Dagur - 21.09.1960, Blaðsíða 4
4
5
f—-----------------------------
Daguk
Eftir 10 mán. stjórn
BRÁÐUM er ár liðið frá síðustu
alþingiskosningum. Um þetía leyti í
fyrrahaust börðust stjórnmáiaforingj-
ar og frambjóðendur um fylgi fólksins
við stefnur flokka sinna. Það er
ómaksins vert að rifja upp örfá atriði
úr yfirlýsingum stærsta stjómmála-
flokksins, sem myndaði ríkisstjórn
nokkru eftir kosningarnar og stjómar
landinu ennþá. Sjálfstæðisflokkurinn
lagði á það megináherzlu að bæta
þyrfti lífskjör fólksins. „Leiðin til
bættra lífskjara,“ var kjörorð hans í
kosningunum, „er að kjósa Sjálfstæð-
isflokkinn.“ Og hver vildi ekki betri
lífskjör? En fyrsti boðskapur hins
nýja forsætisráðherra eftir kosningar
var sá, að þjóðin hefði „lifað um efni
fram“ og lengra yrði ekki haldið á
þeirri braut, allir yrðu að fórna
nokkm til þess að aftur kæmu hinir
gömlu og góðu dagar. Og ekki var
látið sitja við orðin tóm. Lífskjör al-
mennings voru skert um 1100—1200
milljón krónur með þeim efnahagsráð-
stöfunum, sem ríkisstjórnin kallaði
„viðreisn“ og fólust í vaxtaokri, nýj-
um sköttum, svo sem tvöföldum inn-
flutningsskatti, nýjum söluskatti á
alla sölu og þjónustu innanlands og
verðhækkunum vegna gengisbreyt-
ingar án kauphækkana á móti o. fl.
Sjálfstæðisflokkurinn varð þannig
uppvís að meiri kosningasvikum en
áður eru dæmi til á íslandi.
Sjálfstæðisflokkurinn lagði mikla
áherzlu á það í kosningabaráttunni,
að lýsa því fyrir fólkinu, hve verð-
bólgan væri hættuleg og að bæði
vildi flokkurinn ganga af verðbólg-
unni dauðri og gæti það. Ef við get-
um ekki drepið verðbólgudrauginn,
hver getur það þá? spurðu frambjóð-
endur flokksins og flokksblöðin af
miklu yfirlæti. í stað þess að uppfylla
gefin loforð um stöðvun verðbólgunn-
ar rak Olafur Thors upp vein mikið
stuttu cftir valdatöku Sjálfstæðis-
flokksins og síðan öll áróðursvél
íhaldsins, um að það væri skollin á
„óðaverðbólga“. Sjálfstæðisflokkurinn
læknaði hvorki verðbólgu né óða-
verðbólgu. Á þeim 10 mánuðum, sem
liðnir eru frá því að núverandi ríkis-
stjórn tók við völdum, hafa flestar
vörur hækkað um þriðjung. Bannað
var með lögum að kaup hækkaði sam-
kvæmt vísitölu, eins og verið hafði
áður um 20 ára skeið. Hinar gífurlegu
verðhækkanir korna því hart niður á
almemiingi, svo að fara verður ára-
tugi aftur í tímann til samanburðar á
afkomu fólks. Hinir gömlu og góðu
dagar, sem íhaldið boðaði, hafa haldið
innreið sína. Dýrtíðarflóðið, sem
stjómin steypti yfir þjóðina, eru stór-
felld kosningasvip og árás á lífs-
kjörin.
Sjálfstæðisflokkurinn boðaði það í
kosningabaráttunni í fyrrahaust, að
erlendu skuldimar væru að sliga
þjóðina. Hún risi ekki undir vöxtum
og afborgunum. Sjálfstæðisflokknum
einum væri treystandi til að taka upp
breytta stefnu í þeim málum, í „sam-
ræmi við heill alþjóðar.“ —
Hann tók 800 milljón króna lán (láns-
heimild) og er búinn að eyða af því
meira en helmingnum, án þes það sjá-
ist í nokkrum stórframkvæmdmn eða
uppbyggingu í landinu.
