Dagur - 30.05.1962, Blaðsíða 8
8
Tónlistarviðburður á Akureyri
Flutt verða einsöngslög eftir hið góðkunna
tónskáld, Jóliann Ó. Haraldsson
EYFIRZKAR byggðir hafa alið
marga listamenn og afbragðs-
menn á ýmsum sviðum. Einn
þeirra er Jóhann Ó. Haraldsson
tónskáld á Akureyri.
En eru þetla ný lög eða löngu
samin sönglög?
Þau yngstu eru 28 ára. Og af
þessum 16 lögum hafa aðeins
tvö verið flutt áður. Sex lögin,
Jóhann Ó. Haraldsson.
Þótt fáir séu spámcnn í sínu
föðurlandi, hefur sönglögum
hans jafnan verið tekið með
miklum fögnuði hér um slóðir
og um land allt. Sönglög Jó-
hanns bera sjálf í sér neistann
og þurfa ekki aðra fyrir-
greiðslu. Allir karlakórar lands
ins hafa t. d. keppst um að
syngja lagið hans undurfagra,
Sumar í sveitum, og fleiri lög
eftir þennan norðlenzka höf-
und.
í næstu viku verður mjög
sérstæður tónlistarviðburður
hér á Akureyri. Þá verða flutt
16 einsöngslög eftir Jóhann Ó.
Haraldsson. Akureyringarnir
Ingibjörg Steingrímsdóttir og
Jóhann Konráðsson syngja, en
Guðrún Kristinsdóttir annast
undirleikinn. í tilefni af þessu
hitti blaðið tónskáldið sem
snöggvast í gær og lagði fyrir
hann eftirfarandi spurningar:
Hvenær verður söngskemmtun-
in?
Seinni partinn í næstu viku,
í Borgarbíó. Mér er það sérstök
ánægja, að það eru allt Akur-
eyringar, sem flytja þessi 16
einsöngslög og að ekkert þurfti
að sækja út fyrir bæinn.
\z/ Fyrirsagnafréttir j
í FYEIRSÖGNUM Morgún-
blaðsins í gær eru sigurfréttir
Sjálfstæðisflokksinsf!!) m. a. á
þessa leið:
„Mikill sigur Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík“ og „Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur veru-
lega styrkt aðstöðu sína.“!
sem sungin verða, eru samin
veturinn 1918—1919. Annars
eru lögin þessi: Söngvar til
Svövu (þrjú sönglög) við ljóð
Guðmundar Guðmundssonar og
4 sönglög úr lagaflokknum
Vísur Sigrúnar, einnig við
texta Guðmundar "Guðmunds-
sonar, og 9 önnur einsöngslög,
meðal þeirra lag, sem tileinkað
er föður mínum fimmtugum.
Jóhann Ó. Haraldsson færist
undan að segja meira um sjálf-
an sig eða verk sín, nema hvað
hann segist vera Akureyring-
um og Eyfirðingum innilega
þakklátur fyrir það, hve vel
þeir hafi tekið lögum sínum.
Blaðið þakkar viðtalið og vill
hvetja fólk til þess að sækja
söngskemmtunina í Borgarbíó,
þegar lögin hans verðá flutt
þar.
Jóhann Ó. Haraldsson hefur
aldrei farið í kennslustund í
hljómfræði eða hljóðfæraleik.
Hann er þó mjög fær organisti.
Og tónverk hans bera þess
vitni, að höfundur þeirra er
vandvirkur kunnáttumaður.
Jóhann Ó. Haraldsson mun
eiga mikinn fjölda laga fyrir
karlakóra og blandaða kóra,
auk sálmalaga og einsöngslag-
anna, sem eflaust eru mest að
vöxtum. En hætt er við, að
hæfileikar hans á þessu sviði
notist verr en skildi vegna ann-
arra og óskyldra starfa dag
hvern.
Vonandi er Akureyringum
það ljóst, að meðal þeirra er
mjög merkilegt tónskáld, þar
sem Jóhann er, og að þeim ber
að vinna að því, að veita hon-
um verðug starfsskilyrði til að
sinna tónsmíðum. Verður e. t.
v. vikið að því máli síðar.
Gunnarsstöðum, 22. maí. Hér
hefur verið mjög kalt undan-
farna viku. Hitinn komizt í 2—3
stig á daginn og við frostmark
á nóttunni og eina nótt var
frostið eitt stig. Gróður er mjög
lítill og frost enn í jörðu. Vegir
eru mjög slæmir, grafnir og
blautir. Sauðburður er hafinn á
mörgum bæjum og víðast mun
hann hefjast á þessari viku.
Menn frá Þórshöfn fóru um
daginn út í Langanesbjörg til
eggsiga. Sigið var í tvennu lagi
og fengust um 700 egg á hvora
festi. í nótt fóru sömu menn í
annan leiðangur í björgin, en
eru ekki komnir aftur.
Lítið hefur verið róið frá
Þórshöfn að undanförnu sökum
ógæfta.
Aðalfundur Kaupfélags Lang-
nesinga var haldinn laugardag-
inn 19. maí. Vörusala í búðum
félagsins nam á árinu rúmum
15 milljónum króna.
Mikill áhugi kom fram á
fundinum um stofnun mjólkur-
samlags á Þórshöfn. Má búast
við að framkvæmdir hefjist við
það nú í sumar.
Ur stjórn félagsins átti að
ganga Vilhjálmur Guðmunds-
son, hreppstjóri, Syðra-Lóni.
Var hann endurkjörinn. Einnig
voru varamenn í stjórn endur-
kjörnir, þeir Jón Jóhannsson,
bifreiðarstjóri, Þórshöfn, og
Grímur Guðbjörnsson, bóndi,
Syðra-Álandi.
