Dagur - 11.02.1959, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 11. febrúar 1959
D A G U E
7
Nýtt tæki...
J
Framhald af 1. síðu.
aði á efra keílinu, og að sjálf—
sögðu liggur færibandið í stokkn-
um og á það eru festir tréklossar.
Einfalt og ódýrt.
Aðalmunurinn á færivoðinni
og öðrum færiböndum er einfald-
leikinn og ennfremur það, hve
þetta er ódýrt. Það mun kosta
3600.00 krónur að smíða það,
miðað við 8 metra lengd og er
jafngott til að færa þurrhey í
hlöður eða upp í hey úti og til að
flytja vothey í turna.
Blaðið leitaði álits Eriks Ey-
lands ráðunauts Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar um þetta.
Hann telur hið nýja færiband
sérlega álitlegt og fjdlilega þess
vert að því sé gaumur gefinn. —
Hann hefur nú í athugun smíði á
einu slíku með lítils háttar breyt-
ingum.
- Nýjasta farþega-
flugvélin
Framhald af S. síðu.
unum sem knýja Viscount-flugvél-
arnar, en aflmeiri, enda er Van-
guard mun stærri flugvél, tekur
139 farþega.
TVÖ hJLFÖR
Vanguard er tveggja þilfara flug-
vél og er farþegarýmið á því efra,
en farangur og vörur á því neðra.
1‘etta kemur sér sérstaklega vel á
flugleiðum þar sem farþegaflutn-
ingar og vöruflutningar eru stund-
aðir jöfnum höndum. Þá er það til
mikils hagræðis, að þurfa ekki að
láta farangur inn í farþegarýmið,
sé flugvélin notuð til vöruflutninga
eingöngu. Allt verður þetta lil þess,
að nýting flugvélarinnar vcrður
mjög góð og hún því ódýr í rekstri.
Hafa flugfélög erlendis nú til at-
liugunar, að, lækka fargjöld með
Vanguard á vissum flugleiðum.
VaHguard flugvélin er eins og
Viscount, árangur af löngu sam-
starfi Vickers Armstrong 'Limited
og Rolls-Royce.
FLEIRI VISCOUNT
FLUGVÉLAR
Allt frá því að Viscount flugvélin
hóf, farjiegaflug. hefir hún átt ört
vaxandi vinsældum að fagna og
fyrir sköminu síðan var tala þeirra
sem pantaðar hötöu verið hjá verk-
smiðjunni 404. Þar af hafa 371 Vis-
count verið smíðaðar og afgreiddar
til 38 flugfélaga víðs vegar um
lieim. Af þessum flugfélögum hafa
17 nú þegar pantað fleiri Viscount
flugvélar, sem verða afgreiddar á
næstunni.
- HRINGSJÁ
Fram. hald af 2. síðu.
af fyiir sig. En hitt er aug-
Ijóst, að upp frá þessu amuiu
Akureyringar ekki \'elja sinn
séríulltrúa. Svo jnikils virða
Sjálfstæðisinenn ekki liöfuð-
stað Norðurlands eða íbúa
lians, hvað þá sýslugrey á
hjara veraldar á borð við
Norður-Þingeyjarsýslu, Suð-
ur-Þingeyjarsýslu eða E.vja-
fjörð.
Framhald af 1. siðu.
og einfalt bárujárn í þaki og
veggjum. Þessi hús héla aldrei
og krærnar ávallt þurrar vegna
hinnar miklu loftræstingar, þótt
gefin sé taða og fóðurbætir. Tvö
hundruð kinda hús kostuðu 37
hús krónur. (Áður sagt frá þeim
hér í blaðinu.)
Þessum húsum er aldrci lokað
að vetrinum og fénu aðeins gefið
einu sinni á dag allan veturinn
og voiáð einnig. Ræðumaður
sagði þetta fyrirkomulag hafa
marga kosti. Að þessu er mikill
verksparnaður og vinnan kem-
ur á þann tíma dagsins, er bezt
samrýmist fjósverkum. Fénu
verður aldrei misdægurt, er allt-
af úti þegar sæmilegt veður er,
jafnvel þótt jarðlaust sé með öllu
og virðist líða betur að öllu leyti.
