Dagur - 19.12.1959, Page 8
8
Laugardaginn 19. desember 1959
Baguk
Hugsjónastefnur og sambúð þjóða
Fyrir fáeinum dögum var dreift
ávarpi á €—7 millj. heimili í Sví-
þjóð, Danmörku, Noregi, Finn-
landi, Færeyjum, Grænlandi og
Islandi.
Ávarp þetta er skrifað til að
varpa ljósi á það hugsjónastríð,
sem nú er háð í heiminum, og
það á veita jákvæð viðbrögð öll-
um mönnum og þjóðum, og er
miðað við þá von mannanna, að
friður og frelsi megi ríkja í
heiminn, og mikill fjöldi á Norð-
urlöndum vill vinna að.
Landleiðin til Reykja-
víkur enn opin
Samkvæmt upplýsingum Ferða
skrifstofunnar á Akureyri í gær,
var vegurinn frá Akureyri til
Reykjavíkur enn opinn og greið-
fær, að undanskildum kafla á
norðanverðri Oxnadalsheiði. En
þar átti að hreinsa í gær. Á
Holtavörðuheiði var einhver
snjór, en þar var leiðinni haldið
opinni.
Til Húsavíkur er fært um
Dalsmynni og innanhéraðs eru
allar leiðir opnar og flestar snjó-
lausar ,en víða hálka.
Það sem af er hafa ekki telj-
andi truflanir orðið á mjólkur-
flutningum og löngum opnar
leiðir um flesta vegi hér á Norð-
urlandi.
r
Astaraugun
Frægar ástarsögur frá ýmsum
löndum. Guðmundur Frímann
skáld á Akureyri valdi og þýddi.
Útgefandi: Útgáfan Dögun á
Akureyri.
Þótt ekki hafi verið getið allra
bóka, sem blaðinu berast nær
daglega og ekki tök á því, er
skylt að minnast á þessa nýút-
komnu bók, „Ástaranugun".
Enginn þarf að fela hana fyrir
maka eða börnum. í henni eru 13
ástarsögur og eftir nær jafn
marga höfunda, og margar sög-
urnar eru fagrar.
Þýðandinn hefur ekki látið
leiðast út í þá freistni að velja
sóðaleg eða klúr viðfangsefni.
Hvergi er þar slegið á lægstu
strengi mannlegra hvata með
blygðunarlausum lýsingum á
samskiptum manns og konu. —
Hvergi er ástin svipt dul og töfr-
um. Þýðandinn er næmur á mál
og stíl, svo sem kunungt er.
Hin nýja bók verður að teljast
góð bók, jafnvel mjög góð bók.
Ástin er alltaf jafn nýtt yrkisefni
skáldanna og verður það á meðan
helgustu tilfinningar og dýpsta
sæla er ekki fótum troðin og auri
orpin af kaldrifjaðri efnishyggju
og dýrkun ljótleikans.
Hafi þýðandinn þökk fyrir
þessa bók. — E. D.
Ullarvettlingar
dömu, herra og barna
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
Gáfuðum forvígismönnum Sið-
væðingarinnar er ljóst, að sið-
ferðisþróttur mannanna er fyrsta
skilyrði fyrir nýjum og betri
heimi, sem allir þrá. Þeim er líka
ljóst, að hatur og ótti opnar leiðir
kúgaranna, í hvaða mynd sem er,
og gerir þær stuttar og fljótfarn-
ar.
Fólk ætti að kynna sér boð-
skap Siðvæðingarinnar í ávarpi
því eða bæklingi, sem áður getur
og nefnist „Hugsjónastríð og
sambúð þjóða.“ Meðfylgjandi
nöfn þekktra manna, sem fylgja
ávarpinu úr hlaði, eru nokkur
trygging fyrir því, að það sé
ómaksins vert að kynna sér efni
og anda Siðvæðingarinnar.
Hans Bjerkholt,
framkv.stj. Alþýðusambands
FCO, Noregi. Einn stofnandi
norska kommúnistaflokksins,
nú í Verkamannaflokknum.
Margit Borg-Sundman,
þingmaður, formaður miðstjórnar
Bandalags kvenna í Finnlandi.
Erling Börresen,
bankastjóri Noregsbanka.
James Dickson,
stallari konungs,
þingmaður, Svíþjóð.
Johan Görresen,
forstj., Noregi.
Christian Harhoff,
útgerðai'maður, Danmörku.
Bengt Jonzon,
fyrrv. biskup, Svíþjóð.
Jörgen Jörgensen,
varabankastj óri Verkalýðsbank-
ans, Danmörk.
Ole Björn Kraft,
þingmaður, fyrrv. utanríkisráðh.,
Danmörku.
