Dagur - 10.06.1961, Side 4

Dagur - 10.06.1961, Side 4
4 0------------------ TVÆR LEIÐIR „ÞAÐ ER STEFNA ríkisstjórnarinnar að það sé og eigi að vera verkefni samtaka launþega og atvinnurekenda að semja um kaup og kjör.“ Þannig hljóðaði boðskapur núver- andi ríkisstjórnar, er hún settist íjð völdum. Síðan hefur stjórnin gefið út tvenn bráðabirgðalög um bönn við verkföllum og Morgunblaðið, aðalblað ríkisstjórnarinnar, eys daglega út svæsnum áróðri í kaupgjalds- og kjaradeilum þeim, sem nú standa yfir, og hefur í franuni hótanir inn hefnd- arráðstafanir, sem geri allar kaup- hækkanir að engu. I kaupgjaldsmálum voru aðeins tvær leiðir til, eftir að sýnt var að fólk undi ekki lengur 15—20% kjara- skerðingu, sem það hafði orðið fyrir vegna beinna aðgerða ríkisstjórnar- innar. Sú fyrri og skynsamlegri var sú, að létta á einhvern hátt byrðar þær, er lagðar höfðu verið á almenn- ing, svo sem vaxtaokur, margfaldan söluskatt og stöðvun útlána. Þessi at- riði voru á valdi ríkisstjómarinnar. Hin leiðin var sú, að látast hvorki sjá eða heyra hin lélegu lífskjör og hundsa kjarabætur. Þann kostinn tók ríkisstjómin þótt því væri margoft lýst yfir að hvers konar viðleitni til að bæta hag fólksins, án beinna kaup- hækkana, myndu metin að fullu. Val ríkisstjórnarinnar var mjög óheppi- legt, svo sem vænta mátti, og ber hún því ábyrgð á öllum verkföllunum. — Þetta er hin óumdeilanlega staðreynd, sem blasir við. Um hótanir ríkisstjórnarinnar um gengisfellingu og önnur neyðarúrræði er það að segja, að þær eru út í hött, ef samð verður á svipuðum grundvelli og t. d. hér á Akureyri. Sáttasemjari ríkisins var sjálfur látinn bjóða í miðl unartillögu sinni 6%. Á Akureyri var samið um 10%. Ef mismunurinn koll- steypir öllu efnahagslífi þjóðfélagsins, hvað mætti þá segja um hag einstakl- inga, sem núverandi ríkisstjóm hefur þrengt svo mjög? Ríkisstjómin valdi sjálf kauphækkunarleiðina með því að neita algerlega að koma til móts við kjarabótakröfur fólksins og hótar þó á sama tíma nýrri gengisfellingu, bráðabirgðalögum um bann gegn verk föllum o. s. frv. Það er sérstaklega athyglisvert hve volæði og gremja stjómarblaðanna beinist að samvinnusamtökunum fyr- ir að leysa vinnudeilurnar að sínu leyti með mjög skynsamlegum samn- ingum — AÐUR EN ÖNGÞVEITI LANGVARANDIVERKFALLA OR- SAKAÐI HUNDRUÐ MILLJÓNA KRÓNA SKAÐA í IIEILD OG EIN- STAKLINGUM ÓBÆRILEG VAND- RÆÐI. Það er alveg óskiljanlegt, að ríkis- stjórninni eða atvinnurekendum tak- ist hagkvæmari samningar, en gerðir voru hér á Akureyri og voru aðeins 4% hærri en framkomin tillaga sátta- semjara ríkisins, sem aðeins náði sam þykki verkakvcnna í Hafnarfirði, en var hafnað mjög eindregið í verka- lýðsfélögimum yfirleitt. Hin norð- Ienzka Iausn er sennilega bezti fáan- Iegi grundvöllur að vinriuiríði fyrst um sinn, og hún verður að teljast sanngjörn og hófleg. Afstaða ríkis- stjórnarinnar er aftur á móti svo þver girðingsleg að engu tali tekur. □ iiiiiiiiiKiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiaiii 