Dagur - 02.03.1960, Blaðsíða 8
Daguir
Miðvikudaginn 2. mafz 1960
Ymis fíðindi úr nagrannabyggðum
Á dráttarvél frá Akur-
eyri að Fosshóli
Fosshóli 1. marz. — Það var
faert um allt fram að síðustu
helgi, en nú er farið að versna.
Áætlunarferðirnir til Húsavíkur
hafa ekki fallið niður og fært var
enn yfir Fljótsheiði á sunnudag-
inn á jeppum og dráttarvélum. —
Pósturinn kom á dráttaarvél frá
Akureyri á sunnudaginn og auð-
vitað var það ekki Stefán póstur,
sem var á ferðinni í þetta skipti,
því að hann hefði komið á hest-
um.
Fram í Bárðardal mun vera
orðið algerlega ófært nú, því að
mikið hefur bætt á síðan um helgi
og allir vegir hér í nágrenninu
eru að verða mjög erfiðir.
Kikkhósti er kominn á 5 eða 6
bæi í Ljósavatnsskarði og Kinn,
ennfremur gengur hér kvef og
hálsbólga.
Enginn maður rótar bíl
Hagnesvík 1. marz. — Nú er
kominn svo mikill snjór, að eng-
um dettur í hug að róta bíl og
hér er hvasst og eiginlega versta
veður.
Frú Elín Lárusdótti, húsfreyja
að Yzta-Mói, varð sjötug 27. fe-
brúar sl. Oll börn þeirra hjóna,
hennar og Hermanns Jónssonar,
voru í afmæli móður sinnar, og er
það mannvænlegur hópur, svo
sem þau eiga kyn til í báðar ætt-
ir. Frú Elín er mikil duknaðar- og
rausnarkona. Þau hjónin hafa bú-
ið að Yzta-Mói síðan 1918.
Söngur og leikur í
Reykjadal
Laugum 1. marz. — Illfært er
orðið um Reykjadal og þó er ekki
mjög mikill snjór kominn. í gær
var fært á jeppum og trukkum til
Húsavíkur, en siðan hefur versn-
að. Vont kvef gengur í Lauga-
skóla. Ingibjörg Steingrímsdóttir
hefur kennt söng á Húsavík um
mánaðar skeið og er nú komin
hingað í dalinn og þjálfar Karla-
kór Reykdæla. Síðan fer hún upp. fyrir, að þar fari að aukast erfið-
í Mývatnssveit til að kenna þar leikar. Innvegin mjólk hér varð á
söng. Kirkjukórarnir búa sig und-[sl. ári rúml. 2,7 milljón kg., og að-
Aldrað fólk í leikhúsinu
Leikfélag Akureyrar hafði sýn-
ingu á sjónleiknum Ævintýri á
gönguför um síðustu helgi. Þessi
sýning var aðeins fyrir aldrað
fólk, 70 ára og eldra, og var því
boðið í leikhúsið að þessu sinni.
Sýningin var vel sótt og skemmti
fólkið sér hið bezta. Að sýningu
lokinni kvaddi Þórarinn Eldjárn
sér hljóðs og flutti Leikfélagi Ak-
ureyrar þakkir fyrir hönd við-
staddra leikhússgesta.
Eldra fólkið á þess enn kost að
sjá sýningar þessa leiks ókeypis,
þegar það getur því við komið og
ekki átti þess kost á fyrrnefndri
sýningu.
Sýningum fer nú fækkandi
vegna þess að leikhúsið er öðrum
leigt síðar í mánuðinum. Þó verð-
ur sýning í kvöld, miðvikudag, og
einnig um helgina.
ir það að halda söngmót í vor.
Ungmennafélagið Efling er að
æfa sjónleikinn Aumingja Hönnu.
Prestkosning
Sauðárkróki 1. marz. — Á
sunnudaginn fór fram prestskosn-
ing hér á Sauðárkróki. Kosið var
milli þeirra séra Jónasar Gísla-
sonar og séra Þóris Steffensen, og
var kjörsóknin yfir 80%. Ekki er
enn búið að telja atkvæðin.
