Dagur - 24.10.1959, Blaðsíða 6
6
D A G U K
Laugardaginn 24. október 1959
- Samvinnufélögin njóta ekki skattfríðinda
Framhald af 5. síðu.
hafa hjá öllum þessum fyrir-
tækjum samvinnumanna og enn
fleiri, sem hér eru ekki upp
talin.
Greiða verulegan hluta
útsvaranna
Sannleikurinn er sá og óhrekj-
andi með öllu, að fyrirtæki sam-
vinnumanna og starfsfólk þeirra
greiða verulegan hluta allra út-
svara á Akureyri og hafa lengi
gert og njóta engra skattfríðinda
eða hlunninda, annarra en
þeirra, sem hið hagfellda og rétt-
láta rekstrarform samvinnu-
stefnunnar veitir þeim.
En þetta rekstrarform stendur
öllunt opið. Það er engin einka-
eign eins eða neins. Kaupmenn
geta tekið það upp í sinunt verzl-
unarrekstri ef þeir vilja og eru
þá kontnir undir sömu lög — og
njóta þá visstilega allra ,,frið-
indanna', sem þeir stagast á.
Stofnsjóður og kaup-
mannsgróði.
í hyldýpi vanþekkingarinnar,
stumrar ritstjóri „íslendings" því
upp, að fólkið sem flýr Akureyri
vegna hárra skatta, fari flest með
léttan mal, Um það segir hann:
„Einhverjir kunna þó að fá
stofnsjóðsinnstæðu sína hjá sam-
vinnufélaginu greidda og flytja
hana með sér, og flyzt hún þá
burtu úr héraðinu. . . . “ Auðvit-
að gengur Sjálfstæðismönnum
illa að skilja það, að fólk geti átt
stofnsjóð hjá verzlunarfyrirtæki,
sem það getur, þegar viðskiptum
lýkur, fengið útborgaðan með
vöxtum og vaxtavöxtum. Kaup-
menn ávaxta ekki varasjóði fyrir
viðskiptamenn sína, heldur stinga
þeir verzlunarhagnaðinum í sinn
vasa.
Hversvegna afþakka
sjálfs tæðismenn
hlunnindin?
En varasjóð samvinnufélaga
og aðra óskiptanlega sameignar-
sjóði má ekki greiða út, ekki
heldur þótt samvinnufélagið sé
lagt niður, því að þá eru þeir al-
menningseign, unz nýtt sam-
vinnufélag tekur til starfa á fé-
lagssvæðinu. Eignamyndun sam-
vinnufélaga er því allt önnur en
gróðafélaga. — Ef Sjálfstæðis-
menn telja, að athuguðu máli,
samvinnufélögin njóta einhverra
hlunninda, svo sem þau halda
fram órökstutt í áróðurskrafti
endurtekningarinnar. — Hvers
Saga af Mark Twain
Mark Tvvain var á fyrirlestra-
ferð um Evrópu, og þá kom upp
sá kvittur í bandarískum blöð-
um, að hann væri dáinn. Nokkrir
vinir hans sendu strax skeyti til
bústaðar hans í London til þess
að vita um sannleiksgildi þess-
ara fregna. Mark Twain símsendi
sjálfur svarið:
— Fregnirnar um dauða minn
eru mjög ýktar.
vegna breyta þeir ekki gróðafé-
lögum sínum í samvinnufélög til
þess að öðlast hin miklu „sér-
réttindi“ og „hlunnindi“, sem
þeir stagast á?
Og hvers vegna lætur kaup-
maðurinn ekki verzlunargróðann
renna til viðskiptamanna sinna
til þess að hann komist undir
sömu lög og samvinnufélög? Þá
nytu þeir hlunnindanna marg-
umtöluðu.
Fólkið, sem borgar
tvisvar.
Ritstjórinn sér mennina, sem
fá greiddan stofnsjóð sinn hjá
samvinnufélaginu, og hann sér
meira að segja þennan fjársjóð
burtu fluttan. Hins vegar sér
hann ekki Kristján Kristjánsson,
Guðmund Jörundsson, Bernharð
Laxdal, svo að dæmi séu nefnd,
flytja suður með samansafnaðan
gróða sinn af margra ára starfi,
sem mörgum milljónum nemur.
Hann skilur ekki, að eignir þess-
ara manna hér á staðnum, sem
keyptar verða af bænum eða
einstaklingum, þarf fólkið að
borga tvisvar sinnum fullu
verði. Þannig getur þetta gengið
koll af kolli.
Reginmunur.
Ekki virðist marghrösull og
oftnefndur íhaldsritstjóri hafa
neinar áhyggjur af þessum fjár-
magnsflutningum. í þessu sam-
bandi er rétt að taka fram, að
brottflutningur þessara nefndu
Akureyringa til Reykjavíkur er
ekki brotlegt athæfi, fremur en
fyrirtæki þeirra hér á Akureyri,
öðru nær. En einmitt þessi dæmi
sýna glögglega þann mikla mun á
einstaklingsrekstri og samvinnu-
félagi, og að það er hverjum
stað hið mesta happ að hafa sam-
vinnufélag. Samkvæmt lögum
gptur t. d. KEA‘ ekki eða önnur,
t I < : ■ I i' '
sámvinnufélög haft sama hátt á.
