Dagur - 02.11.1960, Síða 2
2
Árni Joliannsson
Minningarorð um dáinn vin
ÞANN 21. þ. m. lézt að heimili
sínu Ránargötu 25, Akureyri,
Arni Jóhannson frá Brekkukoti
en svo var hann jafnan skil-
greindur meðal Svarfdælinga að
minnsta lcosti.
Árni var fæddur 29. júlí 1883
að Brekkukoti í Svarfaðardal.
Foreldrar hans voru hjónin þar,
Jóhann Jónsson og Steinunn
Soffoníasdóttir, hin mestu
sæmdarhjón. Börn þeirra hjóna
voru synir þrír og dætur þrjár.
Árni var í nokkur ár í fóstri hjá
föðurbróður sínum, og slitnaði
þannig um skeið úr tengslum við
foreldra sína og systkini. Mark-
aði þetta spor í sálarlíf hans, er
hann aldrei að fullu gat sætzt
við. Þó fátækur væri, brauzt
hann til búfræðináms að Hólum
í Hjaltadal og brautskráðist það-
an 1905.
Árin næstu á eftir stundaði
hann vinnu hér og þar, en gaf
sig síðan að sjómennsku. Hann
nam sjómannafræði og öðlaðist
réttindi til að stjórna smærri
vélskipum. Var meðal annars
um alllangt skeið formaður á
póstbátnum Mjölni.
Árið 1909 kvæntist hann eft-
irlifandi konu sinni, Jóhönnu
Jónsdóttur frá Miðkoti, Svarfað-
ardal, prýðis konu.
Árið 1913 fluttu þau hjón til
Akureyrar og áttu þar heimili
síðan. Ekki varð þeim barna
auðið, en eina kjördóttur áttu
þau, Rögnu, er reyndist þeim
hin ágætasta dóttir í hvívetna.
Æska áldamótanna síðustu,
sem oft heyrist nefnd í ræðu og
riti, var borin inn í harðan
lieim fátæktar og fábreyttra at-
vinnuhátta, næsta ólikan þeim
heimi, er blasir við í dag.
Uppeldisboðorð þeirra tima
voru heldur ekki miðuð við það
fyrst og fremst að komast yfir
fjármuni með sem léttustu móti
og minnstri vinnu, og eiga í
skjóli auðs rósama daga, heldur
hitt, að gera ungdóminn skiln-
ingsríkan á gildi drengilegs starfs
og starfsgleði, framvindu lífsins
til bættra lifskjara. Skapa með
æskunni heilbrigða hugsun og
lífsviðhorf. Kenna henni að gera
fyrst kröfuna til sjálfrar sín,
setja hana ofar kröfunni til ann-
arra.
Boðorð þessara uppeldishátta
voru atorka í starfi, skyldu-
rækni, hófsemi, nýtni, guðstrú
og ættjarðarást. Með öðrum orð-
um, hinar fornu dyggðir, sem
hafa reynzt og munu reynast si-
gildar á öilum tímum, hvort sem
menn viljá játast undir þær eða
ekki. Og mein okkar yfirstand-
andi tíma er það, að þessum
gömlu lífsreglum hefur á marg-
an hátt verið þokað til hliðar og
aðrar settar í staðinn, er lakar
munu reynast til manndóms og
þroska.
Árni Jóhannsson var einn úr
hópi aldamótaæskunnar og mót-
aður í andrúmslofti þeirra tíma,
enda bar hann öll beztu ein-
kenni þeirra og var þeim góður
fulltrúi. Hann hafði numið sín
boðorð vel og átti manndóm og
vilja til að lifa eftir þeim. Þau
hafa þá líka borið honum riku-
lega ávexti, er koma fram í virð-
ingu og vinaþeli samtíðarmanna
fyrir drengilegt starf, óbrigðulan
trúnað í hverju því, er honum
var á hendur falið, og hjálpfús-
an hug og hendi til hjálpar þeim,
er hjálpar var þörf.
