Dagur - 04.10.1961, Page 1
.MÁi.<;.\<;n Framsóknarmanna
R ISTIÓRi: JÍRtlNt.lR Davíosson-
Skrif.si'ofa i Hai NARSTR.r.ji 90
Sími i 186 . St.tninou <)c; trextun
ANNASl l’líí.N l VEKK OlJUS
Björnssonar H.F. AKI'RKVRI
Dagur
XLIV. árg. — Akureyri, miðviku daginn 4. október 1961 — 46. tbl.
AOGLVSINI.ASI'IÓRI: JÓN SaM-
ÚELSSON . ÁROAMJl RINS KOSTAR
l Kk. 100.00 , G JALUDAOI T.R !. )L>,i
’ Bi.aðið KtM'.'R tVr Á .\ui»ViK.; oöt;-
<»«. A I vrdói;!'.'.!
(>E<;AK MliDA 1>YK1R 1(1.
SKÚLÁRNIR SíTTIR IGÆR
Hér er mynd af nýbyggingu á Laugalandi á Þelamörk. Þar cr heimavistarbarnaskóli fyrir 3 hreppa
í smíðum og mun verða kepiit að því, að koma húsinu undir þak á þessu hausti. (Ljósmynd: E. D.)
SAMEIMNG SKÓLAHVERFA
BLAÐIÐ hitti sem snöggvast að
máli Stefán Jónsson námsstjóra
og spurði hann frétta af fram-
kvæmdum í skólamálum. Hon-
um sagðist svo frá:
Að Laugalandi á Þelamörk er
verið að byggja heimavistar-
barnaskóla fyrir þrjá hreppa:
Glæsibæjai'hrepp, Skriðuhrepp
og Oxnadalshrepp. Aðalbygging
in kemst vonandi undir þak nú
í haust. Heitt vatn er á staðn-
um, en rafmagn og upphitun
eru skilyrði þess að hægt sé að
vinna áfram við bygginguna í
vetur og ekki útilokað, að raf-
magn verði lagt í skólann í
haust eða vetur.
Námsstjói'i hélt í sumar fundi
með sýslunefndum Húnavatns-
sýslna og fræðsluráðum. Áætl-
að er að byggja einn heimavist-
arbarnaskóla fyrir hverja sýslu
vestur þar, fyrir sveitahreppana
sameiginlega. í A.-Hún. senni-
lega að Reykjum á Reykjabraut
og í V.-Hún. annað hvort að
Reykjum í Miðfirði eða Reykj-
um í Hrútafirði.
Fræðsluráð kaus þriggja
manna nefnd í hverri sýslu til
að halda málum vakandi og
kynna það í héruðum.
I Eyjafjarðarsýslu og S.-Þing
eyjarsýslu eru þessi mál á um-
ræðustigi. En æ fleiri eru
hlynntir því að sameina skóla-
hverfi og byggja færri skóla en
stærri, sagði námsstjóri.
Kennarar í Norðurlandskjör-
dæmi vestra héldu fund á Siglu
firði 28. f. m. Auk námsstj. Stef
áns Jónssonar, fluttu þar erindi
Aðalsteinn Eiríksson fjármála-
eftirlitsmaður skóla, frú Arn-
heiður Jónsdóttir handavinnu-
námsstj. og Páll Aðalsteinsson
námsstj. handav. pilta.
Fundinn sátu um 20 kennarar
og bæjarstjórn Siglufjarðar
bauð fundarmönnum til hádegis
verðar að fundi loknum, sagði
námsstjóri að lokum, og þakkar
blaðið þessar upplýsingar. □
FLESTIR SKÓLAR bæjarins
voru settir í gær. Enn hefur
nemendum fjölgað og víðast
hamla húsnæðisvandræði æski-
legu skólastarfi.
Barnaskóli Akureyrar var
settur í Nýja bíó. Nemendur
eru 780 og lítið eitt fleiri en í
fyrra. Bekkjadeildir eru 30,
kennarar 24. Árni Björnsson
lætur af störfum vegna van-
heilsu. Nýir kennarar eru: Jens
ína Jensdóttir, Aðalgeir Aðal-
steinsson og Steinunn Davíðs-
dóttir. Skólastjóri er, sem áður,
Hannes J. Magnússon.
Oddeyrarskóli hefur í vetur
í 13 bekkjadeildum 330 börn og
er fjölgunin 30, miðað við síð-
asta skólaár. Guðrún Lárusdótt
ir og Hilmar Magnússon hætta
störfum, en nýir kennarar eru:
Magnús Þórarinsson, Stefán Að
alsteinsson og Guðleifur Guð-
mundsson. Stundakennai'i er
Hulda Árnadóttir. Húsvörður í
stað Georgs Jónssonar er Torfi
Vilhjálmsson. Skólastjóri er Ei
ríkur Sigurðsson. Allar kennslu
stofur eru þrísettar.
I Glerárhverfisskóla eru 104
nemendur, eða 10 fleiri en í
fyrra. Skólastjóri er Hjörtur L.
Jónsson. Af störfum láta Svava
Skaftadóttir og Svanhildur Þor
steinsdóttir. Nýir kennarar eru:
Hulda Árnadóttir og Hólmfríð-
ur Gísladóttir.
Allir barnaskólarnir voru sett
ir í gær, ennfremur Mennta-
skólinn og Gagnfræðaskólinn,
og verður sagt frá setningu
þeirra í næsta blaði. □
i ■ 11 ■ ■ ■ ■ i ■ 11 ■ 11111 ■ i ■ 11111 ■ i • ■ ■ 11111 • ■ ■ 11111 ■
| DRAP KONU SINA I
SÁ HÖRMULEGI atburður
varð á sunnudagsnóttina í Rvík,
að 35 ára sjómaður barði konu
sína til dauðs í ölæði.
