Dagur - 18.02.1959, Qupperneq 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 18. febriiar 1959
HEfljÓLFUR SKRIFAR HRINGSJÁ
Sýskiskiptingin og kjördæmin
Saga kjördæmanna sýnir, að grundvöllur kjördæmaskipunar-
innar hefur ávallt verið skipting landsins í sýslur og kaupstaði
Þegar Alþingi var endur-
reist árið 1843, var svo fyrir-
mœlt í konunglegri tilskipun,
að „sérhver af landsins 19
sýslum á að vera eitt kosn-
ingaumdsemi og fyrir hvert af
þessum skal einn fulltrúi
kjósast til Alþingis. Kaup-
staðurinn Reykjavík, með því
byggðarlagi, er heyrir til
staðarins lögsagnar, er sömu-
leiðis eitt kosningarumdœmi,
sem neínir einn alþingis-
mann.“
Þannig er gert ráð fyrir, að
þjóðkjörnir þingmenn séu
valdir í SÝSLUM og þeim
eina KAUPSTAÐ, sem þá var
nokkurs megnugur.
í tilskipun konungs voru
einnig ákvæði um konung-
kjörna þingmenn, en eins og
nafnið segir til um, voru þeir
valdir AF KONUNGI, en
ekki við almennar kosningar.
Hin fyrstu kjördæmi voru:
Reykjavík, Gullbr.- og Kjós.,
Borgarfjarðarsýsla, Mýrasýsla
(með Hnappadalss. til 1861, er
hún var lögð undir Snæf.),
Snæfellsnessýsla, Dalasýsla,
Barðastrandars., fsafjarðars.
(náði yfir núv. V.-ís., N.-ís.
og ísafjarðarkaupst.), Stranda
sýsla, Húnavatnss., Skagafj.s.,
Eyjafjarðarsýsla, S.-Þing., N.-
Þing, N.-Múl., S.-Múl.,
Skaftafellssýsla, Vestmanna-
eyjar, Rangárvallasýsla og
Árnessýsla. — Skaftafellssýslu
var skipt í tvö kjördæmi árið
:1857.
Af þessu sést, að grundvöll-
ur kjördæmaskipunarinnar
var þá þegar SÝSLU- OG
KAUPSTAÐASKIPTÍN GIN,
eða skipting landsins í lög-
sagnarumdæmi. Öll kjördæmi
voru þá einmenningskjördæmi
og fólksfjöldasjónarmið réð
engu.
STJÓRNARSKRÁIN 1874.
Með stjórnarskránni 1874
var gerð nokkur breyting á
kjördæmafyrirkomulaginu, að
því leyti að nú var sýslunum
skipt í einmennings- og tví-
menningskjördæmi. Mcð kosn
ingalögum, sem út voru gefin
1877 var gerð smábreyting að
því er tók tii tveggja sýsina,
þ. e. Þingeyjarsýslu og
Skaftaíellssýslu, sem stjórnar-
skráin gerði ráð fyrir að væi'u
eitt kjördæmi hvor, og var
þeim nú skipt, svo sem verið
hafði fyrir gildistöku stjórn-
arskrár. Kjördæmafyrirkomu-
lag stjórnarskrárinnar, með
breytingum frá 1877, giiti síð-
an óbreytt til 1902. Tvímenn-
ingskjördæmi voru 12, en ein-
mcnningskjördæmi 9. Þjóð-
kjörnir þingmenn voru 30. —
Reykjavík cr enn eini kaup-
staðurinn, scm er sérstakt
kjördæmi.
ÍSAFJARÐARSÝSLU SKIPT
Með lögum frá 6. nóv. 1902
var gerð sú breyting á aldar-
fjórðungs gainalli skipan, að
ísafjarðarsýslu var skipt í tvö
kjördæmi, þ. e. V. ís. og N.-
ts. (ineð ísafjarðarkaupstað).
AKUREYRI O. FL. 1903.
