Dagur - 02.04.1960, Blaðsíða 8
8
Bagum
Laugardaginn 2. apríl 1960
Ýmis tíSindi úr nágrannabyggSum Þetta er enginn kisuþvottur!
Hímavaka
Blönduósi 29. marz. — Hér
hefst Húnavaka 2. apríl og lýkur
9. apríl. Sýndur verður sjónleik-
urinn Ævintýrið undir leikstjórn
Tómasar Jónssonar.
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
og karlakórinn Vaka, söngstjórar
Jón Tryggvason og Kristófer
Kristjánsson ,skemmta með
söng.
Gistihús Snorra Amfinnssonar
gestgjafa hefur verið stækkað
mjög og endurbætt. Verða hin
nýju húsakynni vígð á Húnavök-
unni. Þar er aðstaða orðin góð.
Til dæmis verður nýr samkomu-
salur, á annað hundrað fermetra,
tekinn í notkun. Sá salur er
tengdur öðrum sal minni er fyr-
ir var.
í sólbaði?
Fosshóli 31. marz. — Hér er
svo gott veður á degi hverjum,
að mann langar helzt til að liggja
í sólbaði. — Barnaskólabörnin í
Kinn héldu samkomu á sunnu-
daginn og sýndu 2 sjónleiki. Að-
sókn var ágæt oð voru sýning-
arnar endurteknar sama daginn.
Kennari er Sigurður Jónsson.
Vegirnir eru færir vel, en
farnir að þyngjast af aurbleytu.
Á föstudaginn var Rósa Guð-
laugsdóttir húsfreyja í Fremsta-
Felli 75 ára.
ÞREIFAÐ A
STAÐREYNDUM
Þótt stjórnarblöðin haldi
því fram, að vörurnar hækki
lítið, er almenningur farinn
að þreifa á staðreyndum í
þessu efni, þó eru vöruhækk-
anirnar ekki koinnar fram
nema að örlitlu leyti.
Ódýrustu bómullarvörur
koma til með að hækka uin
rúm 80%, skófatnaður um 40
—70%, kolin hækka um kr.
332.00 tonnið ,olíur og benzín
hækka mjög verulega. Timb-
ur og fleiri vörur til bygginga
hækkar um 40—60%, nýir
fiskibátar af meðalstærð
hækka um 1 milljón kr. og
þannig mætti lengi telja. —
Fyrsta apríl bættist svo hinn
nýi söluskattur á allar al-
gengar vörur og þjónustu,
undanskilin er nýmjólk, nokk-
ur veiðarfæri og fáeinar
rekstrarvörur landbúnaðar-
ins.
Hinar ósvífnu skattaálögur,
vaxtahækkunin og gengisfell-
ingin nema um kr. 6.500.00 á
hvert mannsbarn í landinu,
þegar frá eru dregnar fjöl-
skyldubætur og aðrar sára-
bætur stjórnarinnar.
Það er mjög furðulegt, að
jafnhliða stórauknum þjóðar-
tekjum og þar með sívaxandi
útflutningstekjum, skuli
minna koma til skiptanna og
lífskjörin rýrð jafn stórkost-
lega og raun ber vitni.
Lítið að gera
Ólafsfirði 29. marz. — Trillum-
ar fá lítið og ekkert. Togbátar
komu á mánudaginn með 35—40
tom^. Hrognkelsaveiði er góð. —
Hér er að verða snjólaust. —
Atvinna er lítil ennþá.
Leikfélagið sýndi Delerium
bubonis í Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit á sunnudaginn, og
aðra sýningu hafði það hér á
mánudaginn.
Sýning og skólasöngur
Laugum 31. marz. — Á sunnu-
daginn verður sýning á handa-
vinnu nemenda í Héraðsskólan-
um á Laugum og þá syngja
skólakórarnir. Ollum er heimilt
að koma. Heilsufar er gott nú,
eftir langvarandi inflúenzufar-
aldur. Próf hefjast seint í næstu
viku.
