Dagur - 03.10.1959, Blaðsíða 6

Dagur - 03.10.1959, Blaðsíða 6
6 D A G U R Laugardaginn 3. október 1959 Frá Dóraöngli Maður hét Theodor Hook. Hann var enskur. rithöfundur, glæsilegur útlits og gáfaður, en þeir enskir bókmenntafræðingar og sagnaritarar, sem um hann hafa ritað, hafa verið hneykslaðir á manninum. Hann hagaði sér ekki eins og rithöfundar og and- ans menn eiga að haga sér. Nei, því var nú verr og miður. — Ro- bin Hood er Hrói höttur. Ivanhoe er ívar hlújárn. Theodor Hook er Dóri öngull. Nú eru liðin meira en 100 ár síðan Dóri öngull var uppi, en það, sem hér verður um hann sagt, gerðist fyrir hálfri annarri öld. Dag nokkurn árið 1809 var Dóri öngull á gangi um götur Lundúnaborgar með vini sínum. Þeir löbbuðu m. a. um Berners- stræti, sem var stutt gata, þekkt fyrir rósemd og frið. Efnað og fínt fólk bjó þá margt við þessa götu, af því að hún var svo róleg. Vinur Dóra fór nú að hafa orð á því, hve óskaplega mikil kyrrð og ró lægi yfir þessari blessuðu götu. „Eg skal veðja við þig heilli gíneu,“ sagði Dóri, „að eg skal geta gert þessa götu alræmda og mest umtöluðu götuna í London, áður en vika er liðin.“ Þeir veðjuðu, og Dóri öngull setti sérstaklega á sig eitt hús- númer við götuna, nr. 54. Þar bjó ráðsett ekkja, frú Totting- ham. Svo var það nokkrum dögum seinna, um morgunverðarleytið, að fuílur hestvagn af kolum stanzaði fyrir framan hús frú Tottingham. Á eftir kom vagn með húsgögnum á, þar næst kom líkvagn brunandi og á honum tóm líkkista, en á eftir honum komu nokkrir syi'gjendavagnar. Þessu næst komu akandi tveir þekktir læknar, þá komu tann- læknir og ljósfnóðir, hvert í síh- um sérstáka vagni. Nú var þvag-' an orðin allmikil og allt að kom- ast í eina kös. Ekki bætti það úr skák, að nú kom enn einn hest- í hálfa gátt Alþjóðaþing lækna stendur nú yfir í Chicago (frá 29. ágúst til 4. sept.). Einn af þeim, sem þar áttu að flytja erindi, var danski prófessorinn Mogens Fog, en hann hefði getað sparað sér und- irbúninginn, því að honum var neitað um vegabréfsáritun af bandarískum yfirvöldum. Eins fór um annan lækni danskan, sem ætlaði vestur. Hann fékk neitun líka. Dönsk blöð eru ekki í neinum vafa um orsökina. Menn þessir voru eitt sinn kommúnistar. Þess vegna er ekki talið óhætt að hleypa þeim inn í landið. Er minni hætta að hleypa inn í landið mönnum, sem eru komm- únistar (t. d. Krústjov o. fl.) heldur en þeim, sem liafa verið það? Þetta góða land er opið í hálfa gátt. Það er alltaf leiðinlegt, þeg- ar góðvinir gera sig hlægilega. vagn brunandi, og á honum var pípuorgel, og sex menn fylgdu til þess að bera það inn. Svo kom kerra með nokkrum ölkútum á, því næst full kerra af kartöflum, svo komu úrsmiðir, vefarar, sæl- gætissalar, parrukgerðarmenn, gleraugnasalar og fornsalar, og voru allir með sýnishorn af vör- um sínum meðferðis. Einnig komu askvaðandi ökumenn, þjónar, vinnustúlkur og hjúkr- unarkonur, og allt var þetta fólk að leita eftir atvinnu. Að lokum komu svo glæsilegustu vagnarn- ir. í einum var bankastjóri Eng- landsbanka, í öðrum erkibiskup- inn af Kantaraborg, í þeim þriðja var formaður Indverska verzlun- arfélagsins, í þeim fjórða yfir- dómari Bretaveldis, í þeim fimmta var hertoginn af Glou- cester, og að lokum kom svo borgarstjóri Lundúnaborgar. Bernersstræti var nú orðin ein iðandi kös. Kerrur og vagnar rákust á