Leikfélagið er að æfa sjónleik-
inn Músagildruna og verður hann
sýndur á sæluvikunni, sem ráð-
gert er að hefjist 20. marz.
Búið að snjóa í 18 daga
Reynihlíð 1. marz. — Nú er
búið að snjóa í 18 daga og kom-
inn allmikill snjór. Brotist hefur
þó verið með mjólk, nokkurn
veginn sámkvæmt áætlun, eða
tvisvar í viku hverri, á trukkbíl-
um.
Rólegt er hér í Mývatnssveit
um þessar mundir og býr hver að
sínu, svo sem föng eru á.
Átján klst. að sækja
jólkina
m
Dalvík 1. marz. — Hér er hálf-
gerð stórhríð síðan á laugardag-
inn. Færðin er erfið á vegunum.
Þannig voru mjólkurbílarnir 16—
18 klukkutíma að sækja mjólkina
hérna fram í dalinn og komust
aldrei á leiðarenda, en bændur
komu á móti þeim og notuðu
dráttarvélar eða hesta og sleða.
Bátar hafa ekki róið svo að
heitið geti síðasta hálfan mánuð
vegna ógæftanna.
Leiðir að lokast
Blönduósi 1. marz. — Hríð er
nú á hverjum degi. Langidalur er
orðinn ófær og hafa áæltunarbíl-
ar ekið Svínvetningabraut. Milli
Skagastrandar og Blönduóss er að
verð,a ófært. Fram x Þing og
Vatnsdal hefur verið vel akfært
fram að þessu. Truflanir á mjólk-
urflutningum hafa ekki orðið telj-
andi það sem af er, en nú lítur út
eins meira en árið áður.. Meðal-
fjta mjólkurinnar var 3,66%. Um
‘endanlegt verð er enn ekki vitað.
Atvinnulíf í dauðadái
Ólaisíirði 1. marz. -—- Hér er
atvinnulífið í dauðadái. Siðan 14.
febrúar hefur hríðað á hverjum
degi meira og minna og er kom-
inn mikill snjór. Vegna ógæfta er
sjósóknin engin og hefur ekki gef-
ið á sjó siðasta hálfan mánuð. —
Félags- og skemmtanalíf er heldur
dauft, einkum vegna fámennis,
því að unga fólkið er farið héðan
á vertíð, jafnvel 15 og 16 ára
unglingar.
Hinn árlegi æskulýðsdagur
Einn þáfturinn í því mikilvæga
starfj að leiða æskuna til Krists
og kirkju haps, er hinn árlegi
æskulýðsdagur. — Hann er á
sunnudaginn kemur. — Er þetta
í annað skiptið, sem hann er hald-
inn um allt land. — En áður
höfðu nokkrir prestar í Hólastifti
bundizt samtökum um að messa
samtímis í kirkjum sínum fyrir
unglinga og skólafólk. — Höfðu
forráðamenn skólanna forgöngu í
því að nemendur kæmu í kirkju.
Biskup íslands, herra Sigur-
björn Einarsson, hefur ritað
prestum landsins bréf, þar sem
hann tilkynnir . þá ákvörðun
Æskulýðsnefndar þjóðkirkjunnar,
að æskulýðsdagurinn verði 6.
marz n.k. og beinir hann þeim til-
mælum til prestanna, að þeir
haldi guðsþjónustur með æsku-
fólki sem víðast um land.
Samkvæmt tilmælum biskups
hefur fræðslumálastjóri ritað öll-
um skólastjórum framhaldsskól-
anna og farið þess á leit við þá,
að þeir komi með nemendur sína
í kirkju þennan dag, eða að guðs-
þjónustur fari fram í skólunum,
þar sem kirkjugöngu verður ekki
við komið.
Dagurinn norðanlands.
