Dagur - 21.01.1959, Side 6
6
DAGUR
Miðyikudaginn 21. janúar 1959
Margir liægindastólar cru þannig
gerðir, að það cr hægt að launta
hendinni niður milli sætis og baks,
og þar finnst stundum ýmislegt
skrýtið.
Nýtnir heimilisfeður finna stund-
um liina ólíklegustu hluti í geymsl-
um sínum og spyrja þá sjálfa sig:
„Hver fjárinn er nú þetta, og til
livers á nú að nota þennan ófögn-
uð?" Þeir ákveða að henda lilutn-
um, en það gera þeir þó ckki. Hann
er enn þá cinhvers staðar í geymsl-
un ni.
Þeir, sem komnir eru fram yfir
miðjan aldur og hafa haft hakkavél
andans í saemjlegu standi, eiga oft
ýmislegt í fórurn sínum af andlegu
hakki. Þegar þeir taka til í skrif-
borði sínu á tíu ára fresti eða svo,
þá finna þeir ýmis andleg afkvæmi,
sem þeir voru búnir að gleyma og
höfðu aldrei ncinn sóma sýnt. Þá
rifjast ýmislegt upp.
Það er ein skúffa í skrifborði
rnínu, sem ég tek til í svona á 15
ára frcsti. Þar er alls konar blaða-
rusl og eitthvað krotað á flesta
sneplana; sumt er því nær ólesandi.
Ég hef hvolft úr henni á borðið,
og nú skufuð þið fá að sjá sýnis-
horn af sumu því, sem farið hefur
í gegnum hakkavél anda míns á
síðustu 15—20 árum.
Fyrst finn ég hér brag, sem flutt-
ur var í hófi í Krossanesi 1951.
Hann byrjar á þessa leið:
Einn við fjörðinn fagra
fremdar veit ég stað.
Þar hefði Helga magra
hollara verið að
yrkja jörð og ala upp kýr
en lenda í hokri á litlum bæ
langt innan við brýr.
Já, ekki meira af því. En svo
finn ég hér eins konar sálm, sem
ég hef ort 1940. Hamingjan góða!
Þetta er víst eini sálmurinn minn.
Síðasta vísan, nei, versið er þannig:
Ei skal örvænt í ragnanna rökum,
rústum ofar skal byggja lönd á ný,
þegar lcttir af bugaðra bökum
byrðum haturs, og slotar veðragný.
' Eftir átökin hörð, eftir
friðarins gjörð
rís úr hafdjúpi heil og betri jörð!
Æjá. Þannig vona menn á tím-
um styrjalda, en það fer sjaldan
allt að óskum.
Jú jú. Þarna finn ég nú gamalt
ástarkvæði. Hér er ein vísan:
Ó, hve hjartað æpir stundum
eftir þinum blíðu fundum.
Oft í sorg ég geng á grundum,
grasið bít og hugsa um þig.
Ég er einn á einu fari,
tit og suður mæddur stari.
Eins og rauður rabarbari
rennur sólin yfir mig.
Og þarna kemur gamall Geysis-
bragur frá þeim tíma, er kórinn
hafði söngæfingar í „Skjaldborg".
Ekki er nú fiigur lýsingin á ástand-
inu! En kanski hefur þetta ekki
verið meint alveg bókstaflega. Ein
vísan hljóðar svo:
Klemmd var hver rödd og rifin.
Rannveig sást aldrei lirifin.
Til andskotans allt var að lenda.
Margur kvaðst enn i mútum,
því munninn kom lítið út um,
og söng með öfugum enda.
Næst finn ég brúðkaupsljóð. Þar
í er ein vísan á þessa leið:
Gleðiljós í gullnum stjökum
gestum öllum berið (rökum),
dansinn storkar stígi á þökum,
stundum gangi í ba’inn.
Þurrkur á bleium blíður allan daginn.
Hér kemur svo bragur, sem flutt-
ur var fyrir löngu Geysismanni
ágætum, er hann var að flytjast úr
bænum. Ég birti hér þrjár vísur af
mörgum:
Út sprakk á Austurlandi
einn knúppur fyrr á tíð.
Blíðu í blómastandi,
blöð meður engilfríð,
válega vellyktandi
varð hverri silkihlíð.
Æ gat í faðminn fjólu
fúslega sloppið inn.
Albjarta „yndisnjólu
ylmaði toppurinn.
Breiddi út blöð mót sólu
blessaður kroppurinn.
Út svo í lífið lagði,
lífsins um fjallaskarð,
sómajurt, sem ei þagði,
sett niður loksins varð
á snöggu augabragði
í símans rófugarð.
Þarna sé ég nú ntiða, því nær ó-
læsilegan, meira en 20 ára gamlan.
Þar má með lagi lesa byrjun á
kvæði, sem aldrei varð lengra:
Ég spilaði í happdrættinu.
