Dagur - 10.06.1961, Side 8

Dagur - 10.06.1961, Side 8
8 Miklar gjafir til elliheimilisins ■Mlllllllllll llllIIIIIIIIIIIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllIIIllllllIII1111111111111111111111111IIIIII11111111111111111111111111111111111111111111IIIIIIIIMllllll11111111111111111111111111111111111111> FYRIR nokkrum dögum barst byggingarnefnd elliheimilis Ak ureyrar stórgjöf, kr. 100.000.00, til elliheimilisins frá hjónum hér í bæ, sem óska ekki að láta nafns síns getið. Láta gefendur í ljósi þá ósk, að gjöfin megi verðá til þess, að elliheimilis- byggingin verði fullgerð nokkr- um dögum fyrr en ella. Þá hefur Guðjón Jóhannsson, Ljósstöðum, Glerárhverfi, ánafn að elliheimilinu eftir sinn dag allt bókasafn sitt, sem er um 600 bindi í góðu bandi, enda verði bókasafnið varðveitt í elli heimilinu. Byggngarnefndin flytur gef- endum alúðarfyllstu þakkir fyr ir þessar rausnarlegu gjafir. □ Aðalfundur Framsóknarfélags Ak- ureyrar er á miðvikudaginn AÐALFUNDUR Framsóknarfé lags Akureyrar verður haldinn að Hótel KEA (Rótary-sal) miðvikudaginn 14. júní kl. 8.30 e. h. Dagskrá: 1. Venjulega aðalfundarstörf. 2. Kosning 12 fulltrúa á kjör- dæmisþing að Laugum 18. júní. Félagar eru vinsamlega beðn- ir að mæta vel og stundvíslega. lllllllllilllllllll lllllllllllllllllllllllllllillillllillin AUÐFARIN LEIÐ TVÖ AKUREYRARBLÖÐ gera fyrirspurnir um það, hvað Seðla bankinn hafi, samkv. lagasetn- ingu núverandi stjórnar, dregið mikið af sparifé manna úr inn- lánsdeildum KEA og fleiri kaup félaga, og hve mikil séu afurða- lánin. Til viðbótar við þær upplýs- ingjp, sem Dagur hefur áður gefið um þessi atriði, skal þess- um blöðum bent á hina opin- beru og útgefnu ársreikninga, sem kaupfélögin, sem eru opin félög, gefa árlega út. Það væri t. d. einkar handhægt fyrir rit- stjórana að fletta upp á þessum atriðum í ársskýrslu KEA, sem þeim var send. Það er auðfarin leið. Ef fyrirspurnirnar eiga að tákna það, að ekki sé mark á tekið, þótt nefndir fyrirspyrj- endur birti það úr opinberum skýrslum, sem forvitnilegt kann að þykja, og þessvegna þurfi Dagur að hlaupa undir bagga, er hér með þakkað fyrir traust- ið. í þessu efni er rétt að benda enn einu sinni á þann regin- mun, að öll starfsemi samvinnu félaga er fyrir opnum tjöldum og reikningar félaganna árlega lagðir fram, áður endurskoðað- ir af þar til kjörnum trúnaðar- mönnum félagsmanna. Hins vegar þurfa einkafyrir- | Ekki öfundsverð { RÍKISSTJÓRNIN er lítt öfunds verð yfir hlutskipti sínu síðustu daga og vikur. Hún hafnaði þeim óí'kum að konia örlítið til móts við launþega til að afstýra verkföllum. Því munu menn ekki gleyma, né heldur hinu, hvernig hún berst gegn öllum samningum nú og hcfur í heit- ingum við þá landshluta, sem sjálfir leysa deilumál sín með frjálsu samkomulagi og án sátta semjara. Nokkurs uggs gætti í Morgun blaðinu í gær og fyrradag og má ætla að mesti móðurinn sé af því runninn og það sjái villu sína og fyrirsjáanlegt fylgis- hrun vegna þessara þrjóskulegu og vonlausu aðstöðu. □ tækin ekki að standa fólkinu reikningsskap ráðsmennsku sinnar. □ II ÞETTA eru 9 vörubílar frá Stefni. Myndin er tekin í Glerárhverfi á meðan á verkfallinu