1111111111111111 KARL KRISTJÁNSSON, ALÞINGISMAÐUR: ... SKJÁÞYTUR SNÆDALS Á SÍÐASTA aðalfundi Kaupfé- lags Þingeyinga gerðist það, að Bjartmar Guðmundsson, sem er landskjörinn þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, var ekki end- urkosinn í stjórn kaupfélagins. Blöð Sjálftæðisfloksins hafa í smápistlum reynt að túlka þetta á þá leið, að um „pólitíska of- sókn“ hafi verið að ræða af hálfu Framsóknarmanna. B. G. sé einmitt eins og „góður sam- vinnumaður“ eigi að vera, og það séu raunar sjálfstæðismenn yfirleitt. Ekki var við öðru að búast úr þeirri átt. Þessi blöð munu hafa talið þetta skyldu sína. Þau eru nærri sjálfvirk og ómennsk tæki flokksins. Ég fyrir mitt leyti sá enga ástæðu til að svara þeim, enda verður að líta svo á, þegar þau eru rétt skilin, að nöldur þeirra í þessu efni hafi hingða til varla getað verið minna. Bragi leggur orð í belg. Alþýðumaðurinn heitir lítið blað á Akureyri, sem fáir lesa og sjaldan er getið. Það segist vera Alþýðuflokksblað. Rit- stjóri þess er Bragi Sigurjóns- son, náfrændi Bjartmars og mjög viðkvæmur fyrir ætt sinni, og þá auðvitað sjálfum sér. Þessi frændrækni maður virð ist nú hafa ættleitt Sjálfstæðis- isflokkinn eins og hann leggur sig. Á sá flokkur þar hauk í horni, en maðurinn fullt í fangi sem vonlegt er. Bragi Sigurjónsson taldi sér að sjálfsögðu skylt að láta Al- þýðumanninn taka undir við blöð Sjálfstæðisflokksins um kosninguna í stjórn K. Þ. Reit hann grein, er hann nefndi hvorki meira né minna nafni en: „Héraðsbyggð á háskaslóð- um“ (Alþm. 16. maí). í þetta sinn var B. S. létt um, af því að hann er sjálfur varan- lega sárgramur Þingeyingum fyrir að hafa hafnað sinni for- ustu, sem hann hefur árangurs- laust, hvað eftir annað, boðið fram. Þá byggð, sem það gerir, telur slíkur maður vitanlega háskanum ofurselda. Verður B. S. Sjálfstæðisflokkurinn þarna mjög nákominn og samgróinn „ættingi“. Sína gremju reynir hann samt að fela með heim- spekilegum vangaveltum, t. d. um öldur hafsins, og méð gerfi- sagnfræði, en tekst það ekki, þó ritfær sé. Hans lítilmótlegi „eig- in harmur“ blasir við augum í greininni, — og þar af leiðandi er hún andsvar við sjálfri sér. Útaf henni þurfti ekki að skrifa. Snædalsþáttur. Hinn 26. f. m. birtist í blað- inu íslendingi grein frá Húsvík ingi, Þórhalli B. Snædal. Nefnir hann skrif sitt „Hneykslið í K. Þ.“ „Nú þaut í þeim skjá, sem þúsund eru götin á“, mátti með sanni segja. Til gamans og fróðleiks má geta þess, að Þórhallur B. Snæ- dal mun vera formaður félags Sjálfstæðismanna á Húsavík. Þarna gefur því að líta topp- hæð. Grein Snædals er að nokkru leyti sett upp eins og hún eigi að vera staðreyndaskýrsla og beinar fréttir af síðasta aðal- fundi K. Þ. Þessvegna getur hún vilt um fyrir ókunnugum, ekki sízt, ef menn vita, að Snæ- dal var fulltrúi á fundinum. (Mætti sem varafulltrúi). Varla er hægt að búast við, að menn að óreyndu varist ó- sannsöglina og ótugtarskapinn, sem í greininni felst, þótt grunn færnin leyni sér ekki. Eg tel mér skylt að benda opinberlega á nokkur dæmi, ó- kunnugum til upplýsingar og Snædal til áminningar og við- vörunar. Haft skal í huga gagnvart hon um, að ekki á við mikil hlaup- vídd, hvað hann snertir. Hagur K. Þ. Snædal segir: „Á þessum síðustu og verstu tinuun „móðuharðinda af mannavöldum“ er þó gleðilegt að heyra, að K.