Með stjórnskipunarlögum
frá 1903 er þjóðkjörnum þing-
mönnum fjölgað og þrjú ný
kjördæmi lögákveðin, allt
kaupstaðir, sem þá voru í
vexti og sóttu á til sjálfstæð-
is. Þessi nýju kjördæmi voru:
ísafjarðarkaupstaður, Akur-
eyri og Seyðisfjörður. Bætt
var við einum þingmanni fyrir
Reykjavík. Kjördæmi urðu tiú
samtals 25, 9 tvímenningskjör-
dæmi og 10 einmenningskjör-
dæmi. Grundvöllur kjör-
dæmaskipunarinnar er enn
hinn sami, þ. e. að skipta
landinu í kosningaumdæmi
eftir lögsagnanundæmum. —
Þjóðkjörnir þingmenn voru
34, konungkjörnir 0, sem áð-
ur. AUs 40 þingmenn.
Árið 1915 voru ákvæðin um
konungkjörna þingmenn felld
úr gildi og þar með, má segja,
scinustu leifarnar aí einvcld-
isskipulaginu á íslandi. 1 stað
þess var upp tekið hið svo-
nefnda landskjör.
Árið 1920 var þingmönnum
Reykjavíkur fjölgað í 4 og
koinið á hlutfallskosningum
þar. Húnvatnssýslu var skipt í
tvö kjördæmi árið 1922, og
Hafnarfjörður varð sérstakt
kjördæmi (klofnaði xit úr
Gullbr,- og Kjós.) árið 1928.
UPPBÓTARSÆTIN 1931.
Með stjórnskipunarlögunum
frá 1934 voru gerðar allmiklar
breytingar á kosningafyrir-
komulagi, þó að GRUND-
VELLI kjördæmaskipunar-
innar væri ekki hróflað út af
fyrir sig. Landskjör það, sem
tekið var upp 1915, var aftur
lagt niður. Tekið var upp upp-
bótarsætakerfið „til jöfnunar
milli þingfIokka“, sem síðan
hefur verið í gildi. Þingmenn
Reykjavíkur verða 0 í stað
fjögurra. Sýslum er skipt í
cinmennings- og tvímenn-
ingskjördæmi sem fyrr, að
sjálfsögðu fyrst og freinst á
grundvelli fólksfjöldasjónar-
miðsins, þannig, að fjölmenn-
ari sýslur eru tvímenningskjör
dæmi, en hinar fámennari
einmenningskjördæmi.
BREYTINGIN frá 1942.
Þetta fyrirkomulag slóð um
átta ára skeið. ðleð stjórn-
skipunarlögum frá 1. sept.
1942 voru enn gerðar nokkrar
breytingar á kosningafyrir-
komulaginu, en hinum forna
grundvelli kjördæmaskipun-
arinnar haldið eigi að síður.
Enn er byggt á sýsluskipting-
unni sem meginundirstöðu.
Siglufjarðarkaupstaður var
gerður að sérstöku kjördæmi,
Reykjavíkurþingmönnum
fjölgað um tvo, urðu nú átta í
stað sex. Ákvæðum um út-
hiutun þingsæta til jöfnunar
milli flokka er hnldið. Meg-
inbreytingin fólst í því, að
teknar voru upp hlutfalls-
kosningar í tvímenningskjör-
dæmum. Þessi kosninga-
ákvæði gilda enn í dag.
REIST Á FORNUM
GRUNNI.
Af því, sem hér hefur verið
rakið í stuttu máli, sést, að
grundvöllur kjördæmaskip-
unarinnar frá fyrstu tíð hefur
verið skipting landsins í lög-
sagnarumdæmi, sýslur og
kaupstaði. Þegar Alþingi var
endurreist, var hér aðeins
einn kaupstaður, sem nokkurs
mátti sín. Onnur lögsagnar-
umdæmi voru sýslurnar. Eftir
því sem kaupstöðum fjölgar
og þeir verða stærri, fjölgar
líka þeim kaupstöðum, sem
verða sérstök kjördæmi. Árið
1903 urðu þrír kaupstaðir
kjördæmi: Akureyri, ísafjörð-
ur og Seyðisfjörður, Hafnar-
fjörður bætist í hópinn 1928
og loks Siglufjörður árið 1942.