„Aumingja Hanna“ verður
frumsýnd á Breiðumýri á laug-
ardaginn.
Snjólítið er í Reykjadal og
blóm farin að springa út í görð-
um. Vegirnir hafa verið sæmileg-
ir ennþá, en þó er að koma aur-
bleyta sums staðar.
Þrymur æfir
Húsavík 31. marz. — Farið er
að vinna við hafnargarðinn af
fullum krafti, enda eru veður
góð. Steypt verður hér hafnar
ker fyrir Grímseyinga.
Karlakórinn Þrymur æfir af
fullum krafti og hyggst fara til
Reykjavíkur í vor í söngför.
Afli er lítill ennþá.
Lanclanir á Dalvík
Dalvík 29. marz. — M.s. Bjarn-
arey landaði um 60 tonnum
fiskjar sl. fimmtudag og Björg-
vin um 100 tonnum á föstudag.
Aflinn var ýmist hraðfrystur,
spyrtur upp eða saltaður.
B.b. Freyja hefur róið með
línu um skeið og fiskað steinbít,
fengið 5—8 þús. pund í róðri, afl-
inn er unninn í frystihúsinu.
Rauðmagaveiði fer minnkandi
en allmargir stunda grásleppu-
veiðar og lítur út fyrir góða ver-
tíð, ef tíðin helzt. Verð á hrogn-
um er hagstætt.
Nýlokið er skíðanámskeiði,
sem haldið var á vegum U. M. F.
S. og barna- og unglingaskól-
Ormarnir og konleklið
Ormaurinn veldur frystihúsa-
mönnum sífeldum áhyggjum. —
Illa gengur að fá ormatíningu til
landstækan fisk, en hann verður
að vera 100%, og þar af leiðandi
eru allt of fá frystihús með Rúss-
að vera algjörlega ormalaus, eins
og kunnugt er. Efitrlitsmenn
sjávarafurðadeildar eru óþreyt-
andi í viðleitni sinni að eggja
starfsfólk frystihúsanna í barátt-
unni við orminn. Nýlega kom
einn eftirlitsmannanna í eitt af
minni frystihúsum landsins. Við
fyrstu skoðun kom í ljós, að allt
of margur ormurinn slapp við
að verða klipinn með töngum og
dreginn úr fylgsni sínu. Eftirlits-
maðurinn eggjaði nú mjög stúlk-
urnar, sem tína áttu ormana, og
næstu daga fundust heldur færri
ormar við skoðun. Á fjórða degi
fékk eftirlitsmaðurinn verkstjór-
ann til að reyna nýja aðferð.
Ileitið var verðlaunum, konfekt-
kassa ef enginn ormur fyndist,
súkkulaðipakka ef ekki fyndust
fleiri en tveir og opalpakka ef
ekki fyndust fleiri en fjórir.
Stúklurnar epptust nú við að
snyrta og tína allan daginn, en
eftirlitsmaðurinn skoðaði jafn-
óðum eins mikið og hann komst
yfir. í lok vinnsludags voru úr-
slitin tilkynnt: Enginn ormur
hafði sloppið við tengurnar að
þessu sinni, og stúlkurnar fengu
sitt konfekt. Þetta sýnir, hvað
gera má, ef tekst að vekja áhuga
fólksins, og mætti vel hugsa sér
að nota slíkt kerfi með nokkrum
breytingum, og yrði þá að setja
peninga í stað konfekts. (Frá
Sjávarafurðadeild SÍS.)
í gær var Slökkvilið Akureyrar að þvo kirkjuna. ("Ljósm.: E. D.).
Starfsfræðsludagurinn á morgun
Fulltrúar starfsgreina mæta í
Barnaskólanum kl, 13.30, og þar
flytur bæjarstjórinn, Magnús E.
Guðjónsson. ræðu.
Sjálf starfsfræðslan hefst kl.
14 á fyrstu og annarri hæð skól-
ans og stendur yfir til kl. 16.