Þ. hefir yfir að ráða gildum sjóðum og góðum innstæðum." Ég tek undir það með Snæ- dal, að K. Þ. er vel stætt félag. Hinsvegar felst meira en það í hinum tilvitnuðu setningum, og skal ekki fram hjá því gengið. Ég hefi nokkrum sinnum vitn að til þeirrar réttmætu, þungu ásökunar, er fólst í líkingamáli þingeyska bóndans, sem sagði í fyrra haust: „Það er hart að þurfa að lifa móðuharðindi af mannavöldum“. Þessi orð bóndans hafa snert opin sár hinnar pólitísku sam- vizku hjá sumum Sjálfstæðis- mönnum eins og logandi glóðir. Þeir eru sífellt að reyna að hrinda þeim af sér, þó að þeim takist það ekki og sviðinn vaxi við rótið í hvert sinn. Snædal meinar að fjárhagur K. Þ. sanni að efnahaggsaðgerð- ir ríkisstjórnarinnar líkist eng- um „móðuharðindum“. En hann gætir þess ekki að fyrr mætti nú vera „móðuharðindi af mannavöldum“ en öflugt fyrir- tæki eins og K. Þ. bugaðist á einu ári, ekki sízt, þegar veður- gott, framleiðsla því afarmikil í landbúnaði, og sjávarafli óvenjulega mikill á félagssvæð- inu. Hagurinn hefði átt að blómgast meira en nokkru sinni ef allt hefði verið með felldu og ekki harðindi af manna- völdum. Þau harðindi fóru með góðæri náttúrunnar í súginn. Snædal grautar með ýmsar tölur úr ársskýrslu kaupfelags- stjórans og félagsreikningunum, sem útbýtt var samkvæmt venju á fundinum til allra fund armanna. Ekki nenni ég að hreinsa þann graut hans, enda er þetta auka sletta. Aðalatriðið á að vera eins og fyrirsögnin bendir til „hneykslið í K. Þ.“. Og hvað er „hneykslið"? „Hneykslið“ á að vera að Bjartmar Guðmundsson var ekki endurkjörinn í stjórn K. Þ. — og fundurinn, sem kaus hann frá, samþykkti ekki til hans, óframbærilega hugsað og samið þakkarávarp, sem kastað var inn á fundinn. Hvers vegna var B. G. ekki endurkosinn? Enginn vafi er á því, að ástæðan er sú, að honum er vantreyst til að vera — eins og nú er komið — svo heil- steyptur samvinnumaður, að rétt sé að fela honum stjórnar- umboð í félaginu. Ymsar atkvæðagreiðslur hans á Alþingi gefa fullt tilefni til þessa vantrausts, og einnig orð, sem hann hefur opinberlega látið falla um málefni samvinnu félaganna. Strax á framboðstíma sínum haustið 1959, gerði hann K. Þ. að umtalsefni sínu í blaðavið- tali á óviðeigandi hátt og með ósannindum. Eftir að hann bauð sig fram til þings og þar til hann fór úr stjórn K. Þ. í vor, voru haldnir tólf fundir í stjórn félagsins og tveir aðalfundir í félaginu. Bjartmar mætti ekki á sjö stjórnarfundum og hann mætti á hvorugum aðalfundinum. Við sátum báðir á Alþingi þetta umrædda tímabil og vor- um því svipað settir til þess að mæta vegna K. Þ. En ég mætti á öllum fundunum, nema