stóð og flutningar lágu niðri. — Bílar þessir, ásamt bílum frá Bifröst og Pétri & Valdimar annast vöruflutninga milli Akureyrar og Reykjavíkur. Þessir flutningar hafa gefið góðan liagnað á undanförnuin árum. En nú eru þeir sennilega orðnir of margir, sem vilja skipta á rnilli sín liagnaðinum af þessum atvinnurekstri, því a. m. k. 5 nýir bílar hafa bætzt við á þessu ári. — Bílarnir bera 5—9 tonn og eru vegunum langt of þungir. Ilinir stóru bílar eru fljótir í förum, miðað við skipin, og hafa því orðið hlutskarpari í samkeppninni um flutningana. En það mun tæpast þjóðhagslegur hagnaður að kaupa bílflulninga á þungavörum og láta skipin fara hálf- tóm milli hafna. — Bílarnir, sem hér sjást á myndinni, bera 60—70 tonn, samtals. (Ljm.: E.D.) i 1111111111111111111111111111111111111111111111111 iiiiiiiiiiiiiiiini iiiiiiiiiiiiiiiiiu 11 ■ i ii ■ iiiin11111111 liawswiipigiiiiíiiw V.v.y.’.y-:*:.-*-! Siðleysi í viðskiptum Ófeigsstöðum 8. júní. Fréttir man ég fáar, sagði fréttarit- ari Dags á Ófeigsstöðum í gær, enda er ég syfjaður og kom ekki heim fyrr en í morgun eft- ir fjárrekstur í Náttfaravíkur. Bændur munu flestir vera búnir að bera tilbúna áburðinn á tún og nú er sauðburðarann- ríki lokið. Sprettuhorfur eru ekki góðar. í morgun, við sólar- upprás, voru vegir hélaðir. Fyrstu laxarnir úr Skjálfanda- fljóti eru komnir á land. Veiði er þó ekki mikil ennþá. Heilsufar er sæmilega gott, fénaður gekk vel undan, þótt vorið hafi verið fremur svalt. Hér átti að byrja byggingu félagsheimilis í sveitinni. Eg hafði ráðið utansveitarsmið, dregið efni að og annazt ýmsan undirbúning. Þá frétti ég, nú í byrjun júní, að engu fé yrði veitt úr Félagsheimilasjóði til nýrra félagsheimila, og þetta er ekki einu sinni auglýst. Þetta er fullkomið siðleysi í viðskipt- um. Minks varð vart við Ljósa- vatn og var maður úr Mývatns- sveit fenginn til að gera aðför að þessum vágesti. Minkabæli fannst svo innan við Beina- höfða. Þar hafði áður verið sprengt til að breikka þjóðveg- inn, og var minkurinn undir veginum og bæli hans. Vegna mikillar umferðar um veginn, þótti ekki framkvæmanlegt að nota sprengjur til að vinna minkinn, en með öðru móti verður hann ekki unninn þarna. Eitthvað mun hafa náðzt af hvolpum. Gerð verður önnur tilraun að næturlagi, þegar um- ferð er minnst. Fyrir viku eða svo sáust tvær tófur í Granastaðafjalli. Margt manna er á Granastöðum og fóru nokkrir þegar á vettvang, slógu hring um tófurnar og þrengdu hann svo að þeim varð ekki undankomu auðið og féllu þær báðar í valinn. □ Nýbygging á Laugum Laugaskóla 8. júní. Landspróf- um er lokið hér, eins og annars staðar, og gengu 18 undir það. Hæstu einkunn að dómi skólans hlaut Hreiðar Karlsson á Narfa stöðum 9.22. Almennu gagnfræðaprófi luku 23 nemendur. Þar hlaut hæsta einkunn Jón H. Jóhanns- son, Víðiholti, 8.06. Unnið er af kappi við ný- byggingu skólans. Síðustu dag- ana var verið að leggja síðustu hönd á eldhús og borðstofu og verður flutt í þetta húsnæði í nótt. Fermingarhátíð verður hér á sunnudaginn og verðui' þá hin nýja og góða aðstaða notuð. Nemendaherbergi og fleira til heyrandi nýbyggingunni verður væntanlega tekið í notkun í haust, enda þarf