Dagur - 03.10.1959, Blaðsíða 4

Dagur - 03.10.1959, Blaðsíða 4
4 D AG U R 'Laugardaginn 3. október 1959 Skrif.stolii i H;ifiiiirMr,fti '»ll — Siiiii Hliti KiTSTJÓUI; EltLING l! R D A V f 1) S S O \ Vuglvsinj'.isi jóii: J Ó N S V M ÚELSSON Árgangtirtnn ko.stai kr. 75.00 BkifSið ki-nnir út á iniiVvikiiilogurix <>g laugardiiguni, :J»rgat cfni stamla til fijalildagi cr 1. júlí KUF.NTVEKK ODDS tt)(>RNSSONAR H.F. Alþýðiiflokksstjórnin hefur kóp- alið dýrtíðarófreskjima ALÞÝÐUFLOKKURINN reynir eftir megni að breiða yfir smæð sína og vanmátt með því fnrðulegasta raupi í blöðum sínum undanfarnar vikur, að ekki á sér neinn líka nema Ólaf Thors og Jón sterka. Flokkur þessi, sem einu sinni átti hugsjónir, hæfa forystumenn og mikið fylgi, á ekkert af þessu lengur. Framsóknarflokkurinn lét liann njóta þess við kosningamar 1956, að hann hafði á fyrri árum verið fáanlegur til sam- starfs um mörg þjóðnýt mál, rétti honum höndina og leiddi hann inn á Alþingi. Þar setti hann hinn nýja félaga til jafns við sig. En Alþýðuflokkurinn sveik. Hluti hans, hinn ihaklssinnaði armur, var alltaf á móti vinstri stjórninni og kom því til leiðar, ásamt kommúnistadeild Aljjýðubandalagsins, að rjúfa vinstra samstarfið, sem byggt var á þátt- töku vinnandi stétta um stjórn landsins. Alþýðuflokkurinn kaus heldur að vera leppur Sjálfstæðisflokksins en bandalags- flokkur vinstri sinnaðra umbótamanna und- ir forystu Framsóknarílokksins, og liefur nú, haft það lítilmótlega starf á hendi í níu mánuði. En Jxessir níu mánuðir hafa ekki verið frjósamari í stjórnarathöfnum en biiast mátti við. Eitt aðal viðfangsefni ríkisstjórnarinnar var að sjálfsögðu glíman við verðbólguna. Kaupgjald og verðlag var lækkað með lög- mn um síðustu áramót, og mrnna blöð Al- þýðuflokksins á það afrek á degi hverjum, og þykjast með því hafa tekið föstum tökum á dýrtíðarófreskjunni og hafi hana í hendi sér. Sannleikurinn er hins vegar sá. að dýrtíð- arófreskjan hefur aldrei fyrr, nema á mestu mektardögum Ólafs Thors, verið betur alin. Stjórnin hefur mokað í hana 250 mill- jónum króna viðbótarfóðri í nýjum út- ílutningsbótum og niðurgreiðslum. Tæmdir hafa verið sjóðir þeir, sem vinstri stjórnin af- henti við stjórnarskiptin, svo sem greiðsluaf- gang ríkissjóðs, dregið xir verklegum fram- kvæmdum, aukinn innflutningur lúxusvara ög loforð gefin á framtíðina. Verðbólgu- ófreskjan hefur í raun og veru blásið út á níu mánaða tímabilinu, en ríkisstjórnin hefur reynt að fcla ofvöxtinn með niðurgreiðslun- um úr sameiginlegum sjóði landsmanna. Blöð Alþýðuflokksins bera það blákalt fram, að Alþýðuflokkurinn sé eini stjórn- málaflokkurinn, sem vilji veita verðbólgunni viðnám, hinir ílokkarnir vilji setja „dýrtíð- arslcriðuna af stað á nýjan leik“! Þessi blöð leyfa sér jafnvel að bera þá staðleysu á borð fyrir lesendur sína, að ef Alþýðuflokksins uyti eltki við, þyrftu neytendur bæjanna að greiða yfir 40 krónur fyrir hvert kíló af kjöti ög hvern mjólkurlítra með kr. 5.60. Þetta er hinn mesti þvæuingur, því að hvorki Al- þýðuflokksmenn eða aðrir geta um Jxað sagt, hvernig verðlagsmálin væru nú, ef Alþýðu- flokkurinn hefði ekki flanað út í stjórnar- myndun með Sjálfstæðis- flokknum og þar með komið í veg fyrir að starfhæf og ábyrg ríkisstjórn væri mvnd- uð. Utreikningar um 40 kr. verð á kjöti o .s. írv., er þess vegna algerlega út í bláinn. Sannleikurinn er einfaldlega sá, að verðlagsgrundvöllur er hinn sami og í fyrra, sam- kvæmt bráðabirgðalögunum. Munurinn á útsöluverði kjöts nú í liaust og á sama tíma í fyrra, stafar cingöngu af