Dagur - 02.07.1960, Síða 8

Dagur - 02.07.1960, Síða 8
8 Síld er nú aflur komin á vesfursvæðið Valafell á leið til Siglufjarðar með 700 mál, sem veiddust 15 mílur norður af Siglufirði Siglwfirði kl. 4 í gær. Ekkert var saltað hér í gær eða fyrra- Tryggvi Helgason fiugmaður og sjúkraflugvél Norðlendinga. Sjúkraflugvéiin dagiega á ferð Flytur fleiri sjúklinga en gert var ráð fyrir Tryggvi Helgason, flugmað- ur sjúkraflugvélarinnar á Ak- ureyri, var í gær að leggja af stað til Húsavikur, til að at'nuga flugvallarstæði fyrir áburðar- flugvél, sem ráðgert er að nota til dreifingar á sumarhagá Hús- víkinga. (Þar eru Húsvíkingar á undan Akureyringum, að taka tæknina í þjónustu sína og bæta upp sumarþrengsli í högum.) Sjúklingar fluttir suður. Tryggvi hefur í þessum mán- uði (skrifað á fimmtudag) flutt 5 sjúklinga til Reykjavíkur. Þeir eru frá Blönduósi, Hólma- vík, Skagaströnd, Hellissandi og Grímsstöðum. Veður voru dimm í þessum ferðum flestum, svo að ófullkomnari flugvélum var ekki fært, og stundum eng- um öðrum flugvélum, vegna takmarkaðra lengda flugbrauta. Allar gengu ferðir þessar að óskum. Engir geta að fullu met- ið velheppnaðar sjúkraflugferð- ir og verða þær ekki metnar til fjár. Konan á Hellissandi. Meðal þeirra ferða, sem farn- ar voru í vondu skyggni, var ferðin frá Hellissandi til Reykjavíkur með konu í barns- nauð. Nokkurs hefur þótt við þurfa í það sinn, enda búið að reyna annars staðar eftir far- kosti, en án árangurs. Þessi ferð gekk ’ þó vel og sængurkonan var í læknishendi leiðina suður. Á miðvikudaginn var síðasta sjúkraflug Tryggva. En þá sótti han.n slasaðan skipstjóra til RauTarhafnar af síldax-skipinu Skipaskaga. LeiguOug. Auk sjúkraflugsins hafa verið farin mjög mörg leiguflug vítt og breitt um landið. Flesta daga er flogið, auk ferðanna til Vopnafjax-ðar á föstudögum og þriðjudögum. Stundum hafa verið farnar fimm ferðir á dag. Lesendum til hagi'æðis skal hér minnt á afgreiðslusíma sjúkraflugvélarinnar, sem er 1843 (kl. 8—23.30.) | Á Grímseyjarsundi gerðist \ \ sá atburður í vikunni, að Þór \ \ tók brezkan togara, staðinn | I að veiðum í landhelgi. Brezkt i | herskip hindraði að togarinn I í væri fluttur til lands og tók i \ íslenzku varðskipsmennina, i i sem komnir voru um borð í = \ togarann, með valdi, flutti þá i i um borð í Þór og lét togar- i i ann færa sig út fyrir. | Bretar lofuðu 3 mánaða i i löghlýðni á íslandsmiðuin í : I von um samninga við íslenzk i i stjórnarvöld. Þrálátur orð- i i rómur hefur gengið umj i samningsvilja núverandi i i stjórnarflokka, meiri en áð-\ \ ur var. \ I Áreksturinn á Grímseyjar- = i sundi ætti að vekja þá, sem i i kannski hafa verið farnir að i i dotta. Hið brezka fólskuverk | | þjappar íslendingum fast i i saman til verndar réttindum i i sinum innan 12 milnanna og i i síðar á landgrunninu öllu. \ LöndunarstöBvunin á Raufarhöfn iiiiiiiimiiiii IDagukJ kemur næst út miðvikudaginn 6. júlí. Raufarhöfn, 1. júlí. — Fyi'sta síldin kom héi' 25. júní og þann dag bárust hingað 8 þúsund mál. Síldin hefur ekki borizt hingað svona snemma, a. m. k. ekki síðustu 10 árin. Nú eru komin hingað 50 þús. mál síldar. Bxæðsla hófst 28. júní. Verið er að byggja