þrem félagsstjórnarfundum. Þessi mikli mætingamunur sannar, að áhugi B. G. var — vægast sagt — ekki í góðu lagi. Margir áttu von á því, að B. G. mundi segja af sér félags- stjórnarstarfinu, en það gerði hann ekki. Víst hefði það verið nokkur drengskapur. Ég er þess fullviss, að allir óhlutdrægir menn sjá og skilja, að eins og nú var komið, þá var eðlilegt að B. G. væri ekki endurkosinn. Regin-fjarstæða að nefna það „pólitíska ofsókn“. Sú lýðræðislega regla, að hafa fárra ára kjörtímabil, en ekki lífstíðar kjör, er einfald- lega til þess gerð, að breytt við- horf geti notið sín. Hvers vegna átti K. Þ., sem hefir innan sinna vébanda sæg af hæfum mönnum til stjórnar- starfa, að endurkjósa mann, andstæðinganna ? Kosningamar. í stjórn K. Þ. var kosinn í stað Bjartmars ættmaður Bene- dikts frá Auðnum, Skapti Bene diktsson. Hlaut hann 72 atkv. en Bjartmar 20 atkv. Vantaði þó ekki að leitað væri eftir fylgi fyrir Bjartmar. Það gerðu menn eins og Snædal. Úrslitin voru tvímælalaus. Fjölgað var í félagsstjórninni um tvo menn (úr 5 í 7). Þegar Snædal segir frá því, stillir hann sig ekki um að geta þess, að annar þeirra sé Alþýðu- flokksmaður. Hvers vegna talar hann um þetta? Ekki bendir Karl Kristjánsson, alþingism. kosning á Alþýðuflokksmanni í stjórnina til þess, að framsókn- armenn kjósi sína flokksmenn eingöngu í trúnaðarstöður félagsins. Hvað kemur það málinu við frá sjónarmiði því er Snædal telur sig hafa hvaða stjórnmálaflokki maður þessi tilheyrir? Þarna skauzt út úr Snædal öfugsönnun. Svona er skjárinn götóttur. ÆðikoIIurinn ærist. Snædal segir frá því, að Vemharður Bjamason, sem er mjög skjótráður, snaraði fram svohljóðandi tillögu, þegar kom ið var í ljós, að Bjartmar hafði ekki náð endurkosningu: „Þar sem Bjartmar Guð- mundsson, alþingismaður, hefir ekki hlotið endurkjör í stjórn K. Þ. , þá vill fundurinn þakka Bjartmari heillarík stjórnar- störf þau 24 ár, sem hann hefur setið í stjórn K. Þ.“. Snædal segir: „Þessi tillaga' V. B. virtist koma eitthvað illa við hinri „félagslega þroskaða“ stjórnarformann, Karl Kristjáns son. Hófst nú mikið málþóf við „pontuna“ milli Vernharðs og Karls“. Hér skrökvar Snædal þannig, að auðvelt er að sanna á hann lygina. Milli okkar Vernharðs varð ekkert málþóf. Fundarrit- ararnir geta manna bezt borið um þetta. Hér er yfirlýsing frá þeim: „Við, sem vorum fundarritar- ar á síðasta aðalfundi Kaupfé- lags Þingeyinga á Húsavík og sátum rétt hjá borði fundar- stjóra, vottum hér með, að ekk ert málþóf átti sér stað á milli fundarstjóra, Karls Kristjáns- sonar, alþingismanns, og Vern- harðar Bjamasonar, er hinn sið arncfndi afhcnti honum tillögu sína um þakkir til handa Bjart- mari Guðmundssyni alþingis- nianni vegna setu hans í stjóm K. Þ. 30. maí, 1961. Páll H. Jónsson, Áskell Sig- urjónsson.