Dagur - 25.04.1959, Blaðsíða 2

Dagur - 25.04.1959, Blaðsíða 2
2 D A G U R Laugardaginn 25. apríl 1959 HERJÓLFUR SKRIFAR H I N G S J Á Lokatakmarkið er: Landið eitt kjördæmi Kjördæmabreydng þríflokkanna beinlínis sniðin með það fyr- ir augum að fá tilefni til enn róttækari breytinga eftir fá ár KjördæmafrumvarpiS er komið fram, loks cftir langa mæðu. f heild sinni er það eins og forsætisráðherra boð- aði í nýársboðskapnum, en nokkuð mun handaumferð kommúnista setja mark sitt á einstök atriði. Vitað er, að Al- þýðuflokkurinn vildi hafa 7 þingmenn í Norðurlandskjör- dæmi eystra, en kommúnistar fengu ráðið því, að þingmenn þar verða aðeins 6. Merkir það, að Alþýðuflokkurinn hef- ur ENGA möguleika til þess að fá kjördæmakjörinn þing- mann í þessu kjördæmi, ef ekki breytist mikið það fylgi, er flokkörinn hefur haft á þessu landssvæði, og er raun- ar sízt að vænta anna^ra breytinga en þeirra, sem liggja niður á við. Er kunnugt, að Alþýðuflokkurinn er svo óvin sæll hér á Norðurlandi og víð- ar fyrir stefnu sína í kjör- dæmamálinu, efnahagsmálum og fáheyrð svik sín við vinstri stjórnina og bandalagið við Framsóknarmenn, að hann á sér engrar viðreisnar von. I»að hlýtur að vekja furðu allra, hvílík fásinna það er að ætla að leggja Akureyri nið- ur sem sérstakt kjördæmi. Akureyri er mjög vaxandi bær og verður eftir örfá ár kominn með yfir 10 þús. íbúa og langt yfir 5 þús. kjósend- ur. Þá er sýnilegt, að Akur- eyri vex öðrum hlutum kjör- dæmisins algerlega yfir höf- uð að fólksfjölda og mun valda mikilli röskun á því hlutfalli, sem er milli hinna tveggja Norðurlandskjördæma og er þó þegar nú í upphafi misræmi á milli þeirra, þar sem (miðað við síðustu al- þingiskosningar) það verða rúmlega 1800 kjóse.ndur á bak við hvern þingmann í eystra kjördæminu en aðcins á 12. hundraðið í vesturkjördæm- inu. Með þessu ákvæði fruin- varpsins er þannig alls ekki stefnt til þess jöfnuðar milli kjördæma, sem virtist þó vera annar megintilgangurinn með kjördæmabreytingunni, held- ur er við haldið nákvæmlega sömu annmörkum og and- stæðingar sögulega þróuðu kjördæmanna hafa fundið þeim sérstaklega til foráttu. Margir Sjálfstæðismenn eru svo barnalcgir að trúa því, að þessi kjördæmabreyting sé endanlegt skipulag kosninga- mála á íslandi. Talsmenn flokksins gefa út hátíðlegar yfirlýsingar, að staðnæmzt verði við þessa breytingu og hún muni gilda um eilífð upp frá þessu! Þeir, sem þekkja yfirlýsingar Sjálfstæðisfor- kólfanna' í kjördæmamálinu frá 1942, þegar Ólafur Thors sagði í þingræðu, að Sjálf- stæðisfl. myndi ALDREI fylgja fáum og stórum kjör- dæmum, sem sami Olafur Thors berst nú harðast fyrir 17 árum síðar, — gera að sjálf sögðu ekki mikið úr gildi slíkra yfirlýsinga. Þær er og getur ekkert verið að marka. í öðru lagi geta gamlir og af- dankaðir þingmenn íhaldsins ekki bundið hendur þeirra Heimdellinga, sem nú fara senn að taka við algerum yfirráðum innan Sjálfstæðis- flokksins, og það er því eins víst, að eftir örfá ár sameinist Sjálfstæðismenn kommúnist- um og Alþýðuflokksmönnum, ef þeir verða þá nokkrir til, um enn róttækari kjördæma- breytingu og heimti, að land- ið verði EITT KJÖRDÆMI. Við vitum af gamalli reynslu, að þessir flokkar eiga í raun og veru ekki aðra stcfnu í kjördæmamálinu. Og þeir munu ekki linna látunum, fyrr en þeim hefur tekizt að fá sitt fram. Það þykir hins vegar ekki „praktiskt“ í bili að taka stærra stökk í einu en nú er gert, en nái þeir þessum áfanga, verður þeim eftirleik- urinn næsta auðveldur, sér- staklega þegar við svo leiði- taman bandmann er að semja sem íhaldið. Þó að Sjálfstæð- ismenn tali um endanlegt skipulag, eftir að breytingin er komin á, þá segja komm- únistar aðeins, að hið fvrir- hugaða kjördæmaskipulag „feli ekki í sér neitt endanlegt rétílæti". Sama.segja Alþýðu- flokksmenn. Má því segja þessum flokkum það til hróss, að þeir eru nokkurn veginn sjálfum sér samkvæmir. Vit- anlega er það rétt, að hið nýja kjördæmaskipulag felur ekki í sér það „réttlæti“, sem komm- únistar og Alþýðuflokksmenn telja öllu réttlæti ofar. Undir hinu nýja fyrirkomulagi er héruðum og flokkum mismun- að, engu síður en undir því grundvallarskipulagi, sem nú er talið allra verst. Dæmið um Norðurlandskjördæmi eystra með Akureyri innan- borðs sýnir ljóslega hvert stefnir um varanleik liinnar nýju kjördæmabreytingar. Ætli það líði mörg ár, áður en farið verður að útlirópa 8- kjördæmaskipulagið sem ólýð ræðislegt? Ætli Alþýðuflokks- mönnum þyki hlutur sinn beysinn, þegar þeir fara að hirða uppskeruna eftir bylt- inguna? Og ætli Alþýðu- bandalagsmönnum verði ekki svipað innanbrjósts? Sann- leikurinn er sá, að svo lengi scm Alþýðuflokkurinn er háð ur því að bjóða fram í flciri kjördæmum en einu — nefni- lega því eina kjördæmi, sem hann hefur einhverja veika von í, því flokkurinn á ekk- ert nema tvístrað lið út um hvippinn og hvappinn að und- anskildu Faxaflóasvæðinu — þá er hann sífelldlega á ná- strái! Það eru því engar líkur til, að Alþýðuflokkurinn sætti sig við stóru kjördæmin til lengdar. Það þarf ekki að efast um, að einhvern skammdegis- daginn eftir fáein ár ályktar þing Alþýðuflokksins svo, að allt annað sé ólýðræðislegt en að landið sé eitt kjördæmi. Sjálfstæðismenn munu áreið- anlega ekki liafa manndóm í sér til þess að andmæla þeirri skoðun, cf þeir breyta ekki þeim mun meira um hugarfar, sem sízt er að vænta, og þá fer öll hersingin af síað að nýju og hefur lokasóknma að því marki, sem hún nú stefn- ir að, þótt Iiún „æji ögn“ á fjórðungamörkunum í bili til þess að hvíla þá, sem tregir eru til fylgdar. En kjarni málsins er sá, að kjördæma- breyting þríflokkanna nú er beinlínis snðiðin með það fyr- ir augum að fá tilefni til enn róttækari breytinga efíir nokkur ár. Land ey ðingarstef nan Stefna AJ.þýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins í efna- hags- og fjármáluni er nú mörkuð. Gengur allt eftir, sem Framsóknarmenn hafa sagt. Uppbótum og niðurgreiðslum á að mæta með því að skera niður verklegar framkvæmd- ir, gera greiðsluafgang ríkis- sjóðs að eyðslueyri, skerða atvinnuaukningarfé og auka innflutning hátollavarnings og Iáta hann sitja fyrir innflutn- ingi nauðsynja. Stefnan getur því ekki leitt til annars en minnkandi uppbyggingar, minnkandi atvinnu og neyzlu- vöruskorts, en þeim mun meira framboð lúxusvarnings og óþarfa. Sýnilegt er, að uppbygging- arstefna fyrrverandi ríkis- stjórnar, sem miðaði að jafn- vægi í byggð landsins, eflingu atvinnulífs í öllum Iandshlut- um og framtíðaratvinnuöryggi í sveit og við sjó, á ekki upp á pallborðið lijá þeim, sem nú fara mcð landsstjórnina. Verð- ur nú augljóslega hlaupizt frá öllum áætlunum um jafna uppbyggingu alls landsins og innleidd sú landeyðingar- stefna, sem er takmark og höíuðinntak þeirrar stórkost- legu stefnubyltingar, sem nú er uppi í kjördæmamálinu, og studd verður fram til sigurs með hinni nýju fjárfestingar- pólitík. Krisfjana Sigfúsdóffir MIN NIN G A R 0 R!) Þegar ég á degi hverjum geng' hjá húsinu Hrafnagilsstræti 4 á Akureyri, minn.ist ég þess, að nú eru gömlu hjónin farin þaðan úr kjallaranum. Aldrei mun ég framar líta þar inn til að hlusta á nýjustu ferskeytluna, eða heyra húsfreyjuna segja frá síðustu bókinni um dulræn fyrirbrigði. Húsfreyjan er nú horfin bak við tjaldið mikla, en gamli maður- inn fluttur til fósturdóttur sinn- ar út á Ytri-Brekkuna. Þetta er gangur lífsins. En hvað ber til að ég leyfi mér að rita minningarorð um þessa konu, sem ég hef