í sambandi við starfsfræðsluna
verða þessir vinnustaðir opnir til
skoðunar: Gefjun, Iðunn, Atli,
Valbjörk, Þórshamar og Hrað-
frystihús U. A.
Unglingar geta farið til þess-
ara staða í strætisvagni frá
Barnaskólanum.
Merkilegl slarl Magnúsar Krisljánssonar
fyrrum bónda á Sandhóium
Magnús Kristjánsson, Glerár-
eyrum 3, Akureyri, og oftast er
þó kenndur við Sandhóla í Saur-
bæjarhreppi, þar sem hann var
fyrrum bóndi, vinnur nú að ný-
stárlegu og merkilegu fræði-
starfi. Það er fólgið í söfnun
mynda og æviágrips eldra fólks
í Saurbæjarhreppi og nær enn-
fremur til margs af fólki, sem nú
er dáið.
Magnús er ljósmyndari að iðn
og hefur hann safnað myndum af
miklum dugnaði undanfarin ár í
hjáverkum og þekkir vel sögu og
ættir í Eyjafirði framanverðum.
Þetta mál hefur tvisvar sinn-
um komið til umræðu á aðal-
fundi Kaupfélags Eyfirðinga, án
þess að félagið hafi tekið afstöðu
til þess eða lofað fyrirgreiðslu.
Dagur fékk að líta á safn Magn-
úsar nú um helgina og er þar
fróðleikur saman kominn, sem
verður er þess að geymast en
glatast ekki. Þá er myndasafnið
hið merkilegasta.
í þessu safni eru 250 manna-
myndir, flestar úr Saurbæjar-
hreppi og æviágrip með flestum
þeirra. Verður þetta ómetanlegur
fjársjóður þegar frá líður.
Sennilega hefur Magnús Krist-
jánsson ekki bölmagn til þess að
gefa hið myndskreytta æviágrip
þeirra Saurbæjarhreppsbúa út í
bókarformi. Væri þá vel, að
fleiri kynntu sér þessa söfnun,
ef af því leiddi sá áhugi almenn-
ings, er nægði til þess að ein-
staklingar eða félög réttu hjálp-
arhönd við útgáfuna og ennfrem-
ur meiri söfnun slíkra gagna.
Þyki mönnum það nokkurs
vert, að eiga myndir af eldri
kynslóðinni, er myndaplötusafn
Magnúsar mikils virði. Og þá
væri 'líka eðlilegt, að söfnun ljós-
mynda væri hafin í fleiri hrepp
um sýslunnar og af mörgum
sjálfboðahðum. Innan fárra ára
munu margar, eða jafnvel flest-
ar ljósmyndir, sem Magnús hef-
ur tekið eftir, verða úr sögunni
Eftir kl. 16 verða kvikmynda-
sýningar í skólanum.
Börn innan 12 ára munu ekki
eiga erindi á starfsfræðsludag-
n. En eldri ungmenni eru
hvött til að sækja hann og not-
færa sér fræðsluna.
,0ÐAVERÐB0LGAN4
SFjárlögin voru r^gtreidd ú
Alþingi á þriðjudaginn. Þau
eru þriðjungi hærri en þau
hafa verið hæst áður. Þó eru
framlög til verklegra fram-
kvæmda hlutfallslega minni
en áður og er það óhugnan-
legt tákn íhaldsstefnunnar, að
hið opinbera kippi að sér
hendinni í aðstoð sinni við
uppbyggingarstefnu þá, sem
farin hefur verið síðustu ár og
áratugi.
Hið mikla raup fjármála-
ráðherra um sparnað, sem
frægt varð í útvarpsræðu hans
um fjárlögin í vetur-, hefur
orðið sér til liinnar mestu
háðungar í framkvæmd, því
að hvergi nokkurs staðar örl-
ar á sparnaði — nema í opin-
berum stuðningi við fram-
kvæmdir og uppbyggingu. —
Stefna ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum er óðaverð-
bólgustefna og svikastefna
við allt, sem lofað var fyrir
kosningar.