Dagur - 30.11.1960, Síða 2

Dagur - 30.11.1960, Síða 2
2 Hver verður næstur? FRÁ ÞVÍ er skýrt í blaðinu „Magni“, sem gefið er út af Bindindisfélagi íslenzkra kenn- ara, að Reykjaskóli í HrútafirSi hafi tekið upp þann sið, að gera tóbaksbindindi að skilyrði fyrir námsdvöl. Er haft eftir skóla- stjóranum, Ólafi H. Kristjáns- syni, sem er algjör bindindis- maður, að eftir þessa ráðstöfun hafi skólabragur allur breytzt til hins betra. Þessi frétt er allrar athygli verð og gefur jafnframt tilefni til hugleiðinga. í skólum landsins, sem fi’æða eiga unglinga á aldrinum frá 14—19 ára, er tóbaksnautn nem- enda að verða vandamál, sem setur leiðindabrag á skólalífið og veldur öllum hugsandi mönum áhyggju. Hinn bindind- issinnaði skólastjóri leysir vandann á þann eina hátt, sem líklegur er til árangurs. Hann útilokar tóbaksnautn. Nemend- ur verða að velja eða hafna o^ árangurinn lætur ekki á sér standa. Allur skólabragur breytist til hins betra þegar í stað. ASeins eitt vantar í þessa frásögn blaðsins. Hvernig er háttað með kennaralið skólans, eru þeir allir algjörir bindind- ismenn eins og skólastjórinn? Við verðum að vona það. Ann- ars er hætt við að þessi lofsam- iega tilraun sé dæmd til að mis- takast. Hann er áreiðanlega nokkuð sannur gamli málshátt- urinn. „Það höfðingjarnir hafast aÖ, hinir ætla sér leyfist það.“ Ef kennararnir telja sér leyfi- legt það, sem nemendunum er bannað, er hætt við að virðing nemendanna fyrir reglum skól- ans, og löngunin til að halda þær, verði af skornum skammti. En hvernig er ástatt í þess- um efnum hér í okkar mikla skólabæ? Hvert er viðhorf for- ustumanna skólanna um þetta mál? Já, hvaða skóli stígur næstur þetta heillaspor? — n. Alltaf eitthvað nytt! Plast fataskápaniir eftirspurðu ern komnir. FALLEGAR drengjahúfur Herrasloppar Dömnsloppar og.m. m. fleira. PÓSTSENDUM. KLÆÐAVERZLUN S!G. GUÐMUNDSSONÁR H.F. f SUMAR eins og undanfarin ár var heimilið rekið, en nú í sumár sem leið var hægt að flytja drer.gina inn í hús það, sem er í smíðum. Þó er enn eld- unar- og matsalur í gamla hús inu. Nú gátu 25 drengir dvalið í einu, og er það mesti fjöldi, sem þar hefir verið. Enn þarf þó stórt átak til þess að ljúka byggingunni. Muna- og kaffisala. Ein aðalfjáröflunarleiðin fyr- ir byggingunni hefir verið árleg muna-og kaffisala, og hafa kon- ur í söfnuðinum unnið þar mik- ið starf. Einnig hafa bæjarbúar sýnt þessu starfi mikinn og góð an skilning t. d. með því að fjölmenna á Sjónarhæð þann dag, sem muna- og kaffisalan hefir verið. Um leið og söfnuð- urinn þakkar öllum þeim, sem styrkt hafa þessa starsemi, gef- um við velunnurum Ástjarnar tækifæri nú á laugardaginn 3. desember með muna- og kaffi- sölu frá kl. 3—10 e. h.. Um kvöldið kl. 8.30 verða sýndar litskuggamyndir frá Ástjörn, og er aðgangur ókeypis. Sj ónarhæðarsöfnuður. önnusett nýkomin. VÉLA- OG BÚSÁHALDADEILD Nýjar vörur: Nylonkjólaefni (Telpna) Nylonefni í sloppa Frönsk kjólaefni mjög falleg. Gluggatjaldaefni amerísk. ----o--- ULLARGARN NÝ TEGUND. (Lykkjað) BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS GG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS FÉLAGSMENN FA EFTIRTALDÁR 5 BÆKUR FYRIR KR. 190.00: ALMANAKID 1961 ANDVARI, þrjú hefti LÖND OG LÝÐIR, Þýzkaland, Austurríki, Sviss og tvær af eftirtöldum valbókum: HREINDÝR Á ÍSLANDI, eftir Ólaf Þorvaldsson Á blálándshæðum, ferðabók frá Afríku eftir Martin Johnson MÁNNLEG náttúra, sögnr eftir Guðmund G. Hagalín SENDIBRÉF FRÁ SANDSTRÖND, skáldsaga eftir Stefán Jónsson JÓN SKÁLHOLTSREKTOR, ævisaga, eftir Gunnar M. Magnúss. Félagsmenn eru vinsamlega beðnir að vitja bókanna sem fyrst. # Bókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvina- félagsins, umboðið á Akureyri: Prentverk Odds Björnssonar hi. HAFNARSTRÆTI 88. Eftirtaldar nýjar bækur fá félagsmenn með 20-25% afslætti: Hókhlöðuv. Fclagsm.v. Heft 180.00 140,00 RITSAFN THEODÓRS THORODDSEN Sig. Nordal sá um útgáfuna og ritar formála. Skinnl. 225.00 180.00 Skinn 280.00 220.00 ÆVISAGA SIGURÐAR SIGURÐSSONAR, búnaðarmálastjóra. Ileft 180.00 140.00 Samið hefur Jónas Þorbergsson. Fróðlcg og vel rituð bók. Skinnl. 225.00 180.00 ÆVINTÝRALEIKIR Skinn 280.00 220.00 Barnabók eftir Ragnh. Jónsdóttur, teikn eftir Sigrúnu Guðjónsd. 58.00 46.00 LJÓÐ JAKOBS JÓH. SMÁRA Heft 190.00 140.00 Eldri Ijóðasöfn skáldsins, sem öll eru löngu uppseld. Skinnl. 280.00 200.00 HÓMERSÞÝÐINGAR SVEINBJÖRNS EGILSSONAR Heft 180.00 140.00 Doktorsritgerð Finnboga Guðmundssonar. Skinnl. 225.00 180.00 ÍSIENZKUR JARÐVEGUR Heft 95.00 75.00 eftir dr. Björn Jóhannesson. Stórfróðlegt rit á sínu sviði. Skinnl. 140.00 105.00 ÍSLENZK TUNGA tímarit um íslenzkt mál, II. árgangur. 110.00 75,00 UPPRUNI fSLENDINGA safn ritgerða eftir Barða Guðmundsson. Skinnl. 185.00 145.00 SÓLARHRIN GUR Skáldsaga eftir Stefán Júlíusson. S M Á B Æ K U R MENNINGARSJÓÐS: Skinnl. 110.00 85.00 SAMDRYKKJAN eftir Platon. Steingrímur Thorsteinsson þýddi, 85.00 65.00 TRUMBAN OG LÚTAN Ljóðaþýðingar eftir Ilalldóru B. Björnsson. 75.00 55.00 SKIPTAR SKOÐANIR Ritdeila Sigurðar Nordal og Einars II. Kvaran. 85.00 65.00 SÓLARSÝN Kvæði eítir Bjarna Gizurarson, prest í Þingmúla, 75.00 55.00 HAMSKIPTI eftir Franz Kafka. Hannes Pétursson þýddi. Skinnl. 75.00 55.00

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.