Eignir samvinnufélaga eru stað-
bundnar á félagssvæðinu sam-
kvæmt lögum. Þetta er regin-
munur og þarf ekki mörg orð
um.
„Fólkið stynur.“
Ekki er það nýlunda eða sér-
stakt fyrirbæri hér á Akureyri,
að fólk stynji undan útsvörum og
öllum opinberum gjöldum. Sann-
leikurinn er sá, að flestum finnst
of hátt á sig lagt. Hins vegar
finnst fæstum nóg fyrir sig gert
af hálfu samfélagsins. En einmitt
í þessum harmtölum er hand-
hægt fyrir rógbera að slá því
fram órökstuddu, að þetta sé því
að kenna að samvinnufélag njóti
skattfríðindi á kostnað almenn-
ings. Þegar rökin skortir eru
ósannindin og rógurinn endur-
tekin því meira. Óhætt er að
fullyrða það, og undirstrika það
alveg sérstaklega, að kaupfélög-
um landsins er ekkert hlíft í
álögum, ekki heldur hér á Akur-
eyri. Á þau er lagt svo sem
landslög framast leyfa og vel
það, t. d. hér á Akureyri.
Yrði það léttir?
Hér á Akureyri gjalda fyrir-
tæki samvinnumanna feikna há
útsvör samanlagt, svo sem áður
er að vikið.
Kannski heldur ritstj. „íslend-
ings“, að það létti á útsvörum
bæjarbúa, ef nokkrir kaupmenn
tækju við KEA. Ólíklegt er, að
svo myndi verða. Annars gæti
það verið bæði til fróðleiks og
skemmtunar, að svara árásum
Sjálfstæðismanna á samvinnufé-
lögin, með því að gera kaup-
mannastéttina sérstaklega að
umtalsefni. Það væri um auðug-
an garð að gresja til frásagnar,
ef svarað væri í sömu mynt,
ekki sízt í útsvarsmálum og
skattamálum almennt og fram-
tölum þeirra til skatts.
Hann lokar augunum.
Það mun næsta erfitt hér á
Akureyri að loka augum fyrir
hinum mörgu, nauðsynlegu fram
kvæmdum samvinnumanna, þótt
íhaldið reyni að kreista þau aft-
ur og láta svo sem það sjái ekki.
Mörg hundruð manns vinna við
iðnað samvinnumanna og verzl-
un hér í bæ. Vandséð er, hvað
við tæki, ef íhaldið mætti ráða.
Og hver vill trúa því að sam-
vinnustarfið hér á Akureyri sé
ekki lyftistöng fyrir bæ og hér-
að?
AUSTIN 12,
5 manna, til sölu.
Uppl. i sima 2141.
Höfum aftur fengið
hina eftirspurðu
SVEFNSÓFA
eins og tveggja manna.
.Enn'fremur ,,,
ARMSTÓLA
Húsgagnaverzlunin
KJARNI H.F.
Skipagötu 13. — Sími 2043.
HANDA BÖRNUNUM:
FLAUEL i jólafötin
Hvítir HÁLFSOKKAR
og LEISTAR
EINNIG
LOÐKRAGAEFNI
Póstsendum.
VEKZLUN
RAGNHEIÐAR O. BJÖRNSSON
LJÓSASTOFA
Rauða-krossins
Hafnarstræti 100 er tekin til
starfa. — Opin alla virka daga
frá kl. 4—6 e. h. — Sími 1402.
FYLGIZT MEÐ NÝJUNGUNUM
ALLTAF EITTHVAÐ
NÝTT
á karla ;
konur
og börn.
HEKLA
HVITT TAFT
KJÓLAEFNI
í miklu úrvali.
Gluggatjaldaefni
Ný sending.
VERZLUNIN
LONDON
Tapað
BÆNDUR!
Eigum nokkur stk. af
ROTHO 30 lítra stál-
mjólkurflutningafötum.
Vestur-þýzk framleiðsla.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
HAGLABYSSUR
aðeins kr. 950.00 stk.
VERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
H jólbarðar
fyrir
Ferguson dráttarvélar
1300x28
eru konrnir.
Pantanir óskast sóttar
sem fyrst, annars seldir
öðrum.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
Garðslátfuvélar
eru komnar.
Pantanir óskast sóttar
sem fyrst.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEELD
Kvenarmbandsúr (stál) tap
aðist 20. þ. m. í Skólastígn-
um á leið frá Barnaskólan-
um að Heimavist M. A. —
Vinsamlegast skilist gegn
fundarlaunum í Hlíðarg. 9.
Dráttarkrókar
fyrir Fergusón 35,
nýkomnir.
Pantanir óskast sóttar
sem fyrst.
VÉLA- OG
BÚ SÁH ALD ADEELD
Við höfum takmarkað-
ar birgðir af
í eftirtöldum stærðum:
560 - 13
640 - 13 !
—o—
670 - 15
710-15 '1
—o—
550/590 - 16 .
750 - 16 - I
—o—
i
1000-18 1
. i
—o—
650 - 20 I
700 - 20
750 - 20
825 - 20 1
900 - 20
1000 - 20 !
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD