Dagur - 08.02.1961, Page 7
1
EIGINMENN!
Gleðjið fjölskyldu ykkar með
EMMESS ÍSTERTU
Handhægur og ljúffengur ábætir.
BLAÐA- OG SÆLGÆTISSALAN H.F.
Skíði m. stálköntum
allar stærðir
Skíði án kanta
Unglingaskíði
Barnaskíði
Skíðastafir,
allar lengdir
SKÍÐASLEÐAR
BAKPOKAR
SVEFNPOKAR
JÁRN- OG GLERVÖRUDEILD
V;W- í vís'Í' 0^ í'iW' Q**?' í '£'7'Q
& »
t , ‘ t
\! Alúðarkveðjur og pahkir til allra peirra, er sýndu '£
I okkur vinsemd á margvislegan hátt á sjötugsafmcelun- |
? um 27. jaríúar og 3. febrúar. •?
| SIGRÍÐUR JÓNSDÖTTIR og §
f : : STEFÁN BENEDIKTSSON. " f
v;?
Fósturmóðir mín
GUÐRÚN FILIPPIA PÁLSÐÓTTIR
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu, laugardaginn 4.
febrúar. — Úlför fer fram frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 14. febrúar kl. 2 e. h.
Kristján Kristjánsson.
Faðir okkar
KRISTINN JÓNSSON
bóndi í Möðrufelli, Eyjafirði,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akux'eyri hinn
6. þessa mánaðar. — Jarðarförin ákveðin síðar.
Börnin.
KÁRI PORSTEINSSON
bóndi á Hólum, Öxnadal,
lézt að heimili sínu fimmutdaginn 2. febrúar. — Jarð-
arförin ákvcðin að Bakka laugardag 11. þ. m. kl. 2 e.h.
Vandamenn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarða.rför
JÓNU SIGURDARDÖTTUR
Sérstaklega þökkum við konum í Kvennadeild
Slysavarnalélagsins fyrir þeirra hjálp og vinsemd.
Astandendur.
| DÁNARDÆCUR |
KÁRI ÞORSTEINSSON, bóndi
’á Hólum í Oxnadal varð bráð-
kvaddur að heimili sínu 2. febr.
KRISTINN JÓNSSON, bóndi
á Möðrufelli í Eyjafirði andað-
ist á Fjórðungssjúkrahúsinu á
mánudaginn 6. febi'úar.
Bæði Kári og Kristinn voru
hinir mætustu menn og meðal
mestu atorkubænda héraðsins.
Þeirra verður væntanlega
getið nánar síðar hér í balðinu.
□
Norðurlandsmóti
í körfuknattleik
lauk um síðustu helgi. Fjögur
lið tóku þátt í mótinu, 2 frá KA,
1 frá Þór og 1 frá ÍMA.
A-lið KA sigraði og vann nú
í þriðja sinn, fagran grip, er
K. F. R. hefur gefið til þessarar
keppni.
Úrslit einstakra leikja urðu:
KA a-lið vann Þór 95—60
KA a-lið vann ÍMA 133—56
KA a-lið vann KA b 110—42
Þór vann ÍMA 105—41
Þór vann KA b-lið 43—41
KA b-lið vann ÍMA 49—36
Stighæstu einstaklingar urðu
Hörður Túlinius með 138 stig,
Ingólfur Hermannsson 109 stig
og Axel Clausen 69 stig. □
STOFUSKÁPUR
(lakkaður)
með renniglerjum, fata-
hengi og liillum, er til
sölu. — Skápurinn er sem
nýr. — Verð kr. 2.500.00.
Uppl. í síma 2388
eftir kl. 7 á kvöldin.
FATASKÁPUR
með, hillum og hengi fæst
í Laxagötu 2, norðurenda
á efri hæð. — Tækifæris-
verð. — Til sýnis eftir kl.
7 að kvöldi. — Sími 2413.
ATVINNA!
