Dagur


Dagur - 18.03.1959, Qupperneq 4

Dagur - 18.03.1959, Qupperneq 4
4 D A G U R Miðvikudaginn 18. marz 1959 SUrilsinfrt i Hrtfíiarstræti !>ll — Sími if(>6 RITSTJÓKI. E lv L i X G V R II A V í I) S SON V ugl ý.singast j»»t i: J Ó N S \ M Ó EISSON Ártíaiiifiiriiiii koslai kr. 75.00 Blartið kitiim iii á niiftvikudiH'um og faiiifaidíítfuiii, |)ci>ar cfni staiula til Cjaltidaifi <r f. júlí i'Rr.NTvnitK oni)s nji>kvssonar h.f. Enn hafa kjósendur valdið 1 í ræðu þeirri sem formaður Framsóknarflokksins, Hermann Jónasson, flutti við setningu 12. flokks- þingsins á miðvikudaginn, sagði hann m. a. um kjördæmatnálið: ,„Ég efast ekkert tim það, að niargir þeir, sem standa fremstir í baráttunni fyrir hinni nýju stefnu, eru sann- farðir um, að þeir hafi rétt fyrir sér. Trúleysi þeirra til að veita fjánnagni til framfara út um land — og oftrú þeirra á það, að allt eigi að gerast hér, á Suð-vesturhom- jnu, er svo grómtekin að furðu sætir. Sumir trtia aðeins á bláhomið. Þetta er þjóðarógæfa í augum okkar Fram- sóknarmanna. Það er ógæfa fyrir landsbyggðina og fyrir landið í heild — ógæfa fyrir suðvesturhluta landsins, aðallega Reykjavík, sem á að taka við fólksfjölguninni og aðstreyminu án þess að liafa möguleika til þess. Fátt cr nauðsynlcgra velmegun stórs höfuðstaðar í litlu landi ' en að landið sé allt vel setið og velmegun almenn. Af landeyðingarstefnunni, ef framkvæmd yrði, lciddi upp- lausn í þjóðfélaginu, atvinnulcysi og maigháttuð vand- 1 ræði. Við Framsóknarmenn crum sannfærðir um það, að heilbrigðasta leiðin cr að hyggja upp atvinnuvegina um landið allt. Þannig getur þjóðin öll bt/í lifað farsælu lífi við batnandi liag. Við bendum á, að út urn landið crtt framleidd meiri verðinæti, meiri útflutningsvörur 1 og neyzluvörur að tiltölu við fólksfjölda, en á öðrum i svæðum landsins. Þctta er vegna þess, að þar vinnur 1 fleira fólk tiltölulega við framleiðslustörf. Við bendum 1 á, að þetta fólk hefur og fratn á þcnnan dag reynzt þess 1 megnugt að leggja að minnsta kosti sinn skerf til menn ingarmála þjóðarinnar. Þetta er lífsskoðun okkar og stefna og samkvæmt henni höfum við reynt að vinna og orðið nokkuð ágengt. Þeir, sem nú vinna að landeyðingarstefnunni, vita mæta vel, að það væri öðruvísi umhorfs út um land í dag, ef kjördæmin þar hefðu ekki sent marga menn á Alþing, sem bcittu sér ótrauðir fyrir framförum út um 1 landið. En þeir vita það líka, að þcir væru færri miljóna tugirnir, sem til þessa hefur verið varið. Við Islendingar veúðum mikið á þriðja hundrað þús. eftir 50 ár og þurfum að byggja landið allt. Það er ömur- legur og kotungslegur hugsunarháttur, sem nú er að ryðja ' sér til rútns hjá andstæðingum okkar, að við þurfum ekki og getum ekki byggt og bætt landið allt. Framsóknar- flokkurinn liefur reist öldu framfara um land allt á síðustu árum og á þeiin grunni eigum við að byggja framtíðarstefnuna. Það er hin eina rétta leið. 1 Flokksþingið er fyrst og fremst kallað saman til þess að sameina kraftana og skera upp herör gegn gjörbylt- ! ingu í kjördæmamálinu