Dagur - 10.06.1961, Blaðsíða 7
Bezl'ii
'/ • i
# *
Uýi tímÍMxviIl þf~otta.vél
pvottsi-vólia skxlar
ta-uiiru fallegustu,
Mloeear xiota& er
-þvo tbéLdvft.
Perla. veriuiar
Peruiuraaðr ,ert er
óvinu.r áb.reiriíiida.
© j
£ Bezíu þakkir fœri ég öllum, scm minntust min d ->
£ fimrntugsafmcelinu 26. mai síðastliðinn. ^
i í
SIGURGEIR TRYGG VASON, Svcrtingsstöðum. J
"f , . ■j'
Faðir minn
ANDRÉS GUÐMUNDSSON
andaðist að heimili mínu, Kotá, Akureyri, 3. þ. m. —
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn.
13. þ. m. kl. 2 e. li.
Fyrir hönd vandamanna,
Sigurhjörg Andrésdóttir.
Faðir okkai', tengdafaðir og afi
EINAR SVANBERG EINARSSON,
Grænumýri 11,
sem andaðist 4. júní sl. verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju mánudaginn 12. júní kl. 2 e. h.
Svanbjörg Svanbergsdóttir, Ardís Svanbergsdóttir,
Magnús Þórisson og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi
KRISTJÁN TRYGGVI JÓNASSON
frá Kjarna
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mið-
vikudaginn 7. þ. m. — Jarðarförin fer fram frá Akur-
eyrarkirkju miðvikudaginn 14. þ. m. kl. 2 e. h.
Elín Einarsdóttir,
Guðríður Tryggvadóttir, Kristjana Tryggvadóttir,
Árni Árnason, Bjarni Sigurðsson,
Einar Pálmi Árnason, Valgerður Ujöidís Bjamadóttir.
aiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiitiiiit
I BORGARBÍÓI
i Sími 1500 I
§ Aðgöngumiðasala opin írá 7—9 I
| EL HAKIM I
| LÆKNIRINN |
| Sjáið þessa ágætis mynd. |
i Síðustu sýningar um helgina. |
M U N I Ð i
kl. 5 í dag: =
I LITLA OG STÓRA 1
; Síðustu sýningar á morgun. i
«ii an iii iii ii ii ii min ii n 11111111111111111111 iii ii iiiii ii iiiii7
HtJS TIL LEIGU!
Uppl. gefur Þormóður
Helgason, BSO.
ÍBÚÐ ÓSKAST
sem fyrst. Þrennt í heimili
Uppl. í síma 1184.
LÍTIL ÍBÚÐ
TIL SÖLU
í Aðalstræti 24.
Sigríður Bjarnadóttir.
ÍBÚÐ ÓSKAST
Tvö herbergi og eldhús.
Fyrirframgreiðsla
ef óskað er.
Uppl. í síma 1652
eftir kl. 8 e. h.
Stóraukinn útflutn-
ingur til U.S.A.
SAMKVÆMT nýjum tölum,
hefur útflutningur íslendinga á
freðfiski til Bandaríkjanna
fyrstu þrjá mánuði þessa árs
hoppað úr 6.328.000 lbs. 1960
upp í 14.721.000 lbs. Eins og
endranær eru Kanadamenn
stærstu innflytjendurnir með
27.357.000 lbs. og hafa aukið söl
ur sínar um tæpar 7 milljónir
punda frá sama tímabili í fyrra.
í hundraðstölum lítur myndin
svona út: Kanada 55.4%
(62.6%), ísland 29.8% (19.0%),
Noregur 5.0% (5.9%), Danmörk
4.3% (3.5%), Vestur-Þýzkaland
2.4% (2.5%), önnur lönd 3.1%
(6.5%). Sama tímabil 1960 í
svigum. □
r 2
| Sviss tekur á móti |
[ 200 flóttamönnum |
FORSTJÓRI flóttamannahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna hefur
tilkynnt að Sviss muni taka á
móti 89 bækluðum og sjúkum
flóttamönnum ásamt fjölskyld-
um þeirra — alls 172 manns.
Þetta flóttafólk, sem nú er statt
í Austurríki og ítalíu, kemur til
Sviss í marz og apríl. Auk
þeirra verða enn valdir 28 flótta
menn, þannig að alls fá 200
manns hæli í Sviss, menn sem
eytt hafa 15 árum í flóttamanna
búðum og aldrei átt þess kost
að flytjast til nýrra heimkynni
sökum krankleiks. □
7
Messað í Akureyrarkirkju n.
k. sunnudag kl. 10.30. Séra
Björn O. Björnsson prédikar.
Sálmar: 14, 209, 137, 314 og 264.
B. S.
/5--ÍX Þeir Æskulýðsfélag-
'I%\ ar, sem ætla að taka
Þátt í kappróðri í
V V sumar, eru beðnir
um að gefa sig fram við form.
róðrarklúbbsins, Stefán Árna-
son, Glerárgötu 16, sími 2712 og
1551. — Ráðgert er, að innanfé-
lagsmót fari fram síðasta sunnu
dag í júní.
Hlífarkonur! Munið að kirkju
göngudagurinn er á sunnudag-
inn 11. júní. Nefndin.
Skipstjórnarmenn cru beðnir
um að þeyta eigi skipsflautur
að óþörfu við fuglabjörg.
Felmtraður bjargfugl ryður nið
ur eggjum og ungum. — Samb.
dýraverndunarfélaga íslands.