NYR KENNARI VIÐ TONLISTARSKOLANN
Athygli skal vakin á auglýs-
ingu Tónlistarfélags Akureyrar
um fiðlukennslu í skólanum í
vetur.
Hr. Sigurður Steingrímsson
hefur verið ráðinn kennari í
fiðluleik. Sigurður stundaði
nám í fiðluleik við Tónlistarskól
ann í Reykjavík, en fór að loknu
námi þar til Vínarborgar, þar
sem hann hefur stundað fram-
haldsnám undanfarin 5 ár.
Það má teljast mikið happ
fyrir Tónlistarskóla Akureyrar
að fá svo vel menntaðar kenn-
ara, og þess er að vænta, að
þeir Akureyringar, og reyndar
Norðlendingar allir, sem áhuga
hafa á fiðluleik, notfæri sér
þetta ágæta tækifæri.
GLUGGAÐ í GAMLA
11111111111111
IIIIIIIHIIIIIIIIIII
Til Bernharðs Sfefánssonar
og Hrefnu Guðmundsdóttur
Kvæðið var flutt í samsæti er þeiin hjónum
var haldið að Melum í Hörgárdal í sumar
Velkomnir hingað heiðursgestir kærir,
heilir og glaðir sitjið vinafund.
Mnningaeldar loga leifturskærir,
lýsa um farinn veg á þakkarstund.
Að alþingismaður, oss þó svíði skaðinn,
endi sitt starf er lögmál þess er skóp.
Bóndinn og konan birtast hér í staðinn,
nú bjóðum þau velkomin í okkar hóp.
Alþingismaður áratugi þrenna,
öruggur sigur vannst í þraut og neyð.
Þú kveiktir í æsku blys sem ennþá brenna,
blysin sem vísa þjóð á rétta leið.
Drengur í sókn, en djarfur þó að verki.
Drengur í vörn, en hræddist engan mann.
Drenglyndi og vizka er þitt aðalsmerki,
aflgjafinn sem þér löngum sigur vann.
Minning um störf þín veit eg lengi lifir,
sem Ijósberi þjóðgr gekksti^fram á svið.
Hagsmuni fjöldans settir annað yfir,
óbundinn veittir góðu máli lið.
Tungunnar vernd og frelsi fósturjarðar
fyrst kom þér til að brýna egg til stáls.
í sannleika nefndur sómi Eyjafjarðar,
sonur hins frjálsa Iands og hreina máls.
Velkomnir hingað heiðursgestir kærir,
heilsa í sumarskarti bernskulönd,
að enduðu starfi ykkur sveitin færir
alúðarþakkir, réttir vinarhönd.
Velkomin heim í fagra fjallasalinn,
fullan af vorsins klið með græna hlíð.
Bessuð af þeim, sem byggja og erja dalinn,
blcssuð af framtíð þjóðar alla tíð.
Þ. V.
Landnámabók er hið merkasta
rit fyrir margra hluta sakir. Þar
getum við lesið nöfn hinna
helztu landnámsmanna og
margra fleiri þeirra, sem hing-
að komu á 9. og 10. öld, um
uppruna þeirra og ættir, hvar
þeir settust að á íslandi, auk
ýmissa frásagna af sumum
þeirra, en þær eru þó flestaar
mjög stuttaralegar. Sagt er,
hvar þeir settust að hér á landi,
og er þar rakin ætt til nokk-
urra þeirra allt frá 13. öld, en á
þeirri öld mun hinum helztu
landnámssögum hafa verið
safnað í eitt rit.
I Landnámabók eru tugir
mannanafna á því nær hverri
blaðsíðu, og sýnist hún því ekki
mjög aðgengileg til skemmti-
lestrar, enda má gera ráð fyrir
því, að hún sé það fornrita okk-
ar, sem sjaldnast er tekið fram
úr bókaskápnum. Það er a. m.
k. ekki líklegt til árangurs, að
benda börnum og unglingum á
Landnámu sem lestrarefni.
