Dagur - 11.05.1960, Side 1
/•..............
Mái.c,a<;n Fhams6knarmanna
RriNTjÓRt: Em.iNfit.fR Daví»s.son
SKRtFSTOJ'A í l íAl'NARSTR-í'TI 90
SÍMJ 1 i()<) . Setníngu og prentun
annast Prentverr Ö0DS
Hiöknssonau H.r. AKtmEvuj
s.....................^
XLIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 11. maí 1960. — 24. tbl.
/..........................11111 'Tln T
AuCir.VSlNGASTJÓRi: fÓN Sam-
ÚF.LSSOS . ÁrOANCíURINN KOS J AR
KR. i00.00 . GJ Al.DOAGÍ ER 1. JÚU
HuAOJÖ KKMUR ÚT A MtÐVIKUDÖG-
UM OG Á J.AtJCARDÖGUM
i>ECAR ÁST.EÐA I>VKJU TIL
Nýr hótelstjóri a Hótel KEA
Nýr hótelstjóri hefur nú tek-
ið að sér forstöðu á Hótel KEA
á Akureyri. Hann heitir Geir
Andersen, ungur maður, sem
þó hefur unnið nokkuð lengi á
hótelum og síðustu 2 árin verið
við nám á hótelstjóraskóla í
Sviss.
Sveinbjörn Pétursson, sem
anazt hefur rékstur hótelsins í
vetur, verður yfirmatreiðslu-
maður eins og hann var áður.
Utlit er fyrir mikinn straum
ferðamanna í sumar, meiri en
nokkru sinni áður. í því sam-
bandi hefur hótelið búið sig
undir að geta tekið á móti mun
fleira ferðafólki en húsrúm er
fyrir í hótelinu sjálfu, með því
að leigja húsnœði úti í bæ.
Kiljan verður viðstaddur síðustu |
r z
sýningu Islandsklukkunnar
Um síðustu helgi var sýning-
um á íslandsklukku Halldórs
Kiljans Laxness lokið. Leikfé-
lag Akureyrar óx af þessu verk
efni og það var bænum til
sóma, að einmitt Leikfélag Ak-
ureyrar treysti sér til að svið-
setja þennan sjónleik, eitt allra
leikfélaga landsins. Þjóðleik-
húsið eitt hafði fært íslands-
klukkuna á svið.
Halldór Kiljan Laxness.
Venja er það, að frumsýning
hvers sjónleiks er eins konar.
viðhafnarsýning, og þá er höf-
undurinn viðstaddur, ef því
verður við komið. Á frumsýn-
ingu ganga leikarar og leik-
stjóri, og að sjálfsögðu einnig
höfundur, undir próf leikhús-
gagnrýnenda, svo og alls al-
mennings.
Að þessu sinni dvaldi höfund-
urinn erlendis þegar leiksýn-
‘ ingar hófust hér. Nú er hann
kominn heim og hefur það ráð-
izt, að hann skryppi hingað
norður um helgina og yrði við-
staddur allra síðustu sýninguna
nú um helgina. Ekkert veit
blaðið hvað verður þá til há-
tíðabrigða meira en við fyrir-
farandi sýningar, umfram það
að höfundurinn verður við-
staddur. En líklegt má telja, að
þar verði ávörp flutt og að
skáldið ávarpi viðstadda leik-
húsgesti.
Verður þá síðasta leiksýning-
in eins konar viðhafnarsýning
og má ætla, að aðsóknin verði
svo mikil, að slegizt verði um
hvern aðgöngumiða.
Sólin vermir víkur og voga hinnar norðlægu eyjar. (Ljósm.: E. D.).
Um velluúlsvar og rvillu' Seðlabankans
Samþykktar samHljóða á aðalfundi K. Þ.
Á aðalfundi Kaupfélags Þing-
eyinga, Húsavík, kom fram eft-
irfarandi tillaga frá félags-
stjórn:
„Aðalfundur K. Þ., haldinn í
Húsavík 5.—6. maí 1960, lýsir
yfir eftirfarandi út af stjórnar-
frumvarpi, sem liggur fyrir Al-
þingi, til breytingar á lögum
um útsvöi'.
Veltuútsvar er mjög var-
hugavert áiöguform, af því að
það miðast hvorki við eignir né
afrakstur. En jafnvel þó að ekki
kunni að þykja hægt að komast
hjá því, eins og sakir standa, að
leyfa veltuútsvar í sumum
greinum, réttlætir það á engan
hátt þá fjarstæðu og rang-
sleitni, sem í frumvarpinu
felst, að lögbjóða að leggja
skuli veltuútsvar á heildarsölu
hvers konar vöru, — engar ís-
lenzkar framleiðsluvörur und-
anskyldar né nokkur sölustig,
— svo og á vinnu og þjónustu
„jafnt hjá félagsmönnum og ut-
anfélagsmönnum, ef um sam-
vinnuféölg er að ræða.“
Bera þau ákvæði og fleiri í
frumvarpinu vott um hróplegt
skilningsleysi á aðstöðu sumrar
framleiðslu og samvinnusam-
tökum almennings í verzlun og
viðskiptum.
