Dagur - 22.11.1958, Síða 8
8
Daguk
Laugardaginn 22. nóvember 1958
Tveir sólskinsmánuðir og fíu myrkir
Þannig skiptir Sigurður 0
og bókaútgefandi árinu
Björnsson prentsmiðjustjóri
frá sjónarhóli útgefandans
Vigðir meistarnr, efdr franskan höf-
und, Edouard Schuré aö nafni.
Prófessor Björn Magnússon hefur
íslenzkað þessa bók. Fyrst kom hún
út í Frakklandi árið 1889, cn hefur
síðan verið gefin út á fjöldamörgum
tungumálum og í hátt á annað
hundrað útgáfum. Höfundurinn
var frægur dulspekingur og rithöf-
undur. Fg las þessa bók á erlendu
máli fyrir fáum árum og varð fyrir
einhverjum einkcnnilegum áhrifum
í hvert sinn, er ég greip bókina til
þess að lcsa í henni kafla. Kyrrð og
friður færðist yfir hugann, og ég
varð allur svo rór. Mcr datt þá í
hug, að enn sem fyrr myndu hinir
vígðu meistarar máttugir til góðra
verka og að þeirra áhrifum væri hin
mikla kyrrð að þakka. Urn þetta
sannfærðist ég enn betur, er ég
nokkru síðar var staddur í Rcykja-
vík, og hinar einkennilegustu til-
viljanir og misskilningur urðu ]>ess
valdandi, að útgáfa bókarinnar á
íslenzku var ráðin. Ég álít, að hinir
vígðu meistarar hafi stjórnað þcim
leik. En það er of löng saga til þcssg,
að segjast hér. Eitt cr ég sannfærður
um: I’að er enginn svikinn, scm lcs
þcssa góðu bók.
Fmkilegt sjúkraflug heitir nýja
Árna-bókin eftir Ármann Kr. Ein-
arsson. Ilún kenmr út í byrjun
desentber næstk. Ég er nýbúinn að
lesa próförk af sögunni, og fannst
mér hún afbragðs-góð. Stór hluti ís-
lenzkra unglinga bíður mcð öndina
í hálsinum á liverju hausti eftir
nýrri Árna-bók frá Ármanni.
Stráhur á kúshinnsskóm hcitir
krakkabók eftir nýjan íslenzkan
rithöfund, Gcst Hannson. I>ctta cr
bráðskemmtileg bók fyrir krakka á
aldrinum 8—12 ára, og segir frá
ýmsum skemmtilegum ævintýrum,
sem ]>eir bræðurnir, Gáki og Gest-
ur, lentu í, þegar þeir áttu heima
uppi í sveit.
Leyndardómur hinversku guUker-
anna er bók fyrir alla riiska drengi.
Hún er cftir hinn lieimsfræga ung-
lingabókahöfund P. F. Westerman
og segir frá ævintýrum og þrekraun-
um Péturs Annesleys í leit að hin-
um dýrmætu ættargripum, kín-
versku gullkerunum. Davíð Áskels-
son kennari hefur þýtt þessa bók.
Þrir óboðnir gestir eftir Joseph
Hayes er hörkuspennandi sakamála-
saga í vasabókarbroti, 249 blaðsiður
(Framhald á 7. síðu.)
Sigurður O. Björnsson á skrifstofu sinni. — (Ljósmynd: B. S.).
Ýmis tíðindi úr nágrannabyggðiim
Ólafsfirði 21. nóv.
Hér er snjólaust upp að hæstu
fjallahnjúkum. — Stærri bátarnir
eru hættir róðrum og fara nú að
undirbúa sig undir Suðurlands-
vertíðina. Þeir fengu 6—13 skip-
pund í róðri fram að síðustu
helgi. Trillurnar róa ennþá og
afla nokkuð, hafa fengið upp í 5
skippund. Ágætis atvinna hefur
verið hér í haust, og meiri en
nokkru sinni fyrr á þessum árs-
tíma. Nýlega voru steyptir vegg-
ir neðstu hæðar á nýju húsi fyrir
póst og síma. Nú er síldin farin
nær öll. Hér voru í vikunni
nokkur skip: Dísarfell, Jökulfell,
Dettifoss og danskt skip með
saltfarm. Hér er verið að undir-
búa tvo sjónleiki.
