Dagur - 24.02.1960, Blaðsíða 2
2
DAGCR
Miðvikudaginn 24. febrúar 1960
Sfjórnarllokkðrnir hala nú afsalað sér
Irausti þjóðarinnar
Þess vegna er hætt við, að hinar nýju efnahags-
þann hátt, að gengisfellingin og
aðrar ráðstafanir koma á gífurl'egri
verðbólguskriðu, sem stjórnin
| sjálf nefnir „óðaverðbólgu".
Krókótt virðist bún vera „leiðin
aðgerðir séu feigðarflan og upphaf vandræða U1 bættra lífskjara“ °s stóryrði
° ° D i l Alþýðuflokksins í sumar drápu
Sú ógæfa fylgir núverandi ríkis-
stjórn, að fólkið treystir henni
ekki. Stjórnarflokkarnir eru berir
að þeim fádæma fölsunum í op-
inberum málflutningi, og að því
einnig, að segja eitt í dag og ann-
að á morgun, svo að jaínvel hinir
fylgispökustu hafa ekki við að
trúa. Þetta kemur þeim auðvitað
sjálfum í koll, þótt síðar verði. En
hitt er þó alvarlegra, að þessir
flokkar skuli vilja steypa þjóð-
inni út í þá efnahagsbyltingu, sem
nú er orðin lögfest, án þess að
að hafa um það nein samráð við
aðra stjórnmálaflokka eða fjöl-
mennustu stéttarfélögin í landinu.
Hver skyldi vera búinn að gleyma
kauphækkunarstefnu Sjálfstæðis-
flokksins sumarið 1958, þegar
hann vann markvisst að því að
allt kaup í landinu HÆKKAÐI
um 6—9%? Er ætlast til að menn
séu líka búnir að gleyma því, að
nokkrum vikum siðar lýsti Sjálf-
stæðisflokkurinn því yfir opinber-
le:ga, að vandi efnahagsmálanna
væri leystur ef kaupið LÆKK-
AÐI um 6—9%.
Hafa menn gleymt þeim boð-|
skap Sjálfstæðisflokksins, að þjóð-!
in væri að sligast undan erlendu
lánunum, bæði afborgunum og
vöxtum?
Nú undirbýr ríkisstjórnin, undir
forystu Sjálfstæðisflokksins, að
taka 7—800 milljón króna erlend
lán til skamms tíma og kallar
gjaldeyrisvarasjóð, sem þó á ekki
að verja til stórframkvæmda eða
atvinnuuppbyggingar eins og tíðk-j
ast hefur um öll erlend lán að
undanförnu, heldur eru þetta lán
til að kaupa fyrir venjulegar
eyðsluvörur, „kramvörulán", hef-
ur þetta verið kallað.
Þá lofaði Sjálfstæðisflokkurinn
landsfólkinu betri lífskjörum al-
mennt og án nokkurs fyrirvara, ef
hann aðeins fengi að stjórna. Eítir
kenningu flokksins átti hver mað-
ur að geta orðið ríkur með hægu
móti. Flokkurinn lofaði að efla
framleiðsluna, auka þjóðartekj-
urnar, svipta öllum höftum burt,
lækka skattana og ganga af verð-
bólgunni dauðri. „Leiðin til
bættra lífskjara“ var ekki vand-
farnari en það, að kjósa þennan
ágæta flokk og fela honum stjórn-
ina. Og það gerðu margir.
Efndirnar á þessum síðasttöldu
loforðum, sem öll eru skjalfest,
eru þessar: í stað þess að gera
menn ríka og standa við þau fyr-
irheit, kom ný kenning og allmjög
breytt. Hún hljóðar svo: „Þjóðin
hefur lifað um efni fram“ og allir
verða að íórna.“
Sjálfstæðisflokkurinn lofaði að
efla framleiðsluna og þjóðartekj>-
urnar. Það loforð efnir flokkurinn
með alhliða samdrætti á verkleg-
um framkvæmdum og okurvöxtum
til að koma í veg fyrir fram-
kvæmdir. Það þurfti meira að
segja að afnema lög um okurvexti
til þess að ríkisstjórnin gæti inn-
leitt og lögfest þá vaxtahækkun,
sem hún nú hefur gert.
Ollum höftum ætlaði stjórnin
burtu að svifta. Einnig þetta lof-
orð ætlar að verða stjórninni til
eins mikillar skammar og öll hin
lofcrðin. Aðeins 60% verzlunar-
innar verður frjáls.
Og nú átti Eysteinn ekki lengur
að „pína þjóðina með skattaálög-
um“. Nú átti andi Sjálfstæðis-
flokksins að svífa yfir vötnunum,
frjálshuga og óbundinn.
Hverjar eru svo efndirnar?
