Dagur - 25.02.1959, Page 5
Jtliðvikudagiiin 25. febrúar 1959
DAGUR
5
Frá bindindissamtökunum á Akureyri
Þorntóður Eyjólfsson ræðismaður
Þótt Akureyri sé ekki stór bær,
munu fáir vita deili á öllum fé-
lögum og félagasamtökum, sem
þar starfa. En ein greinin, og
líklega sú ellra elzta, er Góð-
templararcglan, sem átti 75 ára
afmæli ,-á dögunum, og var þess
rækilega minnst af blöðum bæj-
arins. Stúkan ísafold var sem sé
75 ára þann 10. jan., og hefur hún
starfað óslitið öll þessi ár. —
Æðstutemplarar (foi-menn) ísa-
foldar eru nú séra Kristján Ró-
bertsson og Guðmundur Magn-
ússon. Onnur stúka fullorðinna
er hér einnig, stúkan Brynja nr.
99. Æðstutemplarar hennar eru
Ólafur Daníelsson klæðskera-
meistari og Steingrímur Ingvars-
son M. A. Báðar þessar stúkur
telja nú um 316 félaga. Hafa þær
starfað með óvenjulega miklum
þrótti í vetur, og síðan í haust
hafa gengið í þær um 70 nýir fé-
lagar, flest fullorðið fólk.
Auk þessara tveggja stúkna
fullorðinna manna, starfa hér í
bænum tvær barnastúkur, Sak-
leysið og Samúð, telja þær um
400 félaga, börn og unglinga. —
Gæzlumaður Sakleysisins er Jón
Gunnlaugsson kennari, en gæzlu
maður Samúðar er Eiríkur Sig-
urðsson skólastjóri.
Allar þessar stúkur halda fundi
hálfsmánaðarléga yfir veturinn
og nokkra fundi éinnig á sumrin.
Æskulýðsheimili templara hef-
ur starfað í vetur eins og að und-
anförnu og hefur til umráða alla
miðhæðina á Varðborg og veit-
ingastofuna niðri. Þar er nú allt-
af eitthvert starf. Þar hafa meðal
annars staðið yfir námskeið í all-
an vetur og öll fullsétin, en nám-
skeiðin eru þessi:
Tvö námskeið í pappírs- og
pappaföndri. Leiðbeinendur þar
voru kennararnir Indriði Úlfsson
og Jóhann Sigvaldason.
Þá var haldið námskeið í olíu-
málningu, og leiðbeinandi þar
var Einar Helgason kennari. —
Námskeið í tágavinnu var einnig
haldið. Kennari Sigríður Skafta-
dóttir kennslukona. — Þá var
námskeið í flugmódelsmíði, þar
sem Dúi Eðvaldsson leiðbeinir.
— Þá hefur verið námskeið í
skák á vegum Æskulýðsheimilis-
ins og Skákfélags Akureyrar.
Félagar úr skákfélaginu leið-
beina. *
Loks rná geta þess, að þarna
starfar fastur flugmódelklúbbur,
sem hefur aðgang að vinnustofu í
Varðborg. Formaður hans er
Tómas Búi Böðvarsson.
Tómstunda- og leikstofur eru
opnar tvisvar í viku, á þriðjudaga
og föstud. frá 5—7 og 8—10. Frá
5—7 eru börn innan 12 ára ald-
urs, en í síðari flokknum ungl-
ingar cldri en 12 ára. Forstöðu-
maður segir, að aldrei hafi verið
jafn mikil aðsókn að þessu tóm-
stundastarfi og í vetur. Einkum í
unglingaflokki. Munu stundum
100 börn úr báðum flokkum
sækja hehnilið þessi kvöld. For-
stöðumaður Æskulýðsheimilisins
er Tryggvi Þorsteinsson yfir-
kennari. Á sama tíma er lestrar-
stofa heimilisins opin. Æskulýðs-
Nokkrir drengir að starfi í Flugmódelklúbbnum í Varðborg.
heimilið á allstórt bókasafn, sem
Halldór Friðjónsson gaf því á
sínum tíma, en síðan hafa því
borizt margar bókagjafir og
einnig hafa verið keyptar bækur
í það. Útlán á kvöldin hafa kom-
izt upp í 70—80 bækur. Bjarni
Halldórsson skrifstofustjóri hef-
ur umsjón með lestrarstofunni.
