Dagur - 03.10.1959, Síða 8

Dagur - 03.10.1959, Síða 8
8 Laugardaginn 3. október 1959 Bagujr Hvers vegna brá þeim í brún? Magnúsi frá Mel og Birni Jónssyni brá í brún þegar Dagur skýrði frá því ujn daginn, hve mörg atkvæði þyrftu að flytjast frá Alþýðubandalaginu eða, Sjálfstæð- isflokknum yfir til Framsóknarflokksins, — miðað við kosningarnar sl. vor, — til þess að 4. maður B-listans, Ingvar Gíslason, næði kosningu. Hér var ekki um neina spádóma að ræða eða getgátur, heldur blákalda staðreynd, sem ekki orkar tvímælis og hver og einn getur sjálfur sannfært sig um, með því að hafa atkvæðatölurnar frá því í vor fyrir framan sig. Ef Alþýðubandalagið fær 71 atkvæði færra en í vor og Framsóknarflokkurinn 71 atkvæði fleira, og aðrar tölur verða óbreyttar, nær Ingvar kosningu en Björn ekki. En hann yrði uppbótarþingmaður. Ef Sjálfstæðisflokkurinn tapar 185 atkvæðum til Framsóknarflokksins, þá fellur Magnús en ekki Björn. En hvor þeirra sem félli vrði uppbótarmaður. Svo einkennilega bregður við, að bæði Björn og Magnús hafa látið blöð sín mótmæla þessum upplýsing- um. Þau mótmæli eru þýðingarlaus, en bera vott um óróleika sálarinnar. En að mótmæla opinberum kosn- ingatölum og sannanlegum niðurstöðum af þeirn fyrir hið nýja kjördæmi okkar, er jafn þýðingarlaust og að mótmæla því að tvisvar tveir séu fjórir. Allt öðru máli gegnir um óskir manna og spádóma. Bæjarbragur amiar þegar æskufólkið bópast til bæjarins við skólasetningu á haustin Fjölmennustu skólar bæjarins voru settir á fimmtudaginn. A þriðja þúsund nemendur setjast nú á skólabekk hér í bæn- um. — Undanfarna daga hefur skólafólkið flvkkzt í bæinn, fyllt bókabúðir og aðrar verzlanir. Flest er það rjótt í vöngum og hraustlegt og vonandi gengur það allt fagnandi til náms. Menntaskólinn. Menntaskólinn á Akureyri var settur í fyrradag laust eftir há- degi. Nemendiir eru 384, og fleiri en nokkru sinni áður. Einni bekkjardeild verður bætt við. Skólameistarinn, Þórarinn Björnsson, sagði frá því meðal annars í skólasetningarræðu sinni, að ákveðið væri að gera setustofu, lestrarsal og bóka- safnsherbergi í norðurálmu nýju heimavistarinnar þar, sem enn er óinnréttuð, og íbúð skóla- meistara á efstu hæð í sömu álmu. Bæfa þarf aðsföSu knaffspyrnumann r A næsta ári verða fleiri knattspyrnukappleikir háðir á Akureyri en nokkru sinni áður, þar á meðal 5 fyrstudeildarleikir - En það vantar bæði æfingarveili og fullkominn malarvöll Nú hafa knattspyrnumenn á Akureyri, sem áður höfðu fallið úr fyrstu deild, náð því heiðurs- sæti á ný. Þeir eru nú taldir meðal beztu knattspyrnumanna landsins og yngri flokkarnir hafa sýna það í sumar, að þeir eru síður en svo nokkrir eftirbátar hinna eldri. Sameinað lið Akur- eyringa hafði áður einkennzt af góðum en ósamstæðum einstakl- ingum, sem margir töldu sig upp úr því vaxna að æfa sig reglulega undir stjórn þjálfara. Þessir menn komust nokkuð langt, en aðeins um skamma stund. Gjörbreyting. Fyrir þremur árum eða svo kom hingað þýzkur, harðdugleg- ur knattspyrnuþjálfari. Þeir margreyndu knattspyrnumenn, sem tekið höfðu á móti hrósi áhorfenda árum saman, þóttust ekki þurfa hans tilsagnar með. Þjálfaranum tókst ekki að setja þá á skólabenn og þeir reyndust þess ekki megnugir að halda knattspyrnunni uppi við æski- leðan orðstír. En hundruð unglinga, sem vildu verða knattspyrnumenn, tóku fegins hendi á móti tilsögn hins erlenda manns og festu sér boðorð hans í minni. Það eru þessir piltar, sem nú á ný hafa unnið sameinað Akureyrarlið til vegs og virðingar. Og það. eru þessir piltar, sem í sumar hafa sigrað svo að segja alla kappleiki við jafnaldra sína frá ýmsum fé- lögum. Heiðurssæti skapar nýjan vanda. En hið þráða heiðurssæti í fyrstu deildinni skapar ný við- horf. Næsta sumar verða leiknir hér fimm fyrstu deildar leikir, auk allra annarra kappleikja. — Meira verður um knattspyrnu á Akureyri en nokkru. sinni fyrr. Ekki er annað en gott um það að segja. En nú stendur svo á, að hér er aðeins einn knattspyrnu- völlur, grasvöllurinn á íþrótta- knattspyrnuvallarins og það tæk ist, verður ekki hjá því komist að byggja malarvöll, bæði til að létta á grasvellinum og ennfrem- ur til þess að leika á haust og vor. Annars er hætt við að knatt- spyrnunni hnigni á. ný. KA og Þór hafa enga æfingar- velli og er það auðvitað alveg óviðunandi. Þessi mál nefndra íþróttafélaga eru