KAUPSAMNINGUM SAGT UPP STRAX
og kaupmáttur launa verði ekki minni en liann
var 1. júlí í sumar - Gengisfellingunni mótmælt
Á FORMANNARÁÐSTEFNU
Alþýðusambands íslands, sem
nýlokið er, var samþykkt álykt
un um kaupgjaldsmál o. fl.
í ályktuninni segir, að verð
alls erlends gjaldeyris hafi
hækkað um 50—79% með geng
islækkuninni 1960 og verkalýð-
urinn rændur þeirri kjaravernd,
að kaup hækkaði með vaxandi
dýrtíð. Með annarri gengislækk
un í ágúst í sumar, hækkaði
MADUR OG SELUR Á SUNDl
Ófeigsstöðum 2. okt. Það bar
nýlega við, að heimamenn á
Björgum héldu af stað út í Nátt
faravíkur til að skjóta niður
kind, sem þar var í ókleifum
MáSverkasýning á Ákureyri
Jón Bjarnason úrsmiður er hér
að setja upp myndarlega úti-
lduklui á horni Hafnarstrætis
og Kaupangsstrætis, við vinnu-
stofu sína. (Ljósmynd: E. D.)
FRÚ SÓLVEIG EGGERZ PÉT
URSDÓTTIR opnar málverka-
sýningu í nýja Amaro-húsinu á
Akureyri næstk. laugardag.
Þetta er fyi'sta sýning frúar-
innar á Norðurlandi. En fyrir
ári síðan hafði hún sýningu í
Reykjavík og hlaut góða dóma
og seldust flest eða öll málverk-
in, er á þeirri sýningu voru.
Á málverkasýningu frú Sól-
veigar, sem bæjarbúum o. fl.
gefst nú kostur á að sjá um helg
ina, eru 80 myndir, flest vatns-
litamyndir og eru þær allar mál
aðar á þessu ári. Langflestar
eru myndirnar úr Svarfaðardal,
Dalvík og héðan úr nágrenni.
Frú Sólveig Eggerz Péturs-
dóttir er sonardóttir hinna
mætu hjóna, séra Stefáns heit-
ins Kristinssonar á Völlum og
Sólveigar konu hans, sem allir
Eyfirðingar kannast við. □
Sólveig Eggcrz Pétursdóttir,
listmálari.
björgum. En þangað fóru þeir
erindisleysu, því kindin hafði
komizt niður af sjálfsdáðum. En
ferð þessi varð þó ekki án við-
burða, því að á leiðinni sáu þeir
sel, nálægt Skjálfandafljóti, og
skutu hann á löngu færi með
riffli. Skyttan var Sigurður Sig
urbjörnsson, ungur maður og
vaskur. Bátur var ekki við
hendina, en Sigurður lagðist til
sunds og náði taki á selnum. En
selurinn var ekki dauður og
skildi með þeim eftir stuttar
sviptingar. Sigurður synti til
lands og selurinn hvarf. Nokkru
síðar skaut honum þó upp aft-
ur og aftur lagðist Sigurður til
sunds og tókst nú betur en áð-
ur og kom í þetta skipti ekki
tómhentur til lands.
í ljós kom, að kúlan hafði
hæft selinn framan í mitt enni,
en ekki gengið inn úr beini.
Segja má, að piltarnir frá Björg
um hafi hér gert allgóða ferð,
og fullyrða má, að þáttur hins
unga manns, Sigurðar, hafi ekki
verið á allra færi.
Fyrir skömmu var haldin
(Framhald á bls. 7)
verð alls erlends gjaldeyris um
13—16%. Hinni fyrri gengis-
lækkun fylgdi mikil verðhækk
unaralda. Þegar er séð, að verð
lag fer strax stórhækkandi
vegna hinnar síðari. Nýrri verð
hækkunaröldu hefur verið
hleypt af stað og árangur hinna
frjálsu samninga í sumar að
engu gerður.
Ráðstefnan mótmælir harð-
lega, að nokkur gild efnahags-
leg rök liggi til þess, að gripið
var til nýrrar gengislækkunar,
og hún telur ríkisstjórnina hafa
svipt starfsgrundvelli undan
verkalýðssamtökunum. Ráð-
stefnan telur ennfremur í yfir-
lýsingu sinni, að það sé ekki
hlutverk ríkisstjórna að ákveða
kaupgjald, heldur verkalýðsfé-
laga og atvinnurekenda.
(Framhald á bls. 2)
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMII
iiiiMiiitiiiiio*
I HÆTT KOMINN |
JÓN ÁRNASON á Þverá í
Öngulsstaðahreppi var hætt
kominn í fyrradag, er hann var
í öðrum göngum á Almenningi
— fram af Garðsárdal. — Fé
var þar í illfærum, háum klett-
um og bágrækt að vanda. Jón
var staddur á mjórri klettasillu,
er grjóthrun varð. Gat hann
nauðuglega vikið sér undan
stórum steini, er á hann stefndi,
og fylgdu fleiri á eftir. Svigrúm
var naumt á sillunni og hengi-
flug fyrir neðan. Ofar í klettun-
um voru kindur á ferð.
Svo giftusamlega fór, að að-
eins smásteinn skrámaði andlit
gangnamannsins, en það mátti
heita vel sloppið eins og á stóð.