Undanfarnar. vikur hef eg oft
gripið Landnámabók mér í
hönd og lesið. Eg held þó því
miður, að eg sé jafnnær um
flesta hluti, að því er til ætt-
fræði og mannanafna tekur, en
þó hef eg haft gaman af mörgu,
ekki sízt viðumefnunum eða
uppnefnunum, eins og við
myndum nú kalla þessar nafn-
giftir. Uppnefnin hafa fylgt
okkur íslendingur allt frá Nor-
egi, og það er því ekki unnt að
segja, að þau séu óþjóðleg, þótt
hvimleið séu.
Ekki veit eg, hvað mörg þess-
ara viðurnefna merkja, en fjöl-
mörg þeirra eru þó auðskilin,
ekki sízt þau, er menn hafa
fengið af ýmsum ytri auðkenn-
um sínurn, háralit, hárvexti,
stærð, vaxtarlagi og ýmsum
líkamslýtum. Af skegginu hafa
margir fengið viðurnefni. Hér
eru nokkrir þeirra: Hrólfur
rauðskeggur, Þorsteinn flösku-
skegg, Ásmundur skegglauss,
Börkur blátannarskegg, Bárður
bláskegg, Þórður skeggi, On-
undur breiðskeggur, Þórir ref-
skegg og Ófeigur þunnskeggur.
Hér tel eg svo nokkra aðra,
sem virðast hafa hlotið viður-
nefni sitt af útlitinu:
Þorsteinn rauðnefur, Böðvar
blöðruskalli, Þorgeir höggvin-
kinni, Hrólfur hinn digri, Ver-
mundur mjóvi, Helgi hinn
magri, Hergils hnapprass,
Þrándur mjóbeinn, Steinólfur
hinn lági, Ketill: ilbreiður, Þor-
geir langhöfði, Högni hinn
hvíti, Arnór kerlingarnef, Þor-
móður skalli, Þorgeir dúfunef,
Þorkell hinn hávi, Þórir hauk-
nef, Ásbjörn loðinhöfði og Ól—
afur langháls.
Ekki þykir mér líklegt, að
allir hafi þeir verið nefndir við-
urnefni sínu, svo að þeir
heyrðu sjálfir, því að til þess
eru þau of græzkufull mörg.
Hér eru nokkur:
Hrafn heimski, Sigurður svín-
höfði, Eysteinn meinfretur,
Þorgeir ofláti, Þorsteinn ógæfa,
Þórarinn illi, Ljótur óþveginn
og Ketill hinn fíflski.
En svo eru nokkur viður-
nefni, sem til sæmdar hafa ver-
ið talin, eða a. m. k. ekki til
vansæmdar: Gunnsteinn ber-
serkjabapi, Finnur hinn auðgi,
Þorfinnur hausakljúfur, Ingólf-
ur hinn fagri, Arnór hinn góði
og Héðinn hinn mildi.
Ekki hafa konur farið var-
hluta af viðurnefnunum, og eru
þau af ýmsu tagi eins og karl-
anna. Það er sæmd að því að
vera nefnd Þorbjörg hólmasól,
Auður djúpúðga, Gró hin snar-
skyggna, Þorbjörg bekkjarbót
og Þuríður gyðja. Um sæmd
hinna nafnanna, er eg nefni hér
á eftir, leikur meiri vafi. Hlíf
gestageldir, Þuriður dylla, Þór-
unn blákinna, Þuríður rym-
gylta, Ingvildur rauðkinna og
Yngvildur allrasystir.
Eins og áður er sagt, eru í
Landnámu raktar ættir, einkum
höfðingja, og oft til 13. aldar.
Einn landnámsmanna hét Auð-
ólfur, nam Hörgárdal og bjó á
Syðri-Bægisá. Hann kvæntist
dóttur Helga magra, og af Yng-
vildi dóttur þeirra er kominn
Gissur jarl Þorvaldsson, eða
svo segir í Landnámu, þar sem
þetta er rakið.
Ásgrímur hét maður, Önd-
óttsson kráku, hann hjó á Glerá
nyrðri (Ásmundur bróðir hans
bjó á Glerá hinni syðri)„ Land-
náma telur fram afkomendur
Ásgríms, þar til komið er að
Sturlu í Hvammi, ættföður
Sturlunganna.