Vatninu náði féð í lind, er þó
þornaði stundum. Þó var aldrei
brynnt og át féð snjó í staðinn.
Frummælandi sagðist sjálfur
hafa haft töluverða vantrú á
þessari nýju fjármennsku, en
væri nú orðinn sannfærður um,
að hún mundi víðar reynast vel
en hjá sér. Veðurfar væri að vísu
fremur gott í Hjaltadal, en það
hefði þó ekki neina úrslitaþýð-
ingu í þessu efni.
Kostnaður við byggingar fyrir
búpeninginn væri mjög tilfinn-
anlegur og nauðsynlegt að reyna
að lækka hann sem mest. Dýr-
asti liðurinn væri þó vinnan.
Vinnan við fjármennskuna á
Hólum væri nú ekki nema brot
af því sem áður hefði verið, síðan
teknir voru upp nýjir siðir.
í sambandi við hinn opna
mæni bæri að hafa það í huga, að
hann þyrfti að snúa þvert á veð-
urðtt. Væri misvindasamt myndi
heppilegra að hafa stromp á hús-
unum. Eins fermeters stromp
fyi'ir 50 ær. Þegar sauðburður
hefst, búa Hólamenn til girðing-
arhólf fyrir lambærnar. Þangað
setja þeir bundið hey í stað þess
að gefa á.garða. Fuðurbæti gefa
þeir í kössum.
Afurðir fjárins hafa verið góð-
ar og sízt minni eftir að breyíing
var gerð á hirðingunni.
Skólastjórinn vék nokkuð að
stefnunni um jjað, að kappfóðra
ærnar til að fá væna dilka og
hins vegar að eldi sláturlamb-
anna, og taldi þá leið að ýmsu
leyti hepþilegri.
Ræðumaður taldi meiri nauð-
syn til ,að rækta upp frjósamt fé,
en að nota hormónagjafir til að
auka lambafjöldann. Hér á ís-
landi væru mjög góð skilyrði til
sauðfjárræktar og líklegt, að
íramleiðsluaukning landbúnað-
arins yrði í framtíðinni mest í
Helgi Helgason, Óskar Aðal-
steinsson, Sæmundur Guðmunds
son, Ólafur Jónsson, Ármann
Dalmannsson, Ingi Garðar Sig-
urðsson og Eirík Eylands, sem
skýrði kvikmynd þá er sýnd var
í fundarbyrjun.
Um 130 manns sóttu þennan
fund og voru þeir meðal annars
frá Svalbarðsströnd, Hörgárdal
og fram-Eyjafirði. Ríkulegar
veitingar voru á borð bornar.
HEIMA ER BEZT
Annað hefti þessa árs af Heima
er bezt er nýkomið út. Þar skrif-
ar Þorsteinn Jónsson kaupfélags-
stjóri um Metúsalem J. Kjerúlf
á Hrafnkelsstöðum og Halldór
Stefánsson um Arnbjörgu
Bjarnadóttur Kjerúlf, Gils Guð-
mundsson um mannanöfn og
Árni Árnason frá Grund um
Tyrkjaránið og Herfylkingu
Vestmannaeyja. Þá er framhaldið
af sögum þeirra Guðrúnar frá
Lundi og Ingibjargar Sigurðar-
dóttur og Stefán Jónsson náms-
stjóri skrifar um Selmu Lagerlöf.
Kápumyndin er af Metusalem J.
Kjerúlf.
Eldri-dansa ldúbburinn
AKURF.YRI
DANSLEIKUR í félagsheim-
ilintt Lóni laugardaginn 14.
febrúar kl. 9 síðdegis.
STJORNIN.
Svefnstóll til sölu
Tækifærisverð.
Afgr. vísar á.
Miðstöðvarketill,
4 element, óskast til kaups.
SÍMI 1892.
Ferraingarkjólaefni
Ijós og falleg.
NÝKOMIN.
ANNA & FREYJA
y, Huld; 59592117 — IV/V — 1
FEL.