svo að vera ef áætlanir um nemendafjölda og skólahald eiga að standast. □ Tónskóli Sigluf jarðar Olafsfirði 3. júní. Snjór sá, sem kom eftir hvítasunnuna er horf inn. En þá var jafnfallinn snjór eitt fet á þykkt. Nú búa skipin sig til síld- veiða og eru sum að verða til- búin. Unnið er einnig af kappi að viðgerðum á síldarplönum og að öðrum undirbúningi síld- arsöltunar, enda mun síldarsölt un hefjast strax í vertíðarbyrj- un, ef síldin verður ekki því magrari. Smærri bátar hafa róið með línu eða handfæri og er aflinn heldur tregur. Tónskóli Siglufjarðar kom hingað til tónleikahalds. Stjórn andi var Sigursveinn D. Krist- insson skólastjóri, en Ásdís Ríkarðsdóttir pianóleikari ann- aðist undirleik. Tónleikarnir fóru fram í samkomuhúsinu og þeir voru haldnir í tilefni af 100 ára afmæli séra Bjarna Þor- steinssonar tónskálds. Húsið var þéttsetið og áheyrendur fögnuðu gestunum með miklu lófataki, enda voru hljómleik- arnir góðir, bæði leikur og sam stilling. Á undan og eftir lék „skálmhornasveit“ undir stjórn Kristjáns Sigtryggssonar. • Oll framkoma nemenda Tónskóla Siglufjarðar var til fyrirmyndar og skólanum til sóma. □ Mikið kal í túnum Svarfaðardal 7. júní 1961. Tíöin hér frá sumárkomu, var mjög góð, hægfara jafn bati, fram til þess 23. maí. Kólnaði þá í veðri og gerði frost. Snjóaði mikið um nóttina eftir og varð þá blind- bylur um tíma. Lambfé var víð- ast tekið í hús og mun ekki hafa orðið verulegur skaði að þessu veðri, enda tók þennan snjó fljótt upp aftur. Það sem af er þessum mánuði, hefur verið kalt og úrkomusamt og stundum snjóað í fjölí. í dag er sólskin og sæmilega hlýtt. Vona menn að nú muni skipta um til þess betra. Sauðburði er nú fyrir nokkru lokið og hefur hann gengið vel viðast hvar. Líklega hefur þó borið út af því, einkum þegar á leið. Kal í túnum er nú mjög mikið víðast hér um slóðir og horfa bændur með nokkrum ugg fram á rýran heyskap af þeim sökum. Nú í þessum mánuði lætur Torfi Guðlaugsson verzlunar- maður af starfi hjá útibúi Kaup félags Eyfirðinga á Dalvík. í til efni af því, bauð Svarfdæla- deild K.E.A. honum og fjöl- skyldu hans til kvöldfagnaðar í þinghúsinu að Grund sl. mánu- dagskvöld. Hófinu stjórnaði formaður deildarinnar, Helgi Símonarson. Flutti hann og minni þeirra hjóna. Margar ræður voru fluttar og almennum söng stjórnaði Júlíus Daníelsson. Kvenfélagið „Til- raun“ framreiddi miklar og góðar veitingai'. Samkomugest- ir færðu þeim hjónum að gjöf stofuklukku með áletruðum silfurskildi og mynd úr Skíða- dal. — Hófið þótti takast hið bezta og skemmtu menn sér mjög vel. Torfi Guðlaugsson hefur ver- ið mjög vinsæll í starfi og fylgja honum beztu árnaðar- óskir héðan úr Svarfaðardal. □ Verkfalli afstvrt J Sauðárkróki, 9. júní. Tvö verka lýðsfélög hér á staðnum, Verka kvennafélagið Aldan og Verka- mannafélagið Fram, höfðu boð- að vinnustöðvun frá 10 b. m. hefðu samningar ekki tekizt við atvinnurekendur. í gær tókust samningar og var verkfallinu þá aflýst. Samn ingarnir fela í sér 10% kaup- hækkun fyrir karla og 13% kauphækkun kvenna. í dag hefst aðalfundur Kaup- félags Skagfirðinga á Sauðár- króki. □

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.