa þegar
minnzt Hauks opinberlega, og
enn aðrir munu vafalaust eiga
eftir að taka sér penna í hönd í
sama skyni nú á næstunni: —
Þjóðin er þó ekki enn — og verð-
ur væntanlega aldrei, sem betur
fer — svo tómlát og svo lánlaus,
ao hún láti andlátsfregn eins
sinna beztu sona„ óvenjulegs
hæfileikamanns og afreksmanns
á sínu sviði — sem vind um eyru
þjóta, þótt hitt sé rétt og eðlilegt,
að ýmsum fleiri en mér einum
Æskan og áfengið
(Framhald af 4. síðu.)
gera það að tízku okkar, að vera
bindindissöm og hófsöm í öllu.
Bezta hjálpin, sem fullorðna
íólkið getur veitt ikkur í því, er
skilningur á viðhorfi okkar, vel
sagðar leiðbeiningar, og eitthvað
handa okkur að hafast að. Það
verður að umbera okkur með
þolinmæði, sjá í gegnum fingur
við fljótfærni okkar og minnast
þess, að við eigum enga reynslu,
og gerum oftast þveröfugt við
það, sem við höfum hugsað okk-
ur að gera. Eldra fólkið hefur
sjálft verið í mörg ár að afla sér
reynslunnar, sem það vill miðla
okkur af. En það getur ekki gefið
okkur neitt af henni. Hver ein-
asta manneskja verður sjálf að
þreifa sig áfram, gera glappaskot
sín, og finr.a sjálf sársaukann af
árekstrunum, sem lífið veitir.
— Þa ðer einmitt hin erfiða leið
til að verða fullorðinn. Og það
verður líka að muna, að við eig-
um dálítið erfitt með okkur í bili,
við erum að leita að persónuleika
okkar, og það er ekki auðvelt að
vera tii, þangað til við höfum
fundið hann, og getum haldið
áfram að þroskast, og verða full-
orðin — eins og það. —
Jóna Edith Burgess,
3. bekk landsprófs.
Gagnfræðaskóla Keflavíkur.
muni reynast „tregt tungu að
hræra“ við slík tíðindi, er þvílík-
ir menn falla svo óvænt og
skyndilega frá í blóma lífsins og
í fullu starfi. — Að lokum aðeins
þetta: Blaðamaðurinn var snjall,
hugkvæminn og mikilvirkur.
Hugsjónamaðurinn og félags-
málafrömuðurinn var einlægur,
trúr og ósíngjarn. En drengurinn
góði, hjartahlýi og mannlegi, var
þó miklu mestur þeirra allra,
hugstæður, kærastur og ógleym-
anlegastur öllum þeim, sem
þekktu hann bezt. Blessuð sé
minning hans.
Jólíann Frímann.
Sárt er að þurfa að trúa því,
sem þó er sannleikur, að þú sért
horfinn, Haukur.
Atburðir liðinna tíma koma í
hugann og gera söknuðinn um
þig því sárari, sem fleiri eru rifj-
aðir upp. Samfylgd þín var góð.
— Birtan og gleðin, fjörið og öt-
ulleikinn, sem einkenndi þig, var
blessun þeim, sem blödnuðu við
þig geði.
Eg þakka þér af hjarta fyrir
ételjandi, elskulegar samveru-
stundir síðustu tvo áratugi. Sam-
starf í stóru fyrirtæki, þar sem
atorka þín, drenglund og gáfur
greiddu þér veg til stórra við-
fangsefna. Stundir söngs, glað-
værðar og gamansemi, sem þú
veittir ylnum í. Og síðast en ekki
sízt félagsskap þinn á liðnum
sumrum við ána okkar. — „Laxá
er löng, en lífið stutt“ höfðum við
í gamni eftir einum félaga okkar,
en þessi orð verða þrungin al-
vöru, er eg minnist þín nú.
Eg bið Guð að styrkja ástvini
þína í harmi þeirra og leiða þeim
fyrir sjónir „að aldrei er svo
svart yfir sorgarranni, að eigi
geti birt fyrir eilífa trú.“
Góði vinur. Nú vorar óðum
nyrðra og áin fagra umvefst sum
arskrúði. Brátt fer að verða vart
hreyfingar í Grástraumi og Vit-
aðsgjafa. Þá mun að vanda verða
haldið austur yfir heiði. — En í
sumar munu sporin þín ekki
sjást í morgundögginni, sem
perlar á grasinu á árbakkanum
áður en sólin lyftir sér upp yfir
Hvammsheiðina, og meðal okkar,
félaga þinna, mun niður árinnar
láta í eyrum, sem brostið hafi
strengur, er hljómar aldrei
framar.