Vestmannaeyjar hafa ávallt
verið kjördæmi, fyrst Vest-
mannaeyjasýsla, síðar Vest-
mannaeyjakaupstaður. Fólks-
fjöldasjónarmiðið hefur lengst
af mátt sín nokkurs í sam-
bandi við kosningafyrirkomu-
lag og liefur því verið full-
nægt með því að gera fólks-
flestu sýslurnar að tvímenn-
ingskjördæmum, bæta við
þingmannatölu Reykjavíkur
og kljúfa nokkra kaupstaði út
úr sýsluin og gera þá að sér-
stökum kjördæmum.
BYLTING í VÆNDUM.
Þróunin hefur þannig frem-
ur miðað að því að fjölga
kjördæmum en fækka þeim,
svo sem gert er ráð fyrir í til-
lögum ríkisstjórnarinnar og
þeirra flokka, sem hana
styðja. Fram að þcssu hefur
það þótt ávinningur hverju
héraði að eiga sinn fulltrúa á
Alþingi og kjördæmaskipunin
við það miðuð, cn stundar-
hagsmunir liverfulla flokka
ekki gerðir að aðalatriði kjör-
dæ maski p u n arinn ar.
Það er því síður en svo of-
mælt, þegar Framsóknarmenn
halda því fram, að í tillögum
Sjálfstæðisflokksins og Al-
þýðuflokksins felist alger
bylting á kjördæmaskipun-
inni. Hvcr sá, sem kynnir sér
sögu málsins, hlýtur að verða
var við þá róttæku stefnu-
breytingu, sem þær boða.
Heimsmeistaramót í skaufahiaupi
Finnar hlutu tvöfaldan sigur
Finnar hlutu tvöfaldan sigur á
heimsmeistaramótinu í liraðhlaupi
á skautum, sem fram fór á llislett-
leikvanginum í Ósló um helgina.
Það er nú nokkuð langt síðan að
Finnar hafa hlotið heimsmeistarann
í skaulahlaupi, eða ekki síðan Lasse
Parkkinen vann á Bislett 19-17, en
nú var hann cinmitt fararstjóri
Finnanna, jiegar þeir hlutu tvö-
faldan sigur á þessum sama velli.
Þessi sigur Finna var glæsilegur
og minnir á sigra hins gamla stór-
hlaupara þeirra, Clas Thunberg,
sem oft varð heimsmeistari.
Evrópuméistarinn í ár, Knut Jo-
hannesen, varð nú í fjórða sæti og
vann aðeins eina vegalengd, 10 knt,
og nú átti hann ekki möguleika á
að vinna þar upp það, sem hann
tapaði á móti Finnunum í styttri
hlaupunum. Það vann einn maður-
inn hvcrja vegalengd í þessu móti,
og það einkennilega var, að jreir
voru einnig sinn frá hverri jijóð.
Þeim þjóðum, sem komu stcrkastar
tit úr þessu njóti og áttu jtrjá menn
hver af 16 fyrstu. En jiað voru
Finnar, Norðmenn, Rússar og Hol-
lendingar. Kínverjar konni mjög
skemmtilega á óvart. Þeirra be/.ti
Merkulov 8.20.7
Seiersten 8.21.6
Monaghan 8.22.5
'00 m:
Salonen 2.15.8
Járvinen 2.16.2
IChunert 2.16.7
Merkulov 2.16.S
Ánes 2.16.9
Sju Seng 2.17.1
Johannessen 2.18.2
1000 m:
Johannessen 17.00.8
Pessmann 17,01.5
Koziskin 17.08.5
Seiersten 17.15,4
Sing-Ju 17.18.8
Monaghan 17.18.S
Járvinen 17.19.9
Broekmann 17.21.4
•g:
Járvinen 190.155
Salonen 190.837
Merkulov 191.015
Johannessen 191.227
Pessmann 191.652
Seiersten (y 192.363
Gontsjarenko 192.498
Aas 194.097
Juhani J rvines.
maður varð nr. 9. Ilann er aðeins
18 á:ra gamall og Jietta er þriðji
veturinn, sem hann kemur á skauta.