Hvorki vissi eg um daginn,
áður en eg fór að glugga í Land-
námabók, að Gissur jarl ætti
ættir sínar áð rekja í Hörgár-
dal, né heldur hitt, að Sturlung-
ar allir væru komnir af bónda
nokkrum, sem búið liefði á
bökkum Glerár. En svo lengi
lærir sem lifir. —- Ö. S.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiin
iiiiiiiiiiiiiiiiiiuiii
Hver gaf i'it veiðileyfin?
STANGVEIÐIFÉL. Straumar
á Akureyri hefur Eyjafjarðará
leigða. Samningsaðili bænda er
Veiðifélag Eyjafjarðarár. —
Ákveðið var í sumar, að leyfa
enga veiði í ánni, ef friðun
mætti glæða veiðina á næstu
árum. Að sjálfsögðu báðu marg-
ir um veiðileyfi, svo sem að lík-
um lætur, því að hver veiðiá er
eftirsótt á þessum árum. Allir
fengu synjun og var þar farið
eftir fundarsamþykkt.
Ð
Vélsmiðja Húnvetn-
inga tekur til starfa
Blönduósi, 19. sept. — Guð
og náttúran leggjast á eitt og
gera mönnum lífið létt og
ánægjulegt eftir því sem fram-
ast er hægt að vona. í dag er
réttað í Auðkúlurétt, Vatnsdals-
rétt og Skrapatungurétt. Á mið-
vikudaginn og fimmtudaginn er
réttað í Stafnsrétt, fyrri daginn
er stóðrétt.
Slátrun er hafin hér. Féð er
lakara en menn bjuggust við, en
ekki er það þó vel að marka,
því að aðeins hefur verið slátr-
að heimalandafé. Alls verður
lógað 34700 fjár á Blönduósi,
um 1200 á dag.
Hér er að taka til starfa nýtt
og fullkomið vélaverkstæði,
Vélsmiðja Húnvetninga, sem
kaupfélagið og búnaðarsam-
bandið eiga í félagi. Þormóður
Sigurgeirsson frá Orrastöðum
veitir því forstöðu. Það er búið
fullkomnustu tækjum og ætti
að verða hin þarfasta stofnun.
f sumar var bryggjan lengd
um 12 metra og geta öll strand-
ferðaskipin og minni Sambands-
skipin lagzt við hana í sæmilegu
veðri. Þetta er ómetanlegt hag-
ræði fyrir staðinn og allt
byggðarlagið.
Um miðjan mánuðinn var
tekinn hér í notkun jöfnunar-
brunur vatnsveitunnar. Vatn er
nú nægilegt, en þrýstingurinn
lítill.
Rafmagn á nokkra bæi
Nesi, 19. sept. — Fyrstu göng-
um er lokið. Þær voru erfiðar
vegna þess hve féð hélt sig of-
arlega vegna góðviðrisins.
Einhvern næsta dag verður
rafmagni hleypt á nokkra bæi
í Mið-Fnjóskadal: Skóga, Hró-
arsstaði, Háls, og Vagli. Auk
þess fær útibú KÞ við Fnjósk-
árbrú, samkomuhúsið í Vagla-
skóginum og vinnustaður skóg-
ræktarinnar, rafmagn um leið.
Búið er að byggja brú yfir
Skarðsá í Dalsmynni og verið
að brúa Grefilsgil. Yfirsm. er
Jón Grímsson frá Vopnafirði.
Verið er að byggja veg milli
Ness og Skóga. Fagrir haustlit-
ir eru í Vaglaskógi.
Snjór í fjöllum
Haganesvík, 20. sept. — Hér
var snjóföl niður í miðjar hlíð-
ar í morgun og jörð hélugrá í
byggð. Réttað var í Flókadals-
rétt í gær og í Austur-Fljótum
í dag. Slátrað verður 4670 fjár
hér í haust og hefst slátrunin á
fimmtudaginn.
Ráðgert er að viðgerð fari
fram á bryggjunni, sem
skemmdist í brimi og liggur
pndir skemmdum, ef ekki er að
gert.
Hinn 3. þ. m. varð Jón Guð-
mundsson, Molastöðum, 60 ára.
Hann hefur um langt árabil
verið endurskoðandi hjá Sam-
vinnufélagi Fljótamanna á
Haganesvík.
