Dagur - 23.08.1961, Page 8
8
Þjóðverji drukknaði í Mývatni
Hraðbát með þrem mönnum hvolfdi - Tveir
björ guðu sér á sundi í nærliggjandi hólma
ÞAÐ sorglega slys varð sl. mið
vikudagskvöld að Þjóðverji að
nafni Peter Hellenthal drukkn-
aði í Mývatni. Hann var sextug
ur iðjuhöldur frá Bad Godes-
berg í Vestur-Þýzkalandi, aðal-
eigandi verksmiðju, sem eink-
um framleiðir skyrtur og bindi.
í fylgd með honum hingað til
lands var 17 ára sonur hans,
Hanno að nafni, og Voru þeir í
skemmtiferð með öðrum ]önd-
um sínum og dvöldust í Mý-
vatnssveit um fyrri helgi.
En feðgarnir ætluðu að nota
síðustu daga ferðar sínnar til
Grænlandsflugs F. í., miðviku-
daginn 9. þ. m. Komu þeir því
til Akureyrar 8. þ. m. og hugð-
ust taka sér far með áætlunar-
flugvél það sama kvöld. Sú
flugvél kom aldrei til Akureyr-
ar, vegna dimmviðris, og mælti
iðjuhöldurinn, er hann kvaddi
á afgreiðslu Flugfélagsins hér:
„Þetta varð endirinn á ferðinni
til Grænlands."
Feðgarnir héldu þá aftur til
Mývatnssveitar, leigðu bát á
Hótel Reynihlíð og fór hótel-
stjórinn, Arnþór Björnsson,
með þá á litlum báti og var
ferðinni heitir til Kálfastrand-
ar til að skoða sérkennilega
staði og taka myndir.
Þegar báturinn, sem var hrað
bátur með öflugri utanborðs-
vél, var kominn 1—300 m frá
landi (ber ekki saman), hvolfdi
honum. — Þremenningarnir
reyndu að koma honum á rétt-
an kjöl, en það tókst ekki. Þeir
yfirgáfu þá bátinn og lögðust
til sunds. Allir voru vel syntir,
en eldri Þjóðverjinn mjög
þungt klæddur. Honum tókst
þó með aðstoð hinna að losna
við frakka og jakka og synda
áleiðis, einnig með aðstoð. Brátt
dapraðist honum sundið, færði
hann son sinn og fylgdarmann
í kaf og varð þá viðskila og
sökk. Hinir komust í hólma
íDaguk I
kemur út á föstudaginn, helg-
aður iðnstefnunni.
þann er næstur var. Þeim barst
hjálp frá Syðri-Neslöndum
klukkustund síðar. En slysið
vildi til kl. 16.15 á svokölluðu
Teigasundi. Leit var þegar liaf-
in að Peter Hellenthal og bar
hún þó ekki árangur fyrr en kl.
hálftíu morguninn eftir.
Sýslumaður Þingeyinga, Jó-
hann Skaptason, framkvæmdi
réttarrannsókn á staðnum. —
Kúrt Sonnenfeld ræðismaður á
Akureyri flutti lík landa síns
til Akureyrar og aðstoðaði son-
inn, sem var niðurbrotinn af
sorg eftir hinn válega atburð. □
Á FÖSTUDAGINN um kl. 5 síðdegis varð harður árekstur á þjóðveginum hjá Skriðulandi í Arn-
arneshreppi. Jeppi úr Skagafirði og fólksbíll frá Dalvík, sem var á leið norður, skullu saman. Með-
fylgjandi mynd sýnir afleiðingar árekstursins livað farartækin snertir. En meiðsli á mönnum
urðu þau ein, að bílstjóri Skagafjarðarbílsins skrámaðist nokkuð. (Ljósmynd V. F.)
11 ■ ■ i ■ ■ i ■ i ■■ ■ ■ 111111 • 1111 ■ 1111 iii i ii 111
l•lllllll•l•l••••llllllllllllllllllllllllllllltllllll■
Góðir erlendir gestir heimsækja Eyfirðinga
Leiðbeina bændrnn í meðferð mjaltavéla o. fl.