Hólar í Hjaltadal 21. nóv.
Tíðin er rysjótt, en þó hagstæð
sem annars staðar. Nýtt pípu-
orgel var vígt hér í kirkjunni 26.
f. m. Það er mjög vandað. Sókn-
arfólk fjölmennti að Hólum þann
dag. Orgelið er gjöf ríkisstjórn-
.arinnar vegna 850 ára afmælis
Fimmnýbýli í byggingu í Bárðardal
Hólastóls. Orgel þetta er smíðað
í Kaupmannahöfn. Skólinn var
settur 15. október og eru nem-
endur 34 að þessu sinni.
Bölnduósi 21. nóv.
Geysilegt úrfelli hefur verið
hér undanfarið, en nú er bjart
og heiðríkt í dag og frostkali. —
Sunnudaginn 16. þ. m. var hér
haldinn allfjölmennur bænda-
fundur. Þar mætti Sverrir Gísla-
son, formaður Stéttarsambands
bænda og kynnti verðlagsgrund-
völlinn. — í gær var stofnað
Brunavarnasamband A.-Hún., að
undanskyldum Höfða-, Skaga-
og Bólstaðarhlíðarhreppi. Hefur
sambandið þegar keypt sér
slökkvibíl, og er verið að smíða
yfir hann í Reykjavík. Hann
verður staðsettur á Blönduósi.
Hér var slátrað 35 þús. fjár og
1000 folöldum.
Hrísey 21. nóv.
Á firðinum hefur nú verið
fisklaust að kalla, nú um tíma, en
aflinn er að glæðast á línu, en
Bókaforlag Odds Björnssonar á
Akureyri er stærsta útgáfufvrirtæki
á Isíancli utan Reykjavíkur, og eitt
liið elzta.
Utgáfustarfsemin hófst mcð því,
að Ocldur Björnsson tók að gefa tit
„Bókasafn alþýðu“ í Kaupmanna-
höfn árið 1897, og er bókaforlagið
þannig rúmlega sextíu ára gamalt.
í tilefni af því, að forlagið hefur
nýlega sent frá sér sex nýjar bækur,
sneri blaðið sér til Sigurðar O.
Björnssonar og átti við hann eftir-
farandi samtal:
Hvað heldur þú um bóksöluna
í haust?
Bóksalan í haust verður vafalaust
ágæt eins og áður. Bækur eru og
verða alltaf hentugasta, ódýrasta og
bczt þegna gjöfin á jólum og öðrum
hátíðarclögum. Bækurnar hafa þann
höíuðkost, að verða ekki aðeins
]>iggjandanum til ánægju, heldur og
öllúm á heimilinu, því að varla
mun sá íslendingur til, sem ekki
hefur ánægju af lestri góðra bóka.
HugsaðU ])ér t. d. muninn á því,
að gefa unglingi bók eftir Ármann
Kr. Einarsson sem kostar fimmtíu
og átta krónur, eða upptrekktan
bíl, sem kostar á annað hundrað
krónur og verður í flestum tilfell-
um ónýtur eftir stuttan tíma. En svo
eru bækur auðvitað misjafnar að
gæðum, og skiptir það því miklu
máli, að kaupandinn velji góða bók
og rétta í hverju tilfelli. Ef ég þyrfti
t. d. að gefa konunni minni bók í
jólagjöf og gæli valið um „Septem-
bermánuð", þýdcla af Gísla Jóns-
syni, og „Örlög orðanna" eftir Hall-
dór Halldórsson, þá myndi ég gefa
kohunni „Septembermánuð", — en
sjálfur vildi ég helzt cignast þær
báðar!
Hvað gefur forlagið út margar
bækur á þessu ári?
Á þessu ári gefurn við út niu nýj-
ar bækur, og sú tíunda verður 3.
