Dagur - 24.05.1958, Blaðsíða 1
Fylgizt með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagu
DAGUR
kemur næst út fimmtu-
daginn 29. maí.
XLI. árg.
Akureyri, laugardaginn 24. maí 1958
29. tbl.
Ilér sézt mynd af því, er Bandaríkjamenn skutu upp gervitungli
sínu, Könnuði, þann 17. marz síðastliðinn.
Hamrafellið í 14. ferð sinni
Hefir flutt 220Ö00 smálestir af olíuin til landsins
Frá Ulgerðarfélagi Akureyringa h.l.
Óráðið í hvaða formi bærinn yfirtekur
r
eignir Utgerðarfélagsins
Bæjarstjórn Akureyrar hélt fund sl. þriðjudag, til þess að
ræða málefni Ú tgerðarfélags Akureyringa h.f. Svo sem kunn-
ugt er, liggur fyrir beiðni frá hluthafafundi Ú tgerðarfélagsins
um, að Akureyrarbær taki að sér rekstur félagsins. í því sam-
bandi var kosin 5 manna nefnd til þess að athuga leiðir er til
greina kæmu um vfirtökuna.
Olíuskipið Hamrafell hefur nú
siglt undir íslenzkum fána í hálft
annað ár og er nú í fjórtándu
ferð sinni í olíuflutningum itl
landsins. Samtals hefur skipið
flutt til landsins tæplega 220.000
smálestir af olíum, en skipið
flytur á sextánda þúsund lestir í
hVerri ferð.
Hamrafell hefur, eins og öll þau
íslenzk kaupskip, sem flytja
þungavöru, fylgt heimsmarkaði í
farmgjöldum sínum. Hafa verið
geysimiklar sveiflur á farmgjöld-
unum, þetta hálfa annað ár, sem
skipið hefur verið í þjónustu fs-
lendinga, og hefur þetta gert út-
gerð skipsins mjög erfiða. í
byrjun síðastliðins árs voru farm
gjöldin mjög há, vegna Súezdeil-
unnar, og sigldi Hamrafell þá
þrjár ferðir fyrir 160 shillinga
farmgjald, enda þótt leiguskip
fengust þá ekki fyrir minna en
220 shillinga til íslandsferða. —
Seinni hiuta ársins lækkuðu
farmgjöldin mjög ört og fóru
langt niður fyrir reksturskostnað.
Síðan um áramót hafa farm-
gjöldin verið fyrir néðan 35
shillinga og í síðustu ferðinni,
sem farin var í þessum mánuði,
var farmgjaldið aðeins 22 shill—
ingar ZVi pence, eða minna en
einn sjöundi af því, sem hæst var
fyrir einu ári.
Rekstur olíuskipa erfiður.
Þessar gífurlegu sveiflur hafa
valdið miklum erfiðleikum fyrir
útgerðina og er það ógæfa, að
fyrsta útgerð olíuskips í íslenzkri
eigu skuii í byrjun lenda í svo
stói-koetlegum sveiflum, þar sem
núverandi farmgjöld nægja eng-
an veginn fyrir kostnaði, hvað þá
vöxtum og afborgunum af skip-
inu. Nú er olíuskipum lagt vegna
skorts á verkefnum og lágra farm
gjalda víða um heim. Sveiflur
hafa jafnan verið allmiklar á
farmgjöldum olíuskipa, en venju
lega jafnað sig þegar á heildina
hefur verið litið, en þó hafa
farmgjöld olíuskipa aldrei verið
lægri en nú og erfiðleikar á
rekstri þeirra aldrei slíkir, sem
nú eru.
Hamrafell hefur verið í stöð-
ugum flutningum milli olíuhafn-
arinnar Batum við Svartahaf og
olíuhafna við Faxaflóa. Áhöfn
skipsins er 41 menn og hefur
skipið í alla staði reynzt hið
ákjósanlegasta. Erlendir sérfræð-
ingar voru með skipinu aðeins
fyrstu ferðina, en síðan hafa ís-
lenzkir sjómenn unnið þar öll
störf.
Sakari S. Tuomioja
Ilér er mynd af Wheeler hers-
höfðingja, þeim er stjórnaði opn-
un Súezskurðarins á sínum tíma,
er Egyptar höfðu lokað honum.
Voru skiptar skoðanir í nefnd
þessari um yfirtökuleiðirnar, en
hins vegar samdi nefndin tillögu,
sem lögð var fyrir ofannefndan
bæjarstjórnarfund og fjallar um
skilyrði, sem nefndin er sammála
um að þurfi að vera fullnægt, ef
til yfirtöku eigna Utgerðarfélags-
ins kemur, hvert svo sem form
hennar verður.
Tillaga þessi, sem var sam-
þykkt með 6 atkv. gegn 4, hljóð-
ar þannig:
„Með tilvígun til málaleitunar
Útgerðarfélags Akureyringa h.f.
um, að Akureyrarbær takr að sér
rekstur félagsins, samþykkir
bæjarstjóm að verða við mála-
leitan þessarri með eftirtöldum
skilyrðum:
1) Að samningar takizt við al-
menna kröfuhafa Ú. A. h.f., að
Landsbankanum undanskild-
um, um að þeir gefi eftir 1/3
hluta af kröfum sínum á fé-
lagið og fallist á að fá eftir-
stöðvarnar greiddar með
skuldabréfum, sem greiddust
upp á næstu 10 árum með
jöfnum árlegum afborgunum.
Ábyrgðist bærinn greiðslu
bréfa þessarra — allt að 5
milljónir króna.
2) Að Landsbankinn veiti Út-
gerðarfélagi Akureyringa h.f.
Þann 18. apríl sl. var aðalfund-
ur Mjólkursaml. K. Þ. í Húsavík.
