Dagur - 24.02.1960, Blaðsíða 1
Fylgizt meS því sem gerist
hér í krignum okkru.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
ÐAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 2. marz.
XLIII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 24. febrúar 1960
9. tbl.
Myndin hér að ofan er af komu skautamannanna hingað til Akur-
Órn Indriðason. Vinstri röð:' Skúli Ágústson, fremst, þá Jón Dal-
mann Ármannsson og Þórhallur Karlsson — (Ljósmyd: E. D.).
Björn Baldursson varS Is
Skautamót íslands fór fram í
Reykjavík um síðustu helgi. —
Keppendur voru 8 og allir frá
Akureyri, því að Reykvíkingar
drógu sig í hlé á síðustu stundu,
mörgum til undrunar.
Skautamótið vakti athygli í
höfuðstaðnum og sunnanblöðin
komu auga á, að frosið vatn er
það eina, sem með þarf til að
iðka eina fegurstu vetraríþrótt
sem til er.
Björn Baldursson varð skauta-
meistari Islands í þriðja sinn.
Skautamenn á Akureyri hafa
sýnt mikinn dugnað í þessari
íþrótt. Leiðandi maður þeirra um
mörg undanfarin ár er Jón Dal-
mann Armannsson. Geta má þess,
að enginn þeirra 8 skautamanna,
sem um getur hér að framan, nota
vín eða tóbak, og er það þeim til
sóma, en mætti verða öðrum
íþróttamönnum til umhugsunar.
Nýtt hljóðfæri
Párísarbúi einn, að nafni
Francois Baschet, hefur smiðað
nýtt hljóðfæri, sem vakið hefur
mikið umtal. Það er í fimmtíu
hlutum, og má nota hvern þeirra
sem sjálfstætt einleikshljóðfæri.
Sagt er að hljómurinn líkist cem-
balói og klukknahljóm. Hið nýja
hljóðfæri er kallað kristalsorgel.
mótinu á bls. 2.
LÖG UM EFNAHAGSMÁLIN SAMÞYKKT
Sterk mótmælaaída hefur risið gegn því um allt iand
Efnahagsmálafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar er nú orðið að lög-
um. Allar breytingartillögur stjórn
arandstæðinganna voru stráfelld-
ar og vilji almennings að engu
hafður. Eigin kosningaskrá, sem
hátíðlega var birt öllum almenn-
ingi í haust, er margsvikin, en
meginatriði hennar voru þessi:
Stöðvun verðbólgunnar, jafnvægi
þjóðarbúskaparins, stéttafriður,
uppbygging atvinnuveganna, auk-
in framleiðsla og bætt lífskjör al-
mennings.
Útlánsvexlir bankanna hækka sem hér segir:
Nú Áður
Forvextir 11% 7%
Framlengingarvextir eftir 3 mánuði Hl/2% 7(2%
Vextir af yfirdrætti á hlaupareikningum, reikn.
mánaðarlega eftir á 12% 8%
Vextir af reikningslánuni og viðskiptalánum, auk
viðskiptagjalds 1% á ári 11% 7%
Fasteignaveðslán og handveðslán til lands tíma
með breytilegum vöxtum 11% 7%
Sömu Ián með föstum vöxtum 10% 5%
Vextir af afurðavíxlum 9% 5%
Framlenging sömu víxla eftir 3 mánuði 9(4% 5i/2%
Ilækkun á innlánsvöxtum verða þessir:
Nú Áður
Á almennum sparisjóðsbókum 9% 5%
Á sparisjóðsbókum með 6 mán. uppsagnarfresti 10% 6%
Á tíu ára sparisjóðsbókum 11% 7%
Á ávísanasparisjóðsbókum 6% 4%
Á hlaupareikningi 4% 2('2%
Hjá fjárfestingarsjóðunum verður hækkun útlánsvaxta þessi:
Nú Áður
Húsnæðismálastjórn, A-lán 9% 7%
Byggingarsjóður sveitabæja og Byggingarsjóður
verkamanna 6% 31/2%
Ræktunarsjóður og Fiskveiðasjóður 6'/z% 4%
Auk þess styttist lánstími tveggja síðastnefndu sjóðanna í 15 ár
úr 20 árum.
iVARUG
FLUGBR4UT
Ríkisstjórnin hefur nú gefið út
sína fyrstu stóru tilkynningu til
þjóðarinnar um vexti.
Auk þeirra okurvaxta, sem
meginþorri efnalítils fólks verður
nú að taka á sínar herðar og
mörgum mun verða um megn,
hefur svo ríkisstjórnin barið það
í gegn á Alþingi og látið lögfesta,
að sparisjóðir og innlánsdeildir,
hvar sem er á landinu, skuli af-
henda Seðlabankanum í Reykja-
vík helming þeirrar sparifjár-
aukningar, sem hér eftir berst
þessum stofnunum. Sjá allir hvert
þetta leiðir í peningamálum.
FRAMSOKNARVISTiN
Á FÖSTUÐAGINN *
Þriðja spilakvöld Framsóknar-
manna verður næsta föstudags-
kvöld að Ilótel KEA kl. 8.30. —
Lýkur þar með spilakeppni
þeirri, sem hófst 22. jan. sl. og
háð úrslitaspilið um hinn glæsi-
lega Philipsplötuspilara. Ágæt
aðsókn hefur verið að þessum
spilakvöldum og dansað af fjöri
til lri. 1.
Nýlega voru Ijósmerki sett við flugvöllinn hér á Akureyri og var þess full þörf, og þó fyrr hefði ver-
ið. Þau eiga að stöðva alla umferð á þjóðveginum við cnda flugvallarins á mcðan flugvélar lenda eða
hefja sig til flugs. Betra hefði verið að loka veginum á öruggari hátt á meðan flugtök og lendingar
flugvéla standa yfir, en ljósmerkin eru þó hin þörfustu, og að sjálfsögðu bcr vegfarendum að virða
þau undanbragðalaust. — (Ljósmynd: E. D.).
INNBROT
Um helgina var sprengdur upp
gluggi á rakarastofu Ingva og
Haralds við Ráðhústorg 9 hér í
bæ og 4.700.00 krónum stolið og
einhverju fleiru.
Þá hefur tvívegis verið brotizt
inn í radiovitann á Akureyri, en
engu stolið þar. Þar eru dýrmæt
aðflugstæki fyrir flugið til Akur-
eyrar.
Bæði' eru mál þessi í rannsókn
hjá lögreglunni, en sökudólgar
ófundnir ennþá.
ÆVINTYRI A
GÖNGUFÖR
Leikfélagið hefur sýningar að
nýju á „Ævintýri á gönguför".
Næstu sýningar næstk. laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Þá er
ráðgerð sýning fyrir eldra fólkið
kl. 3 á sunnudag. Eins og áður
hefur verið auglýst, er sú sýning
ókeypis fyrir alla í bæ og héraði,
70 ára og eldri. -— Ef um hjón er
að ræða, þar sem annar aðilinn
hefur náð þessum aldri, er hinn
að sjálfsögðu velkominn einnig.
Það af eldra fólkinu, sem ekki
getur sótt þessa sýningu, er vel-
komið á þær sýningar er síðar
verða auglýstar. — Vinsamlegast
látið aðgöngumiðasöluna, sími
1073, vita um þátttöku yðar. —
^Svarað í sima eftir kl. 2 daglega.