Daninn Kurt Stille er mikill áhuga-
maður. Hann hefur æft í Noregi og
Finnlandi og hefur vakið eftirtekt
á mótum undanfarið fyrir góðan
stíl og tækni, enda þótt cnn skorti
mikið á hraðann. Hann setti nýtt
danskt met í 1500 m á 2.21.1 mín.
Það var gott veður á Bislett báða
dagana. Þó snjóaði talsvert í síðari
hluta 5 km hlaupsins, jiannig að
talsvert crfiðara var að hlaupa fyrir
J>á, sem voru í síðustu riölunum.
Áhorfendur voru eins margir og
frekast komust að og hvöttu jieir
lilauparana óspart. Afar spennandi
var samhlaup Voronien og Seng,
J>ar sem Kínverjinn kom mjög á
óvart og varð aðeins nokkrum cm
á eftir Rússanum. Áhorfendurnir
héldu út þangað til síðasta riðli i
10 km var lokið, en þar hlupu j>eir
saman, Joliannessen og Pessmann.
Pessmann var orðinn nokkuð á eft-
ir ]>egar þrír hringir voru eftir, cn
dró svo mjög á Knut og varð aðeins
nokkrum metrum á eftir í mark:
Úrslit urðu jjessi:
500 m:
C. Voronin, Sovét 42.4
Sju Seng, Kína 42.4
A. Gjestvang, Nor. 42.7
T. Salonen, Finnl. 42.9
J. Járvinen, Finnl. 43.4
N. Ánes, Norcgi 43.8
C. I lickcy, Ástral. 43.8
000 m:
Péssmann 8.12.1
Johannéssen 8.12.2
Járvinen 8.13.8
Gonlsjarenko 8.18.5
Flinn nýi heimsmeistari, Juhani
Járvinen, er aðeins rúmlega tvítug-
ur að aldri. Hann vakti á sér nokkra
athygli á síðustu Olympíuleikum í
Cortina og hefur verið með efnileg-
ustu skáútahláúpurum síðustu árin.
Hann er mikill keppnismaður. Oft
hleypur hann mjög geyst af stað,
og oft hafa tímar lians orðið verri
en skyldi, j>ar sem hann liefur ger-
samlega sprengt sig, áður en hlaup-
inu var lokið.
Salonen hefur verið liclzti keppi-
nautur Rússa í styttri hlaupunum
síðustu árin. Bæði hann og Járvi-
nen eru smáir vexti en knáir.
Samvinnan
Janúarhefti Samvinnunnar 1959
er nýkomið út.
Með þessu hefti lætur Bene-
dikt Gröndal alþingismaður af
ritstjórninni.
Af greinum má nefna: Klæða-
bui'ður íslenzkra karlmanna hef-
ur gerbreytzt á síðustu árum,
myndskreytt grein, Að tjalda-
baki eftir Hjördísi Sævar, Aldar-
minning Péturs á Gautlöndum
eftir Pál H. Jónsson, síðari hluti
Siglingar Nautiliusar undir
Norðurpóisísinn, Sveinn Víking-
ud krotar á spássíu, Erlendur
Einarsson Flugdettur á áramót-
um, Jónas Jónsson slcrifar um
þrjár ljóðabækur Guðmundar
Ingi Kristjánssonar, Kristmann
Guðmundsson framhaldssagan
Litlakaffi og Þórunn Elfa um
Selmu Lagerlöf. Ekki er nýs rit-
stjóra getið, en Gísli Sigurðssoon
blaðamaður Samvinnunnar, hef-
ur gert rit þetta vel úr garði.