nú mjög til um- ræðu og kemur til kasta bæjar- yfirvaldanna, að veita hinum mörgu knattspyrnumönnum og knattspyrnunnendum föðurlega fyrirgreiðslu. Vallarstæðin. íþróttabandalag Akureyrar hefur nú leitað til bæjarráðs um staði fyrir æfingarvelli. Þessir staðir koma til álita öðrum frem- ur: Obyggt svæði sunnan sund- laugar, opið svæði milli Þórunn- arstrætis og Byggðavegar, svæði nofðan Þingvallastrætis, völlur við Þórunnarstræti, Gléráreyrar og Leirurnar. í greinargerð ÍBA segir, að á næsta sumri sé fyrirsjáanlegt, að um stöðvun geti orðið að ræða að haldi uppi æfingum á not- hæfum velli. — Þar segir ennfr., að æskilegt sé að fá túnið við sundlaugina til vallargerðar, einkum vegna aðstöðu til baða Frainsóknarflokkurinn efnir til | almennra kjósendafunda á eftirtöldum stöðum í Norðurlands- kjördæmi eystra: AKUREYRI mánudaginn 5. okt. að Hótel KEA kl. 9 e. h. GRENIVÍK þriðjudaginn 6. okt. kl. 9 e. h. DALVÍK miðvikudaginn 7. okt. kl. 9 e. h. Ræðumenn verða 4 efstu menn B-listans í kjördæminu: Karl Kristjánsson — Gísli Guðmundsson Garðar Halldórsson — Ingvar Gíslason svæðinu. Þennan völl er ekki hægt að nota nú í haust, og hef- ur honum verið lokað. Grasvöllurinn. Enn er sumarveður dag hvern, en hvergi er hægt að hafa knatt- spyrnukappleik eða æfa knatt- spyrnu. Það er enginn staður á Akureyri, sem nothæfur er til slíkra hluta. Höfuðstaður Norð- urlands getur ekki vikum saman tekið á móti gestum til leiks, heimamenn geta ekki æft sig, og manni verður á að tauta: Er þetta hægt? Grasvöllurinn á íþróttaleik- vanginum er skemmtilegur, og þar er hafin framkvæmd mikilla mannvirkja fyrir knattspyrnu- menn og áhorfendur. En völlur- inn þolir ekki mikla notkun, það þolir enginn grasvöllur. Malarvöllur. Þótt sjálfsagt sé að athuga möguleika á því að auka slitþol G agnfr æða skólinn. Gagnfræðaskóli Akureyrar var settur sl. fimmtudag kl. 5 síðd. í skólanum eru 446 nemendur í 18 bekkjardeildum. Nemendur eru 34 fleiri en í fyrra og nú er einni bekkjardeild fleira en þá. Skólastjórinn, Jóhann Frí- mann, setti skólann með ræðu. I ræðulok ávarpaði hann nemend- ur sérstaklega og hvatti þá til náms- og manndómsstarfa. Kennsla hefst á mánudaginn. Ákveðið er að verða við þeim til- msélum að nemendur skólans taki miðdagstímann örlítið síðar á degi hverjum en venja er, til þess að dreifa aðalumferðinni á lengri tíma. Barnaskóli Akureyrar. Barnaskóli Akureyrar var settur 1. þ. m. í kirkjunni. Nemendafjöldi verður um 800 í vetur, og er það nokkru fleira en í fyrra. Sett hefur verið járn á þakið á eldri hluta skólahússins í sumar, og var ekki vanþörf á. Um breytingar á kennaraliði Framhald á 7. siðu. í gær bar það við hér á Akureyri, að tveir Reykvíkingar lögðu frá landi á mótorbátnum Sævari og hugðust veiða hámerar á Eyjafirði. Menn þessir heita Valdimaf Valdimarsson og Jón Sveinsson og hafa þeir stundað sjóstangveiði, óg m. a. hámerarveiði. Hefur Valdimar t. d. veitt 370 punda hámeri, sem mun heimsmet hvað vænleikann snertir, samkvæmt frásögn hans. Ósannindi um þingmannatölu „íslendingi“ gengur oft mjög erfiðlega að segja rétt frá stað- reyndum. í gær segir hann, að Framsóknarmenn hafi gert til- Iögur um 6 þingmenn í Norður- landskjördæmi eystra, eða orð- rétt: „Rritstjórinn (ritstjóri Dags) gleymir því bara, að þegar Framsóknarflokkurinn fékkst loksins til að leggja fram ákveðn ar tillögur í kjördæmamálinu, voru þær á þá leið, að þetta svæði skyldi einmitt hafa 6 þingmenn.‘‘ Þessi orð „íslend- fá ekki staðist. Þingmenn Framsóknarflokks- ins, þeir Karl Kristjánsson, sem var framsögumaður, og Hermann Jónasson, fluttu tillögu í stjórn- arskrárnefnd (efri deild) um fjölgun þingmanna í Norður- landskjördæmi eystra — AÐ ÞEIR YRÐU 7 1 STAÐ 6. — Sú tillaga var að engu höfð af þrí- flokkunum. Þessi tillaga og aðr- ar tillögur Framsóknarmanna, sem fram voru bornar í umræðr um um kjördæmabreytinguna, voru miðlunartillögur, sem mið- uðust við úrbætur, er líklegt þótti að þríflokkarnir gætu fall- ist á. En þær voru felldar. Það eru því hrein ósannindi hjá „íslendingi“ í gær, þegar hann segir að Framsóknarmenn hafi aðeins viljað 6 þingmenn í Norð- urlandskjördæmi eystra. Um þetta vitna þingræður og opin- berar, óhrekjandi staðreyndir. — Hér er því íhaldsblaðið á Akur- eyri ennþá einu sinni bert að ósannri frásögn.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.