og þeirri landeyðingarstcfnu, sem vcrða mun afleiðing hennar. En það er enn á valdi | fólksins að stöðva þetta. Til þess að stöðva framgang þessara mála þarf það citt, að kjósendur út um landið, í sveit og við sjó, skilji ltvað er að gerast, opni augun, 1 en láti ekki starblindu flokksagans gera sig að eigin böðlum. Hlutverk okkar í þeirri hörðu og örlagaríku baráttu, scm nú er framundan, er að fá nógu marga til að skilja þetía, velja liið rétta og snúa vopnum stnum gegn stefnu, 1 sem er öllum til tjóns, er þeim sjálfum þó mest.“ Tólfta flokksþingi Framsóknarmanna lauk á mánu- daginn. Það var mjög fjölmcnnt og var háð í hinu nýja heimili ffokksins við Fríkirkjuveg, hinum glæsilegustu húsakynnum. Á þinginu ríkti óvenjumikill áhugi um málcfni lands og þjóðar og það markaði stefnu flokksins í þjóðmála- baráttiinni. Að baki sviðsljósanoa með némeridum M. A. Undanfarna vetur hefir ver- ið skemmtileg tilbreytni í hinu tilbreytingarlausa skemmt- analífi hér á Akureyri, þar sem nemendur M. A. hafa gengið til móts við leíklistar- gyðjuna „Thalíu“, og hafa þeir að verðleikum hlotið lof fyrir. — Eins og öllum er kunnugt er nú nýlokið sýningum hjá Leikfélagi M. A: og er al- mennt álit manna að;sjaldan eða aldrei hafi sýningar tekizt betur en nú hjá félagiriu. * * * Fréttamaður þáttarins laum- aðist á bak við tjöldin á einni sýningu hjá þessu unga fólki og var svo heppinn að Björn Dagbjartsson, formaður leik- félags M. A., var þá að koma kófsveittur af sviðinu frá því að fylla íbúð ungu elskend- anna af húsgögnum og átti því fyllilega skilið að fá sér smá- hvíld að áliti fréttamanns. — Björn var því samþykkur og tóku þeir sér því sæti úti í horni innan um allskyns „munderingar“, sem þeir einir kunna að nefna, sem þekkja leiksvið af eigin raun. Er nokkuð fleira en þessi eina sýning á dagskrá hjá félaginu á hverju ári, Björn? Nei, ekki er það og vií eg segja að það sé fyllilega nógu mikið. Hópur . sá, sem stend- ur að þessum sýningum hverju sinni, fórnar öllum sín- um frítíma í æfingar og und- irbúning. — Sem örlitla sára- bót höfum við á hverju ári fengið að fara með sýningar til Siglufjarðar og hefir það verið til að auka áhugann. Hvað vilt þú segja um áhuga nemenda á félaginu? Það er ekki gott að leggja neinn dóm á það, þar sem fé- lagið starfar ekkert formlega að undanskildum þessum sýn- ingum á hverju ári, en þó að mikið starf liggi á bak við æf- ingar o. fl. hafa færri komizt að en vilja. Hvað um leikstjórann? í upphafi stóð til að fá Jónas Jónasson, en það brást, og leit um tíma mjög illa út fyrir okkur, en úr rættist eins og bezt varð á kosið. Til okkar réðst ungur leikari frá Reykjavík, Jóhann Pálsson, og reyndist hann okkur í alla staði hið bezta. — í þessu féll tjaldið og þátturinn var úti og sá þá fréttamaður í iljar Björns, er hann fór til að að- stoða við að breyta sviðinu. # # * Hita og þunga þessarar sýn- ingar báru þau Anna G. Jón- asdóttir og Jón Sigurðsson, sem léku elskendurna, og má segja að þau hafi verið eins og vel æfðir atvinnuleikarar á sviðinu. Er þetta í fyrsta sinn, sem þið komið á fjalirnar? spyr fréttamaður, er þau koma á móti honum hönd í hönd. Bæði segjast áður hafa verið á fjölunum, en Jón segir Onnu sér miklu van- ari, en hún er ekki alveg á því að sam- þykkja það, en sendir samt Jóni sitt blíðasta bros. Er ekki oft fjörugt og skemmtilegt að tjaldabaki? „Alveg aga- legá gaman að standa í þessu," segir Anna. — „Það eru þín orð, elskan," muldrar Jón.