Undir lok veiðitímans fóru
menn að velta því fyrir sér,
hvort mikill silungur og kann-
ski lax hefði gengið í ána. Þá
var ákveðið á sameiginlegum
fundi að fá vissan mann fram í
Eyjafirði til að kanna þetta síð-
ustu daga veiðitímans, og var
það síðan gert. En nú vildu
fleiri reyna og leituðu leyfa, en
árangurslaust. Formaður félags-
stjórnar Strauma sagði að tveim
mönnum aðeins liefði stjórnin
veitt leyfi.
En einhver veitti þó veiði-
leyfi í Eyjafjarðará, þrátt fyrir
þessar fullyrðingar stjórnarfor-
manns. A. m. k. 10 manns
veiddu í ánni í vikunni sem
leið og öfluðu vel. Ekki voru
veiðileyfi þessi gefin út í sam-
ráði við veiðifélag bændanna.
Ekki var eftirlitsmaðurinn við
það mál riðinn og hafði ekki
hugmynd um veiðiskapinn fyrr
en bændur kærðu til hans.
Það væri æskilegt að fá það
upplýst, hvers vegna 10 mönn-
um voru veitt veiðileyfi, og
hver gaf þau út og með hvaða
rétti, átta þeirra án vitundar
stjórnarformanns Strauma og
öll án vitundar formanns Veiði-
félags Eyjafjarðarár.
Fast að 140 silungar og 1 lax
munu hafa veiðzt þessa daga.
Eftirlitsmaður árinnar mun
starx hafa sagt af sér starfinu
vegna þessara aðgerða.
Pípuorgelinu seinkar
Pípuogel það fyrir Akureyr-
arkirkju, sem búið var að panta
í Þýzkalandi og átti að vera til-
búið, er það ekki, og því engar
líkur til að það Verði komið á
afmæli kirkjunnar í nóvember,
svo sem ætlað var. Talið er að
það taki 5 vikur að setja orgelið
upp. Tæplega verður það gert
um jólin, því að þá er kirkjan
mest notuð. Sennilega verður
það því ekki fyrri en á næsta
ári sem Akureyringar fá að
njóta síns nýja hljóðfæris.
Blaðið gat þess um daginn,
að pípuorgelið væri á leiðinni.
Sú fregn var röng, og er leið-
rétt með framansögðu.
Ekki er blaðinu kunnugt um,
hvort orgelverksmiðjan er
skaðabótaskyld vegna vanefnd-
anna.
Stórgjöf til Sjálfs-
bjargar
Nýlega afhentu frk. Halldóra
Bjarnadóttir, ásamt Ragnheiði
O. Björnsson og Jóni Þórarins-
syni, Sjálfsbjörg á Akureyri
myndarlega gjöf, eða allar eigur
Heimilisiðnaðarfélags Norður).,
sem nú hefur verið lagt niður.
Voru þetta bankainnstæða að
upphæð kr. 17.002.44, bókbands-
tæki til notkunar við kennslu,
vefjargrindur og fleiri áhöld,
sem Heimilisiðnaðarfélagið not-
aði við kennslu á námskeiðum,
sem það um árabil hafði með
höndum hér í bæ.
Stjórn Sjálfsbjargar hefur
beðið blaðið að koma á fram-
færi þakklæti Sjálfsbjargarfé-
lagsins fyrir þessa höfðinglegu
gjöf, og kveðst vonast til þess
að hún komi að þeim notum,
sem til er ætlast, og Sjálfsbjörg
haldi að vissu leyti uppi merki
Heimilisiðnaðarfélagsins.
íslandsmót í róðri hafdið
Reykvíkingar mættu ekki. - Reglur vautar
um kappróðrarbáta og róðrarmót
Kappróðrar eiga ekki upp á
pallborðið meðal íþrótta hér á
landi. Keppt hefur þó verið um
íslandsmeistaratitil og hefur
Róðx-arklúbbur Æskulýðsfélags
Ak.kirkju borið af og hlot-
ið titilinn í keppni við Reyk-
víkinga.
