Dagur - 21.01.1959, Blaðsíða 1
XLII. árg.
Akurcyri, miðvikudaginn 21. janúar 1959
4. tbl.
Útflutt Norðurlandssíld
nær 249 þús. tunnur
Siglufirði 20. jan. —• Héðan eru
gerðir út þrír dekkbátar: Viggó
8 lesta, Hjalti 12 lesta og Baidvin
Þorvaldsson 1G lesta, og auk þess
róa nokkrar trillur, þegar gefur.
Aflinn heíur verið sæmilegur frá
áramótum. Stærri bátarnir hafa
fengið frá 5—10 þúsund pund í
róðri.
Aðeins annar togarinn okkar
liefur lagt upp afla hér eftir ára-
mótin. Það er Hafliði og afii
lians var 207 tonn, sem fóru í
frystingu og herzlu. Elliði er í
söluferð til Englands með 180
tonna farm.
Um hádegi í gær kviknaði í
vélarúmi Baldvins Þorvaldssonar
ci hann var hálfnaður að draga.
Bátvcrjar komust ekki niður í
vélarrúmið fyrir reyk og eldi, en
notuðu slökkvitæki og sjó oglok-
uðu síðan vélarrúminu og fcngu
aðstoð Gunnólfs frá Olafsfirði, er
dró BaJdvin til Siglufjarðar. —
Slökkvilið staðarins vann skjótt
á eldinum. Báturinn er nú kom-
inn í slipp og mun um hálfan
múnuð að gera við hann.
Útflutt síld af Norðurlands-
Frnmhald d 7. síðu.
Sjöfn, ein af verksmiðjum samvinnum. á Akureyri. ('Ljósm.: B. B.).
Fyrsfy norðfenzku málningarvörurnar
komnar á markaðinn
Sjöfn á Akureyri framleiðir liiuar nýju vörur
Samvinnumenn gerðu Akureyri
að iðnaðarbæ. Þeir veita hundr-
uðum manna árvissa og trygga
atvinnu við verksmiSjur sínar og
framleiða yfirleitt eftirsóttar
vörur.
Á síðustu tímum hefur eftir-
spurnin aukizt gífurlega í mörg-
um greinum,4 svo að ekki hefst
við að framleiða. En jafnhliða
þessu fjölgar iðnvörum.
Þessa dagana eru nýjar máln-
Karl Kristjánsson alþingisniaðuivtS
Almennur fundur Framsóknar-
manna næstkomandi sunnudag
Málshefjandi Karl Kristjánsson alþingismaður
Framsóknarmenn á Akureyri
halda almennan fund í Lands-
bankasalnum á sunnudaginn
kemur og hefst hann kl. 3 e. h. —
Málshefjandi verður Karl Krist-
jánsson alþingismaður og ræðir
hann um stjórnmálaviðhorfið. —
Framsóknarmenn eru hvattir til
að mæta vel og stundvíslega og
taka þátt í umræðunum.
Skautafólk á Akureyrarpolli
Þcssi mynd er tekin fram undan Samkomuhúsinu í sl. viku. — Á
íþróttavellinum er ágætt svell, sém daglega er sprautað. Á mánu-
daginn komu bangað á fjórða hundráð manns. Skautaíélagsmenn
leiðbeina fólki kl. 6—7 daglega. — (Ljósmynd: E. D.).
ingarvörur fráAkureyri áleiðinni
til kaupenda víðs vegar um land-
ið. Það er í fyrsta sinn að þessar
vörutegundir eru framleiddar ut-
an Reykjavíkur.
Sjöfn er framleiðandinn og
síðastliðin ár hefur verið unnið
að undirbúningi á framleiðslu
þessari hér. Aðalsteinn Jónsson
efnaverkfræðingur, sem hafði
einmitt kynnt sér þessa grein
sérstaklega, hefur unnið með
framkvæmdastjóra verksmiðj-
unnar, Ragnari Ólasyni, að
undirbúningi og framkvæmdum.