— „Mesta fjörið eftir. Ferðin til Siglufjarðar.“ Er tími til æfinga tekinn af lærdómstíma eða skemmtana- tíma? Þessu svara þau bæði: „Svona nokkurn veginn til helminga." Jón bætir við: „Sennilega þó meira af lær- dómstíma," og Anna kinkar kolli. Fréttamanni þótti þeim tak- ast sérlega vel upþ í „rifrild- is- og ástarsenum“ og gerðist því svo djarfur að spyrja hvort þau hafi einhverja reynslu í þessum efrium af hvoru öðru í daglega lífinu. Bæði þvertóku fyrir það, en tóku fram að þeim „kæmi sér- lega vel saman“. # * # Að öllum ólöstuðum skap- aði Björn Olafsson ábyggilega skemmtilegustu „typuna“ í þessari sýningu, sem hinn geðilli pípulagningamaður. — Fréttamaður rakst á hann með verkfæratösku sína í annarri hendi og skeggið í hinni. Getum við átt von á að sjá þig aftur hér á sviðinu? Ekki býzt eg við því. — Eg hefi nú verið í þremur hlut- vefkum hér og lýk að öllu for- fallalausu við skólann í vor. Hvaða hlutverki hefir þér þótt mest gaman að? Alveg tvímælalaust þessu, sem eg nú er í. — Það er hægt að gera miklu meira úr hlut- verkunum þegar maður hefir eins gott gerfi og eg hefi nú. * # # Þegar fréttamaður var á förum rakst hann á snaggara- legan og hýreygan eldri mann innan um alla unglingana. — Reyndist þar vera kominn Oddur Kristjánsson, sem var brunavörður á þessum sýn- ingum, en hefir séð um svið- setningu o. fl. fyrir L. A. um langt skeið.. Segðu mér Oddur, líkar þér ekki vel að vinna með ungl- ingunum? Jú, — bless- aður vertu — hvergi betra að vera. Eg yngist bara upp um fleiri ár þegar eg vinn með þeim. — Það er sko líf í tuskunum, maður. Þú ert búinn að vera í „leik- stússi“ í mörg ár? Ja — nú er eg búinn að vera 15 ár hjá L. A. Byrjaði 1944 í „Gullna hliðinu“, og hefir líkað alveg prýðilega, þrátt fyrir amstur og strit. — Þú mátt vera viss um að þetta hefir kostað margar andvöku- nætur, en það hefur borgað sig. Leiklistin lengi lifi! Sjómanna- og gestaheimili Siglu* fjarðar 1958 20. STARFSÁR. I. Sumarið 1958 hóf Sjómanna- og gestaheimili Siglu- fjarðar starfsemi sína þriðjttdaginn 24. júní og starfaði til ágústloka. Stúkan Framsókn nr. 187 starfrækti heimilið eins og áður. Er þetta tuttugasta sumarið, sem stúkan starfræk- ir heimilið yfir tvo til þrjá mánuði á sumri hverju. Húsakynni heimilisins voru þau sömu og áður. Fyrsta síldin veiddist 18. júní djúpt út af Húnaflóa. Þann dag fengu 3 eða 4 skip 2—4 hundruð tunnur. Síldin var óvenju feit eftir árstíma eða 17—20% og fór öll í salt og frystingu. Frá 19.