Dagur - 22.11.1958, Blaðsíða 7

Dagur - 22.11.1958, Blaðsíða 7
Laugardaginn 22. nóvember 1958 D A G U R 7 (Framhald af 8. síðu.) og kostar ekki neitt — eöa sama sern ekki ncitt — þrjátíu krónur aðeins. Þetta er enginn venjulegur eldhús- reyfari, því að sagan er víðfræg, hefur verið kvikmynduð og sýnd í sjónleiksformi í leikhúsum um víða veröld. Sjálfur las ég söguna á einni nóttu, svo spennandi var hún. I>ýð- andinn er ICristmundur Bjarnason stúdent. Septembermánuður cftir Frédéri- que Hébrard. Fyrir þessa bók hláut höfundurinn bókmenntaverðlaun á árinu 1957. Söguhetjan er listmál- ari, gift glæsilegum skáldsagnah'öf- undi. Þau eru ung, ástfangin og hamingjusöm. En skyndilega dregur ský fyrir sólu. Hann tekur að sér að þýða sögu frægrar og stórglæsilegrar ítalskrar kvikmyndastjörnu, og þeg- ar kvikmyndastjarnan birtist sjálf á sviðinu, þykist kona hans sjá ýmis grunsamleg teikn á lofti. En voru ]>au sek eða ekki? Einhver hugljúfur þokkablær hvílir yfir allri frásögn- inni, og þegar ég hafði lokið við að lesa þýðingu Gísla Jónssonar menntaskólakennara á þessari sögu, þá sagði ég við sjálfan mig: Þessi þýðing er hreinræktað listaverk. Bókin kemur út í byrjun desember. 7 clagsins önn heitir ljóðabók eft- ir Akureyrskan verkamann, Sigurð Sveinbjörnsson. Sjálfur lief ég ekki mikið vit á skáldskap, en afbragðs menn á því sviði hafa sagt mér, að þetta væru óvenjulega vel gerð ljóð. Og svo kentur rúsínan í pylsu- endanum, metsölubók ársins 1958, Kjördóttirin á Bfarnarlceh eftir Haf- stcin Sigurbjarnarson. Hér er á ferðinni svo skemmtileg saga, að hún er líkleg til að ná svipuðum vinsældum og sögur Guðrúnar frá Lundi. Iíjördóttirin á Bjarnarlæk er mikil saga um hamingjusamar ástir og'óhamingjusamar. Prófastur- inn á_ Bjarnarlæk er stórbokki. Og Jtcgar hann kemst að því, að kjör- dóttir hans og piltur þar á heimíl- inu eru heitbundin, þá beitir hann hinum verstu fantabrögðum til þess að stía þeim í sundur. Á hinu leit- inu er svo Bjiirn á Akri, stórmynd- arlegur ágætismaður (þótt liann búi reyndar með tveim konum), sem tekst á við prófastinn, bæði andlega og líkamlega. Uppistaða sögunnar eru sannir atburðir, sem gerðust um 1920 — þótt ótrúlegt sé! Guðrún frá Lundi hefur nú unt - Jarðhitinn (Framhald af 5. bls.). Ilvað þarf mikið vatn? Frummælandi sagði að lokum, að Akureyrarkaupstaður þyrfti um 100 lítra á sek. af 70—80 gráðu heitu vatni ,en auðvitað mætti gera hitaveitu með ágæt- um -árangri, þótt svo mikið vatns magn væri ekki fyrir hendi. Til fróðleiks rifjaði hann upp, að tal- ið væri að 1 sekl. af 60 gráðu heitu vatni, sem notaður væri þar til vatnið væri orðið 40 gráðu heitt, gæfi álíka mikið hitamagn yfir árið og 150 tonn af kolum gefa við venjulega upphitun húsa. Væri vatnið hins vegar 80 gráðu heitt, yxi notagildi þess um helming eða því sem næst. Margir tóku til máls á þessum fundi og voru allir fýsandi frek- ari rannsókna á jarðhitasvæðun- um og .að þær færu fram hið fyrsta. langt skeið verið ástsælasta ságna- skáld íslenzkrar alþýðu og verður vafalaust framvegis. En ég get ekki varizt þeirri hugsun, að með til- komu Hafsteins liafi hún fengið harðan keppinaut. Bæði cru þau, Guðrún og Hafsteinn, óbrotið al- þýðufólk, scm ekki