A þessum degi er ætlazt til þess
að almenningi gefist kostur á að
styðja æskulýðsstarfsemina í land
inu. Hér á Norðurlandi verða
seld fögur merki úr varanlegu
efni, hið svokallaða Lúthersmerki.
Stjórn Æskulýðssambandsins í
Hólastifti hefur einnig mælzt til
þess að í kirkjunum fari fram
samskot í sama tilgangi. Væri
ánægjulegt ef æskan sjálf rétti
fram skerf sinn þennan dag. —
Messan á Akureyri verður kl. 2
e. h. og er að sjálfsögðu öllum,
yngri sem eldri, ætluð þátttaka
eins og í venjulegri guðsþjónustu.
Minnismerki um Hallgrím Krisfinsson?
Frá aðalfundi Akureyrardeildar KEA
Akureyrardeild KEA er fjölmennasta deild kaupfélagsins
og telur nú 2465 manns, og hafði enn fjölgað á síðasta ári um
37. Deild þessi á rúmlega 100 þús. krónur. Þessar upplýsing-
ar gaf Armann Dalmannsson, deildarformaður, á aðalfund-
inum 23. f. m., er hann rakti störf deildarstjórnar á árinu.
Ármann Dalmannsson skýrði
einnig frá þvi, að ákveðið hefði
verið, að deildin veitti 3 þús. kr.
til minningarsjóðs Þorsteins Þor-
steinssonar. Sjóður þessi er í
vörzlu Skógræktarfélags Akur-
eyrar. Ennfremur gaf deildin 3
þús. kr. til Matthíasarfélagsins.
Jakob Frímannsson, fram-
kvæmdastjóri KEA, flutti árs-
skýrslu kaupfélagsins í stórum
dráttum og hafa nokkur atriði
hennar áður verið birt hér í blað-
HEIMA ER BEZT
Mai-zheftið er komið út með
forsíðumynd af Ólafi Jónssyni
ráðunaut og rithöfundi og grein
um hann eftir i-itstjói-ann, Stein-
dór Steindórsson, á öðrum stað
í heftinu. — Af öðru efni má
nefna: Brot úr efth-mælum um
horfinn sskúr eftir Björn Daní-
elsson, Þegar íslendingur fórst
eftir Árna Ái-nason, Duga eða
drepast eftir Halldór Ármanns-
son, Aðdráttarafl lyktarinnar,
þýtt af ritstjóranum. — Þá eru
fi-amhaldssögurnar, Þáttur unga
fólksins og sitt hvað fleira.
Færeyingar fá hentug
lán til skipabygginga
Færeyska landsstjórnin hafði,
í febrúar síðastliðnum, til athug-
unar tilboð frá belgiskri skipa-
smíðastöð um byggingu 30 fiski-
skipa og býðst skipasmíðastöðin
til að lána 70% byggingakostnað-
arins til 10 ára gegn 1% vöxtum
og rikisábyrgð. Fyrirtækið segist
geta boðið svo hagstæð kjör
vegna mikils stuðnings belgísku
Stjórnarinnar við skipasmíðaiðn-
aðinn í landinu. Við afhendingu
skipanna þarf aðeins að greiða
30% byggingakostnaðar og ábyrg-
ist fyrirtækið að verðið verði
ekki hærra en hjá sambærilegum
skipasmíðastöðvum í öðrum lönd-
um. Skipin verða byggð eftir fær-
eyskum teikningum. Heildarupp-
hæð lánsins mun verða um 40
milljónir færeyskra króna.
Nýstofnað togarafélag í Þórs-
höfn í Færeyjum er að láta byggja
togara, 1000 brúttólestir að stærð,
í Portúgal, og á hann að kosta 6,2
millj. færeyskra króna, en það
samsvarar 34,1 millj. ísl. kr. á
nýja genginu. Danmarks Fiskeri-
bank hefur lánað mestan hluta
til byggingar togarans.
Þetta er fimmti togarinn, sem
byggður er fyrir Færeyinga í
Portúgal.
inu í fréttum af félagsráðsfundi
og vísast til hennar.
