Dagur - 28.10.1961, Page 1

Dagur - 28.10.1961, Page 1
.'*>! vi i.m,\ I-'kamsórnarmanna R .r.srjóki: J-.ki im.i k DAVíesso.N SKmr.vioFA j Hai naks ní.rn 90 SlMÍ i 1(56 . SETNINGU Ofí i'líI-..N 11 N AN.NAST PftKNTVÉRK Ol)MS . BjÖRNSSONAtt il.l . Ak! T.I.VRI —■——-----------------------—> Dagur XLIV. árg. — Akureyri, laugardagimi 28. október 1961-51. tbl. Ari.l.v mm.'m | ■ mi: [ón Svm úra.sso.N . ArcangUrInn' kosiar j IO-. 100.00 . IAi |I]I.'.,|| ; i: I. júy Ö!.A»ti> Kr.v,,u A MH'.viwaiói, r\i or; Á i.aucaróöuum (T.OAR Asta.da (.yk;r rri. Snjórinn hvervur undir hraunið. Lítil hæð eins og eyja í glóandi hraunstraumnum. Ljósmyndina tók Tryggvi Helgason.) STÓRKOSTLEGT HRAUNGOS í ÖSKJU Hraunstraumurinn lokar Öskjuopi, eldglæringar og 200 metra glóandi gossúlur, glóandi björg voru greinileg í 30 þúsund feta hæð í gær SPILAKVÖLD SPILAKV ÖLD Framsóknar- manna að Hótel KEA hefjast á morgun, sunnudag, svo sem aug lýst var í síðasta blaði. Aðgöngumiðar fást á skrif- stofu Framsóknarflokksins kl. 10—12.30 í dag og á morgun, sími 1443, og víð innganginn. Afsláttur er gefinn ef keypt er fyrir öll þrjú kvöldin. Góð kvöldverðlaun verða veitt og mjög verðmæt heildar- vérðlaun. Framsóknarmenn og aðrir, fjölmennið á spilakvöldin. □ MIKIL UPPSKERA TALIÐ ER, að kartöfluupp- skeran á landinu öllu sé mun meiri en í fyrra. Á félagssvæði Kaupfélags Ey- firðinga er uppskeran talin um 15 þús. tunnur. KEA, sem um- boð hefur fyrir Grænmetisverzl un landbúnaðarins, hefur tekið á móti 5—6000 tunnum af kar- töflum, og eru þess geymslur þar með fullar. " Mikil geymsluvandræði hrjá bændur,, enda þau mestu á þessu sviði síðan 1953. Tugir og jafnvel hundruð sekkja eru geymdir í fjárhúsum og öðrum útihúsum, því að kartöflu- geymslur bænda hrökkva skammt. Að sjálfsögðu ber að fagna góðri uppskeru, þótt nú sé nokkur tvísýna um, að hið mikla magn garðávaxta nýtist að fullu. En ekki hafa haust- frost grandað uppskerunni. KLUKKAN rúmlega 5 síðd. á fimmtudaginn hringdi góðkunningi minn, Tryggs i Sigtryggsson bóndi á Lauga bóli í Reykjadal til mín, þá að koma úr flugvél frá Reykjavík, og sagði að Askja væri farin að gjósa. Hann og fleiri farþegar flugvélarinn- ar, sem fór yfir skýjum, sáu mjög mikla og svarta bólstra er komu hver eftir annan upp úr skýjaþykkninu í átt á Öskju. í .talsverðri hæð beygðu þeir til suðurs og hvítnuðu í sólinni. Um klukkan 7 e. h. sama dag fóru tvær þotur vamar- liðsins yfir Öskju og höfðu miklar fréttir að segja. í myrkrinu urðu þeir gossins varir í um 100 km fjarlægð. I»eir fóru í 30 þús. feta hæð yíir gosstöðvarnar og í þeirri hæð sjást hús ógreinilega í góðu skyggni. Samt sáu þeir glóandi björg ryðjast upp úr jörðinni og hraunstraumur- inn fór hratt. Gufuskýið upp af gosinu töldu flugmennim ir vera um 20 þús. feta hátt. Seinna sama kvöld flaug Björn Pálsson með Sigurð Pórarinsson og fleiri yfir gos stöðvamar og staðfestu þeir frásögn Bandaríkjamanna. Tryggvi Helgason flugmað ur á Akureyri flaug svo aust- ur í gærmorgun með nokkra farþega. Meðal þeirra vom Jón Sigurgeirsson og Láms Haraldsson og fer frásögn þeirra hér á eftir: Við fómm laust fyrir kl. 10 árdegis og vorum nær tvo tíma í ferðinni. Hér var bjart en skýjað strax og kom austur yfir Vaðlaheiði. Stefnt var beint á Öskju og flogið undir skýjum norð an Dyngjufjalla. Þegar kom- ið var nálægt Öskjuopi sáum við hraunstrauminn, hrað- fara og stórkostlegan, gráan og svo sem með gullnu ívafi, þar sem hið bráðna grjót glóði undir. Og hraunjaðr- amir vom rauðleitir, En þegar við komum yfir hraunjaðarinn hentist flug- vélin upp og þeyttist til í hinu ógurlega uppstreymi. Það var ekki hægt að fljúga yfir hið rennandi hraun í lítilli hæð, eins og þarna þurfti að gera, til að vera undir skýjum. Við gerðum fleiri tilraun- ir að komast inn yfir Öskju sjálfa en þar var bara sorta að sjá. En allt í einu rofaði til og vélin smaug inn með fjallinu að vestan og gosið blasti við í öllum mikilleik sínum. Þar gaf að líta: Um 200 metra eldsúlur, nokkrar að tölu, og upp af þeim svartir bólstrar. Iimar í Öskju vár allt þakið dökk- um mekki. Það var ógleym- anleg og stórkostleg sjón, sem aldrei gleymist. Gosið var á sama stað og hverimir, sem áður hefur verið sagt frá, nokkur hundmð metr- um innan við Öskjuop að austan. Hraunstraumurinn rann hratt norður og var svo breið ur, að hann náði þvert yfir Öskjuopið og bílatroðning- urinn upp að Öskju, síðasti áfanginn, var horfinn undir hið nýja hraun. Hraunið hafði runnið 9 kílómetra eða meira, austur og norður. Þegar við flugum upp úr skýjaþykkninu sáum við gos mökkinn, sem náði a. m. k. í 12 þús. feta hæð, baðað- ur í sól, langt ofar skýjum. Aska var engin sjáanleg á snjó og þáð var heldur ekki reykur þar sem hraunið rann, heldur aðeins gufa. Norðanátt var á og sáum við brúnleitan mökkinn svo langt sem augað eygði í suð- urátt. Skýin yfir gossvæðinu vom undarlega margbreyti- leg að lit og lögun. Þar komu ský og hurfu á svipstundu eins og myndir á tjaldi. Þau voru í rauðum lit, bláum, gylltum og hvítum. (Framhald á bls. 2)

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.