auknum niðurgreiðslum, sem aftur eru teknar af al- mannafé. En hitt getur Alþýðuflokk- urinn þakkað sér, að hafa ver- ið dyggur þjónn Sjálfstæðis- flokksins, bæði í því að brjóta lög á bændum og með því að fóðra dýrtíðarófreskjuna eins og j’ólagæs með sameiginleg- um fjármunum landsmanna og er að komast í fóðurþrot. Samvinnumaður einn á Akureyri sendir blaðinu eftirfarandi til birtingar: „HISSA VARÐ EG á því að KEA, Kjöt og fiskur og Nýja kjötbúðin skyldu í sameiningu auglýsa um heimsendingargjald. Eg hafði staðið í þeirri meiningu að KEA ætti ékki samleið með keppinautum sínum í þjónustu sinni við félagsmenn sína og sam- borgara yfirleitt og gæti vel háð samkeppni og ætti að halda henni uppi, eitt sér, í staðinn fyrir að semja um einstaka liði verzlun- arhátta við keppinautana. Hitt get eg vel skilið, að sér- stakt aukagjald þurfi að koma fyrir smásendingarnar, einkum til að koma í veg fyrir þarflaust kvabb einstakra manna og kvenna, sem misnota þá þjónustu, sem heimsendingarnar eru. Ekki get eg varizt því að álykta, að KEA geti á þessu sviði veitt betri og meiri þjónustu en aðrir, enda meiri kröfur til þess gerðar. Mér finnst því ekki alveg víst, að kaupfélagið þyrfti að takmarka héimsendingai-, þótt aðrir gerðu það. Hin gífurlegu miklu viðskipti við KEA og útibú þess á ýmsum stöðum í bænum valda því, að húsmæður verða að sætta sig við biðraðir og töluverðar tafir. Þar af leiðandi eru heimsendingar enn nauðsynlegri, þótt misnotkun þeirra sé ekki mælandi bót. — Vörudreifing KEA hér í bænum samsvarar ekki þörf neytenda. fullkomlega, þeirra, sem við fé- lagið vilja skipta. Útibúin eru of sti-jál og ekki nægilega vel útbúin fyrir svona mikla verzlun. Samvinnufélögin hafa leyst mörg þörf verkefni og komið miklu góðu til leiðar á undan- förnum árum og þau eiga eflaust eftir að halda áfram á sömu braut. Þau þola því vel rökstudda gagnrýni, og taka vonandi til at- hugunar allar- tillögur og ábend- ingar um sameiginlega hags- muni. — Samvinnumaður.“ Kosningaspá Kosningahjörðin kannski hlær hvergi Ihald tali nær, tiittugu þingmenn Framsókn fær, falla stjórnar kýr og ær. i . a. r I réttum Ohljóð kenna orðaval íhaldssennu-fundar, sauðir renna í réttarsal rífast menn og hundar. Emilsstjórnin Emil tekur bændum blóð, brosa íhaldsþjónar. SVo hafa aldrei þessa þjóð þjakað erkidónar. H4KUR. HEIMA ER BEZT Októberhefti Heima er bezt er nýkomið út. Forsíðumyndin er af Jakobi Frímannssyni og grein um hann sextugan eftir Brynjólf Sveinsson. Rósa Aldís Vigfússon skrifar Minningar, Steindór Steindórsson Litir haustsins og Magnús Gíslason skrifar grein ina F rá Siglufirði ísaárið og veturinn 1915. Þá er framhald af æviminningum Bjargar Sigurð ardóttur Dahlmann, Þáttur æsk- unnar eftir Stefán Jónsson náms stjóri, framhaldssögur o. fl. FRA K0SNINGASKRIFST0FU FRAM- SÓKNARFLOKKSINS Á AKUREYRI Stuðningsmenn flokksins eru minntir á að draga ekki að kjósa utan kjörfundar ef sýnt er að þess þarf með. Einnig eru þeir minntir á að láta Kosningaskrifstofunni í té upplýsingar um þá, sem þegar hafa kosið og eins þá, sem eftir eiga að kjósa. — Hægt er að greiða at- kvæði utan kjörfundar hjá bæjarfógetum, sýslumönnum og hreppstjórum, í Reykjavík há borgarfógeta. Hér á Akureyri fer utankjör- fundaratkvæðagreiðsla fram hjá bæjarfógeta alla virka daga, nema laugardaga, frá kl. 9—12, 13—16,30 og 20.00—22.00. Á laugardögum kl. 9—12 os 16—18 og simnudöaum kl. 13—15. Skrifstofan er opin frá kl. 10—10. Símar skrifstofunnar eru Ráðleggingar og vítamín Líklega eru fáar manneskjur, sem fá eins margar