Töluverðar umræður urðu að
ræðum framkvæmdastjóra og
deildarstjóra loknum og fyrir-
spurnir gerðar.
Hið merkasta, sem fram kom á
þessum deildarfundi var án efa
sú tillaga Hólmgeirs Þorsteins-
sonar, að fundurinn beindi þeirri
ósk til aðalfundar óg félagsstjórn-
ar KEA, að Hallgrími Kristins-
syni yrði reist verðugt minnis-
merki og var tillaga um það sam-
þykkt samhljóða.
Mál þetta hefur verið til um-
ræðu manna á meðal síðustu árin,
eftir að merkur samvinnumaður,
Jónas Jónsson frá Hriflu, kvaddi
sér hljóðs hér í blaðinu og benti
á, að samvinnumenn mættu tæp-
ast láta það lengur dragast, að
hefjast handa. Er vel, að óskir
manna í þessu efni eru fram
komnar á formlegan hátt og má
vænta þess, að þær rætist á þann
veg, að vel sæmi minningu hins
stórmerka leiðtoga samvinnu-
stefnunnar.
Tryggvi Þorsteinsson og Har-
aldur Þorvaldsson voru endur-
kjörnir í deildarstjórnina til
þriggja ára og Erlingr Davíðsson
endurkjörinn í félagsráð til eins
árs.
Akureyrardeild hefur rétt til að
senda 83 fulltrúa á aðalfund
KEA. Einn listi til fulltrúakjörs
kom fram og var hann sjálfkjör-
Færeyingar rækta mink
Færeyingar eru að hefja til-
raunir í minkarækt í stórum stíl.
Þeir eru að koma sér upp minka-
búi í nánd við Þórshöfn með
1000 dýrum til undaneldis.
Um 70% af fæðu minkanna er
fiskúrgangur, en af honum eiga
Færeyingar nóg. Nú á að reyna
að breyta honum í minkaskinn,
en þau eru mjög verðmæt útflun-
ingsvara.
Á síðsatliðnu ári fluttu Danir
út minkaskinn fyrir 90 mill.
danskra kr., svo að, ef þessi til-
raun tekst hjá Færeyingum, getur
þetta orðið útflutningsvara, sem
eitthvað munar um.
Vonandi tekst Færeyingum að
halda minknum innan girðingar,
svo að þeir fái ekki annan eins
vágest i veiðivötn og varplönd og
Islendingar hafa fengið.
Deutz dráttarvélar
Gunnar Kristjánsson, forstjóri
Verzl. Eyjafjörður h.f., en hann
er fulltrúi Deutz umboðsins á
Akureyri, hafði síðastliðinn laug-
ardag boð inni á Hótel KEA fyrir
blaðamenn og fleiri.
Hann sýndi þar mjög fróðlegar
kvikmyndir um ' framleiðslu og
margbreytilega notkun Deutz
dráttarvéla og flutti skýringar.
Deutz vélaverksmiðjurnar, sem
eru stofnsettar 1880, eru með
allra elztu dieselvélaframleiðend-
um í heimi og hafa alltaf staðið
framarlega í framleiðslu dráttar-
véla með dieselhreyflum. Ár-
ið 1949 sendu verksmiðjurnar frá
sér tæp 90 þúsund dráttarvélar,
en 1958 voru þær orðnar tífalt
fleiri, og sýnir það bezt vinsældir
þeirra.
Verksmiðjurnar halda úti við-
gerðar- og þjónustubifreiðum um
allan heim, þar sem vélar þeirra
eru notaðar. Eru með bifreiðun-
um fagmenn, sem geta annast all-
ar minni háttar viðgerðir á staðn-
um og veitt eigendum vélanpa
nauðsynlega tilsögn og fræðslu.
Ein slík bifreið er staðsett hér á
landi og fer hún um land allt á
hverju sumri.
Árið 1954 kom fyrsta Deutz
dráttarválin í Eyjafjarðarsýslu,
en nú munu milli 40 og 50 slíkar
vélar vera í notkun í Eyjafirði.