hefur notið nokkurrar teljandi skólamenntunar, en lifað öllu sínu lífi mitt í hópi alþýðumannanna í sveit og við sjó. Þess vegna ciga þau hægara með að segja sögur sínar eðlílega, — folkið í landinu finnur, að sagan er að gerast mitt á meðal þess. Kjördóttirin á Bjarnarlæk kemur út í byrjun desember — og það mætti segja mér að hún seklist í 5000 eintökum — í alvöru talað. Og að endingu er það svo óska- barnið, „Heima er bezt“. Þetta óskabarn hefur náð miklum vin- sældum og er nú keypt á um það bil 3000 sveitahcimilum á íslandi eða nær helmingnum, en tiltöhtlega lítið í kaupstöðunum. „Heima er bezt“ flytur nær eingöngu íslenzkt efni, og það er mitt álit, að íslenzka efnið sé heilladrýgst til útgáfu, hvort sem það nú eru sögur eða frásagnir. Gárungarnir hérna á Akureyri eru hættir að segja „góðan daginn“ og „vertu sæll,“ þegar þeir hittast og kveðjast. I staðinn segja þeir „Heima er bezt!“ — auðvitað í gríni. En ætli það sé svo vitlaust? segir Sigurður O. Bjiirnsson að lokum. Blaðið þakkar hin ágætu svör. e. n. - Arnia Vatosdal (Framhald af 2. síðu.) sinni, og dvaldi þá nokkrar vikur hér í Eyjafirðinum hjá ættingj- um sínum og ferða'ðist nokkuð um landið. Aldurinn bar hún með prýði til skapadægurs. Á æskuárum var Anna Vatns- dal óvenjufalleg kona, og alla ævi var hún fríð og höfðingleg. En hitt bar þó frá,' hversu við- mótið var ljúft og elskulegt, og hversu mikill hlýja stafaði frá henni. Myndin, sem fylgir, er tekin af henni tvítugri, um það leyti, sem hún giftist. Með henni er góð og göfug kona til hvíldar gengin, kona, sem unni ættarsveit sinni, Eyja- firðinum, af heilum hug. Ætt- ingjar og vinir blessa minningu hennar. Hugurinn hverfur vestur að hafinu kyrra og mikla. Nú er hljótt yfir húsinu og einmanalegt eftir burtför elskaðrar móður. — Veturinn er kominn. Laufin hrynja af lífsins tré, eitt og eitt. Benjamín Krlstjánsson. Hr. Frimerkesamler. Jeg ville gjerne komme i forbindelse med en frimerkesamler som er interessert i bytte bort islandske frimerker mot norske. En del U. S. A. merker kan ogsá gis i bytte. Jeg kan skaffe sá gadt som alle norske merker som er utgitt ett- er krigen, samt en del eldre merker. Det er svært fá is- landske merker. Jeg har og er sáledes interessert i sá godt som alle útgaver. Dersom De skulle være interessert i bytting, ville det kanskje være greit med en katalog. Jeg tillater meg á fore- slá den danske katalog A F A. Med hilsen. Jonn Oddvar Johnsen, Sagesund, Norge. - Ýmis tíðindi (Framhald af 8. síðu.) sýslu og söng á Laugum og Húsavík. Karlakór Reykdæla og Þrymur tóku á móti söngmönn- unum og veitti þeim hina beztu fyrirgreiðslu. Nýlega boðaði prófasturinn í Húsavík til fundar. Var rætt um að flytja prestssetrið frá Vatns- enda og norður í nýbýlahverfi í Kinn. Samþykkt gerð um þetta á fundinum ,en hann sátu sóknar- nefndir og safnaðarfulltrúar prestakallsins. Samþykkt þessi er hin furðulegasta og sætir að vonum mikilli gagnrýni meðal sóknarbarna. - Gjafir og áheit (Framhald af 4. síðu.) steini M. Jónssyni, fyrrv. skóla- stjóra, kr. 3000.00. — Gjöf frá fyrrv. kennara, Gunnlaugi Hall- grímssyni, konu hans og syni, kr. 1500.00. — Minningargjöf um Önnu Björnsdóttur og Níels Friðbjarnarson á Hallanda, frá