—24. júní var nokkur veiði á þessum slóðum og saltað mikið á Siglufirði og cinriig í Olafsvík og á Dalvík. Síldin óð ekki, en kastað eftir mælingum og mori. — 24. júní var .búið að salta hér á Siglufirði um 20 þús. tunnur. Saltað var á um 20' plön- um hér. Þann 24. júní voru rúm 100 skip komin til síldveiða, en fjölgaði óðum og munu alls hafa orðið um 240 við veiðar. Veður var þessa daga alltaf hæg norðan átt, oft nokk- ur þoka, hiti 6—8 stig. Margt aðkomufólk kom til Siglu- fjarðar síðustu daga júnímánaðar, en stóð stutt við og fór aftur að fara upp úr miðjum júlí. Fólksekla var mikil fyrstu dagana, sem söltun stóð. Leikflokkur frá Þjóðleikhúsinu sýndi í heimilinut sjónleikinn „Horft af brúnni“ tvívegis fyrir fullu húsi. Þá sýndi leikflokkur Gísla Halldórssonar sjónleikinn „Spretthlauparann," eftir Agnar Þórðarson. 9. júlí boðaði umboðsmaður asdictækja, Friðrik. Eggertsson, skipstjóra á síldveiðiskipum á fund í Sjó- mannaheimilinu og ræddi við þá um notkun tækjanna, Um 60 skipstjórar sátu fundinn. II. Starfsemi heimilisins var með sama sniði og áður- Starfsfólk var: Jóhann Þorvaldsson, Erla Olafs og Bald- vina Baldvinsdóttir. Auk þess unnu þar aðstoðarstúlk- ur, Jiegar mest var að gera í júlí. Heimilið var opið dag- lega frá kl. 10 f. lr. til kl. 23,30. Veitingar, kaffi, mjólk,. öl og gosclrykkir, voru framreiddir í véitingásal alla daga. í veitingasal lágu frammi flest blöð og mörg; tímarit. Útvarjz var í veitingasal og píanó og orgel höfðu gestir til afnota. Afgreidd voru landssímtöL stundum svo tugum skipti á dag. Annast Var um mót- töku og sendingu bréfa, peninga og símskeyta. Pappír og ritföng fengu gestir eftir Jrörfum endurgjaldslaust. Skrifuð voru 485 bréf í lesstofu, þar af 86 af útlending- um III. Bókasafnið var starfrækt eins og áður. í bókasafnintr eru nú um 2150 bindi bóka. Nokkur hluti bókanna gengur úr sér árlega og verður að eyðileggja þær. Heimilið keypti um 200 bindi á árinu og naut þar stuðnings velunnara sinna. Vegna fjárskorts er mjög takmarkað ltvað heimilið getur keypt af bókum árlega. Bækur voru lánaðar í skip eins og fyrr, einn bókakassl í skip í einu með allt að tíu bindum. Einnig voru lán- aðar bækur til verkafólks, sem vann í landi. Enga greiðslu tók heimilið fyrir bókalánið. 34 skipshafnir tóku bókakassa og nokkrar skiptu um einu sinni eða tvisvar yfir sumarið. Alls voru lánuð út 578 bindi og er Jrað með mesta móti. Flest blöð og allmörg tímarit fær heimilið endur- gjaldslaust yfir sumarmánuðina. Vill heimilið flytja útgefendum beztu þakkir fyrir. IV. Böðin starfrækti heimilið eins og áður. Böðin voru opin til afnota alla virka daga og einnig á sunnudög- um, þegar mörg veiðiskip lágu í höfn. Aðsókn að böðunum var mikil einkum þá daga, er veður hamlaði veiði. Fyrripartinn í júlímánuði var lika margt aðkomu- fólk í bænum, en í ágúst tiltölulega fátt. Baðgestir í júlí.................1433 — - ágúst ................ 846 Alls 2279 1 V. Eins og áður er getið starfrækir stúkan Framsókn nr 187 Sjómanna- og gestaheimili Siglufjarðar og hefur svo verið síðan 1939. Með þessari starfsemi hefur stúk- Framhald á 7. síðu.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.