Eins og kunnugt er, rekur
Góðtemplarareglan Borgarbíó.
Forstöðumaður þess er Stefán Á.
Kristjánsson. Tekjum þessa fyr-
irtækis er varið til að kosta
rekstur Æskulýðsheimilisins.
Þá reka templarar hótel í
Varðborg á sumrin og veita
þannig almenna þjónustu, sem
kemur sér vel í þessum ferða-
mannabæ. Formaður fram-
kvæmdaráðs Reglunnar er Jón
Kristinsson rakarameistari.
Auk þessara frjálsu bindindis-
samtaka, starfar hér í bænum
áfengisvarnanefnd. í henni eru 7
menn, og 6 kosnir af bæjarstjórn.
Hlutverk þessarar nefndar felst í
heiti hennar, og á hún, svo sem í
hennar valdi stendur, að vinna
að áfengisvörnum og hjálpar-
starfi. Starf hennar fer að mestu
fram í kyrrþey. Þó hóf hún út-
gáfu á litlu blaði, Sindra, á. síð-.
astliðnu ári og mun halda því
áfram. Hún hefur gengizt fyrir
almennum fundum um áfengis-
og bindindismál, ásamt Umdæm-
isstúku Norðurlands, og meðal
annars fyrir mjög fjölmennum
fundi í Varðborg á dögunum,
sem getið hcfur verið um áður.
Formaður Áfengisvarnanefndar
er séra Kristján Róbertsson.
Áfengisvarnanefnd kvenna
starfar einnig hér i bænum. í
henni eru fulltrúar frá öllum
kvenfélögum bæjarins og vinnur
hún að sama marki. Formaður
hennar er frú Elinborg Jóns-
dóttir. Þótt Reglan á Akureyri
eigi stórt hús, á hún samt engan
fundarsal. Og er það aðkallandi
mál að bæta úr því. Hún þarf að
eignazt góðan sal til fundarhalda
og til afnota fyrir æskulýðsstarf-
ið. Er nú farið að undirbúa
þetta.
Hér hafa verið talin upp félaga-
samtök, sem vinna að bindindis-
uppeldi æskunnar í bænum, en
hér koma þó fleiri til. Mætti t. d.
nefna skátafélögin. Þá bjarga
íþróttafélögin mörgum tóm-
stundum unglinganna. Það er
líka að vinna fyrir bindindi. Ekki
má svo gleyrna skólunum og öll-
um heimilunum, sem ala upp
bindindissaman æskulýð. Þarna
eru alls staðar jákvæð öfl að
verki, þótt hljótt fari. Um hin
neikvæðu verður ekki talað að
sinni.
Utvarp jarðarfara og Skjaidarvík
Öðru hverju hringja «bánægðir
útvarpshlustendur til blaðsins og
kvarta undan því, aö endurvarps-
stöðin í Skjaldarvik útvarpi ekki
járðarförum á sama liátt og rikisút-
varpið í Reykjavík. Þetta hefur áð-
ur borið á gónta hér í blaðinu. En
vegna hinna mörgu, sem búnir eru
að gleyma því, þykir rétt að endur-
taka skýringu stöðvarstjórans, Dav-
íðs Árnasonar. En liún cr eínislega
á þessa leið:
Jarðarfarir eru ekki dagskrárefni
útvarpsins. Aðstandendur jarðar-
fara, sent leigja útvarpsstöðina lil
ílutnings á útförum, eru að sjálf-
sögðu sjálfráðir um það að leigja
einnig endurvarpsstöðvarnar sam-
kvæmt gjaldskrá. Eigi að endur-
varpa jarðarför frá endurvarpsstöð-
inni í Skjaldarvík, verða aðstand-
endur að biðja um það sérstaklega
hjá ríkisútvarpinu, og sendir það
þá skeyti um það norður, og er það
þá áð sjálfsögðu gert, en annars
ekki.
]>ctta er í stuttu máli skýring
stöðvarstjórans á Jtví, hvers vegna
Skjaldarvík endurvarpar ekki jarð-
arförum að jafnaði.
Eftir Jtví sent blaðið liefur heyrt.
kostar útvarpssending jarðarfarar,
niiðað við eina klukkustund, kr.
750.00 en endurvarp á endurvarps-
stöðvunum kr. 250.00 hjá hverri.
Endurvarp féll niður.