útgáfa af metsölubókinni frá því í
fyrra, Jónsmessunæturmartröðinni
eftir Loft Guðmundsson, en sú bók
hefur verið uppseld og ófáanleg
allt þetta ár. I>ar að auki höfum
við bók frú Guðrúnar Sigurðardótt-
ur, „I.eiðin til þroskans", í aðalum-
Mykle liöfðar mál
Mykle er í fyrirlestraferð í
Svíþjóð. Svo bar við á hóteli því,
er fyrirlesarinn bjó, að konu eina
bar þar að síðla kvölds og vildi
ná fundi hans og „eiga viðræður"
við hann. Yfirþjónninn neitaði
konunni urn leyfi til að fara til
herbergja Mykles. — Nú hefur
skáldið kært hótelið fyrir atvik
þetta og hefur sagt í blaðavið-
tali: „Eg verð að segja, að það er
ótrúlegt gerræði og harðstjórn,
sem óbreyttii' starfsmenn gisti-
húsa og ýmissa annarra stofnana
hafa í frammi. Ótíndur dyra-
vörður getur eftir eigin geðþótta
ákveðið hvað megi eiga sér stað
eða ekki á þessu eða hinu hótel-
inu.“ Hann segist ekki vita til að
hótelin hefðu auglýst, að bannað
væri að taka á móti gestum eftir
ákveðinn tíma á kvöldin. Þetta
væri prófmál, sem ætti að skera
úr um það, hvað væri bannað í
samfélaginu og hvað ekki.
boðssölu. Sú bók hefur revnzt sér-
staklcga vinsæl hjá almenningi og
má nú heita uppseld. Og svo er það
óskabarnið, „Heima er bezt", sem
er á við stærðar bók.
Eftir hverju farið þið mest um
val bólca til útgáfu?
]a, því cr nú ekki fljótsvarað, því
að svo ótal margt kemur til greina.
Fyrst og fremst lesum við handritin,
ef um islenzka bók er að ræða. Við
lcsum sama liandritið þrír, og ber-
um svo saman bækur okkar á sam-
eiginlegum fundi. Við kaupum út-
lcnd bókmenntatímarit og fylgjumst
nákvæmlega með ritdómum á nýút-
komnum bókum. E£ við sjáum eitt-
hvað vænlegt, þá pöntum við bók-
ina í hvelli og lesum hana. Og ef
við álítum að hún henti íslenzkum
lesendum, þá er næsta skrefið að
fá útgáfuréttinn fyrir íslancl og góð-
an þýðanda. En allt er þetta sein-
legt, svo að crfitt er að koma þýddri
hók á markaðinn sama árið og hún
kom út á frummálinu. Einn okkar
þriggja, sem að þessu störfum, Geir
S. Björnsson, var síðastl iðið vor á
útgefandanámskeiði á vegum Bri-
tish Gouncil í London. Á þessu
námskeiði voru mættir fulltrúar frá
stærstu útgáfufyrirtækjunum í 21
landi. I>ar var margt gott að læra
um útgáfu bóka, og ekki sízt mikils-
vert að kynnast fulltrúum frá svo
mörgum útgáfufyrirtækjum.
Ilvað um fjárhagslegu hliðina?
I>að er nú eins um hana og bóka-
valið, að ekki er hægt að gcra skil
þeirri spurningu í stuttu blaðavið-
tali. En í stuttu máli er fjárhags-
hliðin svarta liliðin á bókaútgáf-
unni — ]>angað lil bækurnar eru
seldarl Þessi svarta hlið — eða svarta
tímabil — stendur vfir í tíu mánuði
ársins, eða á meðan verið er að
vinna bækurnar, því að þá bindast
geigvænlegar fjárhæðir í bókaútgáf-
unni. En svo koma tveir mánuðir
með sólskin og sunnanvind, nefni-
lega ]>egar uppgjörin berast frá bók-
sölunum og við sjáum, að bækurnar
hafa selzt vel, og sumar jafnvel selzt
upp. Þá gengur maður syngjandi
glaður til lánardrottnanna og greið-
ir skuldir, því að ekkert er cins
skemmtilegt cins og að geta greitt
skuldir á réttum gjalddögum. Síðan
koma svörtu mánuðirnir tíu á nýja-
leik, og það get ég sagt þér, að mað-
ur er orðinn hálftuskulegur, þegar
þcssu svartnættistímabili lýkur!