Vertu sæll.
Gísli Konráðsson.
Meinleg villa leiðrétt
1 sambandi við frásögn síðasta
Dags ber að leiðrétta meinlega
villu, sem slæddist inn varðandi
dagpeninga til togaranna: Ætlun-
in er, að dagpeningar falli niður
í framtíðinnij en þar sem rætt er
um dagpeninga til togara í frum-
varpinu, þá á það eingöngu við
um tímabilið fram til 14. maí. —
Þess láðist að geta í frásögn
blaðsins um daginn, og er það
hér með leiðrétt.
Karlmannaföt
Stakir jakkar
og Buxur
Vinmiföt
Karlmanna og
Drengja
Gallabuxiir
Kvcnna og
barúa
Klæðaverzlun
Sig. Guðmundssonar h.f.
I. O. O. F. — 1405238i(. —
Kirkjan. Hátíðamessa í Akur-
eyrarkii’kju á hvítasunnudag kl.
2 e. h. Sálmar: 248 — 249 — 233
— 234. — K. R.
Messað í Lögmannshlíðarkirkju
á sunnudaginn kemur, hvíta-
sunnudag, kl. 3 e. h. Sálmar: 248
— 241 — 236 — 243 — 680. —
Ath., að messan er kl. 3. Strætis-
vagn fer frá vegamótunum kl.
2.30. — P. S.
Guðsþjónustur í Grundarþinga-
prestakalli: Grund, hvítasunnu-
dag kl. 1,30, ferming. — Munka-
þverá, sunnudaginn 1. júní kl.
1.30, ferming.
Fíladelfía, Lundargötu 12. Al-
menn samkoma á hvítasunnudag
kl. 8.30 e. h. — Einnig á 2. í
hvítasunnu kl. 8.30 e. h. — Allir
velkomnir.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Hugljúf
Pálsdóttir, starfsstúlka ó Krist-
neshæli, og Ottar Skjóldal, Ytra-
Gili. — Ungfrú Arnbjörg Stein-
unn Gunnarsdóttir frá Kotum og
Olafur Skagfjörð Olafsson bóndi,
Garðshorni, Glæsibæjarhreppi.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
hefur ákveðið að láta niður falla
fyrirhugaða bændaför til Suður-
landsins í sumar, vegna hins
óhagstæða tíðarfars.
Frá kristniboðshúsinu Zíon. —
Almennar samkomur verða báða
hvítasunnudagana kl. 8.30 e. h. —
Olafur Olafsson kristniboði talar.
Allir velkomnir.
Plöntusalan Laugarbrekku. —
Símanúmer plöntusölunnar við
Fróðasund er 2071, en ekki 2041,
eins og misritaðist í auglýsingu í
síðasta blaði. — Þetta eru við-
skiptamenn beðnir að athuga.
Orðsending til þeirra, er tóku
barnapróf við Barnaskóla Akur-
eyrar í vor. Börnin eru beðin að
mæta í Barnaskólanum föstudag-
inn 23. maí kl. 8.30 e. h. Áríðandi
að öll börnin mæti, sem eru í
bænum.
fnimvarpið
(Framhald af 2. síðu.)
;um 5%, en hins vegar haldist
kaupgreiðsluvísitalan óbreytt frá
því, sem nú er (183), þar til vísi-
tala framfærslukostnaðar hefur
hækkað um 9 stig.
Þessi ákvæði frumvarpsins
valda því, að kaupgjald hækkar
fyrr en ótt hefði sér stað, ef nú-
gildandi skipan hefði verið haldið
óbreyttri og kaupgjald hefði
braytzt með breytingum á kaup-
gjaldsvísitölu. Fram til 1. sept-
ember n.k. má gera ráð fyrir, að
vísitala framfærslukostnaðar hafi
hækkað um 8—9 stig. Að
óbreyttri skipan í kaupgjalds-
málum hefði kaupgjald fram til 1.
september orðið lægra en það
verður samkvæmt ákvæðum
frumvarpsins, en í mánuðunum
september, október og nóvember
hins vegar væntanlega hið sama.