Um síðustu helgi var íslands-
mótið haldið á Akuieyri. En
Reykvíkingar brugðust þannig
við, að þeir ætluðu að koma í
veg fyrir að mótið væri haldið
og komu ekki til keppni. Fundu
þeir það helzt að, að kapp-
róðrai'bátarnir á Akureyri væru
of þungir fyrir sig. Þykir þó
sýnilegt, bæði nú og áður, að
reykvískir íþróttamenn eru
ekki fíknir í að keppa í þeim
greinum íþrótta, sem þeir
standa höllum. fæti í og hafa
ekki miklar sigurvonir. Þótti
það sýna sig í vetur á Skauta-
móti íslands, svo að dæmi sé
nefnt.
Róðrarkeppnin.
Mótið hófst á laugardaginn.
Tvær sveitir frá Róðrai-klúbbi
Æskulýðsfélags Akureyrar-
kirkju kepptu kaidasveit og
drengjasveit. Keppt var i 2000
metrumVg sigi-aði kai'lasveitin
á 7,24,3 mín. og er það góður
árangur. Tími B-sveitar 7,39,6
mín. og lofar sú sveit góðu.
Á sunnudaginn hófst keppni
kl. 2 e. h. í glampandi logni og
að töluvert mörgum áhorfend-
um viðstöddum. — Fyrst
var keppt í 100 m. Karla-
sveitin sigraði. Tími hennar
var 4,50,3 mín., en di'engja
5,01,6 mín. Karlasveitin sigraði
líka í 500 m. á 2,25,9 mín. Tími
B-sveitar var 2,45,2 mín.
Karlasveitin vann þar með til
eignar bikar þann, sem Olíu-
vei'zlun íslands gaf til keppni í
2000 m., auk þess að bera áfi'am
íslandsmeistaraitilinn. Sveitin
er þannig skipuð: Gísli Lói'enz-
son, stýrim., Knútur Val-
mundsson, Jón Gíslason, Róbert
Keppendur voru alls yfir 40 frá
Héraðssambandi S.-Þing, íþrótta-
fél. Leiltri, Ólafsfirði, íþróttafé-
laginu Þór, Akureyri, Knatt-
spyrnufélagi Akureyrar og Ung-
mennasambandi Skagafjarðar.
Úrslit í einstökum greinum
urðu þessi:
100 m skriðsund karla:
óli Jóhannsson, KA 1:07.6 mín.
Vernharður Jónsson, KA 1:09.9 —
ólafur Atlason, HS1> 1:11.7 —
100 m bringusund kaila:
Ólafur Atlason, HSÞ 1:23.9 mín
Baídvin lljarnason, KA 1:24.2 —
Stefán Óskarsson, HSÞ 1:26.9 —
100 m bringusund karla:
Valgarður Egilsson, HSÞ 6:17.3 m
Stcfán óskarsson, I4SÞ 6:42.0 —
Baldvin Bjarnason, KA 6:45.4 —
á Akureyri
Arngrímsson og Stefán Árna-
son. Drengjasveitina skipa: Ax-
el Gíslason, stýrim., Óli Jó-
hannsson, Börkur Eii'íksson,
Pétur Jónsson og Aðalsteinn
Júlíusson. Mótsstjóri var Her-
mann Sigtryggsson, yfii'tíma-
vörður Haraldur Sigurðsson.
fþróttasamband fslands virð-
ist ekki hafa nægilegan áhuga
á þessari skemmtilegu og hollu
íþróttagi-ein, því að það hefur
ekki enn sett reglur um gerð
kappróðrarbáta eða önnur
nauðsynleg atriði í sambandi
við róðrarmót. Getur því kom-
ið til ágreinings milli róðrarfé-
laga þegar keppt er. Ur þessu
þarf að bœta hið bráðasta.
50 m baksund kvenna:
Rósa Pálsdóttir, KA 46.4 sek.
Súsanna Möller, KA 49.0 —
l'.rla Möller, KA 50.0 —
50 m skriðsund drengja:
Óli Jóhannsson, KA 29.7 sek.
Börkur Guðmundsson, KA 31.0 —
Sna björn Þórðarson, Þór 34.0 —
100 m bringusund drengja:
Árni Sæmundsson, L 1:31.3 m
Stefán Guðmundsson, KA 1:32.5 —
Óli Jóhannsson, KA 1:37.5 —
50 m skriðsund telpna:
Rakel Kristbjörnsd., L 33.4 sek.
