Dagur - 12.12.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt me ðþví sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 16. desember.
XLII. árg.
Akureyri, laugardaginn 12. desember 1959
69. tbl.
Nýja skipiS Bjarnarey
lenti í ofviðrinu en var aðstoðað til Færeyja
Nýja 250 lesta A.-þýzka tog-
skipið Bjarnarey, sem 4 hreppar
á Norðausturlandi kaupa, lenti í
ofviðri því, sem geisaði víða í
Evrópu fyrri hluta vikunnar. —
Bjarnarey var þá á heimleið, en
heimahöfn þess verður Vopna-
fjörður. — En stýrisvél skipsins
bilaði lítils háttar og bað skipið
um aðstoð frá Noregi. Litlu síðar
náði skipið sambandi við Hvassa-
fell, er var á svipuðum slóðum,
og var þá fyrri hjálparbeiðni aft-
urkölluð. Hvassafell dældi olíu í
sjóinn á meðan nauðsynlegustu
aðgerðir 'fóru fram á stýrisvél-
inni og fylgdi hinu nýja skipi,
sem ekki gat farið nema hálfa
ferð, til hafnar í Klakksvík í
Færeyjum.
Bjarnarey mun hafa komið til
Vöpnafjarðar í fyrrakvöld.
Ýmis tíðindi úr nágrannabyggðum
Bílfært yfir Lágheiði
Ólafsfirði, 11. des. — Lágheiði
var mokuð og er flutningabíll í
þriðju ferð sinni Rvík—Olafs-
fjörður. Mótorbátar eru hættir
að róa, en trillur róa ennþá, en
afli er fremur tregur.
Gott er veðrið þessa dagana.
Bæjartjörnin er frosin nú og
mörg börn voru á skautum í
morgun.
Slysavarnadeild kvenna er að
undirbúa sjónleik, sem á að sýna
um jólin.
* Verið að opna veginn
um Sigluf jarðarskarð
Siglufirði, 11. des. — í fyrra-
kvöld var byrjað að ýta snjó af
veginum í Siglufjarðarskarði og
og er búizt við að því verði lokið
í kvöld.
Fiskafli er fremur tregur, þó
hafa tveir dekkbátar róið og
fengið reitingsafla, en togskipin
afla fremur lítið.
Ingvar Guðjónsson rær frá
Sauðárkróki og nýja togskipið,
Margrét, er hætt veiðum, en mun
sennilega flytja út síld af Suð-
vesturlandi.
Allar leiðir opnar
Raufarhöfn, 11. des. — í fyrra-
dag kom sjúkraflugvélin hér. —
Búið var að segja okkur, að hún
þyrfti svo langa flugbraut. Okk-
ur sýndist annað þegaf vélin kom
og fór.
Nóg er að gera. ítalskt skip er
að taka 5 þús. tunnur síldar, það
síðasta héðan, á Rússlandsmark-
að.
Bjarnarey, nýja togskipið, kom
til Vopnafjarðar í gær. Bílfært
er um allt. Engar rjúpur.
Hagbarður með 5-6
tonn í róðri
Húsavík, 11. des. — Mikið var
róið í haust og er enn. Aflinn er
meiri en oftast áður á þessum
árstíma. Mest er róið með línu,
en einnig net. Hagbarður hefur
fengið 5—6 smál. í róðri núna að
undanförnu.
Leikfélagið mun frumsýna
sjónleikin Delerium bubonis
undir stjórn Ragnhildar Stein-
grímsdóttur nú um helgina.
Rjúpur sjást ekki. 36 djúpur er
mesta veiði, sem heyrzt hefur um
eftir daginn, en oftast fengu
menn sama og ekki neitt eða
Framhald á 4. siðu
Ókeypis kvikmynd af
Krúsjeff og Eisenhower
Á mánudagskvöldið sýnir ís-
lenzk-ameríska félagið hér í bæ
kvikmynd í Borgarbíó af för
Nixons til Sovétríkjanna, ferða-
lagi Rrúsjeffs til Bandaríkjanna
og ferð Eisenhowers til Evrópu í
sept. sl. Einnig verðuf sýnt þegar
Bandaríkjaforseti lagði upp í
hina miklu för sína til 11 landa,
sem nú stendur yfir.
Kvikmyndin er ókeypis og öll
um heimill aðgangur á meðan
húsrúm leyfir.
Tillðga um öflun lánsfjár fil Strákavegar
Nokkrir þingmenn báru fram þingsályktunar-
tillögu til fjáröflunar til þessa mannvirkis
Þingsályktunartillagan hljóðar
svo: „Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að athuga möguleika
á öflun lánsfjár, allt að 2 millj.
kr., til að ljúka lagningu Siglu-
fjarðarvegar ytri (Strákavegar).
HundraÖ ára
Helga Sörensdóttir, Fellsseli í
Ljósavatnshreppi er 100 ára í
dag, 12. desember. — Hún hcfur
fótaferð og nokkra sjón og heyrn.
