Dagur - 11.02.1959, Qupperneq 1
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 11. febrúar 1959
8. tbl.
Færivoðin hans Hjalta. — (Ljósmynd: Erik Eylands.)
Nýtl tæki, sem létta mun bústörfin
Hjalti Haraltlsson bóndi í Ytra-Garðshorni hef-
ur fundið upp nýja gerð færibanda, mjög ódýra
Notkun hvers konar færibanda
til að auðvelda bústörfin er víða
mjög mikil. Á Norðurlöndunum
hefur útbreiðsla þeirra þó vfir-
lcitt takmarkast af því live dýr
þau hafa verið.
Bóndinn í Ytra-Garðshorni í
Svarfaðardal, Hjalti Haraldsson,
byggði nýlega votheysturn, og
stóð þá frammi fyrir þeim vanda,
að koma heyinu upp í hann á
ódýran hátt. Saxblásari er mjög
dýrt verkfæri og fjármagn bænda
víða af skornum skammti. — En
bóndinn keypti ekki saxblásara,
en smíðaði sjálfur færiband af
nýrri gerð. Líklegt er, að mörg-
um leiki forvitni á að vita á því
nánari deili.
Færivoðin.
Hið nýja færiband, sem Hjalti
kallar færivoð, er opinn stokkur.
Kefli eru í báðum endum hans.
Hið neðra þeirra er tengt aflgjaf-
anum, sem getur verið dráttar-
vél eða önnur vél, til dæmis
li/2—2 hestafla mótor. Sjálft er
færibandið úr seglstriga, sem
liggur á milli keflanna og
strengdur með einföldum útbún-
Frmnhnld á 7. síðu.
Stjórnmálanámskeið
á vegum Framsóknarflokksins
liefst á Akureyri miðvikudag-
inn 18. þ. m. — Þeir, sem taka
vilja þátt í náinskeiðinu, skulu
geía sig fram við Ingvar Gísla-
son á skrifstofu Framsóknar-
flokksins, Hafnarstræti 95, eða
Hrein Þormar, form. F. U. F.
Iljalti Haraldsson.
Rætf um sauifjárrækt á Bændaklúbbs-
fundi á Dalvík sl. mánud.
Fundinn sátu 130 manns - Frummælandi var
Kristján Karlsson skólastjóri á Hólum
Síðasti Bændaklúbbsfundur var haldinn á Dalvík síðastl.
mánudag. Hann var mjög fjölmennur og stóð í fimm klukku-
stundir. Fundarstjóri var Magnús Jónsson bóndi að Hrapps-
staðakoti, en liann er formaður búnaðarfélagsins á staðnum.
Mikill áhugi ríkir hjá bændum
í sauðfjárræktinni. Þessi gamla
og merka búgrein virðist alltaf
ciga mesta hylli hjá bændunum,
þótt mjólkurframleiðslan sé víða
aðalbúgreinin. Þetta kemur jafn-
an vel í liós þegar auglýstar eru
umræður um sauðfjárræktina í
Bændaklúbb Eyfirðinga.
Kristján Karlsson skólastjóri á
Hólum flutti framsöguerindið og
lagði málið fyrir á breiðum um-
ræðugrundvelli. Það var hið fróð
legasta og var því ágætlega tekið.
Skólastpjórinn sagði frá reynslu
sinni af skólabúinu á Hólum og
fyrst frá fjárhúsunum sjálfum.
Gömlu fjárhúsin væru yfirleitt
mjög gölluð, þótt þau væru efnis-
mikil og víða til þeirra vandað á
ýmsan hátt. Tilraun hefði verið
gerð á Hólum í nýrri gerð fjár-
húsa. Þau eru mjög löng — 100
kinda krær •— með opinn mæni
Framhald á 7. síðu.
Fundur í Framsóknar-
fél. Ak. n. k. mánudag
Framsóknarfélag Akureyrar
heldur félagsfund n.k. mánu-
dag kl. 8.30 að Hótel KEA. —
Fundarefni:
1. Kosning fulltrúa á flokks- f
þing.
2. Rædd fjárhagsáætlun bæj-
arins. Frummælandi Jak-
ob Frímannsson.
3»
I’rjú Framsóknarfélög í Eyjafjavðarsvslu hafa nvlega haldið
aðalfund, og ríkti hvarvetna einhugur um að fvlgja fast fram
stefnu flokksins í þeim höfuðmálum, sem barizt er um.
Hrafnagilshreppur,
Framsóknarfélag Hrafnagils-
'hrepps hélt aðalfund sinn 31. jan:
sl. Stjórnin var endurkjörin, en
hana skipa: Hjalti Jósepsson,
Brezki landheigisbrjóturinn hlaut
74 búsund króna sekt
Roland Pretious skipstjóri liggur í sjúkrahúsi
Þegar síðasta tölublað Dags var
prentað, var Þór á leiðinni til
Seyðisfjarðar með brezka land-
helgisbrjótinn Valafell frá
Grimsby.
Málið var tekið til dóms á
laugardaginn. Skipstjórinn var
dæmdur í 74 þús. króna sekt,
veiðarfæri og afli gerð upptæk.
Dómurinn var kveðinn upp af
Erlendi Björnssyni bæjarfógeta.
Ákærði fékk Gísla J. ísleifsson
sem verjanda fyrir sig.
Roland skipstjóri er 32 ára
gamall og var þetta fyrsta skip-
stjórnarferð hans á Valafelli. —
Hann var mjög sjúkur og yfir-
kominn af þreytu og fékk tauga-
áfall. Liggur hann nú á sjúkra-
húsi á Seyðisfirði, en Valafell
sigldi, er sett hafði verið trygging
fyrir sektum.
bóndi á Hrafnagili, formaður,
Ketill Guðjónsson, bóndi á
Finnastöðum, og Haraldur Hann-
esson í Víðirgerði, meðstjórnend-
ur.
Saurbæjarhreppur.
F ramsóknarf élag Saurbæ j ar-
hrepps hélt aðalfund sinn 7. þ. m.
í stjórn voru kosnir: Benedikt
Júlíusson, bóndi í Hvassafelli,
formaður, en meðstjórnendur
Daníel Sveinbjörnsson, bóndi í
Saurbæ, og Daníel Pálmason,
hreppstjóri, Núpufelli.
Framhakl á 7. siðu.
Borgarís við Suðausturströnd Grænlands. — (Ljósmynd: Sn. Sn.).
Alþýðumanninum
svarað
Blöð Alþýðuflokksins hafa
raupað af því, að 3,3% kjara-
skerðing bændanna, sem orð-
in er að löguin með samþykki
allra Sjálfstæðismanna, hafi
sparað þjóðinni 6 milljónir kr.
— Alþýðumaðurinn talar um
það í gær, hvers vcgna þing-
menn Framsóknarflokksins
hafi ekki krafizt þessarar leið-
réttingar miklu fyrr.
Því er fljótsvarað. Það var
ekki fyrr en á þessu ári, að í
samningum við sjómenn og
útgerðarmenn var ákveðið í
fyrsta sinn, að grunnkaup
skyldi breytast eftir vísitölu,
gagnstætt því sem áður var
um bæði landbúnaðinn og út-
veginn. Misréttið kom þá fyrst
til sögunnar. Er því fjas AI-
þýðum. um seinlæli Fram-
sóknarmanna út í hött. — Sex
milljón króna kjaraskerðingin
er kveðja ríkisstjórnarmnar
og íhaldsins til bændastéttar-
innar, sem þegar er búið að
staðfesta mcð lögum frá Al-
þingi. Það er engin hætta á, að
sú kveðja verði misskilin.