“ Mega lesendur af þessu sjá, hve lítið er að marka orð þessa manns. Afgreiðsla tillögunnar. Allir sæmilega vitibornir menn sjá hversu óframbærileg og fáránlega gerð tillaga V. B. er. Fylgisleysi á að vera for- senda þakklætis. Tillagan er eins.og samin handa Speglinum. Meii-i ógreiða var ekki hægt að gera Bjartmari þarna. V. B. var beðinn að taka til— löguna aftur, „hvað Vernharði að sjálfsögðu datt ekki í hug að gera,“ segir Snædal. far ársins var með fádæmum sem hefir tekið ser stöðu í hopi 5 Ég hélt fyrst, að V. B. mundi vera einn um flumbruháttinn og kenndi hans kunnu fljót- færni afglöpin. En nú hefur Snædal lýst velþóknun sinni á tillögunni. Undarleg og stór eru sum göt in á þeim skjá. — Fjórir fundarmenn tóku sig til, eftir að V. B. hafði neitað að taka tillöguna aftui', og lögðu fram svofellda, rökstudda dag- skrártillögu: „Þar sem fundurimi lítur svo á, að nýafstaðnar kosningar í félagsstjórn hafi markað nægi- lega skýra afstöðu til þessa máls, sem hér liggur fyrir, tek- ur fundurinn fyrir næsta mál á dagskrá.“ Tillögumennirnir voru: Þrá- inn Þórisson, skólastjóri frá Baldursheimi, Ingi Tryggvason, kennari og bóndi á Kárhóli, Steingrímur Baldvinsson, kenn ari og bóndi í Nesi, Þórólfur Jónsson, bóndi í Stórutungu. Enn var óskað að V .B. tækj tillögu sína aftur, — og hann neitaði. Ég lýsti yfir sem fundarstjóri, að ég leyfði ekki umræður um tillögurnar. Lái mér það hver sem getur að vilja ekki stofna til deilu á svo fjölmennum, opn um fundi um svo persónulegt mál. Dagskrártillagan var sam- þykkt með 69 atkv. gegn 7 atkv. — svo skýr var afgreiðslan. i Bágt á ég!i:.með að skilja, hvers vegna Snædal vill koma frásögn um þesga frammistöðu sína: og sinna í blöðin. Hér átti þó sannarlega við það, sem Sig- pjjón Friðjónsson kvað: „Bezt erij. fá orð um frostið í fáráðri mannsins sál.“ Sagnfræði Snædals. Bjartmar var fyrst kosinn í stjórn K. Þ. árið 1937. (Sú kosn ing á sína skrýtnu sögu, sem lesa má í gjörðabók K. Þ. frá þeim tíma, en hún kemur ekki þessum Snædalsþætti við.) Snædal segir: „Þegar á öðru ári eftir að Bjartmar kom í stjórn K. Þ. eða árið 1938, gerði Karl Kristjáns- son tilraun til að koma honum úr stjórninni, en tókst ekki fyr- ir harðfylgi þáverandi kaup- félagsstjóra“ o. s. frv. Þetta er þvaður. Fyrsta kjör- tímabil B. G. stóð til 1940. Þá segir Snædal enn fremur að Bjartmar hafi komið inn í stjórnina, „þegar kaupfélagið var í hinum mestu þrengingum eftir framkvæmdastjórn Karls Kristjánssonar.“ Hér hagar Snædal af óheiðar- leika sínum orðum þannig, að þeir, sem ekki vita betur, skuli halda, að ég hafi með fram- kvæmdastjórn minni komið K. Þ. í hinar mestu þrengingar. Þarna notar hann aðferð ómennisins. Út af þessu níð- höggi vil ég taka fram eftirfar- andi: Ég tókst á hendur fram- kvæmdastjórn K. Þ. um mitt ár 1935 fyrir tilmæli forráðamanna félagsins og hafði hana á hendi til ársloka 1936. Verkefni mitt var miðað við að leysa félagið úr miklum þrengingum, sjá um uppgjör félagsins, koma á breyttum starfsreglum og hefja nýja sókn í starfsemi félagsins. Um þetta er hægt að lesa í bók- inni „Saga Kaupfélags Þingey- inga“, sem Jón Gauti Pétursson ritaði og gefin var út 1942, — eða litlu