Um hana fjallar bók Jóns Sig-
urðssonar í Yztafelli: Ævisaga
Helgu Sörensdóttur, sem hann
ritaði eftir sögu hennar er hún
var níræð.
Verði athugun þessari lokið sem
fyrst og eigi síðar en svo, að
niðurstaða liggi fyrir 15. marz
1960.“ Flutningsmenn eru: Einar
Ingimundarson, Gunnar Jóhanns
son, Jón Kjartansson, Jón Þor-
steinsson, Ólafur Jóhannesson,
Skúli Guðmundsson og Gunnar
Gíslason.
í greinargerð segir, að bíla-
göng, sem sprengja þurfi í gegn-
um fjallið, séu 900 metra löng, og
þessu stórvirki verði ekki lok-
ið nema með sérstakri lánveit-
ingu, en Siglufirði o. fl. sé það
hin mesta nauðsyn, að þessi bíl-
vegur verði gerður hið fyrsta.
Myndin hér að ofan er af hinu
bratta fjalli, Strákum, þar sem
þegar er byrjað á göngunum. —
Ljósmyndina tók Sn. Snorrason
flugstjóri.
Verðmerkingum vara ábótavanf
Almennmgur þarf að veita verzlunum aðhald
í þessu efni og sjá um að þær brjóti ekki lögin
Skylt er, samkvæmt lögum, að
verðmerkja allar vörur í búðar-
Hrapaöi fram al 20 mefra háum hömr-
um og srorsiasa
Vetrarmaður á Arnarfelli varð fyrir slysi þessu
í fjallinu, er hann var að sinala fénu
Liggur nú þjáður í sjúkrahúsi
Á miðvikudaginn varð það slys
í fjallinu ofan við Arnarfðll í
Saurbæjarhreppi, að 19 ára gam-
all piltur, vetrarmaður hjá Ei-
ríki Björnssyni bónda þar, var
að smala fénu, varð fótaskortur á
hjarnfönn og þeyttist síðan um
70 metra eftir brattri fönninni og
svo fram af klettum þar neðan
undir og kom niður í grjóturð.
Pilturinn, sem heitir Ragnar
Elísson og er frá Randversstöð-
um í Breiðdal, hafði áður gengið
hjarnfönn þessa, en þennan dag
var meira frost, svo að ekki
markaði í spori og varð það or-
sök slyssins. Ragnar handleggs-
brotnaði, opið brot, og mjaðmar-
grindin brotnaði, og hann hlaut
skrámur og skurði í fallinu, með-
al annars stóran skurð á höfuðið.
Ekki missti hann þó meðvitund
nema sem snöggvast og kallaði á
hjálp. Ekki heyrðust þó köll hans
fyrst í stað. En hundur, sem með
honum var, hljóp þegar heim og
vakti það grun fólksins um, að
ekki væri allt með felldu, enn-
fremur sást til fjárins, þar sem
það var á ferð uppi í fjallinu. —
Var þá leit hafin og brátt heyrðu
menn til Ragnars og fundu hann.
Voru margir nágrannar komnir á
vettvang, auk heimamanna, en
ekki leizt þeim á að flytja siúkl-
inginn fyrr en læknir kæmi á
staðinn. Símað var eftir sjúkra-
bíl og tafðist að hann kæmi, því
að lækni var engan að fá á Ak-
ureyri, er tiltækur væri þá á
stundinni. En Snorri Ólafsson
yfirlæknir á Kristneshæli var þá
fenginn til fararinnar.
Sjúklingurinn var svo borinn
heim og fluttur í Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Allt tók
þetta nokkra klukkutíma og leið
klukkutími frá því að slysið varð
og þar til slysstaðurinn var fund-
inn. Seinlegt var líka að koma
sjúklingnum upp úr gilinu.
Þegar blaðið spurðist fyrir um
líðan sjúklingsins í gær, var hann
eftir atvikum hress.
gluggum, og á öðrum stöðum þar
sem þær eru til sýnis. Þetta er til
mikils hagræðis fyrir kaupendur
og verðlagseftirlitið.
Einhver brögð eru að því, að
vörur eru svo illa verðmerktar,
að lítt eða ekki er sjáanlegt. Til
er það einnig að svikist er um
það í verzlunum, að setja verð-
miðana, og því þá borið við, að
ekki fáist hentug merki, timi hafi
ekki unnizt til að setja merkin
á og svo framvegis.
Verzlanir ættu að sjá sóma
sinn í því að verðmerkja allar
vörur greinilega og án nokkurra
undanbragða.
Lítið í gluggana.
Fólk getur að sjálfsögðu gert
,-erðlagseftnlitinu aðvart, þegar
lögum og reglum er ekki fram-
fylgt í verzlunum, og á að gera
það, hvort sem um ofangreint
atriði er að ræða eða önnur, svo
sem of hátt vöruverð, skakka
vigt eða þess háttar.
En nú geta menn athugað næsta
búðarglugga og er þá sjón sögu
Verðmerkingar vara ábótavant. .
! ----