þrjá síldartanka, sem eiga að taka 35 þús. mál. Ea þeir eru ekki tilbúnir enn- þá. í fyrx-adag og síðan hefur straumur -síldai'skipanna legið vestur með síldina. Við höfum þannig tapað frá okkur 15—20 dag, en Njörður tók á móti 100 tunnum uppmældum í morgun. Meiri hluti síldarskipanna er fyrir austan, en sárafá á vestur- svæðinu. Síldveiði er treg. Þó veiddist eitthvað 57 sjómílur austur af Noi'ðfjarðarhorni. En Valfell fékk í dag 700 mál 15 mílur noi'ður af Siglufirði og er á leið til lands. Þykja þetta góð tíðindi. Söltun er aðeins 249 tunnur á Raufarhöfn og 408 á Siglu- firði. Frá því um miðnætti í nótt til kl. 3 í dag höfðu 26 skip til- kynnt komu sína til Siglufjarð- ar með 400—450 bál til jáéf- aðai'. Illa notað bílastæði Vöntun er á bílastæðum hér í bæ, og því meiri vöntun, sem bílum fjölgar. Þar sem gamli slippui’inn var, er þó komið stórt og rúmgott bílastæði (norðan við P. O. B.). En það nýtist illa vegna þess hve bíl- unum er lagt þar óreglxxlega. — Nauðsyn er að merkja þetta góða bílastæði, svo að það vsé ætíð opið til inn- og útkeyrslu á meðan rúm er. Það kemur hvað eftir annað fyrir ,að allt lendir þar í einni bendu vegna þess að engar leið- beiningar eru um það, hversu leggja skuli þar bifreiðum. Út' þessu þarf að bæta. Að vera viðbúiim er síldin kemur Síldarverksmiðjurnar ekki viðbúnar þúsund málum, og sennilega meiru. Aðeins er búið að salta í 100 tunnur. Margt fólk er komið hingað, til dæmis komu 3 flugvélar í gær með starfsfólk. Fyrsta síldin veiddist austast á miðsvæðinu, en mest hefur veiðzt á austui'svæðinu. Síldar mun nú hafa oi'ðið vart á vestursvæðinu og hafa mörg skip haldið þangað. Hér eru 5 flutningaskip í dag, eitt að taka brotajárn, annað að taka síldramjöl, það þriðja salt- fisk, það fjórða kemur með timbur og hið fimmta er Esja. Fyx-sta síldin veiddist aðfara- nótt 17. júní. í fyi'stu hrotunni, sem vonandi verður ekkisú síðasta, hafa verið allmiklir veiðimöguleikar, fyrst mið- svæðis, síðan á austui-svæðinu. Tíðin hefur verið hagstæð til veiðanna. Mörg góð köst hafa fengizt. Til skamms tíma hefur síldin, sem vænta mátti, svo snemma veidd, ekki verið sölt- unarhæf, og því verið öll lögð til bræðslu. Frétzt hefur að skip hafi beðið losunar. Hjá sumum hafa komið í ljós gallar á veið- arfærum og veiði tapast af þeim sokum. Ýmsir hafa oi'ðið síð- búnir til veiðanna og misst við það af veiði, eins og vei'ða vill. Þegar örlæti sjávarins er ekki til staðar nema stuttan tíma og enginn veit með neinni ná- kvæmni, hvenær síldin kemur eða fei', getur mikið oltið á foi'- sjá og fyrirhyggju. Geta unnið 67 þúsund mál á sólarhring. Talið er, að síldarverksmiðjur hér norðan- og austanlands, hafi samanlagt 67—68 þús. mála vinnslugetu á sólarhring. En hin skráða vinnslugeta verk- Sílcl og heyskapor Ólafsfirði, 28. júní. — Sláttur er víðast hafinn og spretta' er góð. Það er sól og hiti og grasið þornar af ljánum. Fyrir helgina komu tveir bát- ar með síld. Guðbjörg með 750 mál og tunnur, og af því voru hraðfrystar 120 tunnur, og Þor- leifur Rögnvaldsson með 500 mál og tunnur, þar af fóru 110 tunnur í frost og afgangurínn í hræðslu af afla þessara tveggja skipa. Síldárverksmiðjan muxx