síðar. Ég skilaði af mér á aðalfundi 1937. í sambandi við frásögn í fundargerð aðalfundarins af skilagrein minni, er bókað, að mér hafi þar verið þakkað: „fyr ir að hafa sýnt þá fórnfýsi að takast á hendur framkvæmda- stjórastarfið á svo erfiðum tíma fyrir K. Þ. sem kunnugt er og leysa það svo vel af hcndi sem nú er sýnt“. (Það, sem er inn- an gæsalappa, er orðrétt tekið upp úr gerðabókinni.) Ekki skal ég gera þetta að frekara umtalsefni. En skjöl K. Þ. geyma um þetta margar heimildir. FuIItrúar á aðalfundum K. Þ. Fulltrúatalan er um 100. Full trúarnir eru kosnir í deildum félagsins og deildirnar eru 10 talsins, — ein í hverju byggðar- lagi. Um fulltrúana segir Snædal, að „flestir“ „mæti“ þeir „á að- alfunduin K. Þ. eftir sérstakri pöntun hins „féIagsþroskaða“ K. K..“ Aumingja fáráðlingurinn! Þessu slöngvar hann framan í hina mörgu fulltrúa og allt fólkið, sem hefur kosið þá í deildunum, og veit að þetta er lygi- Ég mætti aðeins á fundi í þeirri deild, sem ég er skráður félagsmaður í, og hafði engin afskipti af öðrum fundum. Snædal gerir sér líklega von ir um, að einhverjir utan héraðs trúi honum, — og þá er það til- vinnandi að gera sig að ósann- indamanni í augum kunnugra, finnst honum. Það er stutt á milli gatanna á skjánum. Hversvegna lætur Snædal þjóta í skjánum? Hann getur ekki annað vegna gatanna, sem á honum eru. Honum hafa orðið þessir smá- munir eins og stórviðri, að Bjartmar, pólitískur flokksbróð ir hans, var ekki endurkosinn í kaupfélagsstjórnina. Hann vill með skrifinu um að „hneyksli" hafi átt sér stað — eins og Vernharður með Speg- ilhæfu tillögunni — sýna B. G. að hann eigi sig þó að. Engu skal um það spáð, hvort B. G. tekur viljann fyrir verkið, en verkið hefur hann áreiðan- lega ekki ástæðu til að þakka. Hávaði er honum ekki til fram- dráttar í þessu sambandi. Hann hefur skipt um og skipað sér í sveit andstæðinga samvinnu- hreyfingarinnar. Samkvæmt lög málum lýðræðisins er eðlilegt, að samvinnuhreyfingin hætti að láta hann sitja í stjórn hjá sér og fara með umboð fyrir sig. Aftur á móti munu kaupmenn og heildsalar gera það, ef þeim þykir hann þá nógu kraftalegur. „Vinnirðu einn, þá týnirðu hinum", segir Einar Ben. Kunningjar og frændur Bjart mars í þessu héraði skilja yfir- leitt rétt þetta, sem gerzt hefur. Það er þeim til sóma. Þeir hafa „fá orð um frostið“. Gömul og ný saga. Bragi Sigurjónsson segir í sinni grein, sem ég hef áður nefnt: „Sú var tíðin að Þingeyjar- sýsla var á orði um allt land fyrir vel mennt, víðsýnt og fé- Jagslega þroskað foringjalið.“ Bragi hælir þessu foringjaliði, svo sem verðugt er, fyrr það hve vel það hafi haldið á mál- um. En fyrir hvað gat það haldið þannig á málunum? Því tókst þetta m. a. vegna þess, að það kaus frá sér, and- stæðinga og tvíveðrungsmenn, sem á þeim tímum eins og nú, vildu fá að hafa hönd í bagga — og fara með umboð í liðinu. Andstæðingarnir voru ó- ánægðir með þau kosningaúrslit þá ekki síður en nú. Saga K .