Dagur - 24.06.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagum
DAGUR
kemur næst út laugar-
daginn 27. júní.
XLH. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 24. júní 1959
35. tbl.
ipiB bréf fi! kjó
Akureyri 24. iúní 1959.
HeiðruSu samborgarar!
• Næstkomandi sunnudag, hinn
28. júní, verður efnt til alþingis-
kosninga um land allt og þar á
meðal hér á Akureyri. Kosningar
þessar ber að einu ári fyrr en
vera átti, þar sem þing var rofið
í vor vegna mikillar breytingar,
sem þrír stjórnmálaflokkar vilja
að gerð verði á stjórnarskránni.
Breytingin. er í því fólgin að
leggja, niðux öll kjördæmi utan
Reykjavíkur. Reykjavík ein á að
fá að halda rétti sínum til þess að
kjósa sérstaka fulltrúa fyrir sig
til Alþingis.
Allt frá endurreisn Alþingis í
nýrri mynd árið 1843, hefur
kjördæmaskipunin verið sú, að
sýslur og kaupstaðir hafa átt sína
sérstöku fulltrúa á þingi. Er það
í samræmi við þúsund ára rétt
hinna ýmsu héraða til nokkurs
sjálfstæðis gagnvart ríkisheild-
inni. Þessu á nú að breyta þann-
ig, að sýslur og kaupstaðir verða
sameinuð í stór kjördæmi.
Eitt þeirra kjördæma, sem nú
á að leggja niður, er Akureyri,
og skal hún, ef kjördæmatillögur
hinna þriggja flokka ná fram að
ganga, verða sameinuð öðrum
kjördæmum hér á eystra helm-
ingi Norðurlands. Allir hljóta að
skilja, að hér er um mjög rót-
tæka skipulagsbreytingu að
ræða, enda hafa miklar deilur
prðið um réttmæti hennar, Fram
sóknarflokkurinn er algerlega
andvígur þessari breytingu, svo
og fjölmargir menn í öðrum
flokkum, og er alveg sýnilegt, að
flokksraðir munu riðlast í þess-
um kosningum með ekki ósvip-
uðum hætti og var 1952, þegar
Ásgeir Ásgeirsson var kjörinn
fprseti, þrátt fyrir þá staðreynd,
að flokksforysta tveggja stærstu
stjórnmálaflokkanna, Sjálfstæð-
isfloksins og Framsóknarflokks-
ins, og málgögn þeirra, studdu
annan mann til forsetakjörs.
Hvorki forsetakjörið 1952 né
kjördæmamálið nú voru eða eru
skoðuð sem flokksmál af al-
menningi.Þess vegna verður ekki
kosið eftir flokkslínum í kosn-
ingum næstkomandi sunnudag,
beldur einvörðungu eftir því,
hvaða skoðun menn hafa á kjör-
dæmamálinu, sem er hið fyrsta
og eina mál kosninganna. Sá,
sem viil halda kjördæmi sínu, á
ekki annars kost en að kjósa
fulltrúa Framsóknarflokksins,
því að frambióðendur allra
ahnarra flokka bjóða sig nú fram
til þess að vinna að því að leggja
niður kjördæmið.
Þessi staðreynd blasir við ak-
ureyrskum kjósendum. E. t. v.
munu margir segja sem svo, að
þeir geti ekki fylgt Framsóknar-
flokknum í öllum málum og að
þeim geðjist betur að stefnu
annarra flokka almennt, en slíkt
æíti ekki að fæla neinn frá að
kjósa Framsóknarflokkinn nú,
því að í þessum kosningum er
ekki. verið að kjósa um almenn
stefnumál flokka, heldur um
kjördæmamálið eitt. Sá, sem er
fylgjandi stefnu Framsóknar-
flokksins í kjördæmamálinu,
Ingvar Gíslason.
getur því alls ekki kosið aðra
fiokka að þessu sinni. Seinna
koma aðrar kosningar, og þá
mun kjósendum gefast tækifæri
til þess að kjósa þá flokka, sem
þeir fremur aðhyllast í öðrum
málum.
