Dagur - 16.05.1959, Blaðsíða 1

Dagur - 16.05.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt með því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kemur næst út fimmtu- daginn 21. maí. XLII. árg. Akureyri, laugardaginn 16. maí 1959, 26. tbl. Sfjórnarflokkarnir fengu herfilega úfreið í eldhúsefagsumræðunum Vinsældir fyrrverandi stjórnar lágu eins og mara á íhaldinu og rugluðu dómgreind þess og málílutning. Öllum er orðið Ijóst, að fjárlagaafgreiðslan er óraunhæf og glæfraleg með af- brigðum. Og í kjördæmamálinu standa þríflokkarnir mál- efnalega mjög höllum fæti. Táknrænt var það í eldhús- dagsumræðunum fyrr í vikunni, hvernig vinstri stjórnin sáluga, störf hennar og stefna, lá eins og mara á r§eðumönnum Sjálfstæð- isflokksins og varnaði þeirn að njóta sín. Hvar, sem þeir vildu grípa niður stóð vinstri stjórnin og verk hennar þversum á vegin- um og lokaði allri útsýn þeirra yfir þau málefni, sem nú er við að glíma, svo óhagstæður er íhaldinu allur samanburður á fyrrverandi stjórn og þeirri lepp- stjórn, sem það ber nú ábyrgð á. Og ekki var það síður eftir- tektarveí't í þessum umræðum, að ekkert gátu vinstri flokkarnir verra sagt hver um annan, en að „hinir flokkarnir“ ættu sök á stjórnarslitunum. Þetta er at- hyglisverður vitnisburður og glöggur er hann um vinsældir vinstri stjórnarinnar. Svikin við hana, bæði af hendi kommúnista í Alþýðubandalaginu og hægri arms kratanna, voru þjóðar- ógæfa. Um hina óþjóðhollu af- stöðu íhaldsins efaðist enginn fyrirfram. En hrópyrði þess um vinstri stjórnina verða sér æ meira til minnkunar vegna þess hve gjörsamlega núverandi stjórn Árni Jónsson á söngferð Árni Jónsson söngvari er ný- lega kominn til landsins og mun hann halda söngskemmtanir víða um land í sumar, meðal annars á Akureyri. Hinn vinsæli söngvari hefur fengið mörg atvinnutilboð er- lendis, en hann mun fresta því til haustsins að ákveða svör sín. En þá fer hann utan og mun þá m. a. „prufusyngja“ fyrir norsku óper- una. wm er úrræðalaus í höfuðþáttum stjórnmálanna. í ofboðslegri hræðslu um stór- fellt fylgishrun, hefur svo íhaldið og með því bæði kratar og kommúnistar, gripið til þess ör- þrifaráðs, að brengla kjördæm- unum í eins konar hefndarskyni fyrir það, að fólkið kýs „ekki rétt“! í efnahagsmálunum vottar ekki fyrir nokkurri úrlausn. Það er ekki einu sinni séð fyrir tekjum til hinna stórfelldu niður- greiðslna, sem búið er að binda ríkissjóði og Utflutningssjóði. — Verklegar framkvæmdir eru stórlega skertar og sérstaklega níðst á fólki í dreifbýlinu með afnámi 10 ára raforkuáætlunar- innar o. fl. Núverandi stjórn hef- ur lýst vantrausti sínu á fall- vötn sem orkugjafa, en aðhyllist olíumótora til rafmagnsfram- leiðslu og þykir nógu gott í sveitum. Fulltrúar á þingi Héraðssamb. Skagafj. að félagshciniilinu Bifröst. Vilja að Brefar séu kærðir íyrir S. Þ. Fjölmennt þing Ungmennasamb. Skagafjarðar TOGARARNÍR allir með fullíermi af Nýfundnalaiidsmiðiim Kaldbakur kom 13. þ. m. með 307 tonn fiskjar af Ritubanka eftir 13 daga veiðiferð og er á leið vestur. Harðbakur kom i gær af sömu miðum með ca. 340 tonn. Sléttbakur og Svalbakur eru j báðir á heimleið af sömu miðum með fullfermi. Verða hér eftir ! helgina. Frá eldhúsumræðiinum: Raforkuframkvæmdir fyrr og nú Upplýst var í umræðunum eft- irfarandi um rafmagn til sveita- býla: Samkvæmt tíu ára áætluninni áttu 1337 sveitabýli að vera búin að fá rafmagn frá samveitum í árslok 1958. Þá var búið að tengja 1320 býli við veiturnar og langt komið að leggja á nokkra bæi til viðbótar. Vilja menn ekki bera þetta saman við tal stjórnarliðsins um „frestun“ framkvæmda í stjórn- Nýft skipafélag - Nýft skip í gær var í Hamborg lagður kjölur að nýju flutningaskipi, 750 tonn að stærð. Tómas Björnsson kaupmaður á Akureyri skýrði blaðamönnum frá þessu á miðvikudaginn í myndarlegu kaffiboði að Hótel KEA. Hann sagði m. a. að Verzl- anasambandið h.f. hefði verið stofnað haustið 1954 og að i því væru um 50 fyrirtæki víðs vegar um land, einkum utan Rvíkur, og er það umboðs- og innflutnings- samband. Helgi Bergsson er fram- kvæmdastjóri þessa fyrirtækis, en Tómas Björnsson kaupmaður á Akureyri formaður þess. Síðastliðið sumar ákvað sam- band þetta að leita leyfa stjórn- arvaldanna fyrir skipakaupum og voru þau veitt gegn því skilyrði, að lán fengist erlendis til 10 ára með sanngjörnum kjörum. haust samþ. Verzlanasambandið að stofna hlutafélagið „Hafskip h.f.“ með tveggja millj. kr. hluta- fé. Formaður „Hafskips h.f.