Dagur - 09.09.1959, Síða 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur nœst út miðviku-
daginn 16. september.
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 9. september 1959
47. tbl.
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Norðurlandskjördæmi eyslra
Karl Kristjánsson.
Gísli Guðmundsson.
Garðar Halldórsson.
Jakob Frímannsson.
Björn Stefánsson.
Karl Kristjánsson alþingis-
maður skipar efsta sæti á lista
Framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra. Hann hef-
ur verið þingmaður Suður-Þing-
eyinga síðan 1949 og eflt til
muna fylgi flokksins í héraðinu
og sjálfur hlotið sívaxandi traust.
Karl Kristjánsson hefur gegnt
fjölmörgum trúnaðarstörfum,
verið hreppsnefndaroddviti,
sparissjóðsstjóri, framkvæmda-
stjóri Kaupfélags Þingeyinga
og er nú formaður þess, oddviti í
Húsavíkurhreppi og síðar bæj-
arstjóri um skeið, svo að fátt sé
þó nefnt. Á Alþingi hefur hann
verið varaforseti sameinaðs
þings, ritari efri deildar o. s. frv.
Hann er óvenjulega ritfær og
snjall ræðumaður og vel til for-
ystu fallinn.
Gísli Guðmundsson alþingis-
maður hefur um tveggja áratuga
þingsetu að baki, sem fulltrúi
Norður-Þingeyinga. Hann var
ritstjóri Tímans frá 1930—1940.
Á Alþingi hefur hann notið mik-
ils trúnaðar og er hlutur hans í
löggjafarstarfinu hinn merkasti
og alveg sérstaklega í atvinnu-
málum. Þeim er hann flestum
kunnugri. Gísli hefur átt sæti í
milliþinganefnd vegna vinnulög-
gjafar, 1937—1938, í jafnvægis-
nefnd 1945—1946, í milliþinga-
nefnd til endurskoðunar Al-
mannatryggingum 1950, formað-
ur atvinnutækjanefndar, í land-
helgisnefnd o. fl.
Gáfur og rökhyggja Gísla Guð-
mundssonar hafa skapað honum
traust og virðingu, jafnt méðal
kjósenda sinna, sem á Alþingi.
Annað sæti á framboðslista
Framsóknarmanna mun vel skip-
að, þar sem Gísli er.
Garðar Halldórsson bóndi og
oddviti á Rifkelsstöðum skipar
þriðja sæti listans. Hann er einn
af mestu atorkubændum héraðs-
ins, svo sem jörð háns ber vitni
um. Á síðari árum hafa honum
verið falin mörg trúnaðarstörf
fyrir sveit sína og hérað. Oddviti
sveitar sinnar hefur hann verið
um árabil og staðið í umfangs-
miklum framkvæmdum fyrir
hana, svo sem byggingu barna-
skóla og félagsheimilis. Eyfirð-
ingar kusu hann sem fulltrúa
sinn á aðalfund Stéttarsambands
bænda og til Búnaðarþings. í
öllum opinberum störfum er
hann traustur maður og hrein-
skiptinn og dugnaði hans er við
brugðið.
Það fer vel á því, að merkur
bóndi skipti þriðja sæti á lista
Framsóknarmanna í Norður-
landskjördæmi eystra. — Vegna
margvíslegra félagsstarfa og
framkvæmdavilja, verður Garð-
ar Halldórsson óefað hinn nýt-
asti fulltrúi fyrir íramfarasinn-
aða íbúa hins nýja, stóra kjör- Björn Stefánsson kennari í
dæmis. Ólafsfirði skipar sjötta sætið. í
Ingvar Gíslason lögfræðingur
og erindreki Framsóknarflokks-
ins á Akureyri skipar fjórða sæti
listans — baráttusætið. — Hann
fluttist til Akureyrar haustið
1957 og hefur verið erindreki
flokksins síðan og er nú formað-
ur Framsóknarfélagsins á Akur-
eyri.
Framsóknarmenn kusu hann
einum rómi til framboðs hér í
síðustu kosningum og jók hann
stórlega fylgi flokksins, svo sem
öllum er kunnugt, svo að felmtri
sló á íhaldið. Hann er manna
líklegastur til að efla fylgi
flokksins enn að mun og verða
fjórði þingmaður Framsóknar-
flokksins í kosningunum í haust.
Ingvar Gíslason nýtur bæði
trausts og vinsælda.Enda er hann
dugmikill hæfileikamaður, sem
miklar vonir eru við bundnar á
stjórnmálasviðinu.