I. O. O. F. — Rb. 2 — 1082118V2
I. O. O. F. — 1402138i/> —
Kirkjan. Föstuguðsþjónusta í
Akureyrarkirkju miðvikudags-
kvöldið kl. 8.30. Fólk er vinsam-
legast beðið að taka með sér
Passíusálmana. Sungnir verða
þessir sálmar: 1. sálmur, 1.—8.
vers; 2. sálmur, 1.—7. vers; 4.
sálmur, 17,—24. vers og Son guðs
ertu með sanni. — P. S. — Mess-
að í Akureyrarkirkju á sunnu-
daginn kl. 2 e. h. — Sálmar nr.:
208 — 24 — 121 — 370 — 232. —
P. S.
Hjálpræðisherinn. Fimmtudag-
inn 12. febrúar kl. 6 e. h. Kvik-
mynd fyrir börn. Aðgangur 2 kr.
Sama dag kl. 8.30 e. h. Almenn
samkoma. Major og frú Nilsen
tala. — Föstudag kl. 6 e. h.:Barna
samkoma. — Laugardag kl. 6 e.
h.: Barnasamkoma. — Sunnudag
kl. 2 e. h.: Sunnudagaskóli. Kl. 6
e .h.: Barnasamkoma. Kl. 8.30 e.
h.: Hjálpræðissamkoma. Lauti-
nant Gudem talar á þessum sam-
komum. Allir velkomnir!
Biblíulestur n.k. laugardags-
kvöld kl. 8.30 að Sjónai'hæð. —
Heimilt að koma með spurningar.
Allir velkomnir. — Sæmundur
G. Jóhannesson.
Frá Verkakvennafélaginu Ein-
ingu. Aðgöngumiðar að Þorra-
blótinu, sem verður n.k. laugar-
dag, verða seldir í Alþýðuhúsinu
á fimmtudagskvöldið, 12. þ. m.,
frá kl. 8—10.
Góð auglýsing gefur góðan arð.
Dagur er mest lesna blaðið á
Norðurlandi.
„fslendingur“ er nú hættur að
birta myndir af Sjálfstæðishetj-
um sínum, en er því duglegri
við að birta myndir af þekktum
og dugmiklum Framsóknarþing-
mönnum og leiðtogum bænda í
héraðinu. Blaðið lítur mun betur
út en áður.
Barnastúkurnar á Akureyri
hafa fund í Barnaskóla Akureyr-
ar næstkomandi sunnudag. Sam-
úð kl. 10 og Sakleysið kl. 1. —
Nánar auglýst í skólunum.
Skyggnilýsingar hefur frú Lára
Ágústsdóttir miðill í Alþýðuhús-
inu næstkomandi sunnudag kl. 4
e. h. Húsið opnað kl. 3.30.
Laugarvatnsskólinn 30 ára, eft-
ir Bjarna Bjarnason, fyrrv. skóla-
stjóra, íæst á afgreiðslu Dags.
Zóphonías .Tónsson bóndi að
Hóli í Svarfaðardal er 65 ára í
dag, miðvikudaginn 11. febrúar.
Firmakeppni Skíðaráðs Akur-
eyrar fer fram seint í þessum
mánuði. Keppt er um stóran far-
andbikar. í fyrra sigraði Skógerð
Iðunnar. Þau firmu, sem hug
hafa á að taka þátt í keppninni,
eru vinsamlega beðin að láta
Hermann Sigtryggsson, formann
K.A. vita. Þátttökugjald kr. 100.
Auglýsingar eru góð þjónusta
við viðskiptamenn og þær
borga sig. Sími Dags er 1166.
Brynja nr. 99 heldur fund í
Landsbankasalnum á morgun,
fimmtud. 12. febr. kl. 8.30 e. h. —
Víðsla nýliða. Innsetning emb-
ættismanna. Skemmtiþáttur. Af-
hending frímiða.
Forrikur fátæklingur. Næsta
sýning í kvöld, miðvikudag. Aft-
ur leikið um helgina. Sýningum
verður hraðað mjög vegna brott-
farar eins leikandans. — Að-
göngumiðasími 1073.
Hjúskapur. Síðastliðinn sunnu-
dag voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú María Guðrún Osk-
arsdóttir, Eiðsvallagötu 26, og
Marinó Zóphoníasson, sjómaður,
Eiðsvallagötu 9, Akureyri.