Á hinn bóginn munu verða frek-
ari hækkanir á vísitölu fram-
færslukostnaðar á síðustu mán-
uðum ái’sins. Við ákvörðun út-
flutnings- og yfirfærslubóta
þeirra, sem gert er ráð fyrir í
frumvarpinu, hefur verið tekið
tillit til 5% hækkunar á kaup-
gjaldi. í kjölfar frekari kaup-
gjaldshækkunar má því búast við
að sigli kröfur um nýja hækkun
á útflutnings- og yfirfærslubót-
um. Hækókun þeirra hefði í för
með sér meiri hækkun á frain-
færsluvísitölunni og hún ylli svo
á hinn bóginn nýrri hækkun á
kaupgjaldi og afurðaverði, og
Dýralæknar. Helgidagavakt um
helgina og næturvakt næstu
viku: Ágúst Þorleifsson, sími
2462.
Hjálpræðisherinn. Hvítasunnu-
mót í Borgarbíó laugardaginn 24.
maí og hvítasunnudag, 25. maí,
kl. 20.30. Samkomur í Borgarbíó.
Samkomur í sal Hjálpræðishers-
ins: Hvítasunnudag kl. 11 f. h.:
Helgunarsamkoma. — 2. hvíta-
sunnudag kl. 14: Barnasamkoma.
Kl. 17: Hljómleikasamkoma. Kl.
20.30: Almenn samkoma. —
Lúðrasveit Hjálpræðishersins í
Reykjavík, barnastrengjasveit frá
Siglufirði, ásamt foringjum frá
Reykjavík, Siglufirði og Akur-
eyri taka þátt í öllum þessum
samkomum. — Verið velkomin.
Frá Sundlaug Akureyrar. —
Laugin er opin daglega frá kl. 8
árdegis, og með því að baðvatn er
enn af skörnum skammti upp úr
hádegi, er bezt fyrir almenning
að fara í sund á morgnana eða
kvöldin. Sundnámskeið fyrir
börn hefjast þ. 27. maí. Foreldrar,
hringið í síma 2260 og látið skrá
börn yðar.
Jón Sveinbjörnsson, verka-
maður, Aðalstræti 13, Akureyri,
varð sextugur 9. þ. m. Karlakór
Akureyrar og vinnufélagar hans
færðu honum gjafir. Ýmsir aðrir
heimsóttu hann og margir munu
hafa sent honum hlýjar kveðjur á
afmælinu.
Hlífarkoiiur! Munið kirkju-
gönguna á hvítasunnudag kl. 2.
Mætið vel og stundvíslega. —
Nefndin.
Skíðamenn, Akureyri! Síðustu
skíðamótin fara fram laugard. 24.
og sunnud. 25. maí. Einarsmót
(ganga, 5 km„ stökk, 20 m. braut,
svig, 150 m. bra^ut, 15 port). —
Sveitasvig, Ak.mót. Stökk, af-
mælismót SRA og brun, Ak.mót.
Þátttaka tilkynnist SRA fyrir kl.
5 á föstudag. — Þátttakendur í
Einarsmóti ý3 ára og' eldri.)
þannig koll af lcolli. 5r þetta
óhjákvæmileg afleiðing þeirrar
skipunar, að kaupgjald og af-
urðaverð breytist sjálfkrafa í
kjölfar breytinga á framfærslu-
vísitölu.
Háskinn felst í vísitölukerfinu.
Vegna þess, að breytingar á
vísitölu framfærslukostnaðar hafa
áhrif á nær allt kaupgjald í land-
inu og verðlag á öllum innlend-
um landbúnaðarafurðum, hefur
jafnvel hin minnsta breyting á
vísitölunni mjög víðtæk áhrif á
alilt efnahagskerfið og getur
bakað innflutningsatvinnuvegun-
um útgjöld ,sem þeir fá ekki ris-
ið undir, nema gerðar séu ráð-
stafanir til þess að auka tekjur
þeirra. Á hinn bóginn er varla
hægt að kimast hjá því að slíkar
ráðstafanir haf iaftur áhrif á vísi
töluna. í sambandi við lausn
efnahagsvandamálanna er því
nauðsynlegt að taka sjálft vísi-
tölukerfið til athugunar, þ. e. þá
skipan að allt kaupgjald og af-
urðaverð breytist sjálfkrafa með
breytingu á framfær'sluvísitölu.
Ríkisstjórninni er ljóst, að slíkt
mál verður að leysa í nánu sam-
starfi við stéttasamtökin í land-
inu og mun beita sér fyrir sam-
starfi við þau um þetta efni.
Munu mál þessi verða tekin til
nánari athugunar þegar þessi
samtök halda þing sín síðari
hluta þessa árs.
-■ Greieagerð iim efnahagsmála-