Dagur - 27.05.1959, Qupperneq 8
8
Miðvikudaginn 27. maí 1959
Bagijr
ir gæðingar á skeiðvelii „Léltis"
viS Eyjafjarððrá
Góðhestakeppni og kappreiðar - Fjörutíu og sjö
hestar komu fram og fjöldi fólks horfði á
Styrktarféiag fangefinsia stofnað
á Ákureyri sl. föstudag
Formaður þess er Jóhannes Óli Sæmundsson 1
Kappreiðar og góðhestasýning
IJestamannafélagsins Léttis á
Akureyri eru haldnar á ári
hverju, og nú hin síðari ár á
bökkum Eyjafjarðarár, skammt
sunnan við flugvöllinn hér sunn-
an við bæinn. Þar er skeiðvöllur
félagsins og æfingarsvæði.
Þrennt var einkum skemmtilegt
við þetta mót Léttis á sunnu-
daginn. í fyrsta lagi hafa veður-
guðirnir verið skapmildir með
afbrigðum að undanförnu, svo að
gras hefur gróið mjög ört, tré
laufgast og öll skepna fagnað
hjýindum og sönnu sumri. Eyja-
fjarðaráin hélt sér nokkurn veg-
inn í skefjum, þótt hún væri
meira en bakkafull er líða tók á
daginn í lok kappreiðanna. Þá er
að geta þess, að hestarnir voru
flestir vel hirtir, fallegir á að líta
og margir hreinir gæðingar,
áhorfendum augnayndi og eig-
endum til sóma. Ekki er trútt
um, að hestarnir séu að vaxa
knöpunum yfir höfuð, þ. e., að
hestarnir hafi tekið meiri fram-
Þetta segi ég nú:
„KJÓSIÐ um ávirðingar I
vinstri stjómarinnar,“ segir
Sjálfstæðisflokkurinn.
„KJÓSIÐ um herstöðvar og
kaupbindingu,“ segja komm-
únistar gegnum barka Al-
þýðubandalagsins.
„KJÓSIÐ um fjárhagsbjarg-
ráðin og blíðan róm ráðhcrr-
anna. Munið, að við höldum
ætíð loforð og samninga,“
segir Alþýðuflokkurinn.
SVO stilla þeir sér upp og
kyrja í kór: „Kjósið ekki um
kjördæmabreytinguna.“
ÞINGMÖNNUNUM á sum-
arþinginu eru ekki ætlaðir
langir lífdagar, því að aftur á
að kjósa í haust. Þeim er ætl-
að aðeins eitt: Að greiða at-
kvæði um hina óvinsælu
stjómarskrárbreytingu.
ÞAÐ er ekki furða, þótt
þríflokkarnir vilji sló ryki í
augu kjósenda, sem þcir cru
að reyna að hlunnfara. Þeir
munu leggja geysikapp á
blekkingarnar og fagurgalann,
þar til þeir hafa fengið kjör-
dæmabrcytinguna samþykkta
á sumarþinginu, og fjölgað
hefur verið þingmönnum Suð-
Vesturlands. Þá munu þeir
ætla sér að lyfta grímunni og
þykjast hafa í fullu tré við
dreifbýlið.
NEI, nú skal kjósa um kjör-
dæmamálið eitt. Burt með öll
flokksbönd í því máli. Tökum
allir höndum sanian, dreifbýl-
ismenn!
HLUSTUM ekki á söng þrí-
flokkakórsins, á meðan báfinn
ber að hinum hættulegu
skerjum. Björgum rétti okkar
til lands, og berjumst ekki í
fylkingu Suð-Vesturlands
gegn sjálfum okkur og héruð-
urn okkar. — X.
förum en reiðmennirnir. í þriðja
lagi er ánægjulegt að sjá árlega
fleiri og áhugasamari áhorfendur
á kappreiðum og hrossasýning-
um.
Góðhestakeppnin.
Urslitin í alhliða góðhesta-
keppni urðu þau, samkvæmt úr-
skurði dómnefndarinnar, en hana
skipuðu: Björn Jónsson, Stein-
grímur Óskarsson og Steingrímur
Níelsson:
Hrafnhildur, eigandi Pétur
Þorvaldsson, Akureyri, hlaut
fyrstu verðlaun, verðlaunabikar-
inn. Dómsorð: Léttbyggð, gang-
mikill og fjölhæfur gæðingur. —
Hrafnhildur er 9 vetra.
Draumur, eigandi Eirikur
Brynjólfsson, Kristneshæli, hlaut
önnur verðlaun. Dómsorð: Fjöl-
hæfur, ljúfur, gangmikill og vel
taminn gæðingur. Draumur er 7
vetra.
Ofeigur, eigandi Hallur Jó-
hannesson, Akureyri. Dómsorð:
Glæislegur fjörhestur með drif-
miklum gangi. Hesturinn er 8
vetra.
í fjórða og fimmta sæti urðu
svo Stjarna Guðmundar Snori-a-
sonar, Akureyri, 7 vetra, og
Freyfaxi Sverris Haraldssonar í
Skriðu, 9 vetra.
