Dagur - 14.10.1961, Page 1

Dagur - 14.10.1961, Page 1
M V1.(.\(,N l'líAMSÓKNAK.MAWA R'isijóui: Kuiincck Dayíijsnon Skiui .vi oi í HAKNARS'niarn 90 Simi 1166 . SirrNiNcu oc trí:njun A.NNAST PRKNTA'XIRK OdDS Bj(>rns>onar h.t. Akiíkkvri XLIV. árg. — Akureyri, laugardaginn 14. október 1961 — 48. tbl. Auc.i.ýninca.>tjóki: Jás Sam- ÚEX.NSO.N , ÁkGANCTRINN KOSTAR j KR. 100.00 . C)Ai.r>DA(;r er 1 ji K! Bi.AÐIB KíAHl; TT Á MlDVIKtlDÖr.- CM OC A l.ALC.ARUÍÍCU.M ÞKCAR ÁSI'.T.DA þykír th. L_________________________________, LEIRHVERIR í ÖSKJU NÝIR GUFU- OG Jarðskorpan er víða sprungin Ef fil vill er hraungos í aðsigi Gufumökkurinn hylur hverinn. í kring bráðnar snjórinn vegna hins mikla jarðhita. Myndavél blaða- konunnar stendur á sér, en liðkast í höndum Eiríks Ingólfssonar, trésmiðs. (Ljósmynd: E. D.) HREYFINGAR I J ARÐSKORPUNNI. Á allstóru svæði umhverfis hina rrýju hveri og allt suður að Víti og Oskjuvatni eru nýjar sprungur í hrauninu, en flestar hggja þær þvert á fyrrnefnda 350 metra brotlínuna. Ein sprungan var mjög djúp og rúml. hálfur meter á breidd. Á öðrum stað hafði landið sigið um nokkra þumlunga annars vegar við sprungu. Það var skammt frá Víti. Nokkur umbrot og hreifingar í jarðskorpunni eru hverjum manni auðsæjar. UNDANFARI HRAUNGOSS? Dr. Sigurður Þórarinsson álít- ur þetta undanfara meiri tíð- inda. Hann telur líklegast, eftir fyrstu athugun, að hraungos verði á þessum slóðum, en ekki mjög stórkostlegt. Jarð- fræðingurinn taldi mjög mikil- vægt að hafa kynnt sér aðstæð- ur og' séð vegsummerki á þessu byrjunax'stigi, en það er fremur fátítt, þegar um gos er að ræða, að fyi'stu gosmerki séu athuguð, enda ekki alltaf, sem slíkir við- burðir gera boð á undan sér. Hins vegar mun jarðfræðing- urinn, sem auk þess er nýbak- aður heiðursdoktor, ekki hafa fengið beint samband við þann sem eldana kyndir! Vei'ður hann því að treysta á eigin lær dóm í umsögn um líkur fyrir gosi. Föstudeginum var eytt í at- huganir í hinni víðfrægu Oskju og síðan haldið í næturstað í skála Ferðafélagsins. HVE LENGI A AÐ SJÓÐA KARTÖFLUR? Undirritaður hélt nú heim- leiðis með Laugamönnum, en hinir leiðangursmennirnir voru að sjóða kvöldmatinn, ei' leiðir skildu, og ætluðu að gista aði'a nótt í óbyggðum. Um leið og ég var að fara út úr dyrunum, eftir að hafa kvatt og þakkað ánægjulega samveru, heyrði er að rökrætt var um það í eldhúsi, hvernig örugg- ast væri að vita með fullri vissu hvenær kartöflur væru nægi- lega soðnar! MIKLA GOSIÐ 1874. Askja er í Dyngjufjöllum, inn í miðju Odáðahrauni. Þar hafa orðið stórfelld eldsumbrot og landsig, óþrotlegt rannsóknar- efni jarðfi'æðinga, skelfir norð- lenzki'a byggða. Árið 1874 gaus Askja hinu mikla ösku- og vik- urgosi, er lagði sveitir í auðn