Dagur - 10.01.1962, Side 8
11 ■ 111111111■1111111II1111111111•I■ III■1111111111111
Aðalfundur Framsóknarfélagsins
FR AMSÓKN ARFÉL AG AK-
UREYRAR hélt aðalfund sinn
8. þ. m. Formaður félagsins,
Ingvar Gíslason, sagði frá félags
starfinu. Reikningar voru lagð-
ir fram og samþykktir
í stjórn fyrir næsta ár voru
kosnir: Ingvar Gíslason, for-
maður, Sigurður Óli Brynj-
ólfsson, ritari, Jón Samúelsson,
gjaldkeri, Björn Guðmundsson
og Þorsteinn Stefánsson, með-
stjórnendur. Varamenn: Sig-
urður Karlsson og Víglundur
Pétursson. — Endurskoðendur:
Sefán Reykjalín og Baldur
Halldórsson skrifstofum. — í
blaðstjórn Dags: Ingvar Gísla-
son og Arnþór Þorsteinsson.
Eftirtaldir menn voru kjörnir
í fulltrúaráð Framsóknarfélag-
anna, auk stjórnar: Arnór Þor-
steinsson, Bernharð Stefánsson,
Brynjólflur Sveinsson, Ei'lingur
Davíðsson, Gisli Konráðsson,
Guðmundur Blöndal, Hallur
Sigurbjörnsson, Jakob Frí-
mannsson, Ríkai'ð Þórólfsson,
Sigmundur Björnsson, Þorleif-
ur Ágústsson og Stefán Reykja-
lín.
Að loknum kosningum urðu
fjörugar umræður og tóku
þessir til máls, sumir oftar en
einu sinni:
Frú Helga Jónsdóttir, Ólafur
Magnússon, sundk., Arnþór
Þorsteinsson, Sigurður Karls-
son, Sigmundur Björnsson, Þor
leifur Ágústsson, Guðmundur
Blöndal, Jón Samúelsson og
Ingvar Gíslason.
Fundi lauk laust eftir mið-
nætti. □
Slökkviliðið kallað út 26 sinnum
Ovenjuieg aðsókn
SAMKVÆMT upplýsingum
Sveins Tómassonar slökkviliðs-
stjóra á Akureyri var slökkvi-
liðið kallað út 26 sinnum á ár-
inu sem leið, þar af var eitt ut-
an bæjar.
Mikil brunatjón urðu aðeins
á þrem stöðum og voru þeir
þessir: BSA-stöðin, Aðalstræti
14 (íbúð) og verksæði við Kald
baksveg. Að sjálfsögðu var stór
brunum oft forðað, bæði af
slökkviliði og fyrir snarræði
einstakra manna. Að saman-
lögðu urðu þó tjón af eldsvoða
heldur meiri en árið áður.
Slökkvilið Akureyrar hefur
tvo slökkvibíla, búna háþrýsti-
dælum, sem bærinn á. Auk þess
slökkvibíl brunavarna í sýsl-
unni, sem búinn er tveim dæl-
um.
BROTNAR RÚÐUR
í VINNUVÉLUM
AÐFARANÓTT miðvikudags-
ins 3. janúar sl. voru brotnar
í'úður í stýrishúsum stórra
vinnuvéla í Sandgerðisbót í
Glerárhverfi. Þar er um
skemmdarverk að ræða. Engu
var þarna stolið. Það eru vin-
samleg tilmæli lögreglunnar, að
það fólk, sem kynni að geta
gefið einhverjar upplýsingar
um þetta mál, gefi sig fram við
lögregluna, sem vinnur að því
að upplýsa málið.
Vinnuvélar þær, sem
skemmdar voru, eru eign
Vinnuvéla h.f. □
í slökkvil. eru 5 fastlaunaðir
starfsmenn, en aðrir slökkviliðs
menn fá þóknun fyrir störf sín
eftir starfi þeirra. í aðalslökkvi-
liðinu eru 20 menn, en auk þess
22 menn í varaliði. Varaslökkvi
liðsstjóri er Bragj Svanlaugsson.