Erla Hólmsteinsdóttir, Þór 34.5 —
Rósa Bálsdóttir, KA 35.8 —
50 rn bringusund telþna:
Sigrún Vignisdóltir, KA 44.2 sek.
Ásta Pálsdóttir, KA 45.8 —
Rósa Pálsdóttir, KA 47.8 —
Sundmeistaramót Norðurlands
var haldið á Sauðárkróki dagana 3.-4. sept.
Frystivél bilaði skyndilega hjá K Þ
Kaupfélagið hefur þegar fengið söltunarleyfi
Ófeigsstöðum, 20. sept. — Á
laugardagskvöldið bilaði aðal-
fi-ystivél Slátui'húss KÞ á Húsa
vík. Slátrun var hafin og aðeins
hægt að halda við frostinu í því
kjöti, sem þá var fryst.
Ekki var til varahlutur í land-
inu og ekki heldur hjá framleið-
anda frystivélanna í Danmöi'ku.
Svar barst þaðan í gær og enn-
fremur, að það tæki hálfan ann-
an mánuð að smíða stykki það
er bi'otnaði, en það var sveif-
ai'ás.
Kaupfélagið fékk söltunar-
leyfi, og er nú hai'ðsnúinn
flokkur manna við kjötsöltun,
en nágrannafi-ystihús hlaupa
eitthvað undir bagga með
geymslu kjöts og í-eynt er að fá
vélar til bráðabii'gða í stað
þeiri'ai', sem brotnaði. Ýmsir
^lllllllllllllllllllllllllllltlllllllllllltllllllWIIIIIIIIIIIIIIH*
iDagukI
kemur næst út miðvikudaginn
28. september. — Auglýsingum
sé skilað fyrir hád. á þriðjudag.
telja, að rafmagnstruflanir að
undanförnu eigi sinn þátt í.
Nýlega er látinn gamall mað-
ur í Arnþórsgerði, nýbýli í
Kinn, fósturfaðir bóndans þai*,
ókvæntur, ættaður úr Flatey.
í gær andaðist í Kaupmanna-
höfn Sigríður Sigurgeirsdóttir,
Ijósmóðir fi'á Ártúni, koi'nung
kona, frá tveim ungum börnum.
50 m baksund karla:
Björn Þórisson, Þór 36.3 sck.
óli Jóhannsson, KA 37.0 —
Eiríkur Ingvarsson, KA 39.3 —
100 m skriðsund kvenna:
Rakcl Kristbjörnsd., L 1:18.1 m
Erla Holmslfinsdól t ir, Þór 1:19.7 —
Rósa Pálsdóttir, KA 1:26.6 -
100 rn bringusund kvenna: I,.
Sigrún Vignisdóttir, KA 1:37.1 —
Asta l’álsdóttir, KA 1:38.8 -
Sigurbj. Sigurpálsd., UMS 1:40.9 —
200 m bringusund kvenna:
Asta Pálsdóttir, KA 3:31.7 m
Sigurbj. Sigurpálsd., UMS 3:33.2 -
Sigrún Vignisdóttir, KA 3:40.0
4X.50 m frjáls ajðferð:
Karlar.
Svcit KA (Ak.met) 2:02.4 mín.
Sveit HSÞ 2:12.1 -
4X50 m frjáls afðferð:
Konur.
Sveit KA 2:43.2 mín.
Blönduð sveit 3:07.1 —
Fiskiðja Sauðárkróks h.f. gaf silf-
urbikar til þcs að kcppa um í stiga-
keppni milli fclaga á Sundmeistara-
móti Norðurlands. Að þcssu sinni
vann KA þennan bikar, hlaut 87 stig,
HSÞ hlaut 24 stig, fþf. l>ór 15 stig',
Iþf. Leiftur 15 stig og Ungmenna-
samb. Skagafjarðar 7 stig.
<■
Boðsundssveit KA setti Akureyrarniet á sundmótinu. Frá vinstri: Óli Jóhannsson, Börkur Guðmunds-
son, Vernharður Jónsson, Eiríkur Ing\ arsson. — (Ljósmynd: Stefán Pedersen.)