Dagur - 01.06.1960, Page 8
«ii liMiiimmiiimiiiimiimmiiMiiMmiimii
8
.....................mmiimimimimmm
111111111111111111111111111111111111111111111111'
Sfarfsmannafél. bæjarins kaupir
sumarbústað í Leifsstaðalandi
Björn Guðmundsson endurkjörinn formaður
i m 11 ■ ■ 11 m m ■ 11
iimiiiiiui^i«
Nýlega var aðalfundur Starfs-
mannafélags Akureyrarkaup-
ar haldinn, og fóru þar fram
venjuleg aðalfundarstörf. Björn
Guðmundsson varðstjóri var
endurkosinn formaður félags-
ins. Með honum eru í stjórn:
Gunnar Steindórsson, ritari,
Haraldur Sigurgeirsson, gjald-
keri, og meðstjórnendur Ingólf-
ur Kristjánsson og Steinunn
Bjarman, öll endurkjörin nema
Ingólfur, sem kom í stað Þor-
steins Stefánssonar.
Þessir voru kosnir fulltrúar á
þing starfsmanna ríkis og bæja:
Björn Guðmundsson, Þorsteinn
Stefánsson og Gunnar Stein-
dórsson.
Nýlega keypti Starfsmannafé-
lagið sumarbústað einn í Leifs-
staðalandi og þriggja dagsláttu
land með. Það ætlar félagið að
fegra með trjágróðri.
= i
Enn er það til að bera þarf vatn í hús og þessi mynd er af
raunverulegum vatnsbera í Grimsey, Eyjólfi að nafni, og
grindin, sem hann hefur á öxlum, heitir líka vatnsberi. —
(Ljósmynd: G. J.).
Frumvarp um lerskfiskmal
Meiri vöruvöndun.
Nokkuð er nú umliðið síðan
frumvarp um ferskfiskeftirlit
var lagt fram á þingi. Engar
umræður hafa farið fram um
það ennþá. Menn hafa þó rætt
frumvarpið nokkuð sín á milli
og sýnist sitt hverjum, eins og
greinilega kom fram í þættin-
um „spurt og spjallað í útvarps-
sal“ 8. fyrra mán. Nú liggja eng-
ar fastákveðnar tillögur fyrir
um framkvæmd matsins, svo að
of snemmt er að fella nokkurn
dóm um þá hlið málsins. Hitt
dylst engum, að sú fjárveiting
(l%o af 'fob. verði útfluttra
sjávarafurða), sem matinu er
ætlað, er hvergi nærri nóg. —
Þá má telja mjög varhugaverða
skipan fiskmatsráðs, en þar er
gert ráð fyrir 4 mönnum af 6,
sem ætla má að hafi takmark-
aða sérþekkingu á málinu.
Þessir 4 menn eru fulltrúar
fiskseljenda, kaupenda og bank-
anna, og koma' þeir einnig til
með að setja hagsmuni sinna að-
ila á oddinn við úrskurði þýð-
ingarmikilla mála. Þarna má
því búast við hörðum átökum
um önriur atriði en þau, sem
raunverulega ættu að sitja í
fyrirjmi. Sú spurning hlýtur
því að vakna, hvort ekki bæri
fremur að skipa ráðið sérfræð-
ingum, sem teldust óháðir og
óvilhallir. Hvað sem þessu og
öðrum greinum frumvarpsins
líður, þá er hitt aðalatriðið, að
frumvarpið er komið fram og
það, ásamt ýmsum atburðum
síðustu ára, hefur vakið menn
til umhugsunar um kjarna
málsir.s, betri og vandaðri
framleiðsluvöru.
(Sjávarafurðadeild SÍS.
Glæpamennska hraðeykst í
Stokkhólmi. Aðeins um 20%
glæpaverkanna komst upp.
„Glæpamenn í Stokkhólmi
hafa senn komið lögregluliöi
borgarinnar á kné. Glæpaverk
eru tekin að borga sig. Lögregl-
an getur ekki girt fyrir glæpa-
verkin. Lögreglan getur heldur
ekki haldið í skefjum sívax-
andi felustarfsemi í glæpaheimi
Stokkhólmsborgar („neðanjarð-
ar-starfsemi“) Lögreglan getur
ekki rekið rannsóknarstarfsemi.
