Dagur - 05.12.1959, Síða 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út fimmtudag-
inn 10. desember.
XLII. árg.
Akureyri, laugardaginn 5. desember 1959
67. tbl.
Raddirnar, sem hverfa
En segulböndin geta geymt þær um ókominn tíma
Daglega erum við „að brjóta
óg týna“ og það er fleira en
barnaleikföng og gullastokkar,
sem glatast. Of seint sjáum við
stundum, að það gleymdist að
taka mynd af afa og ömmu, þrátt
Jyrir allar myndavélarnar og
svpmót þeirra er hvergi til nema
í mininngu næstu afkomenda.
Ekkert félag, ekki einu sinni
bæjarfélagið, hefur verið svo
stórhuga, að safna myndum af
öllum Akureyringum á 10 ára
fresti eða svo. En því fyrr, sem
hafizt er handa, því betra. Slík
myndasöfn væru ómetanleg fyrir
efíirkomendurna. En þetrta er í
raun og veru auðvelt verk. Ljós-
myndasafn þarf ekki mikið hús-
rými þegar aðeins væri miðað
við kaupstaðinn.
En eins og ljósmyndatæknin er
fullkomin og getur forðað mörgu
frá glötun, er segulbandið það
einnig, þótt á annan veg sé. Bæj-
arfélagið ætti að geyma málróm
opinberra starfsmanna' og leið-
toga í bænum og varðveita handa
óbornum kynslóðum.
Oflug félagssamtök, svo sem
samvinnuhreyfingin, ættu líka að
varðveita raddir leiðtoga sinna
og annarra merkra starfsmanna,
á líkan hátt og Ijósmyndir og
málverk af þeim eru varðveittnú.
Bráðum verður of seint að taka
upp ræðustúf Sigurðar Kristins-
sonar og þá yngri framkvæmda-
stjóra KEA, sem enn eru á lífi.
Bráðum verður of seint að taka
til varðveizlu málróm Þórarins
Eldjárns, Ingimars Eydals, Eiðs
Guðmundssonar, Björns Jó-
hannssonar, Bernharðs Stefáns-
sonar á segulbönd, og er þeim
ekki þar með spáð bráðum
dauða, og aðeíns nokkur nöfn
nefnd af mörgum. Hvers virði
væri ekki ungum samvinnu--
mönnum nú, að eiga hvatningar-
ræður Hallgríms Kristinssonar á
segulbandi eða hljómplötu?
Síldin, sem vciðzt hefur á Pollinum nú, er af þessari stærð. Hún
gefur lííið mjöl og lýsi, en hún er góð til niðurlagningar í dósir. —,
Þann vetur, er mcst var veitt af smásíldinni hér, varð verðmæti
hcnnar á 6. millj. króna. En samkvæmt erlendu tilboði í þessa síld
þá, hefði hún gefið 58 milljónir í aðra hönd. — Niðursuðuvcrk-
smiðja er eitt af framtíðarmálum bæjarins. — FuIInaðarrannsókn
þarf að ljúka hið fyrsta. — (Ljósmynd: E. D.).
verksmiðja á Akureyri
Sogsvirkjunina vantar 30 milljónir og býður
skuldabréf með hagstæðum kjörurn - Akureyrar
bæ vantar f jármagn til að endurnýja og auka
útgerðina og byggja niðursuðuverksmiðju
Seðlabankinn hefur. tilkynnt
sölu á 1000 og 50Ó0 króna skulda-
bréfum vegna virkjunar við Efra
Fall, samtals 300 millj. króna. —
Verðbréf þessi eru til skamms
tíma og að því leyti hagstæð. En
um það var í síðasta blaði birt
ýtarleg greinargerð.
íslenzkur verðbréfamarkaður
er ekki fjölskrúðugur. Líklegt er,
að hin nýju verðbréf verði mikið
keypt sunnanlands. En blaðið
vill benda á, að hér nyrðra bíða
mörg óleyst verkefni, sem fjár-
magn vantar til að hrinda í fram-
kvæmd. Hér á Akureyri eru tog-
arar U. A., sem í raun og veru
eru bæjartogarar, farnir ■að eld-
ast og þurfa endurnýjunar við.
Þeim þarf líka að fjölga, eða
fiskiskipum af annarri gerð. Hér
vantar niðursuðuverksmiðju til
að hagnýta smásíldina á Pollin-
um árið um kring og dráttar-
braut er aðkallandi nauðsyn.
Þessar þrjár framkvæmdir eru
þó ekki þær einu.
Akureyrarkaupstaður gæti boð-
ið út stórt skuldabréfalán til
endurnýjunar og aukningar fiski
skipaflotans, til að byggja niður-
suðuverksmiðju og dráttarbraut.
Á þetta er minnst hér til athug-
unar fyrir bæjaryfirvöldin, án
frekari rökstuðnings að þessu
sinni. En væntanlega gefst tæki-
færi til þess síðar þegar málið
kemst á umræðustig.
Ákureyringar kveða sér hljóðs með fimm nýúfkomnum bókum
Blaðinu hafa borizt bækur 5
höfunda á Akureyri.
Fyrst kom ljóðabók Braga Sig-
’urjónssonar ritstjóra, Á veðra-
mótum. Það er fjórða Ijóðabók
höfundar, en auk þess hefur hann
gefið út smásögur. Síðar verður
þessarar bókar nánar getið.
Ármann Dalmannsson gaf út
fyrstu ljóðabók sína, Ljóð af
lausum blöðum, nú í haust, 73
ljóð og löng kvæði. Sú bók skip-
ar höfundi óumdeilanlega á
skáldabekk.
Um hana birtist ritdómur í síð-
asta tölublaði Dags.
Rósberg G. Snædal sendir nú
frá sér tólf þætti í stórri bók,
hann nefnir Fólk og fjöll. Nokkr-
ir þáttanna eru útvarpshlustend-
um að góðu kunnir. Höf. hefur
áður gefið út 5 bækur, bæði ljóð
og sögur. Hin nýja bók, Fólk og
fjöll, er mjög eiguleg.
Einar Kristjánsson hefur sent
frá sér nýja bók, Dimmir hnettir.
Þar birtast 10 smásögur, og er
það þriðja bók höf. Einar hefur
þegar getið sér gott orð sem smá-
sagnahöfundur og mun þessi
nýja bók enn auka hróður hans,
sem rithöfundar.
Sigurður Kristinn Draumland,
verkamaður á Akureyri, sendir
nú frá sér ljóðabókina Blöð úr
birkiskógum. Áður hafa mörg
kvæða hans birzt í blöðum. og
tímaritum. Hann er orðhagur í
bezta lagi og kveður vel þegar
hann vill.