Dagur - 29.10.1958, Page 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUK
kernur næst út miðviku-
daginn 5. nóvember.
XLI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 29. október 1958
53. tbl.
Framsóknarmenn höiu fund um bæjarmái o. II. sl. sunnudag
®Fruinmælendur voru Guðmundur Guðlaugsson
forseti bæjarstj., og Ingvar Gíslason, erindreki
Fregn borin til baka
Morgunblaðið sagði frá því í
gær (einkaskeyti frá Kaup-
mannahöfn), að íslcnzka ríkis-
stjórnin hefði boðið dönsku
stjórninni fiskveiðileyfi innan
12 niílna við ísland, að því til-
skyldu að fslendingar nytu
samá réttar á Grænlandsmið-
um. — íslenzka utanríkisráðu-
neytið birti samdægurs þá til-
kynningu, að frétt þessi hefði
ekki við nein rök að styðjast.
Banaslys í Svarfaðardal
Það hörmulega slys varð í
Svarfaðardal sl. sunnudagsnótt,
að Halldóra Helgadóttir frá
Þverá varð undir dráttarvél og
beið þegar bana. Orsökin er talin
stafa af of stuttu ræsi í veginum,
þar sem slysið varð.
Halldóra heitin var dóttir
Helga Símonarsonar bónda á
Þverá og fyrrum skólastjóra á
Dalvík og konu hans, Maríu
Stefánsdóttur.
Bændaklúbburimi
Fyrsti fundur Bændaklúbbs-
ins á þessum vetri verður
haldinn að Hótel KEA mánu-
daginn 3. nóv'.* n.k. og hefst
stundvíslega kl. 9 síðdegis. —
Fundarefni: Ólafur Jónsson
ráðunautur, sem nýlega er
kominn heim úr för til Dan-
merkur og Norcgs, scgir frá
nautgriparæktarstarfinu íþess-
um löndum.
Framsóknarmenn á Akureyri
efndu til umræðufundar um
bæjarmál og stjórnmál á sunnu-
daginn var að Hótel KEA. For-
m. fél., Ingvar Gíslason, bauð
gesti velkomna og nefndi til
fundarstjóra Jón Ki'istjánsson og
Hall Sigurbjörnsson fundarrit-
ara. Framsöguræðum Guðmund-
ar Guðlaugssonar, forseta bæjar-
stjórnar, um bæjarmálefni, og
Ingvars Gíslasonar, erindreka
Framsóknarflokksins, um stjórn-
málaviðhorfið, var ágætlega tek-
ið, og að þeim loknum hófust
umræður.
Guðmundur Guðlaugsson gerði
Sjö þingmenn Framsóknar-
fiokksins flytja þingsályktunar-
tillögu um ráðstafanir til þess aö
greiða fyrir votlieysverkun og
öðrum heyvcrkunaraðferðum,
sem að gagni mega koma í
óþurrkum.
Flutningsmenn eru Ágúst Þor-
valdsson, Ásgeir Bjarnason, Páll
Þorsteinsson, Gísli Guðmunds-
son, Karl Kristjánsson, Halldór
Ásgrímsson og Eiríkur Þorsteins
son.
Tillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
í upphafi máls síns grein fyrir
hinum mörgu verkefnum bæjar-
félagsins, sem framundan væru
og ennfremur tekjum og gjöldum
bæjarsjóðs. Minnti hann á, að
þótt mörgum þætti framfarir
hægfara, þá fyndist víst flestum
langt seilzt í vasa skattborgar-
anna, en þaðan kæmi afl þeirra
hluta er gera skyldi. Hvatti hann
menn til að kynna sér málefni
bæjarfélagsins sem bezt og var-
ast órökstudda dóma um menn
og málefni. Hann sagði að lang-
mestur hluti fjárhagsáætlana
bæjanna væri bundinn að lögum,
sem ekki yrði undan komizt, en
stjórninni að láta vinna að því í
samráði við Búnaðarfélag íslands
og tilraunaráð búfjárræktar, að
tilraunir með votheysgerð og
votheysfóðrun verði auknar, svo
og leiðbeiningarstarfsemi á þessu
sviði, ennfremur að stuðia, eftir
því sem við verður komið, að út-
breiðslu annarra heyverkunar-
aðferða, er að gagni mega koma
í óþurrkum."
í greinargerð fyrir tillögunni
segja flutningsmenn, að tjón það,
sem orðið hafi í ýmsum sveitum
á norðan- og austanverðu land-
ríkið þyrfti nauðsynlega að eftir-
láta bæjarfélögum eftir nokkurn
hluta vetluskatts, og að það tæki
nokkuð af því á sínar herðar, sem
nú hvíldi á bæjarfélögunum.
Elliheimilið.
Ræðumaður sagði, að allir
flokkar ynnu að framgangi þess.
Því væri valinn staður á fögrum
og í'úmum stað og nefnd skipuð
til að undirbúa framkvæmdir og
sjá um þær, fjórir nefndarmenn
tilnefndii' af bænum, en einn frá
Kvenfélaginu Framtíðinni. Guð-
mundur gerði grein fyrir þeirri
hugmynd sinni, að tryggt yrði
inu sl. sumar af völdum óþurrka
hafi enn á ný vakið til umhugs-
unar um það öryggisleysi, sem
landbúnaðurinn á við að stríða í
sambandi við fóðuröflun handa
bústofninum.
Rétt þyki því að fela ríkis-
stjórninni að beita sér fyrir rann
sóknum og leiðbeiningarstarf-
semi til útbreiðslu heyverkunar-
aðfei'ða, sem að gagni koma í
óþurrkum. Komi þar fyrst til
greina votheysgerð. Síðan er
rakin allýtarlega saga votheys-
gerðar hér á landi og drepið á
nýjustu tilraunir í því sambandi.
Þá er minnt á súgþurrkunina og
nauðsyn þess að fylgjast með
fleiri nýjungum á þessu sviði. —
svo mikið land fyrir stofnunina,
að tiltækilegt væri fyrir aldrað
fólk að byggja sér sjálft heimili
undir vernd stofnunarinnar, svo
sem víða væri erlendis og miðaði
að auknu athafnafrelsi fólksins á
meðan það hefði heilsu til að sjá
um sig að mestu eða öllu leyti.
Ilafnarmál.
Guðmundur sagði, að á undan-
förnum árum hefði verið unnið
fyrir alla þá peninga, sem fyrir
hendi hefðu verið. Hafnarmann-
virkjunum á Oddeyrartanga
hefði miðað vel. Lokið væri við
togarabryggjuna og þungavöru-
bryggjuna, að öðru leyti en
því að steypa slitlagið, sem
myndi gert á næsta vori. — Þá
minntist hann á hagfellda vinnu
Dagnýjar og stóra kranans, sem
dýpkað hefðu hina nýju höfn.
(Framhald á 5. bls.).
Fundur í Félagi ungra
F ramsóknar manna
Félag ungra Framsóknarmanna
á Akureyri heldur félagsfund
annað kvöld, fimmtudaginn 30.
október, í líótel Varðborg, kl. 8
e. h. -—• Dagskrá: Inntaka nýrra
félaga. — Fréttir af þingi S. U. F.
(Ingvar Gíslason). — Umræður
um landhelgismál o. fl. — Rætt
verður um vetrarstarfið.
Ungir Framsóknarmenn eru
hvattir til að fjölmenna og taka
með sér nýja félagsmenn.
Tilraunir mé heyverkunaraðferðir
Þingsályklunartillaga sjö þingmanna Fram-
sóknarílokksins um þetta brýna mál bænda
Samvinnuskólinn að Bifröst ferðast um Norðurland
Á sunnudagskvöldið komu
hingað til Akureyrar nememlur
og kennarar frá Samvinnuskól-
anuni að Bifröst í Borgarfirði, 71
talsins, þar af fjórir kennarar. —
Fararstjóri er Gunnar Grímsson,
cn aðrir kcnnarar: Ilróar Björns-
son, Snorri ÞorsteinssonogHörð-
ur Ilaraldsson. — Samvimiu-
skólanemendur nota tímann vel
og skoða hina miklu og fjölþættu
starfsemi samvinnumanna á Ak-
ureyri, en munu hahla heimleiðis
í dag. — Fjórir nemendanna
cru liéðan úr bænum. — Nem-
endum var skipt í tvo hópa, er
þeir skoðuðu merka staði. Sam-
kvæmt áætluninni var Mjólkur-
samlag og ketilhús KEA skoðað
undir leiðsögu Jónasar Krist-
jánssonar, Sápuverksm. Sjöfn,
leiðsögumaður Ragnar Olason,
Smjörlíkisgerð KEA, leiðsögum.
Svavar Helgason, Fataverk-
smiðjan Hekla, leiðsögumaður
Ásgrímur Stefánsson, Akureyr-
arkirkja, leiðsögu veitti séra Pét-
ur Sigurgeirsson. — Þennan dag
kepptu nemendur við starfsfólk
KEA í knattspyrnu, skoðuðu
kaupstaðinn, liéldu til að Hótel
KEA og þágu liádegisverðarboð
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga.
í gær hófst svo dagurinn með
kynnisferð um nágrennið og var
séra Benjamín Kristjánsson leið-
beinandi og fræðari í þeirri ferð.
Að lokum snæddur hádegisverð-
ur í boði verksmiðja SÍS, en síð-
an skoðaðar Gefjun og Iðunn og
Skógerðin, undir leiðsögu þcirra
Arnþórs Þorsteinssonar, Þor-
steins Davíðssonar og Ricliards
Þórólfssonar og síðan þegið kaffi
boð hjá verksmiðjumim í sam-
komusal stari'sfólksins.
Heimsókn Samvinnuskólans
var ánægjuleg og hefur án efa
verið hinum ungu samvinnu-
mönnum og konuin til nokkurs
fróðleiks, bæði ferðir um byggðir
og heimsóknin í mesta sam-
vinnubæinn, og vonandi að fleiri
slíkar ferðir verði farnar á næstu
árum. — (Ljósmynd: E. D.). —