Og allt stafar þetta af skorti á
lögregluliði.“
Þetta er ávarp lögreglustjóra
Stokkhólms og tillaga hans í
blöðum borgarinnar um nauð-
synlega aukningu lögregluliðs-
ins. Kveðst hann verða að fá
frjálsar hendur um eflingu þess,
því að ástandið í höfuðborginni
fari hraðversnandi með degi
hverjum.
Stokkhólmur stækkar ört, og
glæpamennskan hefur aukizt
og er orðin harðvítugri en áður,
að sögn lögreglustjóra. í fyrra
voru þar kærð 72000 glæpaverk
á móts við 54000 árið 1950. Það
ár komst upp um 34% glæp-
kemur næst út fimírntudaginn
9. júní.
ÖRLÍTIÐ SÝNISHORN AF STÖÐVUNAR-
STEFNU NÚVERANÐI RÍKISSTJÓRNAR
Stjórnarblöðin á Akureyri sögðu frá því með nokkru yfir-
læti þegar vörur tóku að hækka fyrir alvöru, að rúsínur
hefðu lækkað í verði, og víst var þáð fréttnæmt, svo sjaldgæf
var verðlækkun, og fréttast nú ekki lengur nein slík stór-
tíðindi. Síðasfi „fslendingur“, sem getur ekki tíundað neinar
verðlækkanir, segir í forystugrein að „verðhækkunin á sago-
grjónum og hrísmjöli, sem stjómarandstaðan hafi blásið upp
— sé ekki svo alvarleg.“ Ef eitthvað „blæs upp“ þá er það
sannarlega verðbólgan, og ef einhver blæs hana upp, þá eru
það sannarlega þeir flokkar, sem í haust gerðu stöðvun
hennar að stefnuskrárairiði í kosningunum. En það er fleira
en hrísmjöl og sagogrjón, sem lsækkað hefur, því miður.
Hér er öriítið sýnishorn:
Hveiti, sem kostaði 100 krónur, kostar nú 150 kr.
Búsáhöld, sem kostuðu 100 krónur, kosta nú 141 kr.
Bómullarefni, misl., sem kostuðu 100 kr., kosta nú 184 kr.
Gúmmískófalnáður, sem kostaði 100 kr., kostar nú 157 kr.
Timlnar, sem kostaði 100 kr., kostar nú 158 kr.
Þakjáoi, sem kostaði 100 kr., kostar nú 148 kr.
Dráttarvéler haía hækkað um 06%.
Vörubifreiðir hafa hækkað um 75%.
Fiskibátar hafa hækkað um 50%.
Þannig framkvæma stpjórnarflokkarnir „stöðvuriarstefn-
una“, sem þeir lofuðu í haust, sem einum áfanga í „lciðiniii
til bættra Jiískjara“.
<** A
anna, en í fyrra aðeins um 20%.
Árið 1951 voru 4800 umferða-
slys, í fyrra 10.000.
Rangstæður bíla jukust úr
15800 upp í 102.000, og umferða-
brot úr 3000 upp í 29000, ölv-
unarbrot í akstri úr 600 upp í
1900, og ölvun á almanmafæri
úr 6900 upp í 25000. Og allt er
þetta í Stokkhólmi.
í Gautaborg og Málmey hef-
ur ástandið aftur á móti færzt
í öfuga átt.
5000 girðingastaurar.
Með fyrstu ferð m.s. „Heklu“
til Norðurlandi, snemma í n.
mánuði, verða Skógræktarfé-
lagi íslands sendir að gjöf 5000
girðingastaurar frá áhugamönn-
um í Lindásshéraði á Hörða-
landi og Sogni. Til þessa hafa
verið sendir 14000 girðinga-
staurar að gjöf frá ýmsum hér-
uðum á Hörðalandi. Hefur
presturinn Haraldur Hope ver-
ið aðal hvatamaður á þessum
vettvangi frá öndverðu, enda
tók hann sjálfur þátt í einum
skógræktarleiðangrinum norska
hingað til lands fyrir nokkrum
árum. Og síðan hefur hann beitt
sér fyrir þessum drengskapai-
brögðum bænda á Hörðalandi
og Sogni.