Sú er niðurstaða lifs Árna Jó-
hannssonar.
Með þennan vitnisburð og
þann yl, sem honum fylgir, er
gott að ganga út af leikvangi
þessa lífs.
Vinum sínum verður Árni ó-
giej'manlegur. Þessi greindi,
starfsglaði, örgeðja maður, sem
á augabragði gat blcssað upp og
látið skúr vandlætingarinnar
skeíla yfir, en þó jafnskjótt lát-
ið varma hjartahlýjunnar þerra
allt á svipstundu, svo hreinna
var eftir en áður.
Annars var ekki tilgangur
minn með þessum, því miður,
fátæklegu orðum, að gefa lýs-
ingu af æskuvini mínum Árna
Jóhannssyni, heldur hitt, að
senda honum síðustu kveðju
min og minna.
Góðu heilli höguðu atvikin
því svo, að ungur að árum kom
hann líkt og farfugl inn á heim-
ili foreldra minna og fékk að
njóta þeirrar fræðslu er við
börnin fengum undir fermingu.
Þessu gat hann aldrei gleymt
eða fullþakkað. Minnugri mann
á það, sem hann taldi sér vel
gert, þekki ég ekki, og lýsir það
eitt út af fyrir sig hvert hjarta-
lag mannsins var.
Fleiri orð skulu svo eigi hér
um höfð. En að lokum langar
mig til að segja þetta:
Árni, góði æskuvinur og fé-
félagi. Hafðu hjartans þökk fyr-
ir allt og allt. Vinarhugur minn
fylgir þér yfir dauðadjúpin. End-
urminninguna um þig mun ég
geyma meðal þeirra er ég kær-
astar á.
Vertu svo blessaður og sæll.
Sól guðs vermi þig.
Tjörn, 27. okt. 1960.
Þór. Kr. Eldjárn.
Stjórnarskipti í Félagi
verzlunar og skrif-
stofufólks
Á SÍÐASTA aðalfundi í Félagi
verzlunar- og skrifstofufólks á
Akureyri, var skipt um stjórn
félagsins að mestu. Formaður
er nú Kristofer Vilhjálmsson,
ritari Aðalsteinn Valdemarsson
og gjaldkeri Jón Aspar. Með-
stjórnendur eru Hörður Að-
ólfsson og Baldur Halldórsson.
Fráfarandi formaður er Óli D.
Friðbjörnsson.
-Fulltrúar á Alþýðusambands-
þing voru kosnir, Jón Aspar og
Aðalsteinn Valdimarsson, en
varamenn þeir Kristofer Vil-
hjálmsson og Baldur Halldórs-
son. □
- Lánsfjárskorturinn
þjakar bændur
oftar en einu sinni á ári, en
höfðu ekki rétt til þess áður,
Og bændum er tryggð uppbót
á útfluttar afurðir, allt að 10%
af heildarframleiðslu. Heildai--
framleiðsla landbúnaðarvara er
um 750 milljóna virði. Verð-
lagsgrundvöllurinn hækkaði að-
eins um 7,55% í haust.
Grundvallarverð land-
búnaðarvara.
Samkvæmt verðlagsgrund-
vallarverði eiga bændur að fá
kr. 4,18 fyrir mjólkurlíti'ann,
kr. 18,68 fyrir kg af bezta
nautakjöti, kr. 19.69 fyrir dilka-
kjöt, kr. 24.50 fyrir gærur, kr.
24.30 fyrir ull og kr. 8.73 fyrir
hrossakjöt, allt miðað við beztu
og verðhæstu flokka. Mjólkur-
framleiðslan jókst mjög lítið í
landinu á síðasta ári, en neyzl-
an töluvert mikið. Á þrem
fyrstu ársfjórðungum þessa árs
hefur framleiðslan vaxið um
tæplega 5%, en neyzlan aukizt
um 9.25%. Sýnt er hvert þetta
stefnir, þegar fólksfjölgunin
nemur 3500 eða meira á ári
(3700 fjölgun samkv. síðasta
manntali). Framundan er
hætta á búvöruvöntun en ekki
offramleiðslu.