Athuga byggðasafnsmál og gera tillögur um það
HINGAÐ til Akureyrar eru
komnir góðir gestir frá Dan-
mörku og Noregi. J. C. Christ-
ensen frá samtökum danskra
mjólkursamlaga heldur þessa
daga fundi í hreppunum á
mjólkursamlagssvæði KEA og
flytur fyrirlestra og hefur sýni-
kennslu í meðferð mjaltavéla.
Fræðir hann bændur einnig um
hreinlæti við framleiðslustörfin.
Er þetta einn liðurinn í barátt-
unni við hina útbreiddu júgur-
bólgu, sem bændur vilja feiga.
Með hinum góða gesti er Olaf-
ur Jónsson ráðunautur og túlk-
ar mál hans. Fundarstaðirnir
munu verða 12—15 og hafa þeir
fundir, sem þegar er búið að
halda, verið vel sóttir. Þegar
umferðinni er lokið verður sam
eiginlegur bændafundur hald-
inn á Akureyri, erindi flutt,
myndir sýndar og umræðna
óskað. Búnaðarsamband Eyja-
fjarðar og Mjólkursamlag KEA
gengust fyrir komu hins er-
lenda manns og þessum nauð-
synlegu fundarhöldum.
Hinn gesturinn er norskur og
heitir Fartin Valen-Sendstað
frá Litlahamri og er hann einn
helzti forvígismaður byggðasafn
anna þar. Akureyrarbær, Eyja-
fjarðarsýsla og KEA hugðust
koma upp byggðasafni og fólu
eftirtöldum mönnum undirbún-
ing: Jónasi Kristjánssyni, Ár-
manni Dalmannssyni og Helga
Eiríkssyni. Dagur hefur nokkr-
um sinnum gert málið að um-
ræðuefni og er ekki frekari
kynningar þörf.
Nú virðist nefnd þessi vera
að rumska enda gekkst Svein-
björn Jónsson fyrir því að hing
að kæmi fyrrnefndur Norðmað
ur, sem hefur bæði reynslu og
menntun að baki, og greiddi
enn fremur ferðakostnað hans
úr eiginn vasa.
Rætt hefur verið um að gera
hluta af Fjörunni að bygg'ða-
safni, Fartin Valen-Svendr.tad
hefur, ásamt nefndinni, ferðazt
um landið allt frá Rangárþingi
til Mývatns. Blaðið hafði tal af
honum sem snöggvast í gær.
Ilvenær liófuzt þið lianda
í heimabæ þínum um stofnun
byggðasafns?
Árið 1887.
Hvert er viðhorf þitt til þess-
ara mála hér?
Ég hef séð, að hér sem annars
staðar, á landið sína sögu og
gamli tíminn er að yfirgefa það
með öllum sínum minjum, sem
þarf að bjarga nú þegar eða
ekki. Hér á þessum stað eru
góðir möguleikar til þess að
koma upp myndarlegu byggða-
safni, bæði safni bygginga og
muna. En til þess að fram-
kvæmdir séu mögulegar þarf
mikið starf og sterkan stuðning
almennings.
Hefur þú komið að Laufási?
Já, og þar kom fyrir 30 árum
Anders Sandvig, sem er einn
þekktasti safnmaður okkar
tíma, íslandsvinur mikill og hef
ur verið sæmdur ísl. Fálkaorð-
unni. Þessi víðskyggni maður
leit á Laufásbæinn gamla, sem
einn merkilegasta minjagrip
álfunnar. En bærinn lenti í nið
urníðslu og var bjargað á síð-
ustu stundu, og er það mjög
ánægjulegt. Margir möguleikar
eru til í þessu efni og enn ónot-
aðir til að tengja saman nútíð
og fortíð.
Reynzlan sýnir það í Noregi,
að gott og vel gert byggðasafn
eykur ekki aðeins skilning
fólks á sögu og atvinnuháttum
þjóðar sinnar, heldur veitir
því gleði og opnar leið til
tekjuöflunar í sambandi við
ferðamannastrauminn, segir
hinn norski byggðasafnsmaður
að lokum og þakkar blaðið hon
um viðtalið. □
Málverkasýning
á sunnudapn
KL. 3 á sunnudaginn opnar
Kristinn Jóhannsson málverka-
sýningu í Landsbankasalnum á
Akureyri. Þar sýnir liann um
50 myndir, allar frá tveim síð-
ustu árum, en þá var hann kenn
ari á Patreksfirði.
£iimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||mi|l|||,|,||,,|,,a|||(,|l|||l|l|||l||| ,,
| Málverkasýning að Bjargi I
GUÐMUNDUR HALLDORS-
SON málari á Akureyri er frem
ur seinþroska í list sinni, ef svo
má að orði komast, því hann er
Síldarafli nágrannaskipa
Tólf skip hafa aflað yfir 10 þús. mál og tn.
HÉR FER Á EFTIR afli 31 síld- Héðinn, Húsavík 13.574
arskips frá Akureyri og næstu Helga, Húsavík 5.900
útgerðarstöðva í nágrenninu: Helgi Flóventss., Húsav. 7.797
Akraborg, Akureyri 11.561 Hrefna, Akureyri 4.152
Áskell, Grenivík 11.980 Júlíus Björnsson, Dalv. 4.615
Baldur, Dalvík 11.779 Ólafur Bekkur, Ólafsf. 9.691
Baldvin Þorv., Dalvík 8.549 Ólafur Magnússon, Ak. 19.266
Bjarmi, Dalvík 11.835 Pétur Jónsson, Húsav. 13.728
Björgvin, Dalvík 11.354 Sigurður Bjarnas., Ak. 11.160
Einar Þveræingur, Of. 3.208 Smári, Húsavík 9.447
Garðar, Rauðuvík 6.410 Snæfell, Akureyri 13.300
Guðbjörg, Ólafsfirði 15.536 Stefán Þór, Húsavík 7.243
Gunnólfur, Ólafsfirði 2.406 Súlan, Akureyri 7.645
Gylfi I, Rauðuvík 4.952 Stígandi, Ólafsfirði 3.400
Gylfi II, Akureyri 8.466 Sæþór, Ólafsfirði 11.044
Hagbarður, Húsavík 5.105 Vörður, Grenivík 8.464
Hannes Hafstein, Dalvík 5.219 Þorleifur Rögnv., Óf. 4.065
Guðmundur Halldórsson.
maður roskinn en hefur nú á
síðustu árum náð verulegum
tökum á litum og línum. Mál-
verk hans á mörgum heimilum
norðanlands, og raunar víðar,
eru meðal þeirra muna sem fólk
hefur til augnayndis.
Listadísin gerði gælur við
Guðmund þegar hann var á
þeim aldri er leggur og skel eru
kærkomin viðfangsefni og rauð
ur leirsteinninn furðuefni til
myndagerðar, og fyrir hana hef
ur hjarta hans slegið á langri
ævi, þótt hvorki gæfist tæki-
færi til að njóta og nema á
þroskaárunum eða afgangstími
frá brauðstriti fullorðsinsár-
anna. En síðustu árin hafa gef-
ið Guðmundi tóm til að helga
sig einvörðungu hinni ævilöngu
þrá, að mála. Síðan fagnar
hann hverjum nýjum dégi og
vinnur þrotlaust að þeim verk-
efnum, sem málverk hans bera
vitni um. Myndir hans seljast
jafnóðum. — Sjálfsbjörg, félag
fatlaðra, hefur nú fengið leyfi
Guðmundar Halldórssonar til
að halda sýningu á verkum
hans í hinu ágæta húsnæði sínu,
Bjargi, á sunudaginn kemur.
Ágóðinn af hóflegum inn-
gangseyri og' kaffisölu rennur
til hinna fötluðu. Bæjarbúar og
nágrannarnir munu hafa af því
nokkra ánægju að skoða mál-
verkasýningu þessa. Málarinn
sýnir málefnum Sjálfsbjargar
mikinn vinarhug með því að
lána málverk sín til ágóða fyrir
félagsskapinn. □
Meiri hlutinn er vatnslita-
myndir en einnig nokkur olíu-
málverk.
Hinn 24 ára sérkennilegi
listamaður, hefur áður sýr.t
verk sín í þrjú skipti hér í bæ
og einnig í Reykjavík.
Að þessu sinni eru flestar
myndanna án fyrirmyndar.
Sýningar Kristins Jóhanns-
sonar hafa jafnan verið vel
sóttar og er vonandi, að svo
verði einnig í þetta skipti. □