börnum þeirra, kr. 3.700.00. Enn- fremur altarisdúk, 4 blómaborð og' 25 sálmabækur. — Gjöf frá Kristbjörgu Jóhannsdóttur frá Dálksstaða-Bakka kr. 100.00. — Áheit frá Jóhannesi Árnasyni Þórisstöðum, kr. 100.00. — Gjöf frá Sigrúnu Benediktsdóttur, Breiðabóli, til minningar um foreldra hennar, kr. 1000.00. — Áheit frá B. B. kr. 500.00. — Auk ofanskráðra gjafa hafa kirkjunni borizt þessar gjafir á árinu: Frá Kvenfrélagi Svalbarðs- strandar ljósaútbúnaður í kirkj- una, hökull, rikkilín og altaris- klæði, ásamt fleiru. — Tveir kertastjakar, gefnir af þeim systr um frú Sigurlaugu Kristiáns- dóttur, Mógili, og Sigurlínu Ki-istjánsdóttur, Brekkugötu 27, Akureyri, í minningu um for- eldra þeirra. — 25 sálmábækur, gefnar af Sólveigu Sigurðardótt- ur á Svalbarði. — Gestabók, með áletruðum silfurskildi, gefin af Gerði Sigmarsdóttur og Árna Bjarnarsyni, bókaútgefanda á Akureyri. — Guðbrandarbiblía, gefin af Guðfinnu Benedikts- dóttur og Jóni Eyjólfssyni, Keflavík. — Sömuleiðis Guð- brandarbiblía, gefin af frú Ingi- björgu Magnúsdóttur, ekkju séra Björns Björnssonar í Laufási. — Frá Sparisjóð Svalbarðsstrandax kr. 50.000.00. — Úr gjafabauk kirkjunnar kr. 280.66. -— Með þökkum móttekið. Sóknarnefnd Svalbarðskirkjusóknar. Áheit og gjafir til Svalbarðs- kirkju 1958. Áheit frá Halldóru Geirsdótt- ur, Veigastöðum, kr. 200.00. — Gjöf frá Veigastaðasystkinum, til minningar um móður þeiri'a, Kristjönu Halldórsdóttur, kr. 1000.00. — Gjöf fi'á Jóhannesi Benediktssyni, Breiðabóli, kr. 5000.00. — Gjöf frá Sigríði Þor- láksdóttui', kennslukonu á Akur- eyi'i, til minningar um móður bennar, Sigurbjöi'gu Jónsdóttur, Ijósmóðui', kr. 500,00. — Úr gjafabauk kii'kjunnar kr. 827.02. — Með þökkum móttekið. Sókn- arnefnd Svalbarðskirkj usóknar. Kirkjan. Messað í Akureyi-ar- kirkju næstk. sunnudag kl. 5 e. h. Sálmar nr.: 470 — 475 — 474 — 62. — 285. — K. R. — Fólk er beðið að athuga bi'eyttan messu- tíma. Messað í skólahúsinu í Glerár- þorpi kl. 5 á sunnudaginn kemur. Sálmar nr.: 68 — 207 — 222 484. — P. S. Fundur í drengja- deild í kapellunni n. k. sunnudag kl. 10.30 f. h. Akui'faxasveitin sér um fundarefni. — Stúlkna- deild. Fundur sunnudaginn kl. 2 Bui-nii'ótarsveitin og Blálilju- sveitin annast dagskrána. Bamastúkurnar hafa fund í Bai-naskóla Akureyrar næstkom- andi sunnudag, Samúð kl. 10 f. h. og Sakleysið kl. 1 e. h. Nánar auglýst í skólunum. Leiðrétting. í síðasta tölublaði Dags var getið nýrrar bókar eftir Vigfús Guðmundsson gestgjafa. Bók þessi heitir Fx-amtíðarlandið og fæst á Akureyri í Bókaverzl- un Jóhanns Valdemarssonar, en ekki í Eddu h.f., eins og sagt var í áðurnefndri grein. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að „opinberun“ sú, að Iiar- aldur Níelsson hafi verið að kenna Jesú Ki'isti íslenzku, er ekki tekin úr bókinni: „Leiðin til þroskans“, heldur úr ritinu „Varnarmál", sem gefið var út bér á Akureyri fyrir þó nokkrum árum. Staðhæfing þessi er því frú Guði’únu Sigui’ðardóttur með öllu óviðkomandi. Sæmundur G. Jóhannesson. Litla stúlkan, sem missti hend- ina. Frá I. R. S. kr. 100.00. Kristján Halldórsson á Stóru- Tjöi-num varð sjötugur síðastl. fimmtudag, 20. þ. m. Heimsóttu hann margir vinir hons og sveit- ungar hans fjölmenntu. Kristján er listfengur hagleiksmaður og fjölhæfur. Hann hafði lengi úr- smíðaverkstæði á Akureyri og vann sér þar vináttu og virðingu samborgaranna eins og annars staðax'. Frá bazarnefnd Barnaverndar- félags Akureyrar. Tekjur af fjár- söfnun sunnudaginn - 2. nóv. (bazar o. fl.) námu kr. 9.700.00 brúttó. Kostnaður nam kr. 1.893.00. Hreinn ágóði ki'. 