Endurvarp frá Skjaldarvík féll
niður vegna bilunar á raflínunni.
lirotnuðu sex staurar norðan við
Lónsbrú, og var rafmargnslaust í
Skjaldarvík í Jtrjú dægur, en við-
gerð lauk kl. 9.30 á fimmtulags-
kvöld. Þann tíma íéll endurvarpið
auðvitað niður, og kont það mörg-
um iila, sérstaklega Jteim, sem ein-
göngu treysta á endurvarpsstöðina
og liaga kaupum á iitvarpstækjum
sínum samkvæmt Jjví.
Breytinga þörf.
Tvær háspennulínur liggja norð-
ur frá Akureyri. Önnur liggur tals-
vert vestar en endurvarpsstöðin.
Við þá línu er endurvarpsstöðin
tengd. Hin Iínan liggur örskammt
austan við stöðina. Við hana Jjyrfti
einnig að tengja endurvarpsstöðina
til öryggis. Þótt önnur ltáspennu-
línan bili, þá Jjyrfti endurvarpið
ekki að falla niður, Jiótt rafmagns-
Framhald d 7. síðu.
MÍNNING
Þegar ég kom í fyrsta sinn til
Siglufjarðar fyrir tæpum þrern tug-
um ára, drógu tvcir siglfirzkir borg-
arar að sér athygli ntína, svo að ég
minnist þeirra jalnan síðan svo sem
ég sá Jjá lyrst.
Annar Jieirra var öldungur, mikill
vexti og tígullegur. Andlit hans bar
mildan svip og fjarrænan, enni hans
var hátt og hárið hvítt.
Hinn maðurinn var í broddi lífs-
ins. Hann var einnig mikill vexti,
beinvaxinn og glæsilegur og frítt,
en Jté) stórskorið andlit hans og
hátt enni, bar sama ólympiska svip-
inn og öldungurinn. Menn þessir
voru Bjarni Þorsteinsson, prestur
og tónskáld og Þormóður Eyjólfs-
son, ræðismaður og söngstjóri.
Síðan j)á, hafa nöfn þessara
tveggja manna verið órjúfanlega
tengd í huga mínum.
Þegar ég sá Þormóð fyrst, stóð
hann með taktstokkinn og stjórnaði
karlakór Siglfirðinga „Vísi.“ Þá var
Jiað einnig sent ég lieyrði í fyrsta
sinni hin fögru lög séra Bjarna. Eg
hefi livorki fyrr né síðar hevrt neinn
fara með ])au svo látlaust og fagur-
lega sem Vísi, undir stjórn Þormóðs,
Jrannig að dýpt hinna einföldu og
tregablöndnu Jjjóðvísna nyti sín til
tuíls.
Seinna kynntist ég Þormóði
EvjólfSsyni og hinni merku konu
hans, Guðrúnu Björnsdóttur. Varð
mér ])á 1 jóst, að hann var ekki að-
eins listamaður, heldur einnig at-
hafnamaður, og um hann stóð oft
mikill styrr, ])ví að hann fylgdi fast
fram þeirn málum, sem ltann áleit
að væru byggð og bæ til hagsældar.
Á Jtcssum árum var Siglufjörður
mikill athafnabær og stóð atvinnu-
líf J)ar í miklum blóma. Mér er
kunnugt að Þormóður átti mikla
hlutdeild í að svo var. Á heimili
hans, og af honum, voru lögð drög
að tnörgum ])eim framkvæmdum,
sem urðu bæði Siglfirðingum og
landinu öllu til heilla. — Þormóður
var öflugasti hvatamaður Jtess, að
Síldarverksmiðjur Ríkisins voru
byggðar, og einmitt á Jtessum árum
var hann formaður í stjórn Jreirra.
Hann barðist einnig með oddi og
egg fyrir því, að Siglufjarðarbær
kcypti svo nefndar „Goos-eignir.“
En Jjar stendur nú nýtízku síldar-
verksmiðja, sem Sigluljarðarbær á.
En Þormóður stóð ekki síður í lylk-
ingarbrjósti í menningar og
mcnntamálum bæjarins. Munu ])au
hjónin, Þormóður og Guðrúir, eiga
drýgstan ])ált í því, að bærinn á
fagra kirkju og tvo ágæta skóla.
í stuttri minningargrein, verður
störl'um Þormóðs Eyjólfssonar ekki
gerð nein skil — Jrað bíður Jress, að
saga Siglufjarðar verði skráð.