Haraldur Gíslason mjólkursam-
íagsstjóri flutti skýrslu um
rekstur og starfsemi samlagsins
fy.rir sl. ár. Innvegið mjólkur-
magn nam á árinu 2.741000 kg.
og hafði aukizt um 18%. Seld ný-
mjólk var 13%, en 87% fóru í
-vinnslu. Endanlegt verð til fram-
leiðenda varð 3,11 pr. ltr.
Allmikið var rætt um vetrar-
flutninga og reynslu þá, sem
skapaðist í héraðinu eftir síðasta
snjóavetur. Fjórir snjóbílar voru
stöðugt í förum, og fluttu allir
mjólk og vörur, og héldu uppi
þýðingarmiklum samgöngum um
sveitirnar. Ákveðið var að unnið
a. m .k. 8 milljón króna lán til
20 ára, gegn ábyrgð Akureyr-
arbæjar.
3) Að Akureyrarbær fái 1—2
milljón króna lán eða framlag
af atvinnubótafé ríkisins og
fái auk þess 1 milljóna króna
hagstætt lán.
4) Að samningar takizt við aðra
kröfuhafa Ú. A. h.f. en þá, er
í 1) greinir um hagkvæma
breytingu á lánskjörum,
greiðslufrest á gjaldföllnum
afborgunum og vöxtum á ein-
hverjum hluta af föstum lán-
um félagsins og greiðslufrest-
ur fáist á forgangskröfum,
eftir því, sem tök eru á.
Jafnframt samþykkir bæjar-
stjórn að frcsta að taka ákvörðun
um, í hvaða formi rekstur Ú. A.
yrði yfirtekinn, unz úr því fæst
skorið, hvort framangreind leið
reynist fær.“
yrði að því við vegamálastjórn að
vegurinn suður frá Húsavík
verði allur hækkaðui' og endur-
bættur, með tilliti til snjóalaga.
í fundarlik minntust fundar-
menn 10 ára afmælis Mjólkursam
lagsins og hinnar miklu þýðingu,
sem það hefur haft fyrir búskap-
inn í Þingeyjarsýslu og alla af-
komu bænda á félagssvæðinu. Á
síðastliðnu ári varð sauðfjárinn-
legg meira en nokkru sinni fyrr,
svo að segja má, að mjólkur-
framleiðslan sé alveg viðbótarat-
vinnuvegur í héi'aðinu.
Frá stofnun Mjólkursamlags K.
Þ. hefur Haraldur Gíslason veitt
því forstöðu. Fundarmenn þökk-
uðu honum heillarík og góð störf.
Eftirfarandi viðbótartillaga frá
Árna Jónssyni var samþykkt
með 10 samhljóða atkvæðum:
5) Ú. A. h.f. veðsetji Akureyrar-
bæ eignir sínar, að svo miklu
leyti sem hægt er.
Tillaga Braga og Jóns felld.
Eftirfarandi tillaga Braga Sig-
úrjónssonar og Jóns B. Rögn-
valdssonar var felld með 6 atkv.
gegn 5:
„Með tilvísun til málaleitunar
Útgerðarfélags Akureyringa h.f.
þess efnis, að Akureyrarbær taki
að sér rekstur félagsins, sam-
þykkir bæjarstjórnin að verða
við málaleitan þessarri með eftir-
greindum skilyrðum:
1) Að samningar takizt við al-
menna kröfuhafa Ú. A. h.f., að
Landsbankanum undanskild-
um, um, að þeir gefi eftir Vz
hluta af kröfum sínum á fé-
lagið, enda sé þeim þá greidd-
ur að fullu helmingur.
2) Að Landsbankinn veiti Ak-
ureyrarbæ a. m. k. 10 millj.
kr. lán til 20 ára. Sé 6,5 millj.
kr. varið til að greiða jafnháa
ótryggða skuld Ú. A. við
Landsbankann, en eftirstöðv-
um til að greiða þeim kröfu-
höfum, sem gefa eftir helming
skulda sinna við Ú. A„ svo og
til annarra nauðsynlegra skila
á gjaldföllnum skuldum Ú. A.
3) Að Akureyrarbær fái 1—2
millj. kr. Ián eða framlag af
atvinnubótafé ríkisins og fái
(Framhald á 7. síðu.)
Kappreiðar
Hestamannafélagið Léttir á
Akureyri efnir til kappreið'a og
góðhestasýningar á skeiðvellin-
um á bökkum Eyjafjarðarár um
hvítasunnuna.
Verða þar margir úrvals gæð-
ingar og þátttaka mikil. Þar
verða einnig valdir þrír góðhest-
ar til keppni á Þingvöllum í
sumar, á landsmóti hestamanna.
Góðhestar verða dæmdir á laug-
ardaginn kl. 3 síðdegis, en kapp-
reiðarnar fara fram 2. hvíta-
sunnudag kl. 2 e. h. Veðbanki
verður starfandi í sambandi við
þessar kappreiðar.
Ef veður verður hagstætt má
búast við mikilli aðsókn áhorf-
enda. Enda mjög gaman að sjá
gæðinga í keppni og á sýningu.
Aðalfundur Framsóknarfélagsins
á þriðjudaginn
Aðalfundur Framsóknarfélags Akureyrar verður haldinn í
Gildaskála Hótel KEA næstk. þriðjudag, 27. maí, kl. 8.30 e.
h. — Fyrir fundinum liggja venjuleg aðalfundarstörf. —
Félagar eru vinsamlega áminntir um að fjölmenna.
Aðalfundur Mjólkursamlags K.Þ.
Innvegin mjólk var 2.7 millj. kg. - Meðal-
verð til bænda varð kr. 3.11