Hvaða bælcur gefur bókafor-
lagið út í ár?
Fyrst skal telja „Orlög orðanna“
eftir dr. Halldór Halldórsson pró-
fessor. Höfundurinn er þegar lands-
kunnur maður fyrir íslenz.kukunn-
áttu sína og fræðistörf. Þessi bók
segir á alþýðlegan hátt scigu ýmissa
þeirra orðtækja, sem við tökum
okkur í munn í daglega lífinu cn
hugsum ekkert frekara um, livað
merki. Hvað merkir t. d. upphaf-
lega að lala úndir rós, að dcila um
heisarans skegg, eitthvað kemur
spánskt fyrir sjónir? Og hvers vegna
tölum við um keisaraskurð, þcgar
kona gctur ckki fætt með eðlilegum
hætti? Svör við þessum spurningum
og f jöldamörgum iiðrtim er að l inna
í þessari skemmtilegu bók, scm ég
helcl að íslenzkir alþýðumenn muni
hafa gaman af að lesa.
Næst vil ég nefna mína uppá-
haldsbók, sem á íslenzku heitir
Bárðardal 17. nóv.
Tíðarfar er frernur óstillt, sem
annars staðar, þessa daga. Snjó-
laust er jafnt í óbyggð sem
byggð. Sauðfé gengur frjálst um
heiðar og ekki langt síðan kýr
voru settar út. Aðeins hefur gert
snjóföl, en tekið jafnótt upp.
Unnið er að jarðabótum fram
á þennan dag, og að byggingum
er unnið enn. Unnið var við
barnaskólabyggingu hér í sumar
og er húsið fokhelt.
Vegabætur voru nokkrar og
brúin byggð á kvíslina við brúna
á Fljótinu hjá Stóru-Völlum.
Áætlunarferðum er enn haldið
uppi til Húsavíkur og verður
meðan fært er. Það fer í vöxt, að
farið sé á bílum í fjárleitir til
öræfa og búið er að gera okfært
suður yfir álmu Ódáðahrauns,
sem liggui' að Skjálfandafljóti að-
austan, framan byggðar. Fær.t er
nú á jeppa fram á Oxnadal, en
þar eru afbragðs hagar, og áfram
suður. Áður var fært til öræfa á
bílum vestan Skjálfandafljóts,
sem kunnugt er.
5 nýbýli eru í byggingu í
hreppnum, misjafnlega langt á
veg komin.
Arnarstaðir, sem er elzt, ábú-
andi Baldvin Árnason, Lækja-
vellir, ábúandi Páll H. Jónsson,
Halldórsstaðir II, ábúandi Ketill
Tryggvason, Rauðafell, ábúandi
Gústav Jónsson, Stóra-Tunga II,
ábúandi Aðalsteinn Þórólfsson,
og Bólstaðir II, ábúandi Héðinn
Höskuldsson.
Flutt er í íbúðarhús þriggja
býlanna.
ekkert fæst í net. — Unnið er að
sundlaugarbyggingu og verður
hún tekin í notkun strax og hit-
unarkerfið er niður sett og vegg-
ir fínpússaðir. Þessi bygging hef-
lir verið lengi á leiðinni. Byrjað
var fyrir um það bil 10 árum. Nú
er mikill áhugi fyrir því að ljúka
verkinu hið allra fyrsta.
Sauðárkróki 21; növ.
Á morgun hefjast spilakvöldin
hjá Framsóknarfélögunum. —
Ágúst Þorvaldsson alþingismað-
ur flytur ávarp og á eftir verður
dans. Góð verðlaun verða veitt.
A sunnudaginn verður umræðu-
fundur í Framsóknarfélaginu hér
á Sauðárkróki.
Afli er tregur og gæftir ekki
góðar. Snjólaust er með öllu, en
veður hálf umhleypingasöm.
Fosshóli 21. nóv.
Um fyrri helgi kom Karlakór
Akureyrar austur í Þingeyjar-
(Framhald á 7. síðu.)