Jakob Frímannsson fram-
kvæmdastjóra Kaupfélags Ey-
firðinga þarf naumast að kynna
Norðlendingum, svo kunnur er
hann af óvenjulega farsælum
störfum sínum, sem fram-
kvæmdastjóri stærsta kaupfélags
landsins og einn ágætastur sam-
vinnumaður þessa lands. Við-
skiptamál, svo og hvers konar
framfaramál héraðs og bæjar
hefur hann mjög látið til sín taka
og borið gæfu til að sjá margan
ávöxt af löngu og þrotlausu
starfi á sviði samvinnumála og
almennra félagsmála. Jakob Frí-
mannsson er góðum gáfum
gæddur, mikill málafylgjumaður,
hefur óvenju mikla þekkingu á
þýðingarmestu atvinnuvegum
þjóðarinnar, hinu margþætta
viðskiptalífi og nýtur hvarvetna
trausts og virðingar. Hann skip-
ar fimmta sæti íramboðslistans.
Ólafsfirði hefur Björn starfað af
miklum dugnaði að félagsmálum
og haft þar forystu í ýmsum
merkum framfaramálum. Hann
er formaður Kaupfélags Ólafs-
fjarðar.
Valtýr Kristjánsson bóndi og
oddviti í Nesi í Fnjóskadal skip-
ar sjöunda sæti á lista Fram-
sóknarmanna. Hann er mála-
fylgjumaður mikill, góður bóndi
og fjölhæfur framkvæmdamaður.
Þórhallur Björnsson kaupfé-
lagsstjóri á Kópaskeri er alkunn-
ur dugnaðar- og áhugamaður.
Hann er formaður Framsóknar-
félagsins, vestan heiðar.
Edda Eiríksdóttir húsfreyja að
Stokkahlöðum í Eyjafirði skipar
níunda sætið. Hún er glæsilegur
fulltrúi norðlenzkra kvenna, vel
menntuð og góðum gáfum gædd.
Hún er skólastjóri barnaskóla
hreppsins.
Teitur Björnsson bóndi á Brún
í Reykjadal, sem er í tíunda sæti,
situr af mikilli prýði nýbýli- það,
sem faðir hans, Björn Sigtryggs-
son, reisti, og rómað var á
sínum tíma. Hann er mikill þátt-
takandi í félagslífi byggðar
sinnar.
Eggert Ólafsson bóndi í Lax-
árdal i N.-Þing. skipar ellefta
sæti. Hann er formaður Kaup-
félags Langnesinga, atorkusamur
bóndi og mjög vel að sér um
landbúnaðarmál.
Bernharð Stefánsson alþingis-
maður skipar tólfta sæti. Hann
gaf ekki lengur kost á sér til
þingsetu, en ekki þótti fram-
boðslisti Framsóknarmanna vel
skipaður án hans.
Vikuaflinn 48 þús. mál og funnur
Heildaraflinn 1.111.082 mál og tunnur
Samkvæmt skýrslu Fiski-
félagsins um helgina er heild-
araflinn orðinn 1.111.082 niál
og tunnur og skiptist hann
þannig: í salt 216.166 uppsalt-
aðar tunnur. í bræðslu 873.068
mál. I frystingu 21.848 upp-
saltaðar tunnur.
Lítill hluti síldveiðiflotans
stundar enn síldveiðar. Þó
varð aflinn 48.361 mál og tn.
í síðustu viku og veiddist
einkum 70 rnílur austur af
Seley og 50 mílur austur af
Langanesi.
Víðir II er aflahæsta skipið
með rúmlega 19 þús. mál og
tn. Snæfell er annað í röðinni
með 16.463 mál og tn. og Jón
Kjartansson þriðji með 15.668
mál og tunnur.
En 17 skip hafa fengið yfir
10 þús. mál og tunnur.
Nokkur önnur aflahæstu
skipin eru:
Faxaborg, Hafnarfirði 14.843
Björgivn, Dalvík .... 13.819
Guðm. Þórðars., Gerð-
um i.................13.230
Sigurður Bjarnas., Ak. 12.732
Arnfirðingur, Rvík . . 11.766
Haförn, Hafnarfirði . . 11.527
Bjarmi, Dalvík........ 11.298
Utflutningsverðmæti síldar-
aflans er talið vera orðið um
170 milljónir króna.
Meðalafli á bát (allt miðað
við síðustu helgi) er 4.723 mál
og tunnur og gefur sá afli um
26 þús. kr. hásetahlut.
Á Víði II er hásethlutur
orðinn um 100 þús. kr.
1«333$««3««3S«3«3««3Í$««33S««$«33«««»«W«33«Í$««$«*
Valtýr Kristjansson.
Þórliallur Björnsson.
Edda Eiríksdóttir.
Tcitur Björnsson.
Bernharð Stefánsson.
Eggert Ólafsson.