Brunaboðarnir í bænum eru
allir óvirkir og hafa verið það
nokkuð lengi. En þeir hafa þó
ekki verið teknir niður og á
síminn að annast það. Menn
verða því að nota símann, þegar
eldur kemur upp, ef leyta þarf
aðstoðar slökkviliðs. Þurfa bæj-
arbúar að gera sér þetta vel
Ijóst, og brunasíminn er 2200.
BORGARBÍÓ á Akureyri sýndi
í gær í 10. sinn stórmyndina Ris
inn. Aðsókn hefur verið með
þeim eindæmum að þessari
kvikmynd, að biðraðir hafa
myndast um og upp úr kl. 4 á
daginn, þótt miðasala hefjist
ekki fyrr en kl. 7. Stundum
hafa biðraðir náð alla leið út í
Giánufélagsgötu.
Mynd þessari fylgir íslenzkur
texti og mun hann mjög auka
aðsókn. Bíógestir hafa yfirleitt
elcki notið þeirrar þjónustu,
nema sem undantekningu frá
reglunni, að sjá íslenzka skýr-
ingartexta. Á hinum Norður-
löndunum munu fólki tæplega
boðnai' kvikmyndasýningar án
þess að nota eitthvert Norður-
landamálanna og svo ætti það
einnig að vera hér, ef góð
þjónusta ætti að teljast. Gizkað
er á, að kvikmyndahús hafi
þetta mál í bakhöndinni og ætli
að grípa til þess sem mótleiks,
þegar sjónvarp verður almennt
í landinu. □
ÓVIIJANDI GABB
í FYRRAKVÖLD var slökkvi-
liðið gabbað. Tilkynnt var að
eldur væri laus í fjárhúsum
nálægt spennistöðinni, og ók
slökkvilaðsbíll þangað þegar í
stað.
Eldur reyndist enginn.
Ekki var þó um viljandi gabb
að ræða, því að þeir, sem eldinn
tilkynntu, þóttust sjá hann þar,
og vildu gera skyldu sína. □
FYRIR JÓLIK
SKRIFSTOFA bæjarfógetaemb
ættisins hefur gert skrá yfir
þau lögreglumál, sem hún hefur
fengið til meðferðar á síðasta
ári. Flestar eru kærurnar vegna
ölvunar, svo sem sjá má á list-
anum hér á eftir.
Verkfræðingar fá vel borgað
Það, sem af er þessu ári, hef-
ur það borið til tíðinda, að
tvisvar hefur slökkviliðið verið
kallað út ( þegar þetta er ritað,
6. janúar). □
EINS og kunnugt er hafa verk-
fræðingar verið í verkfalli síðan
í sumar. Þeir, sem unnu hjá
einkafyrirtækjum, réðu sig þó
áfram ,upp á svokallaða ráðn-
Leiklistarskóli L. A.
SAMKVÆMT auglýsingu í blað
inu í dag tekur leiklistarskóli á
vegum Leikfélags Akureyrar
bráðlega til starfa.
Þar vei'ður kennd framsögn
og túlkun leikverkefna. Ekki er
kennslan ætluð yngra fólki en
16 ára.