Hamingjan cr föl,
en ég fæ oftast ókeypis
allt mitt böl.
Ég spilaði ekki á fjórðungsmiða,
spilaði ekki á hálfan.
Ég sþiíaði á mig sjálfan.
Svo finn ég hér vísu, sem ort var
fyrir munn kennarastofu Barna-
skóla Akureyrar fyrir nókkrum ár-
um, er þáverandi yfirkennari var
á leið með flugvél til Reykjavíkur:
Flýgur fyrir okkur,
fjöllum hæstu ofar,
elsku Eiríkur nokkur
og ætlar að sækja bokkur
af gini, ef guð lofar.
Hér sé ég afmæliskveðju til Ingi-
mundar ArnasÖhar. Tvær fyrstu
vísurnar eru þánnig:
Þaut í skjá á þoria köldum,
þung var himins ygglibrún.
Enn var sól ei setzt að völdum,
svellalög um engi og tún,
en örlög spunnu yndisgarn
yfir þetta mikla hjarn.
Mikið andskoti var hann Ingimundur
efnilegt og fallegt barn.
Þeim, sem yfir vöggu vöktu
varð sú raunin ærið ströng.
Eins og strá þeir stundum blöktu,
þá striplaðist karl og hló og söng.
Virtist licitt í honum blóð,
hann á blístri af óþekkt stóð.
Mikið andskoti hafði ’ann Ingimundur
óskaplega mikil iiljóð.
Og enn rekst ég á brúðkaups-
Ijóð. Hér er cin vísan:
Fögnum, allir mærðarmunnar,
mótorskellum hamingjunnar,
þegar brumi birkirunnar
breyta í lauf til dýrðar jteim,
sem aka seglum eftir þótta
og engin hrakspá rak á flótta,
en leggja saman, laus við ótta,
lífsglöð út í þennan heim.
O, sei sei! Þarna hefur maður nú
verið háfleygur. — Fyrsta vísan í
næsta kvæði er svona:
Stígur laufangan
ljósar nætur,
gjálfrar við glitsand
gullin bára,
hneigir heiðastör
höfuð dreymandi,
þýtur í skógi
við Skinnastað.
Þarna finn ég eitt heilmikið af-
mælisljóð til tvíbura nokkurra.
Það liefst á þessa lcið:
Attu samflot
seggir tannlausir,
grettir grenjuðu
um grímu svarta;
út á ægi lífs
ýttu jó hranna,
blítt var byrleiði
bræðrum tveim.
Og svo er hér að lokum ein göm-
ul vísa:
Mitt er hjarta hrjáð og blekkt,
horfin sálarróin.
En hve margt er undarlegt.
Eitt af því er spóinn.
Ég nenni ekki að leita lengur og
loka skúffunni. Ö. S.
Fimdið kvenarmb.iir
Réttur eigandi vitji þess á
Ferðaskrifstofuna gegn
greiðsl u au gl vsingarinnar.
IBUÐÍR
Hefi til sölu:
Rúmgóða -lurra herbergja
íbúð á Oddeyri.
Nýja 5 herbergja íbúð uppi
á Brekku.
Einbýlisbús í Mýrunum.
Einbýlishús á Oddeyri.
Ódýrar 2ja herbergja íbúðir
við Hafnarstræti.
Guðm. Skaftason, hdl.,
Brekkugötu 14, Ak.
Sími 1036.
O.fl.
Helluofnar
Steyptir ofnar
Hekluofnar, væntanlegir
Baðker, m. tilheyrandi
Blöndunartæki
Stoppkranar
Skotventlar
Tollakranar
Handlaugakranar
Vatnslásar
Botnventlar
Fittings og rör
Finnsk WC og
handlaugar
koma á næstunni.
MIÐSTOÐVADEILD
NYJAR VÖRUR
Köflótt efni, tvíbr., kr. 37.00
I>ykk efni í kjóla og dragtir
kr. 108.00.
Kápupoplin, tvíbr., kr. 64.00
Svart kaki, kr. 23.10
Brúnt molskinn í buxur
kr. 39.50.
Gluggatjaldaefni frá ki'. 31.70
Léreftssloppar og kjólar
Bamagallar
Grænlenzkar barnaúlpur
ANNA & FREYJA
Saltað
beinlaust
Gott. - Ódýrt.
KJOTBUÐ
allar stærðir.
JÁRN- OG GLERVÖRUDEILD
:omnar binar
vinsælu
HOLLANÐ ELECTRO
RYKSUGUR
Pantanir óskast sóttar
sem fyrst.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
íbúð óskast
Mig vantar íbúð í \’or.
Kristjá)i Þórðarson,
Sílastöðunr.
Pressuð svið
KJOTBUÐ
■33$ T