Nýju álögurnar eru áætlaðar
1300 milljónir, sem þjóðinni er
gert að greiða, en fær í staðinn
152 milljónir í auknum trygging-
um og 37 milljónir króna í niður-
greiðslu innanlands.
Svo átti að ganga af verðbólg-
unni dauðri.
Þessu loforði er fylgt eftir á
ekki verðbólgudrauginn.
Stór bók væri það og stórorð, ef
þar væri saman komin fordæming
Alþýðuflokksins á gengisfellingu.
En þá var Alþýðuflokkurinn al-
þýðuflokkur en ekki handbendi
íhaldsins. Nú flytur þessi sami
flokkur stórkostlegt gengisfelling-
arfrumvarp og talar um það, sem
hreinan lífgjafa vinnandi fólks.
Stjórnarflokkarnir heita á þjóð-
ina að fylgja sér og þeir biðja
menn að fylgja rödd sannleikans,
þ. e. þeirra eigin áróðri. Þótt menn
séu allir af vilja gerðir, vita þeir
alls ekki hvort stjórnarflokkarnir
segja satt nú. Geri þeir það, hafa
þeir logið hroðalega fyrir kosning-
ar. En hafi þeir sagt satt þá, og í
því trausti hlutu þeir meirihluta
atkvæða, flytja þeir helber ósann-
indi nú. Þessi vinnubrögð jafngilda
því, að stjórnarflokkarnir afsali
sér trausti þjóðarinnar.
Elinborg Jónsdóttir ("til vinstri), Jónína Stebiþórsdóttir.
Afmælisfagnaður Kvenfél. Hlífar
Elinborg Jónsdóttir kjörin heiðursfélagi
Kvenfélagið Hlíf hélt aðalfund
sinn þann 19. janúar sl. Stendur
nú yfir viðbótarbygging við barna-
heimilið Pálmholt cg verður hún
væntanlega fullgerð í vor. Verður
þá hægt að taka um 100 börn á
heimilið.
Á fundinum baðst Elinborg
Jónsdóttir eindregið undan for-
mannsstörfum, en hún hefur verið
formaður félagsins undanfarin 13
ár. Hún hefur rækt það starf af
frábærri fórnfýsi og dugnaði. I
stað hennar var kjörin formaður
Jónína Steinþórsdóttir, að öðru
leyti var stjórnin óbreytt. Stjóm
félagsins skipa nú
Jónína Steinþórsdóttir, form.
Elinborg Jónsdóítir, varaform.
Laufey Tryggvadóttir, gjaldk.
Laufey Sigurðaraóttir, ritari.
Dórathea Kristinsd., meðstj.
Þann 4. febr. sl. minntist Hlíf
afmælis síns að gamalli venju að
Hótel KEA. Þar var Elinborg
Jónsdóttir kjörin heiðursíélagi
Hlífar, fyrir störf sin í þágu félags-
ins og barnaheimilisins. Þar évarp-
aði hinn nýkjörni formaður Elin-
borgu, afhenti henni lieiðursskir-
teini sitt og þakkaði henni fyrir
hönd félagsins öll hennar miklu
störf, sérstaklega þó í þágu Pálm-
holts, en þar hafa hún og maður
hennar, Sigurður Sölvason, sýnt
mikla fórnfýsi, og borið hag þess
mjög fyrir brjósti.
Helga Jónsdóttir flutti henni
þakkarorð og kvæði það, sem hér
fer á eftir, sem ort var í nafni fé-
lagsins.
Elinborg Jónsdóttir þakkaði fyr-
ir þennan þakklætisvott félagsins
og minntist um leið þeirra kvenna,
sem áður voru gerðar að heiðurs-
félögum, en það eru: Kristbjörg
Jónatansdóttir, Soffia Jóhanns-
dóttir, Gunnhildur Ryel og Jón-
inna Sigurðardóttir. Þá minntist
hún sérstaklega Onr.u Magnús-
dóttur, sem einnig var heiðursfé-
lagi, en hún lézt í sumar háöldruð.
Var hún lengst allra formaður
HHfar, samtals 15 ár og var alla
tíð mjög annt um hag félagsins.
Þá söng Sigurveig Jónsdóttir
gamanvísur með undirleik Ingi-
Framhald á 7- siðu
Skaufamót Islands 1960
Framkvæmdastjóri ÍBR, Sigur-
geir Guðmannsson, setti mótið
með nokkrum orðum. Hann var
jafnframt mótsstjóri. Ræsir var
Bened. Jakobss. íþróttakennari.