Jóhannes Árnason, Gunnars-
stöðum, sem lengi hefur verið
einn af framámönnum kaupfé-
lagsins og formaður þess um
langt skeið, en nú síðast endur-
skoðandi, baðst undan endur-
kosningu. — Endurskoðandi í
hans stað var kjörinn Grímur
Guðbjörnsson. Sendi fundurinn
Jóhannesi, sem var fjarverandi,
þakkir fyrir langt og ötult starf
(Framhald á bls. 7.)
Fiskur - Atvinna
Raufarhöfn, 28. maí. Hér hefur
fiskafli verið ágætur um skeið
bæði á línu og færi og nóg að
gera. Engar íbúðabyggingar eru
hér í uppsiglingu S'/o að vitað
sé, en undirbúningur töluverð-
ur undir síldveiðivertíðioa, svo
sem áður er sagt frá.
Góður afli undanfarið
Sauðárkróki, 28. maí. Fréttir
eru því miður litlar, ucan hinar
pólitísku, sem allt hefur snúizt
um að undanförnu. Þó er fisk-
afli góður og hefur verið það að
undanfornu.
Sundkennsla stendur yfir. —
Gróðri fer ört fram. Vatnavext-
ir voru nokkrir, en ekki til
skemmda.
Atvinna er góð á meðan fisk-
ur aflast.
Búið er að opna Siglufjarðar-
sarð, og
opnunina
Mikið mannvirki vígt
o
Ólafsfirði, 28. maí. Hér verður
hið nýja stórhýsi kaupfélagsins
vígt á föstudag eða laugardag.
Þrjá síðustu daga síðustu viku
var mokafli og komu 15—28
tonna dekkbátar með 8-10 tonn
í róðri og trillur öfluðu einnig
ágætlega. — Lágheiði var opn-
uð á laugardagmn.
Fjáreigendur í kaupstaðnum
eru landlausir flestir. Sumir
hafa nú þegar flutt fé sitt í Héð-
insfjörð. Bændur í Olafsfirði
munu ekki vera búnir að
sleppa fé ennþá, en munu gera
það bráðlega, ef ekki kemur
kuldakast.
Landburður af fiski
Hauganesi, 28. maí. Síðasta vika
var fiskisæl, því að heita mátti,
að þá væri landburður af fiski.
Bátarnir fengu frá 10—18 skip-
pund í róðri og reru alla dag-
ana. í gær var ekki róið, en í
dag var aflinn heldur minni.
Þessi aflahrota er meiri en
við höfum átt að venjast mörg
síðari ár og bætir mjög hlut út-
gerðarinnar.
Víða er kal í túnum á Ár-
skógsströnd, sérstaklega á
ströndinni innanverðri, þar sem
snjóléttara var.
Óhreysti í búpeningi
Svarfaðardal, 27. maí. Tíðin hér
frá 4.—20. þ.m. var heldur stirð,
norðan strekkingur og kalsa-
veður. Snjóaði þá stundum, en
aldrei meir en næturlangt. Nú
hefur aftur hlýnað í veðri og
komst hitinn þann 25. þ.m. upp
í 20 stig og 18 stig í gær. í dag
er enn mjög hlýtt í veðri og all-
miklir vatnavextir.
Sauðburði er nú að ljúka víð-
ast hvar. Hefur gengið vel sums
staðar, annars staðar mjög mik-
ið miðui'. Ohreysti hefur verið
nokkur í fé sums staðar.Lamba-
lát, máttleysi í lömbum og jafn-
vel fullorðnu fé líka. Kúakólera
hefur stungið sér niður ánokkr-
um bæjum. Ekki hefur þó enn
heyrzt um að nautgripir hafi
farizt úr veikinni, en vafalaust
er um allmikið afurðatap að
ræða af þessum sökum.
LeiSrétting
Svarfaðardal, 27. maí. í frétta-
pistli héðan úr Svarfaðardal,
sem birtist í Degi 24. þ. m. og
upp er tekinn kafli úr „Bænda-
tali í Svarfaðardal", hafa fallið
niður setningar á tveimstöðum:
1. Þar sem talin eru börn md.
Halldóru Jónsdóttur og sr. Gísla
prests á Tjörn Magnússonar er
vantalið eitt þeirra: „Magnús,
bóndi í Gröf.“ — 2. í lok kafl-
ans um Hallgrím Halldórsson á
Melum átti að standa þessi til-
vitnun: „(Sjá nánar um Hall-
grím. „Kennaratal á íslandi".
bls. 255.).“ Höfundur er beðinn
velvirðingar á þessum mistök-
um. — (Frá fréttaritara Dags í
Svarfaðardal.)
Túnin ern hvít af kali
Ófeigsstöðum, 28. maí. Kominn
er þolanlegur sauðgróður ogbú-
ið að sleppa flestu lambfé. —
Sauðburðurinn gekk vel, en
með færra móti var tvílembt.
Vetrarfóðrið mun hafa verið
með fjörefnasnauðara móti.
Hér hvílir skugg'i yfir sveit,
því að kal er óhemjumikið í
túnum. Sumir bændur bera ekki
einu sinni á verstu skákirnar,
telja það þýðingarlaust. Sums
staðar skipta kalblettir hektur-
um lands.
í fjöllum er feikna snjór og
því er hætt við miklum vatna-
vöxtum fram eftir sumri.
Hér í sveit er allt með frið-
semd, þótt kosningar séu fram-
undan. Allir bændur sveitarinn-
ar munu sitja jarðir sínar á-
fram.
□