Ásgeir Ásgeirsson
sjálfkjörinn
Framboðsfrestur til for-
setakjörs rann út hinn 22. f.
m. — Ilafði dómsmálaráðu-
neytinu þá borizt framboð
núverandi forseta fslands,
herra Ásgeirs Ásgeirssonar,
til forsetakjörs, ásamt til-
skildum meðmælum alþing-
iskjósenda úr öllum lands-
fjórðungum. Önnur framboð
höfðu cigi borizt ráðuneyt-
inu, og er því Ásgeir Ás-
geirsson sjálfkjörinn forseti
íslands næsta kjörtímabil.
ngif
a
hústorgi
Lúðrasveit drengja úr Reykja
vík undir stjórn Karls O. Run-
ólfssoriar, nnin leika ókeypis ó
Ráðhústorgi á Akureyri kl. 3
e. li. á laugardag.
| Litið í I
I bæjarblöðin |
Útlendur áburður hefur
liækkað um nálægt 25% og um
það hafa verið birtar óyggjandi
tölur hér í blaðinu, sem ekki
er hægt að andmæla. Þessi gíf-
urlega verðhækkun á einni að-
alrekstrarvöru landbúnaðarins,
veldur bændum miklum örðug-
leikum, svo að margir verða að
minnka þau kaup að þessu
sinni og það verulega. Þetta er
einn Iiðurin í „viðreisnarstefn-
unni“. „fslendingur“ afsakar
landbúnaðarráðherra, Ingólf á
Hellu og vitnar í miklu lægri
,,verðskrá“ á áburði. Því miður
verða norölenzkir bændur að
greiða áburðinn allt öðru verði.
Þeir kaupa hann á útsöluverði
á hverjum sölustað, cg auðvitað
er það verð hið raunverulega
verð. Það liefði verið vel við-
eigandi að „ísléndingur“ hefði
biri mynd af landbúnaðarráð-
hcrranum, svo sem til að festa
mönnum það vel í minni hverj-
um beri heiðurinn, öðrum
fremur, á ofsókn núverandi rík-
isstjórnar á hendur bændastétt-
inni. En blaðið tekur ekki þann
kostinn, en birtir í þess stað
mynd af ritstjóra Dags, rétt
eins og heiðurinn eða skömmin
í landbúnaðarmálum væri hans.
Annars er eins líklegt, að
myndin háfi átt að fylgja eftir-
farandi klausu sama blaðs, sem
sýnir raunar nokkuð glöggt hve
skarpskyggn og rökvís íslend-
ingsritstjórinn er og hvemig
hann tekur á málum í blaði
sínu. En klausan er orðrétt á
þessa leið:
„Vel að verið.
Dagur segir í fyrradag, að
fyrir liggi, að Akureyri leggi
um 6 þús. kr. útsvar á hvern
meðalbónda í byggðarlaginu, ef
KEA verði gert að greiða veltu-
útsvar til jafns við önnur fyrir-
tæki bæjarins. Ef ritstj. Dags
kemur þessu fram, þá er hann7
langt ofar öllum ríkisstjórnum,
skatta- og niðurjöfnunarnefnd-
um.“
Þetta sýnishorn af ritsmíðum
„fslendings“ er líka dæmi um
það, hversu fer í rökræðum,
þegar menn fá „eitthvað á heil-
ann“.
Sárindi „fslcndings“ vegna
meiri velgengni Dags en
margra annara blaða, brjótast
út í síðasta tölublaði á nokkuð
frumlegan hátt. Þar segir í fyr-
irsögn: „Bera liinir bjófkenndu
Bag á herðum sér?“
„fslendingi“ finnst það langt
gengið að „hin þjóíkennda
stétt“ eins og blaðið orðar það
(Flokksbræður ritstj. „íslend-
ings“) skuli nú líka rétta Degi
hjálparliönd og „losa KEA und-
an því fargi að halda Degi
uppi“! Það er von að „íslend-
ingi“ finnist nú fátt um fína
drælíi hjá sér.
Alþýðumaðurinn spyr að því
í gær, „ . . . . hvernig hann
(Dagur) hefði komizt ó legg og
orðið þó það útbreidduí sem
hann cr . . . .“? Spuvning þessi
Framhald 4 7. síðu.