bræða um 500 mál á sólarhring. Héðan eru 6 skip. gerð út á síld. Þau eru: Guðbjörg, skip- stjóri Ólafur.Jóakimsson, Einar Þveræingur, skipstjóri Valdi- mar Gunnarsson, Þorleifur Rögnvaldsson, skipstj. Jón Sig- urpálsson, Gunnólfur, skipstj. Benjamín Antonsson, Stígandi, skipstjóri Þoi'steinn Bjöi'nsson, og Kristján, skipstjóri Njáll að nafni, sunnlenzkur maður. ÖU þessi skip eru farin á veiðar. Guðbjörg er eina skipið, sem hefur haft blökk, og er bú- in að fá um 2000 mál og tunnui'. Hingað er von á tveimur 150 smálesta stálskip.um frá Noregi. Hið fyi'ra, skip bæjarins, verð- ur tilbúið 20. júlí n.k. En hið síðara, eign hraðfrystihxissins, verður tilbúið um mánaðamótin . ágúst—septembei'. Þá hafa 5 smæi'ri dekkbátar bætzt í bátaflota staðarins. Þeir eru þessir: Uggi frá Grenivík, 8Y2 smál., Enok frá Norðfirði, 26 smál., Freyja frá Dalvík, 9 smál., Ármann frá Reykjavík, 27 smál., og Ingólfur, 13 smál. bátur frá Vestmannaeyjum. í dag var mótorbáturinn Anna, 10 smál., að koma með 14 skippund eftir viku útivist á handfæri austur undir Sléttu. Hefur mörgum Ófeigsstöðum, 1. júlí. — Ekki eru skarpir þurrkar síðustu daga. Heyskapur gengur vel óg flestir bændur búnir að hirða eitthvað af töðu, sumir mikið. Spretta er góð' og tíð hagstæð. Karl Sigurðsson bóndi á Knútsstöðum verður sjötugur á sunnudaginn, 3. júlí. Hann er mikill bóndi og afarmenni að burðum. Manslífum hefur hann bjargað oftar en einu sinni og oft hefur hann auk þess greitt fyrir fólki þegar Laxá hefur flætt. smiðjuvéla kemur að iitlu gagni, ef verksmiðjurnar eru ekki í lagi, þegar síldin kemur. Það er ekki nóg að koma upp nýjum síldarbræðslum til við- bótar á sumrinu, ef þær eru ekki tilbúnar fyrr en meira eða minna er liðið á síldartímann. Það er gott að geta sent 2—300 skip til síldveiða, ef vel veiðist, en það er hörmulegt, ef meira eða minna af skipunum getur ekki farið út á miðin um leið og síldarinnar verður fyrst vart, af því að skip eða veiðarfæri eru ekki komin í lag. Dýrt að tapa síldarkasti. Hér eiga ýmsir hlut að máli: útgerðarmenn, skipstjórar, við- gerðarstöðvar, verkstæði, lána- stofnanir o. s. frv. Það er óæski- legt að fara út á miðin með veiðarfæri, sem skipshöfnin veit ekki, hvort nothæf eru eða ekki. Veiðarfærin þyrfti að rannsaka á einhvern hátt, ef mögueikar eru til, enda munu sumir hafa gert það. Það er dýr tilraun að tapa síldarkasti, ef hægt er -að komast hjá því. Seinlætið' veldur tjóni. í fyrri daga var það háttur forsjálla bænda og formanna, að gæta að tækjum sínum og áhöldum og koma þeim í lag löngu áður en til þeirra þurfti áð taka. Nú, á öld tækninnar, er ;>kki • síðuiy og jafnvel miklu fi'errrúr full þörf á, að hafa tím- ann fyrir sér í þessum efnum. Byrja ekki of seint á því, sem þarf að gern. Sjaldan skaðar, þótt þvi sé lokið eitthvað fyrr en nauðsynlegá þarf á að halda. Það veldur tjóni nú, sem fyrr, að draga fram á síðustu stundu, það sem hægt var að ljúka með góðu móti í tæka tíð. Stundum er það ekki hægt, og þá verður við það að sitja. En að því er varðar t. d. síldarverksmiðjurn- ar, ættu þær ekki að vera í tímahraki við undirbúninginn af sinni hálfu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.