Þ. geymir um þetta lærdómsrík dæmi. Hinn frændrækni Bragi og söguhneigði ætti að kynna sér þetta. Hann gæti byrjað á því að athuga, hvort hann finnur ekki dæmi þessa fyrrum í sögu sinnar eigin ættar. Ættleiddi „ættinginn“ hans, hann Snædal, hefði þar á eftir gott af fræðslu frá honum um þetta. Það veit ég að Bragi séx-, hvað sem Snædal sjálfum kann að finnast. Húsavík, 4. júní 1961. Karl Krístjánsson. Nýjar Kvöldvökur í NÝÚTKOMNUM Kvöldvök- um skrifar séra Benjamín Krist jánsson um Björgvin Guð- mundss., tónskáld, Einar Bjarna son greinina íslenzkir ættstuðl- ar, Þormóður Sveinsson á þarna ritgerð er hann nefnir Síðustu orrustuna á íslandi og Þura í Garði ritar Gamalíelsþátt Hall- dórssonar. Þá er fi-amhald Sjálfsævisögu Jónasar í Hof- dölum, framhaldssaga o. fl. □ Garðyrkjuritið ÁRSRIT Garðyrkjufélags ís- lands 1961 er komið út. Það er nær 80 blaðsíðu bók, mjög fjöl- breytt að efni, því gi-einar eru jafn margar og blaðsíðurnar. Ritstjórinn, Ingólfur Davíðsson, skrifar flestar greinarnar, en aðrir höfundar eru: Óli Valur Hansson og Arnaldur Þói-. Margar myndir prýða ritið. □ t SAMVINNAN MAÍHEFTI Samvinnunnar flyt ur m. a. greinina Konurnar og kaupfélögin eftir Guðm. Sveins son, Úr fórum jökulfara eftir Ö. H. og kvæðið Gvendarkarga eft ir Sigurð Þórarinsson. Þá er við tal við Ei-lend Einarsson for- stjóra, framhaldssaga, fræðslu- og skemmtiþættir, Hugleiðing um kornu páska og sumars eftir Guðmund Sveinsson og ýmis- legt fleira. lllllllll•llll■■IIMII•ll•l■ll•l•■lll■t•l■■•ll■lll 111111111 60 ARA • lllllllllll IIIIIIIIIII111111111111IIIIII M••I■•I■IIMII•■• Séra Benjamín Krisfjánsson EINN AF KUNNUSTU og lærð ustu mönnum í prestastétt er sextíu ára á morgun. Séra Benjamín Kristjánsson er fæddur 11. júní 1901 að Ytri- Tjörnum í Eyjafirði. Foreldi-ar hans voi-u hjónin Kristján Helgi Benjamínsson bóndi þar Fló- ventssonar og Fanney Friðriks- dóttir frá Brekku í Kaupangs- sveit. Eru þau nú bæði látin. Séi'a Benjamín varð gagn- fræðingur á Akureyri 1920 og stúdentsprófi lauk hann frá Menntaskólanum í- Reykjavík 1924. Guðfræðipi'óf við Háskóla íslands tók hann 1928. En við framhaldsnám í samstæðilegri guðfræði var hann 1925—26 í Kaupmannahafnarháskóla — og árið 1937 í Englandi við háskól ana í Cambridge og Oxford. Hann fór til Ameríku og gerð ist prestur Sambandssafnaðar í Winnipeg á árunum 1928—1932, en kom þá til íslands og var vígður til Grundarþinga 13. nóv. 1932. Síðan hefur hann þjónað hinu víðáttumikla presta kalli, og notið mikillar virðing- ar og vinsælda sóknarbarna sinna. Ásamt séra Benjamín kom í guðfræðideildina . stór hópur stúdenta, er setti svip á félags- líf háskólans og síðan kii’kjuna alla eftir að hann og bekkjar- bræður hans komu þar til starfa. Þá lék sterkur stormur efnishyggjunnar um hið and- lega og hið trúarlega líf þjóðar innar. Guðsafneitunarstefnan frá Brandesarsinnum var ofar- lega á baugi meðal mennta- manna og nýguðfi-æðin kom sem mótvægi. Séra Haraldur Níelsson prófessor hafði stei'k áhrif á nemendur sina, og man ég glöggt, hve