Lennart Segerstrale,
listamaður, Finnlandi.
John Söderlund,
framkv.stj. Sænska flutninga-
verkamannasambandsins.
Sveinbjörn Jónsson,
forstjóri, Reykjavík.
Góður árangur skauta-
manna á Akureyri
Á innanfélagsmóti Skautafélags
Akureyrar, sem haldrð var hjá
Stórholti í Hrafnagilshreppi 13.
þ. m., náðist mjög góður árangur
í skautahlaupi, enda góð skilyrði.
500 m. — A-flokkur.
Björn Baldursson .........47.8
Bezti tími settur hérlendis. ísl.
met á hann sjálfur, sett í Lille-
hammer í Noregi, 46.6.
Sigfús K. Erlingsson........49.2
Örn Indriðason .............50.8
500 m. — B-flokkur.
Þórhallur Karlsson .........61.1
Kristján Árnason .......... 69.3
3000 m.
Björn Baldursson ........ 5.41.1
Bezti tími settur hérlendis. fsl.
met setti hann í Þrándheimi,
5.34.1.
Örn Indriðason ..........5.48.7
Sigfús Erlingsson ...... 5.50.0
Ofanskráðir tímar, svo snemma
vetrar, gefa vonir um mikinn ár-
angur skautamanna á Akureyri
síðar á vetrinum.
■■•■iiiiiiiiiiiittiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiililiiliiiiilliiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiii
1111111111111111111111"*
KVEÐIÐ EINN GOÐAN VEÐURDAG.
Svo er nú vetrarveðrið heitt
að við erum hætt að trúa neitt
á harðinda ugg, sem ávallt brást,
og einkum þó veðurspána,
er skammdegis-gróðurskúrir sjást
og skaflar í fjöllum þána.
15
Og það mér virðist, í þetta sinn,
þegar svo hlýr er veturinn,
golan svo mild og grundin auð
og grænkar í kringum hæi,
að jól verð! hvorki hvít né rauð
heldur í grænna lagi.
Menn vissu dæmi þess veðurlags,
frá veturnóttum til eldadags,
að fannir og klaki, linnulaust,
við langþreyttum sjónum blöstu,
en nú eru túnin hirt um haust
og heyjað á jólaföstu.
Oft var það svo að enginn dró,
obbann af vetri, bein úr sjó,
þá hafísinn lagði hafþök frá
Horni að Sléttugrunni.
En nú stendur höndum einum á
að aflann menn nýta kunni.
Fyrir svella og fanna skort
fá þeir, er iðka vcfrarsport,
æfingasvæði engin spurt
innan nálægra sveita,
og verða því einatt eitthvað burt
í önnur kjördæmi að Ieita.
En bezt er að geyma lilýjan hött,
hríðarmussu og ullarvött,
ekki þarf svo að hræðast hót
hann, sem á slíku lumar
ef skyldum við halda skíðamót
eða skautakeppni — í sumar.
DVERGUR.
iiai 111111111111111111111111111111 ■iiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiii iiiiiiiiiiii,iii n ,,i, Miimiiiii ii,i,,,,,,,,, nmmuMMmMnnnitMnni'
Samsöngur Karlakórs Akureyrar
Heppnin var með þeim
Eftir 6 spilakvöld Iðju hér á
Akureyri varð Friðrika Tryggva-
dóttir, Brekkugötu 15, sigurveg-
arinn og hi'eppti fyrstu verðlaun,
tvo farmiða með einhverju SÍS-
skipanna til meginlandsins. Önn-
ur verðlaun hlaut Ósk Óskars-
dóttir, Strandgötu 45, en þriðju
verðlaun, skíðaskó, hlaut Ingi-
björg Björnsdóttir, Hvoli. Frið-
rika fékk 1035 slagi, Ósk 994 og
Ingibjörg 982 slagi.
- Laxveiðin
Framhald af 1. siðu.
framleiðsluna og flytja laxinn út
í meira mæli en áður til þess að:
auka gjaldeyristekjur þjóðarinn-
ar.
Arðvænleg atvlnnugrein.
Skilyrði til þess að taka upp
nýjungar í fiskirækt eru ekki
fyrir hendi hér nema að litlu
leyti, en ráða verður bót á því
ástandi hið fyrsta, með því að
veita meira fé en nú er gert til
vísindalegra tilrauna með fiski-
ræktaraðferðir og skapa aðstöðu
til að framkvæma slíkar tilraunir
með því að koma á fót tilrauna-
eldisstöð, sem hið opinbera ætti
og ræki, enda er svo ráð fyrir
gert í lögum um lax- og silungs-
veiði, að ríkið reisi slíka eldis-
stöð. Þetta mál er mjög aðkall-
andi, þar sem hér er um nýja,
arðvænlega atvinnugrein að
ræða.