aðeins þekkt í einn áratug? Eingöngu vegna þess, að enginn annar, sem þekkti hana betur, hefur gert það. Kristjana Sigfúsdóttir var fædd á Hofsstöðum í Mývatnssveit 2. marz 1886. Foreldrar hennar voru Sigríður Jónsdóttir, Hin- rikssonar skálds á Helluvaði og Sigfús Jónsson af Skútustaðaætt. Hún ólst upp í stórum systkina- faópi á Halldórsstöðum í Jleykja-'. dal. Hún átti 6 systkini og eru þau öll á lífi. Eitt þeirra er Sig- urður Bjarklind, fyrrv. kaupfé- lagsstjóri. Hún giftist Einari Árnasyni frá Finnsstöðum í Kinn 8. júlí 1906 rúmlega tvítug. Þau hjónin bjuggu lengst á Vatns- enda og Landamótsseli í Kinn. Hingað til Akureyrar fluttu þau 1933. Þau hjónin eiga einn son, Höskuld, hreppstjóra, á Vatns- horni í Skorradal. Tvö fóstur- börn ólu þau upp, Aðalgeir Frið- biarnarson, sem lézt 23 ára að aldri og Aðalbjörgu Jónsdóttur konu Páls Bjarnasonar, sím- virkja, á Akureyri. Kristjana lézt eftir langa van- heilsu 19. febrúar síðastliðinn, tæplega 73 ára að aldri. Fundum okkar Kristjönu bar síðast sam- an á biðstoíu læknis. Var þá ver- ið að rannsaka sjúkdóm þann, er þjáði hana. Hún lézt eftir upp- skurð. En hvernig var þessi dugmikla og gáfaða kona innst í eðli sínu? Hver voru áhugamál hennar? Þegar hún var 18 ára, dvaldi hún einn vetur á Seyðisfirði hjá Jóni frá Múla, frænda sínum. Hún var þá ekki aðeins gáfuð og orðheppin, heldur einnig lagleg og tilkomumikil ung stúlka, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Enda hafði Jón frá Múla miklar mætur á þessari frænku sinni. Kristjana var greind kona, stórlynd en þó viðkvæm. Það þurfti ekki alltaf mikið til að gleðja hana eða hryggja. En hún var vinföst og gott að eiga hana að vini. Hún unni allri fegurð, hvar sem hún fann hana. Hún var mjög blómelsk og unni söng og fögrum Ijóðum. Hún var smekkvís á bókmenntir og áttu þau hjónin einungis góðar bæk- ur. En hún var gersneydd öllu tildri og prjáli. Okkar kunningsskapur hófst með því, að við vorum bæði vin- ir Margrétar frá Öxnafelli og hittumst oft heima hjá henni. Vinátta hennar og Margrétar var traust og innileg. Hún hafði mik- inn áhuga á dulrænum efnum og andlegum lækningum. Og þegar ég leit inn til Kristjönu og Ein- ars, var stundum rætt um vel gerðar ferskeytlur eða dulræn efni. Kristjana hafði mikinn áhuga á sálax-rannsóknum. Hún átti margar bækur um þau mál. Þeir Einar H. Kvaran og séra Haraldur Níelsson voru hennar menn. Síðustu árin mátti segja, að hún stundaði aðeins eina fræðigréin: Lífið eftir dauðann. Og um þau efni var gaman að ræða við Kristjönu. Hún var sar.nfærð um framhaldslífið og gat fært mörg rök fyrir máli sínu. Er hægt að velja sér verð- ugra viðfangsefni í ellinni til að hugleiða en Kristjana gerði? Um leið og eg f-lyt Jressari sér-; stæðu konu blessunaróskir á ei- lífðarleiðum og þakka vináttu hennar og margar samverustund- ir, bið ég hinum aldna eigin- manni hennar huggupar og blessúhár. '' > • Eiríkur Sigurðsson. Kveðið til syrgjenda í kvnjiey Margar raunir mæta oss hér niædda þetía friði: Jarðarbölið brcytir sér í bros á næsta sviði. Drottinn hefur döprum tjáð, dáinn vinur íifir. Treystu gæsku guðs og náð guð oss vakir yfir. Emelia Sigurðardóttir. HEIMA ER BEZT Maíhefti Heima er bezt er komið út. Efni þess eru greinarnar Jónas Rafnar ylirlæknir, Vestur-íslenzkur sögustaður og Draumur Finars Bjarnásonar á Mælilclli eftir rit- stjórann, Steindór Steindórsson, „Hver maSúr skal heita einu ís- lenzku nafhi“, eftir Gils GuSmunds son, I stórhríðarbyl á Hólsfjöllum, eftir GuSna Sigurðsson, framhalds- sögurnar tvær, „Sýslumannssonur- inn‘‘ og „StýfSar fjaðrir“, þáttur Steíáns Jórissonar o. m. fl. Forsíðu- myndin er ai Jónasi Rafnar yíir- lækni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.