Handavinnusýning nemenda
Húsmæðraskólans á Laugalandi
verður laugardaginn 10. júní. —
Opin kl. 1—10 e. h.
Hjónaefni: Nýlega opinber-
uðu trúlofun sína, ungfrú Marse
lía Gísladóttir, verzlunarmær,
Fjólugötu 11, og Ólafur Jóns-
son, Reykhúsum, Eyjafirði.
Silungsveiðimenn, kastið ekki
girni á víðavang. Það getur
skaðað búsmala. — Samb. dýra-
verndunarfélaga íslands.
Brúðhjón. 1 dag verða gefin
saman í hjónaband í Grundar-
kirkju af séra Pétri Sigurgeirs-
syni, ungfrú Helena Eyjólfsdótt-
ir og Finnur Eydal.
Aðalfundur Framsóknarfélags
Akureyrar 1961 verður haldinn
í Rotarysalnum á Hótel KEA
n. k. miðvikudagskvöld kl. 8.30.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kosn
ing fulltrúa á kjördæmisþing að
Laugum 18. þ. m.
r
Arsrit Ræktunarfél.
Norðurlands
FYRSTA TIL ÞRIÐJA hefti er
komið út og verður ekki annað
séð, en ritstjórinn, Ólafur Jóns-
son, ráðunautur, sé alltaf að fær
ast í aukana sem leiðtogi í land
búnaðarmálum.
Rit þetta er um 170 síður og
þess virði að það sé lesið. Eftir
ritstjórann eru þessar greinar:
Kýr og kindur, Lauslegar ábend
ingar um lífsþarfir fóðurjurta,
Ástungur, Eftirlit og kynbætur
o. fl. Þá er þýdd grein um líf-
fræði, mannssálina og þjóðfé-
lagslega uppbyggingu eftir dr.
Holger Möllgárd og Steindór
Steindórsson skrifar um íslenzk
an jarðveg eftir Björn Jóhannes
son. □
Landsmótið að Laugum í S.-Þing.
(Framhald af bls. 1)
það nokkuð hve Þingeyingum
er annt um landsmót þetta.
En allt húsnæði staðarins
hrekkur þó skammt, þess vegna
verða tjaldborgir settar upp. —
Gert er ráð fyrir því, að hvert
ungmennasamband fái úthlutað
land undir tjaldbúðir, bæði á
gamla túninu sunnan við tjörn-
ina og ennfremur á yngri tún-
um austan við skólann, uppi í
brekkunum. Skólarnir hýsa
fólk eftir því sem húsrúm leyf-
ir, en fjöldi manns mun koma
með tjöld sín og viðleguútbúnað
til að geta notið hátíðadaganna
að Laugum.
Landsmót UMFÍ er fyrst og
fremst íþróttamót, þar sem
keppt verður í öllum algengum
íþróttagreinum og starfsíþrótt-
um að auki.
íþróttavöllurinn vestan árinn
ar hefur vefið byggður upp að
nýju og er talinn mjög góður.
Áhorfendasvæðin í skýldum
brekkum í kring, hafa verið
endurbætt og hlaðin í þrep, svo
vel ætti, í góðu veðri, að fara
um áhorfendur. Göngubrú verð
ur sett við hlið aðalbrúarinnar
á Reykjadalsá til að auðvelda
umferðina, sem án efa verður
feiknamikil.
rþróttamótið hefst árdegis á
laugardag með skrúðgöngu frá
skólanum vestur á íþróttavöll-
inn og ganga ungmennasam-
böndin undir fánum sínum.
Auk keppni í frjálsum íþróttum
o. fl. verða a. m. k. 3 knatt-
spyrnukappleikir og 2 hand-
knattleikskeppnir kvenna.
Landsmótið verður allt kvik-
myndað. Margt verður til
skemmtunar auk íþrótta og
kappleikja. Sjö lrórar annast
söng, lúðrasveit frá Akureyri
leikur báða mótsdagana, laugar
dag og sunnudag, 1. og 2. júlí.
Fimleikar verða sýndir og um
100 manns sýnir þjóðdansa, enn
fremur verður glímusýning.
Bæði kvöldin verða dansleikir
á þrem stöðum og kvikmyndir
verða sýndar. Sést á þessu að
margt verður til gamans gert.
En aðalhátíðahöldin fara
fram síðari daginn, um hádegi.
Oskar Ágústsson setur hátíðina,
séra Eiríkur J. Eiríksson sam-
bandsstjóri flytur guðsþjónustu,
aðalræðumenn mótins verða,
Karl Kristjánsson alþingisi’nað-
ur, Jóhann Skaptason sýslumað
ur og Ingólfur Jónsson ráð-
herra.
Til gamans má geta þess, að
útikvöldvaka verður á laugar-
dagskvöldið. Þar talar einn
maður úr hverjum landsfjórð-
ungi og fær fimm mínútna ræðu
tíma til að spreyta sig á við-
fangsefninu: Æskan og ung-
mennafélögin.
Sérstök dómnefnd gerir til-
lögur um verðlaun fyrir beztu
umgengni og prúðustu og
drengilegustu l'ramkomu á mót
inu, meðal ungmcnnasamband-
anna.
Ilér er lauslega drepið á hið
væntanlega landsmót að Laug-
um, til þess að minna fólk á að
undirbúa sig í tíma svo það geti
notið hátíðahaldanna sem bezt.
Til dæmis munu gistiherbergi
verða af skornum skammti fyrir
áætlaðan mannfjölda, svo menn
þurfa að panta í tíma eða sjá
sér farborða á annan hátt. □