Skorar fundurinn á alla þá
alþingismenn, er telja sig sam-
vinnumenn, að koma í veg fyr-
ir að þessi og þvílík ákvæði
verði lögleidd.“
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
Eftirfarandi tillaga kom fram
á aðalfundi K. Þ. frá félags-
stjórn og var samþykkt sam-
Bændur mótmæla þvír að verða skattþegnar bæjarfélaganna
Á ársfundi Mjólkursamlags
Kaupfélags Eyfirðinga 4. maí
sl. var einróma samþykkt eft-
irfarandi tillaga Helga Símon
arsonar á Þverá:
„Ársfundur Mjólkursamlags
KEA, haldinn á Akureyri 4.
maí 1960. mótmælir eindregið
þeim ákvæðum frumvarps um
bráðabirgðabreytingu á lögum
um útsvör nr. 66/1945, sem ætl-
að er að heimila álagningu
veltuútsvars á viðskipti sam-
vinnufélaga við félagsmenn
sína.
Fundurinn bendir á, að eftir
eðli málsins sé arður samvinnu
félags af- viðskiptum við félagsr
menn engan veginn sambæri-
legur gjaldstofn við hagnað
einkafyrirtækis, enda hefur
þetta verið viðurkennt í lögum,
sem nú gilda um beina skatta
hér á landi.
Þá bendir fundurinn enn-
fremur á, að veltuútsvar af
framleiðsluvörum bænda hlýt-
ur að lækka tekjur þeirra, og
er því með slíku veltuútsvari
beinlínis verið að skattleggja
landbúnaðarframleiðsluna til
hagsbóta fyrir bæjarfélögin, og
skorar ■ því fundurinn á hæst-
virt Alþingi að fella úr frum-
varpinu þau ákvæði, sem heim
ila álagningu veltuútsvars á fé-
lagsmannaverzlun samvinnu-
félaga.“
í fyrirsögn síðasta blaðs af
fundi þessum féll niður lína um
meðalverð mjólkurinnar til
framleiðenda, það var kr. 3.58V2
hver lítri, meðalfita var 3.619
og reksturs og sölukostnaður
varð 66.94 aurar á lítra, sem er
7 aura hækkun frá árinu 1958.
„Aðalfundur K. Þ„ haldinn í
Húsavík dagana 5.—6. maí 1960,"
mótmælir sem freklegri frelsis-
skerðingu og þjóðhagslegri
villu, þeirri ákvörðun Seðla-
bankans, er hann hefur bréf-
lega tilkynnt K. Þ. að innláns-
deild félagsins skuli skila bank-
anum til bindingar hluta a£ því
fé, er félagsmennirnir afhenda
Framhald á 6. siðu.
Tveir 15 ára piltar hætt komnir á smábát
Á mánudaginn bar það við
að tveir 15 ára piltar hér í bæ
fengu sér bátkríli að láni og
reru austur frá Oddeyri. Aust-
an við miðjan álinn hvolfdi far-
kostinum og gátu piltarnir ekki
komið honum á réttan kjöl. —
Lögðust þeir þá til sunds aust-
ur yfir og köhuðu á hjálp. Köll-
in heyrðust austur yfir fjörðinn
og einnig heyrðu menn, sem
voru að vinna í Slippstöðinni
h.f. til þeirra, og var nú skjótt
við brugðið. Fyrstir urðu piltar
frá Akureyri, staddir austan
fjarðarins, og drógu þeir< hina
ólánssömu um borð og reru
með þá til lands. Þeim var síð-
an hjúkrað í Litla-Hvammi,
hresstust þeh’ fljótt og voru
fluttir heim til sín um kvöldið.
Piltar þessir hefðu alls ekki
komst á sundi til lands, annar
þeirra gat t. d. ekki losað sig
við sjóstígvélin og var af þeirri
orsök lítt fær um langt sund,
enda var af þeim dregið. Það er
heppni að þakka að þetta sjó-
ferðarævintýri endaði ekki
með hinni mestu hörmung.
Hér er sérstaklega frá þessu
sagt til viðvörunar, og bát
þennan ætti ekki að nota á
djúpu vatni, svo ófullkominn,
sem hann er sagður vera.