Fyrst var keppt í 500 m. hlaupi,
þar náði Agúst Karlsson góðu
hlaupi í fyrsta riðli, í næsta riðli
tók Sigfús forustuna, en í þriðja
riðli tók Björn vel á og klukkurn-
ar sýndu 50,1, sem varð bezti
timi. 3000 m. hlaupið var afar
erfitt, þar sigraði Skúli með yfir-
burðum. Hann vann Björn í sam-
hlaupi með 10 sek., byrjaði að
síga fram úr í miðju hlaupi og jók
síðan forskotið jafnt og þétt. Eng-
um hinna tókst að nálgast tíma
þessara tveggja. Sýnt var því að
keppnin um bikarinn yrði milli
þessara tveggja, en Björn stóð
hálfu stigi betur eftir daginn. Örn
varð þriðji maður í þessu hlaupi,
en hann var smávegis meiddur í
hné og háði það honum nokkuð.
Á sunnudagsmorgun var svellið
sprautað og var nú ísinn miklu
betri en fyrri daginn. Þegar mótið
hófst var auk þess komið hið
bezta veður, nærri logn, sólskin
og 5—6° frost.
Vitað var að 1500 m. hlaupið
myndi miklu ráða um árslit móts-
ins. Björn, sem hljóp i 1. riðli á
móti Sigfúsi, sýndi nú hversu
íomnir
JAKKAR
úr ull
— mohair
— ullarfrotte.
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
RUSINUR
með steinum
RÚSÍNUR
steinl. í I. vigt
RÚSÍNUR
steinl. í pk.
KÚRENUR
í pök.
VÖRUHÚSIÐ H.F.
HEY
Góð taða til sölu, ca. 200
hestar. Verð frá 100—130
krónur pr. hestur.
Ingólfur Lárusson, Sjöfn
mikill keppnismaður hann er með
því að vinna þetta hlaup á ágæt-
um tíma. Sigfús reyndi að fylgja
honum, og varð annar. Enda þótt
Skúli hefði þau hlunnindi að
hlaupa á eftir Birni og hafa hans
millitíma á þessari uppáhalds-
vegalengd sinni, tapaði hann
nærri tveim stigum. Sýnilegt var
að hann var nokkuð stífur, og
hafa vafalaust 3 km. frá deginum
áður sagt þar til sín. Ágúst varð
fyrir því óhappi að detta á þess-
ari vegalengd, hann varð þó fljót-
ur á fætur aftur, en tapaði tals-
verðum tíma.
I 5 km. höfðu Björn og Skúli
heppnina með sér, því að þeir
hlupu í 1. riðli, en er þeir voru að
Ijúka hlaupinu tók að hvessa. —
Skúli vann á ágætum tíma, en
samt átti Björn rúml. heilt stig til
góða og varð þannig örugglega
Islandsmeistari í þriðja sinn.
Úrslit:
500 metrar:
1. Björn Baldursson 50.1 sek.
2. Sigfús Erlingsson 51.0 sek.
3. Skúli G. Ágústsson 52.5 sek.
4. Ágúst B. Karlsson 53.2 sek.
5. Órn Indriðason 53.5 sek.
6. Birgir Ágústsson 55.4 sek.
7. Jón D. Ármannsson 55.5 selp
8. Þórhallur Karísson 56.5 sek. £
<r
1500 metrar: 2
1. Björn 2.38.7 mín.
2. Sigfús 2140.3 Iriín.
3. Skúli 2.44.2 mín.
4. Örn 2.44.9_Tnrn.
5. Þórhallur 2.51.1 mín.
6. Jón 2.51.7 mín.
7. Birgir 2,5.4.8 mín.
8. Ágúst 3.01.6 mín.
3000 metrar:
1. Skúli 5.54.3 mín.
2. Björn 6.05.2 mín.
3. Örn 6.19.0 mín.
4. Sigfús 6.22.4 mín.
5. Þórhallúr' 6.43.2 mín.
6. Ágúst 6.45.5 mín.
7. Jón 6.51.5 mín.
8. Birgir 6.58.6 mín.
5000 metrar:
1. Skúli 9.47.2 mín.
2. Björn 10.00.4 mín.
3. Örn 10.06.3 mín.
4. Sigfús 10,12.2 mín.
5. Jón 10.57.8 mín.
6. Birgir 11.05.5 mín.
7. Þórhallur 11.06.8 mín.
8. Ágúst 11.10.6 mín.
Stig:
1. Bjcm 223.927 stig
2. Skúli 225.003 stig
3. Sigfús 229.386 stig
4. Örn 232.264 stig
5. Jón 247.096 stig
6. Þórhallur 247.413 stig
7. Ágúst 248.376 stig
8. Birgir 249.984 stig
íbúð óskðsf fil Eeigu
ekki minni en 3 herbergi og eldliús. — Einhver fyrir-
lramgreiðsla ef óskað er. —
Upplýsingar í síma 1491 og 1483.