7.807.00. — Þennan frábæra stuðning við félagið vill nefndin þakka hjartanlega. Hún þakkar stórar gjafir og smáar, veitta að- stoð og margs konar fyrirgreiðslu og óskar bæjarbúum heilla og farsældar. SJÁLFSBJÖRG. Munið fönd- urkvöldin á föstudögum kl. 8 í Túngötu 2. Áheit á Möðruvallakirkju í Hörgárdal: Kr. 1400.00 frá sókn- arbarni. Kærar þakkir. Sóknar- prestur. Fóðurtegisndir (Framhald af 5. síðu.) iskaupum vegna hækkandi verð- lags, Garðar Halldórsson ræddi meðal annars um gróffóðrið og að rannsaka þyrfti hvað norð lenzkir kýr gætu umsett af því, ennfremur um fóðursöltin o. fl., Þór Jóhannesson gerði lýsið að umtalsefni, hinar einstöku teg undir þess og eftii'lit með sölu, Krstján Bjarnason gerði fyrir- spurn um fóðurgildi undanrennu, Árni G. Eylands taldi bænda- fund, sem þennan, vera til fyrir- myndai', talaði um heymjölsfi'am leiðslu o. fl., Pétur Gunnarsson svaraði fj'rirspurnum, sem hér er of langt mál að rekja og súmir ræðumenn tóku oftar en einu sinni til máls. Kennarafundur á Blönduósi Laugardaginn 1. nóvember sl. var • kennarafundur haldinn á Blönduósi að tilhlutan Stefáns Jónssonar námsstjóra. Fundinn sóttu kennarar úr Skagafirði og Húnavatnssýslum báðum. Erindi fluttu á fundinum sr. Pétur Ingjaldsson, sem ræddi um ki'istindómsfi’æðslu, Magnús Bjarnason kennari á Sauðár- króki og Stefán Jónsson náms- stjóri. Nokkrar umræður ui'ðu um öll framsöguerindin og kom fram í umi’æðunum mikill áhugi á samvinnu presta og kennara um skóla og uppeldismál. Fundinn sátu 40 kennarar og gestir, þar á meðal prestarnir sr. Gísli Kolbeins, Melstað, og sr. Pétur Ingjaldsson, Höskuldsstöð- um. Frú Hulda Stefánsdóttir for- stöðukona kvennaskólans og ungfi’ú Benny Sigurðardóttir kennslukona. Fundinum lauk með kaffi- drykkju að Hótel Blönduósi í boði Kennarafélags Húnvetninga. Næsta haust er kennarafundur fyrir Skagfirðinga og Húnvetn- inga ákveðinn á Sauðárkróki. Matthíasarsafnið á Akureyri Eins og kunnugt er hófst fyrir nokkru hreyfing um að safna saman munum, bókum og hand- ritum úr eigu þjóðskáldsins séra Matthíasar Jochumssonar til geymslu í væntanlegu Matt’nías- arsafni á Akureyri. Bæjarstjórn Akui'eyrar kaus nefnd til þess, að hafa þessa söfnun með höndum. Það eru því vinsamleg tilmæli okkar, sem í nefndinni stöi'fum, til allra þeirra, sem eitthvað hafa undir höndum eða vita um hvar munir eða minjar um séra Matthías eru niður komnir, að þeir hafi samband við okkur, og láti okkur upplýsingar um mun- ina í té og geri væntanlegu safni kost á að eignast þá. Það er metnaðar- og menning- armál allrar þjóðarinnar, að minjasafn um séi'a Matthías megi verða sem fullkomnust og treyst- um við því góðum undii'tektum allra, sem að því geta stutt. Laufey Pálsdóttir, Hafnarstræti 94. — Sími 1165. Steindór Steindórsson, Munkaþverárstræti 40. Sími 1027.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.