1 lslendingasögum er Jress stund-
um getið, að lnís liafi verið reist um
Jrjóðbraut þvera. Svo mátti scgja
um hið glæsilega rausnarheimili
Jjcirra Þormóðs og Guðrúnar. Þar
var jalnan gestkvæmt, og Jutðan fór
enginn bónlciður.
Stjórnmálaskörungar og athafna-
menn lcituðu ráða og aðstoðar hjá .
J)cim hjónum, skáld og listmenn
áttu athvarf sitt ])ar og ekki var
farið í manngreinarálit, ef cinhver
samborgara Jreirra eða nágranna
Jmrflu einhverrar hjálpar við. Enn-
lreniur var Þorntóður ræðismaður
Norðmanna um tugi ára. Var hann
sæmdur st. Ólafs orðunni og Fálka-
orðunni íslenzku.
Öllum Jreini, sem koma á heimili
þeirra Þorntétðs og Guðrtmar, eru
þær ánægjustundir minnisstæðar.
Þormóður var frábærlega skemmti-
legur maður og alúðlegur. I honurn
bjuggu bæði listamaðurinn og hinn.
greindi raunhyggjunraður. Hann sá
því menn og málefni frá fleiri hlið-
um en aðrir, kom J)að oft fram í
léttri, góðlátlegri kímni. Þetta gerði
honurn einnig oft auðvelt að leysa
vanda þeirra, er til hans leituðu,
þannig, að þegar Jreir gengu af
fundi hans, fannst Jreim senr aldrei
hefði neinn vandinn verið.
Þormóður var vel efnum btiinn,
en veraldlegunr auðæfum mun
lrann aldrei hafa safnað. En Jrau
hjónin eiga auðæli, sem allir óska
sér, en fáunr lrlotnast. Þau eiga
óbrotgjarna bautasteina óeigin-
gjarns starfs, bæði við vegi titi og í
hjörtunr samferðanrannanna. Þau
eiga hvarvetna hljóða J)ökk vina,
sem votta frú Guðrúnu innilega
hluttekningu og biðja Guð að
blessa minningu manns hennar og
vegíerö í nýjum og björtum lreimi.
—o—
Þormóður Eyjólfsson, ræðisnraður
var Skagfirðingur.
Hann var fæddur að Mælifellsá
hijtn 15. apríl 1882. Forcldrar lrans
voru hjónin Eyjólfur Einarsson og
Margrét Þornróðsdóttir, senr síðar
bjuggu að Reykjum í Tungusveit.
Þormóður nrissti foreldra sína 14
ára gantall, fór hann þá í fóstur til
séra Hjörleifs Einarssonar að Und-
irfclli í Vatnsdal og konu hans,
Bjargar Einarsdóttur, en lrún var
föðursys.tir Þormóðs.
Þormóður lauk kennaraprófi við
Flensborgarskólann í Hafnarfirði
árið 1901. Eftir Jrað stundaði lrann
nánr við Verzlunarskóla íslands vct-
urinn 1907-1908.
Þormóður kvæntist Guðrúnu,
dóttur Björns alþingismanns að
Kornsá í Vatnsdal, 1911. Reistu
Jrau bú á Siglufirði og bjuggu Jrar
jafnan síðan.
Kjördætur Jreirra hjóna, eru Sig-
rún, kona Svafars Guðmundssonar,
Irankastjérra á Akureyri, og Nanna,
senr giftist Sveini Sigurðssyni, frá
Norðfirði, senr nú er látinu.
Þornróðttr andaðist að lreinrili
sínu, á Siglufirði; hinn 27. janúar
síðastl. og var lil moldar borinn frá
Siglufjarðarkirkju 4. Jr. m.
Blessuð sé minning hans.
B. B.
Minningarsjóður Soffíu
Stefánsdóttur
Gjafir í Minningarsjóð Soffíu
Stefánsdótlur: Frá Kurt Sonnen-
feld tannlækni 100 kr., frá Bald-
vin Ringsted tannlækni 500 kr.,
frá nokkrum stúlkum í 4. bekk
8. stofu á öskudaginn 120 kr., frá
nokkrum stúlkum í 4. bekk 13.
stofu 159 kt\, frá nokkrum stújk-
unr í 6. bekk 2. stofu 281 kr., frá
frá flokki Arnars Gíslasonar 200
ki\, frá nokkrum 10 ára stúlkum
90 kr. — Kærar þakkir. II. J. M.