Morgunblaðið fræðir lesendur
sína á því, að hið kunna ljóð,
„Þar sem háir hólar“, sé eftir
Jónas Hallgrímsson. Fréttaritara
þess, sem nýlega var á ferð í
Oxnadalnum, komu þá þessar
ljóðlínur í hug og gat ekki orða
bundist um höfundinn! Hingað
til hefur þetta kvæði, sem allir
kunna og allir syngja, verið talið
eftir Hannes Hafstein.
- Aðalfundir ...
Framhald af 1. siðu.
Ongulsstaðahreppur.
Framsóknarfélag Öngulsstaða-
hrepps hélt aðalfund 8. þ. m. —
Stjóm félagsins skipa: Kristinn
Sigmundsson, bóndi á Arnarhóli,
formaður, Garðar Halldórsson,
bóndi á Rifkelsstöðum, og Björn
Jóhannsson, bóndi á Laugalandi,
meðstjórnendur.
Einhugur Framsóknarmanna.
Ingvar Gíslason, erindreki
Framsóknarflikksins, mætti á öll
um þessum fundum og ræddi
stjórnmálaviðhorfið og afstöðu
Framsóknarflokksins til hinnar
nýju ríkisstjói'nar og þeirra mála,
er hún hygðist fylgja fram. Urðu
miklar umræður á fundum þess-
um, og ríkir einhugur meðal
Framsóknarmanna í Eyjafirði
um afstöðu flokksins til hinna
breyttu viðhorfa í lanasmálun-
um.
Ekki flokksleg sjónarmið.
Lögðu allir ræðumenn áherzlu
á þá hættu, sem dreifbýlinu mun
stafa af því, ef tillögum núver-
andi ríkisstjómar í kjördæma-
málinu verður fylgt fram. Kom
greinilega í ljós það álit manna,
að hér væri ekki um flokksleg
sjónarmið Framsóknarflokksins
að tefla, heldur líf og framtíð
dreifbýlisins, sem hlyti að mæta
skilningi allra hugsandi manr.a í
sveitum og öðrum byggðarlögum
utan áhrifasvæðis höfuðborgar-
innar, hvar í flokki sem menn
stæðu.
r
Islenzkar bækur
keyptar
Hinn mæti Vestur-íslendingur,
Soffanías Thorkelsson, hefur í
hyggju að gefa fæðingarsveit
sinni, Svarfaðardal, nokkuð af
bókum sínum, og vildi hann
gjarnan kaupa nokkuð af göml-
um, íslenzkum bókum til þess að
bókagjöfin yrði sem fullkomnust.
Þeir, sem hafa eitthvað enn af
íslenzku bókunum, sem hinum
íslenzku frumherjum voru svo
kærar, og vilja ráðstafa þeim,
ættu að hafa í huga að Soffanías
Thorkelsson mun gefa þær'til ís-
lands, en ekki selja þær, og fer
vel á því. Heimilisfang hans er:
100 Ungara Ave., Victoria, B.C.
(Lögberg 18. des.).
sauðfjárafurðum. Stórfelld fjölg-
un sauðfjárstofnsins og aukin
ræktun yrði náttúrlega að fara
saman. Þá væri sauðfjárræktinni
lítil takmörk sett.
Að framsöguræðu lokinni hóf-
ust fjörugar umræður og stóð
fundurinn í 5 klst. Þessir tóku til
máls, og sumir oftar en einu
sinni: Jónas Kristjánsson, sem
setti fundinn og sleit honum með
stuttpm ávörpum, Helgi Símon-
arson, Jón Gíslason, Angantýr
Hjálmarsson, Aðalsteinn Guð-
mundsson, Klemenz Vilhjálms-
son, Jónmur.dur Zóphoníasson,
Snorri Kristjánsson, Hjörtur
Þórarinsson, Þór Vilhjálmsson,
N Y K 0 M I Ð :
Nýjasta tízka í
matar- og kaffidúkum
Blúndudúkar og dúllur
Svart kaki
Skyrtuflónel, kr. 16.35
Köflótt efni i pils og
buxur, kr. 36.30.
ANNA & FREYJA
SKEMMTIKLUBBUR LETTIS
Munið SPILAKVÖLD Léttis í AlþýSuhúsinu 15. febv.
kl; 8.30 e. h. — Þrenn heildarverðlaun verða veitt auk
kvöldverðlauua.
SKEMMTINEFNDIN.