um árabil og sendi bæði Svíum og Norðmönnum örlitla kveðju um leið, því þangað barst ask- an. — Síðar hafa orðið nokkur gos, en ekkert þeirra mjög stór- kostlegt. En enn þá búa Dyngju fjöll yfir tröllamætti og ekki unnt að segja hvenær hann fær útrás. (Framh. á 8. síðu.) HINN 9. okt. sáust úr fjárleit- arílugvél gufugos í þrem stöð- um í Öskju. Tryggvi Helgason, flugmaður á Akureyri, og Jón Sigurgcirs- son, leitarstjóri, flugu þann dag yfir afréttarlönd Mývetninga og Bárðdælinga. Auk þess að finna 5 kindur sáu þeir gufu- gosið og staðsettu það. R ANN SÓKN ARFERÐIR. Fimmtudagsmorguninn, hinn 11. þ. m. flaug dr. Sigui'ður Þór- arinsson yfir Öskju í góðu skyggni, en síðdegis sama dag var leiðangur gerður frá Akur- eyri til rannsóknar á þessu fyr- ii'bæri, með dr. Sigui'ð Þórar- insson í broddi fylkingar. Far- arstjóri var Jón Sigurgeirsson, og ók hann jeppa sínum, og Kái’i Sigurjónsson á öðrum. En báðir eru menn þessir þaulvanir fjallaferðum og útilegum. FERÐAFÓLKIÐ. Aðrir, sem slógust í förina voru: Elín Pálmadóttir, blaða- kona, Rvík, Olafur Jónsson, ráðunautur, Akureyri, Sigur- geir Þórðarson, Akureyri, og undirritaður. Guðm. Gunnars- son, Hróar Björnsson, kennarar við Laugaskóla, og Eiríkui' Ingjaldsson, smiður, sama stað, slógust í förina, og var haldið austur í Herðubreiðarlindir um kveldið og gist í hinu ágæta sæluhúsi Ferðafélagsins þar. JARÐSKORPAN SPRUNGIN. Á föstudagsmorguninn var ekið áleiðis í Öskju, en síðan fai'ið á tveim jafnfljótum á hið gamla og nýja umbrotasvæði, sem frægt er frá fyrri tímum. Nokkur hundruð metra inn- an við Öskjuop, neðst í fjalls- hlíðinni, eru 4 nýir gufu- og leirhverir í beinni línu. Þar hefur myndast sprunga í jarð- skorpunni, um 350 metra löng, og þar eru hverirnix'. Sprunga þessi liggur suður og í beina stefnu á Víti við Öskjuvatn. GUFUSTRÓKAR. — BRENNI STEINSFÝLA ÚR HVER- UNUM. Leirlækir renna úr hverunum niður í hraunið og norður. Megna gufu leggur fyrir vit manna á þessum slóðum og guf- an stígur hátt til lofts. Hver- irnir kvæsa og gjósa leii'num, en snjórinn bráðnar umhvei'fis og eykur rennslið er neðai' kem ur. í Öskjuopi ei'u holir hjaim- skaflar en 18 stiga hiti í grugg- ugu rennslinu undir þeim. Augljóst er, að gufa og leir hafa rutt sér braut upp á yfir- boi’ðið fyrir aðeins fáum dög- um, því snjórinn bráðnaði ört þennan dag við hina heitu staði. Dr. Sigurður Þórarinsson finnur marga steina, og hér er hann Hjá vörðunni hjá Öskju. Frá vinstri: Jón Sigurgeirsson, Guðmundur Gunnarsson, Ilróar Björnsson, að troða nokkrum þeirra í bakpoka Ólafs Jónssonar. (Ljm.: E.D.) Elín Pálmadóttir, Sigurgeir Þórðarson, Kári Sigurjónsson og Ólafur Jónsson. (Ljósmynd: E. D.)

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.