Klárhestar með tölti.
Víkingur, eigandi Árni Magn-
ússon, Akureyri. Dómsorð:
Áferðafallegur tölthestur með
ljúfan vilja. Aldur 9 vetra.
Flosi, eigandi Helgi Hafliðason.
Dómsorð: Léttbyggður, ljúfur
töltari með glaðan vilja. Flosi er
15 vetra. — (Frarnh. á 7. bls.).
Á föstudaginn var stofnað hér í
bænum nýtt félag, líknarfélag, er
ber nafnið Styrktarfélag vangef-
inna. Var félagsstofnunin gerð að
umtalsefni áður hér í blaðinu. —
Tilgangur hins nýja félags er sá,
að hjálpa vangefnu fólki á eipn
og annan hátt.
Á fundinum á föstudaginn var
Jóhann Þorkelsson héraðslæknir
fundarstjóri, Erlingur Davíðsson
fundarritari. i
Framsögumaður var Jóhannes.
Óli Sæmundsson námsstjóri. Þótt
fundur þessi væri fámennur
höfðu 58 manns óskað að gerast
félagar,- þótt ekki væru þeir allir
mættir.
Samþykkt var að stofna Styrkt
Y f irlögregluþ jóns-
starfið
Þegar Dagur benti á hæpna
málsmeðferð í sambandi við veit-
ingu yfirlögregluþjónsstarfs hér í
bæ, kipptist íhaldið við. saman-
ber síðasta íslending. En við-
brögð þess gefa ótvírætt til
kynna, að það og kratar hafa um
það samið í vetur eða áður, hver
embættið hlyti. Sérmenntuðum
lögreglumanni var ráðið frá að
sækja, og sýnir það leynimakkið
og að auglýsingarnar um stöðuna
voru skrípaleikur einn. — Það
hefði hins vegar eflt lögreglu
bæjarins, að fá mjög hæfan og
æfðan yfirmann, og í því fellst
alls enginn áfellisdómur yfir
þeim tveim lögreglumönnum hér
í bæ, sem sóttu um starfið og
báðir hafa getið sér gott orð.
Þá þótti það harla einkennilegt
— þegar upp komst — að annar
umsækjandinn, Gísli Ólafsson,
var „hækkaður í tigninni“ og
gerður að yfirmanni lögreglu-
þjónanna næstur yfirlögreglu-
þjóni og því haldið leyndu fyrir
Iögregluþjónunum hvað þá öðr-
uin. íslendingur bætir gráu ofan
á svart og segir að þetta hafi skeð
fyrir 3 eða 4 árum. Leyndin hef-
ur því staðið lengur en álitið var
og bætir það sízt hina ógeðfelldu
málsmeðferð.
arfélag vangefinna. Einnig voru
samþykkt lög félagsins — að
mestu sniðin eftir lögum sams
konar félags í Rvík.
Stjórn félagsins skipa: Jóhann-
es Óli Sæmundsson, formaður,
Bára Aðalsteinsdóttir, ritari, Al-
bert Slövason, gjaldkeri, og með-
stjórnendur Jón Ingimarsson og
Jóhann Þorkelsson. Varastjórn:
Þorgeir Pálsson, Agnete Þor-
kelsson, Hjörtur Eiríksson, Har-
aldur Sigurðsson og Páll Gunn-
arsson.
Stofnendur eru þeir taldir, sem
láta innrita sig í yfirstandandi
mánuði.
Leitað að trillubát
Eftir hádegi í gær hóf mótor-
báturinn Helga frá Húsavík leit
að trillubát, sem fór á handfæri
út að Grímsey á föstudaginn og
ekki hefur til spurzt frá því á
sunnudagskvöld.
Það var Jóhannes Straumland,
sem í róðurinn fór og var einn á
bátnum. Hann kom til Grímseyj-
ar á laugardag. Á sunnudags-
kvöldið hafði bátur úr Ólafsfirði
samband við hann og eru það
síðustu fréttir af bátnuin.
Þegar blaðið leitaði frétta um
þetta á f jórða tímanum í gær, var
Helga búin að koma auga á bát,
en greindi ekki, vegna fjarlægð-
ar, hvaða bátur það var.
Fregnir Iiafa nú borizt um, að
báturinn sé fundinn. Vélin liafði
bilað en ekki annað orðið að.
Hámarksliraði innan-
bæjar 35 km.
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
samþykkt, eftir tillögu umferða-
nefndar, að breyta ákvæði lög-
reglusamþykktar bæjarins um
hámarksökuhraða þannig, að
hann verði 35 km. á klst. í stað
25, sem verið hefur.
Ennfremur hefur verið sam-
þykkt, að kantsteinar verði fram-
vegis málaðir með gulri málningu
í stað rauðrar, þar sem bifreiða-
stöður eru bannaðar.
B
Margt nianna horfði á góðhestakeppni og kappreiðar Léttis á sunnudaginn. Myndin tekin vestur yfir Eyjafjarðará. (Ljósmynd: E. D.).