Iðnmeistari óskar eftir fé-
la'ga, sem veitt gæti for-
stöðu verzlun í sambandi
við fyrirtækið og- ráð
hefði á einhverju rekstr-
arfé. — Tiiboð sendist af-
greiðslu Dags, merkt
„Atvinna“.
STÚLKUR
Vantar tvær stúlkur nú
þegar.
Kexverksmiðjan Lorelei
ELDRI-D AN SA
KLÚBBURINN
heldu.r dansleik í' Lands-
bankasalnum, laugardags-
kvöldið 11. þ. m. kl. 9 .—
Miðasala á föstudagskv.
frá kl. 8—10 og við
Stjórnin.
ínnganginn.
I. O. O. F. — 1422108V2 -r-
I. O. O. F. Rb. 2 — 110288V2 —
□ Rún.: 596128.: Fundur fcll-
ur niður.
„Faðirinn.“ Biblíulestur n. k.
laugardagskvöld kl. 8.30 að
Sjónarhæð. Allir velkomnir.
Sæmundur G. Jóhannesson.
Messað í Akureyrarkirkju á
sunnudaginn kemur kl. 2 —
Sálmar nr. 575, 434, 588, 596,
603 og 681. — Altarisganga
verður í messunni. B. S.
Messað í Lögmannshlíðar-
kirkju á sunnudaginn kl. 2 e.h.
(Föstuinngangur.) Sálmar nr.
390, 330, 434, 424 og 232. Altaris
ganga. — Stutt stund með börn
unum eftir messu. — Strætis-
vagninn fer úr Glerárhverfi kl.
1.30. P. S.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju er á sunnudaginn kemur
kl. 10.30. Yngri börn í kapell-
unni, en eldri í kirkjunni.
Zion. Sunnudaginn 12 febr.
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h. —
Samkoma kl. 8.30 e. h. — Þórir
Guðbergsson talar. — Allir vel-
komnir.
Stúlknafundur kl.
8.30 í kvöld (mið-
vikudag). — Fundur
í Málfundarklúbbn-
um kl. 8.30 fimmtudag. Veiting-
ar að loknum umræðum. —
Drengjafundur laugardag kl.
8.30. — Allt í kapellunni
Stjórnin.
Hjálpræðisherinn. Samkom-
urnar halda áfram í Samkomu-
húsinu Zion, miðvikud. og
firnmtud. kl. 8.30. — Cand.
theol. Erling Moe og söngpred-
ikarinn Thorvald Fröytland
tala og syngja. Majór Óskar
Jónsson, kapt. Dybvik og her-
mennirnir taka þátt. — Allir
velkomnir.
Að gcfnu tilefni vil ég til-
kynna, að símanúmer mitt er
2210. Viðtalstími kl. 6—7 e. h.
alla virka daga. Skírnarvottorð
afhent þá. Birgir Snæbjörnsson.
Áskorun. Kvenfélagið „Þing-
ey“ skoi-ar á félagskonur, bæjar
búa og bæjaryfirvöld, að vinna
af alefli, að bættri umgengni á
almannafæri.
MiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiuiiiiiKtiiiiiiiiiia
I B0R6ARBÍÓi
| Sími 1500
| Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 ;
í Ný þýzk kvikmynd. i
i Framhaldið af „Trapp- 1
fjölskyldunni“
I Trapp-fjölskyldan I
í Ameríku
1 Bráðskemmtileg og gull- \
\ falleg ný, þýzk kvikmynd í i
: litum, byggð á endurminn- i
i ingúm Maríu Trapp, barón- i
i essu. — Þessi kvikmynd er i
: beint framhald af myndinni |
i „Trapp-fjölskyldan“, sem \
i var sýnd hér síðastl. vetur i
við metaðsókn. =
Danskur texti. i
I Aðalhlutverk: i
l RUTH LEUWERIK
í HANS HOLT
i Þetta er mynd fyrir alla i
1 fjölskylduna.