Kirkjan. Messað á Akureyri kl.
5 e. h. n.k. sunnudag. Sálmar nr.:
74 _ 89 — 106 — 76 — 90. —
Ath. breyttan messutíma. K. R.
Hátíðamessur í Möðruvalla-
klaustursprestakalli. Jóladag kl.
2 e. h. á Möðruvöllum og kl. 4.30
e. h. að Bægisá. — Annan í jólum
kl. 2 e. h. á Bakka. — Þriðja í
jólum (sunund. milli jóla og ný-
árs) kl. 4 e. h. í Skjaldarvík. —
Nýársdag kl. 2 e. h. í Glæsibæ.
— Guðsþjónusta á gamlaársdag
verður boðuð síðar. — Sóknar-
prestur.
Möðruvallakl.prcstakall. Flótta-
mannahjálpinni hafa borizt þess-
ar gjafir: Sö.fnun í Bakkakirkju
kr. 1.075.00, frá börnum í Skriðu-
hreppi kr. 200.00, í Hjalteyrar-
skóla kr. 350.00, frá Kristínu
Kristjánsdóttur kr. 100.00, Sól-
veigu Sigurjónsdóttur kr. 100.00,
Sigríði Einarsdóttur kr. 200.00, N.
N. kr. 40.00, Ni N. kr. 40.00. —
Samtals kr. 2.105.00. Beztu þakk-
ir. —
Zíon. Samkoma jóladag kl. 8.30
e. h. Allir hjartanlega velkomnir.
Síldarspilið
KAPPFLUGIÐ
VEÐHLAUPIÐ
Allt í einum kassa.
Mjög hentugt til
jólagjafa.
Raftækjaverzlun
Viktors Kristjánssonar
Um síðustu helgi hélt Karlakór
Akureyrar samsöng í Nýja-Bíó,
bæði á laugardaginn og sunnu-
daginn. Söngstjóri var Áskell
Jónsson, einsöngvari Jóhann
Konráðsson og undirleikari
Kristinn Gestsson.
Söngurinn var fremur þungur
framanaf, en batnaði þegar á leið.
Honum var ágætlega tekið, en
hinn mikli annatími nú fyrir jól-
in er öðrum tímum erfiðari til að
fá fólk til að hlusta, og kom þetta
Skóli og „vinaskip“
Árið 1953 völdu skólabörnin í
Barnaskóla Akureyrar sér
Hvassafell sem vinaskip. Síðan
hafa börn, skóli og skip þetta
skipzt á gjöfum. Skipverjar hafa
fært skólanum ýmsa sjaldgæfa
muni og skrifað löng og skemmti
leg bréf frá fjarlægum stöðum,
en skólinn hefur bætt og aukið
bókakost farmanna.
í gærmorgun voru litlu-jólin
haldin í skólanum. Sjómennirnir
höfðu sent skólanum fagurt jóla-
tré og var búið að setja það upp
og lýsa það.
Barnaskóli Akureyrar var
fyrsti skóli landsins, sem eignað-
ist „vinaskip“, og er reynslan af
því hin ánægjulegasta.
greinilega í Ijós, því að húsið var
ekki fullskipað.
Sumir halda því fram, að
karlakóramir, bæði hér og ann-
ars staðar, séu í lægð þessi árin.
Án þess að leggja dóm á það, var
þessi samsöngur ekki því marki
brenndur. Hins vegar gæti það
verið til athugunar, hvort karla-
kórarnir sniðgangi ekki of hin
hressandi, djörfu og fjörugu lög,
sem beint eru ætluð fyrir karla-
kóra. Hér ætti e. t. v. við að
segja: Meira líf og fjör.
Margt var vel um söng kórsins.
Hann hljómaði víða mjög vel, svo
sem í Kvöldljóði Árna Björns-
sonar, og hann náði valdi á hinu
glæsilega lagi „Rændur koss‘ eft-
ir Holger Wiehe. Fyrsti tenór
hefur yfir mestum glæsibrag að
ráða af röddum kórsins.
Einsöngur Jóhanns Konráðs-
sonar hefur stundum verið betri.
E. e. v. hefði hann notið sín bet-
ur í þessu lagi með píanóundir-
leik aðeins.
Söngstjórinn, Áskell Jónsson,
er án efa mikilhæfur stjórnandi
og hefur öryggi hans vaxið að
mun hin síðari ár.
Kórinn hafði góða aðstoð í ná-
kvæmum og smekklegum undir-
leik Kristins Gestssonai'.
jmíMEÍ