Nokkra síðustu mánuðina hafa
þessar nýju vörur verið reyndar,
bæði af verksmiðjunni og hjá
einstökum málarameisturum, og
virðast þær góðar.
Polytex-plastmálning.
Hinar nýju málningavörur eru:
Polytex-plastmálningin dreg-
ur nafn sitt af bindiefninu, sem
er polyvinylacetat. Þessi málning
hefur árum saman verið notuð í
Svíþjóð og reynzt mjög vel. —
En Sjöfn hefur fengið einka-
leyfi hinna sænsku fram-
leiðenda, AB Henning Persson,
til notkunar á efnasamsetningu
málningarinnar.
Þcssi málning er notuð jöfnum
höndum til málningar úd og inni
íhaldið tapaði í Þrótti
Um helgina fór fram stjórnar-
kosning í vörubílstjórafélaginu
Þrótti í Reykjavík. — Þar hefur
íhaldið farið með völd í 1 ár. —
í kosningum þessum tapaði
íhaldið með 14 atkvæða mun.
Þróttur var eitt traustasta vígi
íhaldsins í verkalýðsfélögum í
Reykjavík.
og er framleidd í 16 aðallitum. En
litaspjöld með með um 25 mism.
litum verða til sýnis á öllum
sölustöðum þessarar vöru. Lit-
irnir eru skærir og fallegir og
auðveldir í meðferð, og leiðar-
vísir fylgir hverri málningardós.
Rex-málningarvörur.
Rex-olíumálning er önnur
grein framleiðslunnar. — Margs
konar olíurifnar hvítur og litit
eru komnir á markaðinn; ennfr.
löguð málrling til notkunar bæði
Framludd d 7. st'ðu.
Yfirburðasigur Friðriks Óiafssonar
Hlaut tveimur vinningum meira en næsti maður
Skákmótinu í Beverwijk í Hol-
landi lauk á sunnudaginn. ís-
lenzki stórmeistarinn Friðrik Ól-
afsson var meðal þátttakenda og
vann glæsilegan sigur. Hlaut 7 V2
vinning úr níu skákum og var
tveimur vhiningum hærri en
næsti maður og tapaði engri
skák. Hefur sigur hans vakið
Skautamót Akurevrar
J
um helgina
Skautamót fslands verður hald-
ið hér á Akureyri um aðra helgi,
ef veður leyfir. En Skautamót
Akureyrar hefst á laugardaginn
á flæðunum við Brunná.
Á laugardaginn verður keppt í
500 metrum í A- og B-flokki og
3 þús. m., A-flokki.
Á sunnudaginn verður svo
mótinu haldið áfram og keppt í
1500 m., A- og B-flokki, og 5
þús. m., A-flokki.
Einnig verða drengjahlaup.
Tilkynningar um þátttöku
þurfa að berast stjórn Skautafé-
lags Akureyrar fyrir kl. 8 á föstu
dagskvöld, 23. janúar.
mjög mikla athygli skákmanna
um heim allan.
Friðrik tók forystuna strax í
byrjun og tefldi af miklu öryggi.
Er sýnilegt, að hann er ennþá í
framför.
Framundan er stórt taflmót í
Júgóslavíu. Það er áskorendamót
og verður haldið næsta haust, og
mun verða erfiðasta mót, sem
Friðrik hefur tekið þátt í til
þessa.
Sigur Friðriks í Hollandi er
öllum íslendingum fagnaðarefni.
Verkfall í Eyjum
f fyrrakvöld hófst verkfall
vélstjóra og sjómanna í Vest-
mannaeyjum. Hafði það verið
samþykkt með 60 atkv. gegn 2.
Útvegsmenn hafa borið fram
tilmæli um, að verkfalli þessu
verði frestað um sinn. Sjómanna-
samtökin munu hafa tekið af-
stöðu til þessarar beiðni í gær.
En ekki voru blaðinu kunnar
niðurstöður.
Óttast er um, að starfsfólk
hverfi fljótt á bi'ott, ef verkfallið
verður ekki stöðvað.