«II|IIIIIIIIIIIII|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||7
Hjónaefni. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína ungfrú Hild-
ur Mary Sigursteinsdóttir, síma
mær, og Níels Brimar Jónsson,
verzlunarmaður.
Hjónaefni. Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína Rósn Þor-
steinsdóttir og Badur Hólm-
steinsson, sjómaður, bæði til
heimilis á Raufarhöfn.
Hjúskapur. 2. febr. voru gef-
in saman í hjónaband, ungfrú
Sigurrós Rósantsdóttir og Óli
Pálmason, iðnverkamaður.
Heimili þeirra verður að Gler-
áreyrum 7, Akureyri.
Hjúskapur. Síðastl. sunnudag
voru gefin saman í hjónaband
brúðhjónin ungfrú Bryndís
Kristinsdóttir, tannlæknir,
Brekkugötu 30, og Þórður Ósk-
arsson, gjaldkeri, Reykjavík.
Heimili þeirra verður að Sörla-
skjóli 90, Reykjavík.
Menningar- og friðarsamtök
í'sl. kvenna, Akureyrardeild,
heldur félagsfund sunnud. 12.
þ. m. kl. 3.30 e. h. að Ásgarði
(Hafnarstræti 88). — Félags-
konum heimilt að taka með sér
gesti. Stjórnin.
Frá Rakarastofu Sigtryggs og
Jóns. Höfum aftur opið á
fimmtudögum.
Áfengisvarnanefnd og Um-
dæmisstúka Norðurlands opna
á ný skrifstofu í Hótel Varð-
borg (herbergi nr. 65). — Verð
ur hún opin mánudaga og föstu
daga frá kl. 8—10 e. h. — Sími
1642.
Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins sendir öllum bæjarbú-
um, sem á einn eða annan hátt
styrktu fjáröflun deildarinnar
fyrra sunnudag, beztu þakkir.
— Sérstaklega viljum við þakka
framkvæmdastjóra K. E. A. ó-
metanlega fyrirgreiðslu, sömu-
leiðis hótelstjóra og starfsfólki
Hótel KEA svo og Brauðgerðar.
— Einnig þökkum við hljóm-
sveitinni „Ásarnir“ fyrir þeirra
framlag til fjáröflunarinnar. —
Inntektir dagsins voru 36.500
krónur.
I. O. G. T. St. Ísafold-Fjall-
konan.nr. 1, hefur fræðslu- og
skemmtikvöld að Bjargi laugar
daginn 11. febr. nk. fyrir félaga
og gesti þeirra. Aðgöngumiðar
verða afhentir á fundi stúkunn-
ar nk. fimmtudagskvöld.
Framkvæmdanefnd.
I. O. G. T. St. Ísafold-Fjall-
konan nr. 1, heldur fund að
Bjargi fimmtud. 9. febr. nk. kl.
8.30. Fundarefni: Vígsla nýliða,
rætt um fyrirhuguð fræðslu-
og skemmtikvöld, hagnefndar-
atriði fjölbreytt og skemmtileg.
Mætum stundvíslega.
Æðstitemplar.
Iðnnemar! Munið málfundinn
föstudaginn 10. febr. í Túngötu
2 kl. 9 e. h. Stjóvnin.
f. B. A. hefur nú opnað
skautasvellið aftur og verður
reynt að halda því við eftir því
sem veður leyfir. — Svellið
verður opið fyrir almenning e.
h. kl. 2—6 og 8—10, en kl. 6—8
hefur Skautafélag Ak. svellið
til kennsluæfinga. Munu skauta
félagsmenn veita þar tilsögn í
listhlaupi, íshockey og skauta-
hlaupum. — Fólk er eindregið
hvatt til að nota sér þessa
kennslu.
Áheit á Grenjaðarstaðar-
kirkju: Frá ónefndum kr. 300.
00, frá N. N. kr. 300.00. — Beztu
þakkir. Ásm. Kristjánsson.