og festust saman, hestar hneggjuðu og brutust um, og verzlunarmennirnir kveinuðu og skömmuðust. Nokkrir vagnar ultu um koll og innihaldið tvístraðist um götuna, sumir höfðingjarnir fengu óþvegin orð í eyra. Það var stjakað við þeim og þeir voru móðgaðir, en í gisti- húsherbergi við strætið, beint á móti húsi frú Tottingham, sátu Dóri öngull og vinur hans og horfðu út um gluggann á öll ósköpin. Þeim skemmtu sér kon- unglega. Og djöfulgangurinn hélt áfram þarna á götunni allan dag- inn og fram á kvöld. Er dimma tók, læddist Dóri öngull út úr gistihúsinu og burt úr borginni. Hann var í felum úti á landi lengi á eftir, eða þangað til fór að firnast dálítið yfir hneykslið, og reiði almennings var tekin að minnka. Þannig stóð á öllu þessu, að Dórí öngull hafði skrif&ð mörg hundruð bréf í nafni’frú Totting- ham. En hvernig gat hann gabbað höfðingjana? Jú, hann hafði látið í það skína í bréfunum til þeirra, að ekkjan í Bernersstræti ætlaði að fara að gera erfðaskrá sína. Rithöfundurinn og glæsimenn- ið — þeir eru gleymdir, en marg- ir kannast við Dóra öngul enn þann dag í dag, og það gerir hrekkurinn, sem talinn er einn hinn stórkostlegasti sinnar teg- undar í heimi hér. Heimili og skóli, Nýlega er komið 3.—4. hefti þessa tímarits um uppeldismál. Þar er birt útvarpserindi Hann- esar J. Magnússonar skólastjóra, sem hann nefnir Að hverfa í múginn, og Hannes minnist Snorra Sigfússonar 75 ára. Þarna er og erindi Olafs Gunnarsson- ar sálfræðings um starfsfræðslu í skólum og þýdd grein er nefnist Hvers megum við vænta af börn um á mismunandi æviskeiði eftir Áse Gruda Skard, ýmislegt frá Barnaskólanum á Akureyri, þýddar greinar, brot úr skóla- slitaræðu H. J. M. og margt fleira. STULK4 óskast í vist nú þegar eða seinna. Uppl. í síma 1232. Gunnlaug Thorarensen. Véla- og raffækjasalan h.f. Strandgötu 6. Sími 1253 Vönduð heimilistæki: Ryksuga, sem einnig er hægt að breyta í bónvél og hárþurrku. Þvottavélar Hringofnar, 3 gerðir Straujárn, 3 gerðir Hraðsuðupönnur Hraðsuðukatlar 1500 tv. og 2000 w. Hraðsuðukönnur, tvær gerðir. Brauðristar, tvær gerðir. Suðuplötur, 1 og 2 hellur. Tökum á móti pöntunum í Húsquarna eldavélar og bakarofna (til nýbygginga) r Teikni og skrifborðs- lamparnir margeftirspurðu, loksins komnir. Nýkomið: Pottar og pönnur, nýjasta tizka Véla- og raffækjasalan h.f. Strandgötu 6. Sími 1253 Seljum GÓÐA STIGAPOKA hentuga undir KARTÖFLUR. Kr. 3.00 stk. Kaffibrennsla Ak. Bæjarbúar og nær- sveitarmenn! Munið hina árlegu bókaviku okkar, sem liefst laugardaginn 3. okt. — Mörg hundruð bóka og rita á boðstóluin. Eitthvað fyrir alla. Vinsamlegast lítið inn til okkar. Bókaverzl. Edda h.f. Strandgötu 19. SÍBS SÍBS Munið berklavamadaginn! Laugardagurinn 3. október: DANSLEIKUR í Alþýðuhúsinu. — Aðgöngumið- ar seldir frá kl. 8. DANSLEIKUR að Freyvangi kl. 10 e. h. — Sæta- ferðir frá Ferðaskrifstofunni. NÝJA BÍÓ kl. 3, 5 og 9. — Sjá Bíóauglýsingar. Sunnudagurinn 4. október: NÝJA BÍÓ kl. 3, 5 og 9. — Sjá Bíóaglýsingar. BORGARBÍÓ kl. 9. Seld verða merki og blöð dagsins. Félagið Berklavörn, Akureyri SLÁTURSALA KEA hefur sfma 1556 m OG VEX Sá lilýtur viðskiptin, sem athygli vekur á þeim. Það borgar sig að auglýsa í Degi - Sími 1166 Ullargarn innlent og erlent. Ullarband Lopi Fjölbreytt úrval. VEFNAÐARVORUDEILD

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.