faðir minn mat hann mikils. Séi-a Benjamín var og er einn í hópi hinna skeleggu baráttumanna og jafnan hefur hann látið mikið til sín taka í guðfi-æðilegum viðhorfum og sjónarmiðum innan kirkjunnar. Á skólaárum mínum fékk ég að kynnast séra Benjamín og heimili hans. Ex-u mér minnis- stæðar stundirnar, þegar pi-est- ar komu þar saman, og ég hlust aði á séra Benjamín. Eitt skeið var hann kennari minn í há- skóla, er hann kenndi tímabil fyrir séra Magnús Jónsson pró- fessoi'. Hann nýtur sín vel í kennarastóli sem og í kenni- mannsstai'fi, — og við ritstörf sín. Fyrir þau er hann löngu þjóðkunnui'. Oft hefur séra Benjamín far- ið utanlands í erindum fyrir kii'kjuna og til vísindastai-fa, auk námsferða á skólaárum. — Árið 1952 fór hann sem fulltrúi á annað alheimsþing lútersku kirkjunnai-, sem haldið var í Hannover í Þýzkalandi og í þeirri för kynntist ég honum sem góðum og skemmtilegum fei'ðafélaga, er jafnan var í'eiðu búinn til hjálpar, er á þurfti að halda. Einnig var séi'a Benja- mín fulltrúi kii-kjunnar á þriðja alheimsþinginu í Minneapolis í Bandarikjunum árið 1957. — Þá fór hann, eins og kunnugt er, vestur um haf til fræði-iðkana, er ráðizt var í það stórvirki að safna æviatriðum Vestur-íslend inga. Og nú hefur hann séð um undirbúning á útgáfu æviágrip anna, sem er mikið rit, og vænt anlegt á bókamai-kaðinn næstu daga. Annað bindi þeirrar bók- ar mun þegar vera undirbúið til prentunar frá hans hendi. Séra Benjamín er mikill fræðimaður, ættfi-æðingur og afkastamikill í'ithöfundur. Hann les mikið og á mikið bókasafn. Hygg ég, að það muni vera með stærstu bókasöfnum í eigu ein- staklinga hér á landi. Hann hefur verið kennari við Húsmæðraskólann á Lauga- landi síðan 1932 og sömuleiðis annazt kennslustörf í barna- skóla sveitarinnar. Ýms trúnað arstörf hefur hann haft með höndum fyrir sýsluna og byggð arlagið ,t. d. átt sæti f yfirskatta nefnd Eyjafjarðarsýslu í mörg ár. Séra Benjamín er kvæntur frú Jónínu Björnsdóttur bónda og skipstjóra á Kai'lsstöðum í Fljótum, hinni ágætustu konu, og hafa þau alið upp fóstui'dótt- ur, Þóru Bjöi'k Ki'istinsdóttur. Prestsheimilið á Laugalandi er rnjög fagurt og indælt. Á þessum mei'ku tímamótum vilj- um við hjónin þakka margar á- nægjulegar stundir á heimili þeirra, og ég veit að ég má einn ig . gera það fyrir hönd hinna mörgu, sem hafa notið framúr- skarandi gestrisni þeiri'a bæði fyrr og síðai'. Vináttu séra Benjamíns er gott að eiga. Oft hafa leiðir okk ar legið saman á undanförnum árum og alltaf er jafngaman að hitta hann. Hann er ávallt hi'ess og glaður, frjálsmannlegur í framkomu og hispurslaus. Þann ig setur hann svip á umhvei'fi sitt. Ég árna þér heilla, kæri vin- ur og starfsbróðir, á merkum tímamótum ævinnai'. — Bless- un Guðs vaki yfir þéi', ykkur hjónunum, heimili ykkar og störfum öll ókomin æviár. Pétur Sigurgeirsson. MIIIIIIIIIIMIMIIIIIIIIIMIIIIIIMIIIMMMIIimilllllllllMMI* IDagur1 * kemur út miðvikud. 14. júnl.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.