Eflaust getur ungt fólk, og
reyndar þeir eldri líka, haft góð
not af kennslu þessari, hvort
sem leiklistin er höfð að mark-
miði eða ekki. □
Flestar kærurnar vegna ölvunar
Y F I R L I T
yfir kærur til embættis bæjar-
fógeta á Akureyri og sýslu-
mannsins í Eyjafjarðarsýslu
1961:
1. Ölvuu á almannafæri 351
2. Ölvun í heimahúsum 14
3. Ölvun við akstur 26
4. Bifreiðaárekstrar og bif-
reiðaslys 195
5. Önnur, umferðabrot 320
6. Þjófnaður og skyld brot 50
7. Likamsáverkamál 9
8. Áfengissala 4
9. Brot á lögum um þjóð-
skrá 70
10. Brot á veiðilögum og
reglugerð um meðferð
skotvopna 17
11. Vegna ágangs af búfén. 12
12. Afbrot barna 14
13. Skemmdir á eignum 33
14. Óhlýðni við lögreglu 9
15. Landhelgisbrot 5
16. Brot á dýraverndunar-
lögum 2
17. Tolllagabrot 3
18. Rannsóknir vegna slysa,
dauðaslysa og bruna 13
19. Ymis lögreglusam-
þykktarbrot 38
20. Lögræðissviptingamál 2
21. Vegna brota á iðnlöggjöf 6
ingarskilmála Verkfræðingafé-
lagsins, en þeir s@m unnu hjá
bæjum og ríkihéldu verkfallinu
áfram fram í desember.
Dálítið er þetta sérstætt, að
því leyti, að margir atvinnurek-
endurnir, sem verkfræðingana
réðu með nefndum skilmálum
(svipaðir hámarkskröfu Verk-
fræðingafélagsins), eru í Vinnu
veitendasambandinu.
En nú segja sunnanblöð frá
því, að hið opinbera hafi einnig
samið við verkfræðinga, svo
sem Reykjavíkurbær og ríkis-
stofnanir, þannig að vinna
þeirra er reiknuð sem ráðu-
nautsstönf og ákvæðisvinna við
einstök verk.
Áður en. til verkfalls kom, var
útseld vinna verkfræðinga kr.
116,32 á tímann. Ennfremur
segir, að mánaðarkaup verk-
fræðinga fyrir venjulegan yinnu
dag sé nú um 22 þús. kr.,
en hámarkskröfur þeirra voru
17 þús. eftir 13 ára starf.
Ef rétt er með farið, að verk-
.fræðingar fái raunverulega 135
kr. í kaup á klukkustund, er
það víst hærra tímakaup en áð-
ur. hefur þekkzt hér á landi. □
DÝR FRÉTTAMYND
í HAUST fór forsetafrúin,
Jaequeline Kennedy, á refa-
veiðar í Virginíu. Er hún ætlaði
að láta hest sinn stökkva yfir
girðingu eina, snarstanzaði
reiðskjótinn með þeim afleið-
ingum, að hin fagra og fræga
forsetafrú steyptist á hausinn
fram af hestinum og yfir girð-
inguna. En henni varð ekki
meint af fallinu.
Ljósmyndari einn var svo
heppinn að ná mynd af frúnni í
fallinu og gaf hana fala hæst-
bjóðanda.
Tímarit keypti myndina og
birtingarréttinn fyrir um það
bil 860,000,00 krónur (20 þús.
dollara) og verða það að telj-
ast tíðindi, ekkert síður
en óheppni forsetafrúarinnar.
En hin tigna og umtalaða frú
gaf sitt leyfi til birtingar á
hinni óvenjulegu mynd. □
H Ilmurinn leiðbeindi Ijósmyndaranum þangað sem
I verið var að steikja laufabrauðið. Og þar nærri sat
\ Þorleifur Ágústsson fiskimatsmaður og skar nett-
1 legan laufaskurð. Sjá myndina hér að ofan. —
É Sumir kalla desember bókamánuð, og víst er það,
I að þá selzt ótrúlega mikið af bókum, enda nær 200
I nýir bókatitlar á markaðinum fyrir jólin. — Hér að
\ ofan, til hægri, er Jónas Jóhannsson, bóksali, að
É bíða þess að viðskiptavinurinn ákveði sig. —
é Til hægri er svo mynd af Halldóri Ólafssyni, úrsmið.
= Kannske er hann að hugsa til jólanna, eða sér hann
É eitthvað skcmmtilegt í biluðu úri? (Ljósm.: E. D.)