Kjötframleiðslan 1958 hefur
nálega staðið í stað. Nokkuð
hefur verið flutt út af kinda-
kjöti.
Hér er aðeins drepið á fátt
af mörgu úr ræðu frummæl-
anda. í ræðulok hvatti hann ey-
firzka bændur til samstöðu og
vakandi félagslífs. Hann minnti
á, að enn væru margar sveitir
landsins veglausar og kyrrstaða
í heilum landshlutum. Eyfirð-
ingar og aðrir, sem lengra
eru komnir áleiðis í framför-
um, mega ekki, sagði ræðumað-
ur, láta staðar numið. Aðrir
verða að öðlast það, sem þið
hafið þegar hlotið.
Sverrir Gíslason sagði, að
það sem nú þjakaði landbún-
aðinn framar öliu, væri vöntun
á fjármagni. Lánapólitíkin væri
til skammar. Ur.gt fólik gœti
alls ekki, hversu fegið sem það
vildi, hafið búskap. Engin lána-
stofnun rétti því hjálparhönd,
að gagni. Að síðustu skýrði
ræðumaður hlutverk Stéttar-
sambands bænda. Ágætur róm-
ur var gerður að máli hans og
hófust umræður að því loknu
og stóðu fram g nótt. □
Hitapúðarnir
komnir aftur.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
ÍÞRÓTTAGALLAR
SLNDSKÝLUR
Allar stærðir.
Sporí- og
hljóðfæraverzlunin
Gúmmíslöngiir
frá 1/2” - 2”
BAHCO
lyldar og tengur
Hurðarþéttingar
Rennibrautir
fyrir hurðir og skápa:
Handföng
á skápahurðir
Þéttiefni
á þök og veggi.
GRÁNA H.F.
POLLABUXUR OG
SJÓHATTAR
á börn, margir litir.
GRÁNA H.F.
ÓSKXLALAMB
í liaust var mér dregið
lamb með mínu marki,
l j()ður áftan liægra
sílt vinstra, biti aftan,
sem ég á ekki og getur
réttur eigandi vitjað
andvirðisins til mín.
Guðbjörn Olafsson
Holtagötu 10, Akureyri.
NÝKOMIÐ:
VEGGLJÓS
margar teg.
LJÓSAKRÓNUR
margar teg.
LOFTLJÓS
einf., tvöf.
BORÐLAMPAR
frá kr. 140.00
GÓLFLAMPAR
margar gerðir.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILÐ
NÝKOMIÐ:
Mikið úrval af allskonar
Skermum
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
Strokjárn
þrjár tegundir.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
Demantsborar
SV2 mm. — 30 mm.
Mjög góð tegund.
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
NÝMALAÐ:
Bankabygg, Rúgmjöf,
Heilhveiti, Hveitiklíð
Hafrar, skornir
Hrísgrjón, ópóleruð
Þurrger, Hunang
Fjallagrös, Lýsisbelgir
Lauktöflur, Þaratöflur
Jurtakraftur
VÖRUHÚSIÐ H.F.
MOLASYKUR, giófur
MOLASYKUR, fínn
STRÁSYKUR, fínn
FLORSYKUR, fínn
PÚÐURSYKUR,
ágætur
KANDÍSSYKUR,
dökkur,
sérstaklega góður.
VÖRUHÚSIÐ H.F.
Karlm. NÆRBUXUR
síð.ar
kr. 52.50, 56.50, 60.00.
DRG. NÆRBUXUR
síðar, kr. 23.15, 41.50.
DRG. NÆRBUXUR
stuttar,
kr. 10.00 til 24.00
SPORTBOLIR
verð kr. 17.50, 26.50,
31.00 og 32.50.
VÖRUHÚSID H.F.