róðleggingar og ábendingar og húsmæðurnar. Það er sífellt verið að benda þeim á, að þetta og hitt sé alveg lífsnauðsyn. Mur.ið eftir B-vítamínunum! Gleymið ekki eggjahvítuefnunum, þau eru nauðsynleg börnun- um! Munið, að þessa skyrtu á að þvo á þennan hátt en ekki hinn! Þetta þvottaéfni er nauðsynlegt fyrir þvottinn, svo að hann verði sem hvítastur! Ojá. Það kemur nú fyi'ir, að húsmæðurnar gera uppreist gegn ráðleggingum hinna vísu. Þær gefa bara heimilihfólkinu gnægð matar og telja ekki vítamínin í grömmum. Þeim finnst heldur ekki, að hamingja lífsins sé undir því komin, að skyrtúbrjóst mannsins sé hvítara en hvítt. En í mörgum menningarlöndum eru stofnanir, reknar af neytendafélögum eða ríkinu, og gefa þær almenningi upplýsingar um vörugæði, vítamín í hinum ýmsu fæðutegundum, eftir því hvernig með þær er farið, o. s. frv. Slíka stofnun vantar tilfinn- anlega hér á landi, því að varlega er trúandi aug- lýsingum framleiðanda og verzlana um vöi'ugæðin, og ekki ér heldur hollt að trúa öllu, sem sértrúar- flokkar um mataræði segja um fæðutegundir og áhrif þeirra á heilsu og líf. Norska ríkið rekur tilraunastöð, sem rannsakar ýmislegt viðvíkjandi heimilishaldi og birtir tölur og ráðleggngar. í nýlegu norsku blaði er greint frá því, að kartöflur hafi verið rannsakaðar sérstaldega mikið og nákvæmlega með hliðsjón af fjörefnainni- haldi, og er ekki úr vegi að gefa lesendum Dags einhverjar upplýsingar um niðurstöður. Kartöflur eru snar þáttur í mátaræði allra íslendinga, og í þessum ávexti er mikið C-vítamín. Er soðin eru 100 grömm af kartöflum, reynist C-vítamínið í þessu magni vera þannig eftir árs tíma: 1 Án hýðis: Með hýði: Júlí ... . 21 mg 24 mg Ág,—sept. . . 30 mg Okt.—nóv. . . 23 tng Des.—ian. . . .... 12 mg 15 mg Febr.—júní . . . . 6 mg 9 mg Hér kemur í ljós, að ekki er gott að afhýða kar- töflur áður en þær eru settar í pottinn, því að þá fer talsvert af vítamíni forgöi'ðum. Einnig má sjá, að mikill munur er á hollustu eftir því, hvorl* kat'- töflurnar eru nýjar eða gamlar. Það væri því ekk- ert æskilegt fyrir íslenzka neytendur, að kartöflu- uppskeran hér á landi yrði svo mikil, að við gætum borðað gamlar, íslenzkar kartöflur í júlí og ágúst. Kartöflur þroskast fyrr erlendis en hér, og við get- um fengið nýja uppskeru frá útlöndum til þess að borða seinni hluta sumars. Þessi norska tilraunastöð ráðleggur að sulta ber á þehnan hátt: Berin á að sjóða í lokuðum potti í 10 mín. Þá skal setja sykurinn í og láta suðuna koma upp aftur sem snöggvast. Svo á að setja sultuna sjóðheita í hitaðar krukkur eða glös, helzt með skrúfuðu loki. Krukk- urnar á að fylla alveg og skrúfa svo lokin vel á. Geyma skal á þurrum og svölum stað. Sé farið á þennan hátt að, á C-vítamínið að endast að mestu fram á vor. — A. 1443 og 2406 r íslendingar eta mestan sykur allra jijóða heims Sykurneyzlan í heiminum fer ört vaxandi og þó aukast umframbirgðir af sykri. Alls var framleiðsl- an talin 48,8 millj. tonn á síðasta ári. Árið 1957 voru fslendingar mestu sykurneytend- ur í heimi með 61 kíló á hvert mannsbarn. Danir voru næstir með 59 kíló á mann, en meðal annarra þjóða, sem mikið nota sykur, eru Bretar 56 kíló), Ástralíumenn (53), Ný-Sjálendingar (52), Sviss- lendingar (51). í Bandaríkjunum er árleg neyzla á mann 46 kíló og í Kanada 44 kíló. í Austur-Evrópu voru Tékkar hæstir með 37 kíló mann, en í Sovétríkjunum var árleg sykur- neyzla á mann árið 1927 25 kíló. Sykurneyzlan er minnst í Asíu og á öðrum vanþróuðum svæðum í heiminum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.