“ er Helgi Bergsson. Nú er þessum málum svo langt komið, að kjölur nýs 750 smál. flutningaskips er lagður, eins og fyrr segir, og skipið á að afhend- ast í nóvember næstkomandi. artíð Framsóknarflokksins? Nú á hins vegar að taka út úr áætluninni framkvæmdir, sem mundu kosta nú 108 millj. kr. og setja í staðinn ýmsar „hæpnar“ framkvæmdir, „svo að eitthvað komi í staðinn“, eins og það var orðað af sérfræðingum raforku- málanna í álitsgerð þeirra í vetur. Ábending borgara Einn af góðum borgurum þessa bæjar leit inn á skrifstofu blaðs- ins í gær og bað að koma þeirri ábendingu sinni á framfæri, að nú þegar yrði höfð umferðavika hér á Akureyri. Færi vel á því, að nota einmitt þennan tíma til þess, á meðan bifreiðaskoðun stendur yfir og áður en ferða- mannastraumurinn beinist hing- að fyrir alvöru í sumar. Borgar- inn getur þess, að umfei'ðamenn- ingunni sér hér í mörgum atrið- um svo áfátt, að furðu gegni. Til Lánið fékkst í Þýzkalandi og í dæmjs nefnir hann það> að bif. reiðastjórar noti ekki einu sinni stefnuljósin, jafnvel ekki lög- reglubíllinn, ekki sé óalgengt að sjá ekið með 80—90 km. hraða eftir Strandgötunni og gangandi fólki sé einnig mjög áfátt í þekk- ingu á einföldustu atriðum um- erðareglna. Blaðið kemur hér með ábend- ’ngar borgarans á framfæri og mælir eindregið með þvi að henni sé gaumur gefinn. Ársþing Ungmennasambands Skagafjarðar var haldið í Félags- heimilinu Bifröst á Sauðárkróki dagana 2. og 3. maí sl. Tólf félög með 649 félaga eru í U. M. S. S. Þingið sátu 35 fulltrúar. Þingfor- seti var kjörinn Halldór Bene- diktsson, bóndi, Fjalli í Sæmund- arhlíð. Sambandsstjóri, Guðjón Ingimundarson, setti þingið og flutti starfsskýrslu stjórnarinnar. íþróttastarfsemin var mikil á vegum sambandsins og virðist áhugi á knattspyrnu mjög vax- andi. Knattspyrriuþjálfararnir Ellert Sölvason og Olafur Gísla son leiðbeindu hjá félögunum um nokkurt skeið og var þátttaka góð. íþróttamót voru mörg á ár- inu. Skákmót var háð með 6 sveitum. Sigraði U. M. F. Glóða- feykir. Margar samþykktir voru gerð- ar á þinginu og skal hér getið þeirra helztu: Um landhelgismál. „Ársþing U. M. S. S. 1959 fagn- ar útfærslu fiskveiðilandhelginn- ar í 12 rnílur og telur að verndun fiskimiðanna sé eitt brýnasta lífs- hagsmunamál íslenzku þjóðar- innar. Ársþingið vítir hai'ðlega fram- komu brezkra stjórnarvalda að beita hreinum ofbeldisaðgerðum við varnarlausa smáþjóð, sem jafnframt er vina- og bandalags- þjóð. Skorar ársþingið á Alþingi og ríkisstjórn að kvika í engu frá þeirri ákvörðun, sem tekin hefur verið um 12 mílna fiskveiðiland- helgi. Með tilliti til síðustu atburða, telur þingið fullkomlegatímabært að Bretar verði kærðir fyrir Sameinuðu þjóðunum. Skorar því þingið á íslenzk stjórnarvöld að vinna að því bráðan bug, að svo verði gert.“ Til landhelgisgæzlunnar. „40. ársþing U. M. S. S. vottar starfsmönnum landhelgisgæzl- unnar virðingu sína og þakkir fyrir drengilega og einarða fram- komu í baráttu sinni við hinn taumlausa yfirgang brezkra land helgisbrjóta.“ Þá var samþykkt að reynt yrði að koma á starfsíþróttamóti í sumar. Hefur sú íþróttagrein lítt rutt sér til rúms hér í Skaga- íirði. Einnig samþykkti þingið að styðja skógræktarmál Skagfirð- inga, eftir beztu getu og hvatti alla ungmennafélaga til að mæta á næsta gróðursetningardegi Framhald, á 4. siðu. Hioar sterku heildir Því stærri heildir, þcss betra. Því stærri kjördæml, þcss bctra fyrir háttvirta kjóscndur, scm þá geta snúið sér til margra þingmanna með inálefni sín í stað eins eða (vcggja áður, segir ihaldið. En það sem íhaldið hugsar er þetta: Við fáum ekki fólkið til þess að kjósa okkur í hin- um ýmsu kjördæmum og þess vegna cr kjördæmaskipunin óréttlát og við skulum leggja þau niður og búa til önnur við okkar hæfi. Með sömu rökum og íhaldið notar í kjördæmamálinu ætti ckki að kjósa fulltrúa í hverj- um hreppi til að fara með at- kvæði á sýslufundi, heldur kjósa þá alla í einu lagi til að fullnægja „réttlætinu“. Mcð íhaldsrökum hafa Grímsey- ingar engan rétt á heilum full- trúa á sýslufundi og auk þess yrði hag eyjarskeggja miklu bctur borgið með því að svifta þá sérstökum fulltrúa sínum. Samkvæmt rökum íhaldsins um hinar stóru og stcrku heildir, hefur það liklega verið glæfraspor fyrir íslendinga að losa sig undan dönskum yfir- ráðum og vera að basla með lýðveldi og sjálfstæði í stað þess að vera hluti af stærra ríki.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.