Framsóknarflokkurinn er sarn
mála öðrum flokkum í því, að
nauðsynlegt sé að lagfæra kjör
dæmaskipunina, en hann er and
vígur því, að hinum forna
grundvelli sé kippt undan þeirri
skipan. Framsóknarflokkurinri
vill, að Akureyri fái að halda sér
sem kjördæmi, og þá jafnframt,
ef farið verður út í breytingar,
að þingfulltrúa verði bætt við
bæinn. Flestum Akureyringum
Framhald á 2. siðu.
Hretin og fuglarnir
í hretum tveim í þessum mán-
uði urðu miklir skaðar í varp-
löndum.
Vatn flæddi yfir varphólma á
ýmsum stöðum, fuglar afræktu
hreiðar sín vegna snjóa, og sums
staðar gerði- veiðibjallan aðsúg
að varplöndunum.
Mófuglar munu hafa farizt í
stórum stíl á Norðurlandi, og er
að þeim hin mesta eftirsjá allra
náttúruunnenda. Hinir óvenju-
legu óveðurskaflar, sem ekki
eiga sinn líka í nokkrum júní-
mánuði á þessari öld, samkvæmt
ummælum þeirra, sem muna
mega.
m
Bernharð' StefánSson.
Garðar llal'dórsson.
Eyfirðíngar fylkja sér um Bernha
(aröar á s
Segja má, að þjóðaratkvæða-
greiðsla um kjördæmamálið fari
fram á sunnudaginn. Þar verður
um það kosið, hvort sjálfstæði
byggða og bæja á að víkja fyrir
alræði stjórnmálaflokkanna. —
Hundruð mótmæla gegn kjor-
dæmabyltingunni hefur rignt yf-
ir Alþingi og ríkisstjórn — þús-
undir kjósenda þríflokkanna mót
mæla því gerræði, að svipta nú-
verandi kjördæmi sérstökum
fulltrúum sinum.
Fylgið hinni sterku mótmæla-
öldu. á kjördegi, afneitið þií-
flokkunum og standið fast um
málstað ykkar sjálfra, ykkar eig-
in hagsmuni.
Frambjóðendur Framscknar-
floksins í bæ og héraði, þeir
Ingvar Gíslason, Bernharð Stef-
ánsson og Garðar Halldórsson
eru allir frjálslyndir umbóta-
nn
menn og traustir og skeleggir
fulltrúar fólksins. Það væri Ey-
firðingum. og Akureyringum
sómi, að kjósa þá alla á þing á
sunnudaginn kemur.
Sunnudaginn er kosið um
kjördæmamáiið eitt. Látið af- .
stöðu ykkar til þess ráða vali
ykkar milli frambjóðenda.
Veiði fremur dauf í gær og síldin iwjög mögur
Samkvæmt símtali við Síldar-
leitina á Siglufirði og Síldar-.
verksmiðjur ríkisins þar í gær,
höfðu borizt um 20 þúsund mál
síldar til Siglufjarðar, þar af 18
þús. til Síldarveiksmiðja rík-
isins.
Mest af þessari sild barst
þangað á sunnudaginn, aðeins
1400 mál á mánudag og 20—30
skip losuðu þar síld í gær.
Síldin er mjög mögur og hefur
ekki nema 12—13% fitumagn og
því langt frá því að vera söltun-
arhæf.
Veður hefur verið prýðisgott á
miðunum til þessa, en byrjað að
kula af austri. Síldin hefur nær
ekkert vaðið, en kastað á hana
eftir lóðningum.
Síldarleitarflugvélar aðstoða
skipaflotann eftir föngum. í gær
var fremur dauft á miðunum, en
verra er nú, en oft áður, að fylgj-
ast með veiði, vegna þess að enn
er aðeins veitt í bræðslu.
1 fyrrasumar tóku 240 skip þátt
í síldveiðunum fyrir Norður-
landi. Sennilega verður síld-
veiðiflotinn svipaður í ár.
Nýi báturinn, Jón Jónsson, Ólafsvík, leggur úr höfn í síldveiðarnar. Skipstjórinn biður fyrir kærar kveðjur og þakkir til allra þeirra,
sem hann átti skipti við hjá Skipasmíðastöð KEA. Velfarnaðaróskir fylgja þessum nýja og glæsilega bát á síldarmiðin. (Ljósm.: E. D.).