Dagur - 22.08.1962, Blaðsíða 1
Mái.gagn Framsóknarmanna
Ritstjórí: Eruncur Davíðssón
Skrifstofa í HafnarstR/ETi 90
Sími 1166. Sf.tningu oc; prentun
ANNAST PrENTVERK OdDS
Björnssonar h.f., Akureyri
\___________________________l
Dagur
XLiV. árg. — Akureyri, miðvikudagur 22. ágúst 1962 — 42. tbl.
----------------------- ,
Auglýsingastjóri Jón Sam-
ÚF.LSSON . ÁRGANGURINN KOSTAR
KK. 120.00. Gjalddagi f.r 1. JÚI.Í
Bladid kemur út á midvikudög-
UM OC Á LAUGARÐÖOUM,
ÞEGAR ÁST.EÐA ÞS'KIR TIL
»_____________________________J
Vegagerð á Norðurlandi
Ásgrímssýningin í Oddeyrarskólanum
er fyrsta atriði afmælishátíðahaldanna
ÞAÐ, sem unnið er að vega-
gerð í Eyjafjarðar- og Þingeyj-
arsýslum er einkum þetta:
Múlavegurinn er orðinn akfær
öllum bifreiðum út að Sauðá frá
Dalvík. Erfiðasti kafli leiðar-
innar, Ófærugjá, Flagið og fleiri
torsóttir staðir norðan í Múlan-
um, og eftir er að leggja veg
yfir, er 4—5 km. að lengd. En
allur Múlavegurinn, frá Dalvík
til Ólafsfjarðar, er 18 km. — Þá
er í sumar unnið að endurbót-
um á Eyjafjarðarbraut og síðar
í sumar vei-ður Laugalandsveg-
ur lagfærður. Á þessum vegum
er um smákafla að ræða, einnig
í Hörgárdal.
í Suður-Þingeyjarsýslu er
unnið í Fnjóskadalsvegi hjá
Veisuseli og nálægt Hólmavaði
og Tjörn í Aðaldal. Þá er unnið
í Tjörnesvegi austan við Máná,
fullgerður nýr vegarspotti á
Mývatnsöræfum og nýbyggður
kafli á Mývatnsheiði og ætlunin
r
Arekstur
Á LAUGARDAGINN tóku tveir
ungir menn á Akureyri bifreið
eina traustataki og óku liðugt
um bæinn. En hæfni sinni og
heppni treystu þeir um of, því
að þeir lentu brátt í árekstri við
fólksbifreið frá Rvík. Undruð-
ust menn, hvernig Akureyrar-
bíllinn var útleikinn eftir á-
reksturinn. Piltarnir höfðu ekki
ökuskírteini.
H»
| PRESTKOSNINC |
SR. FRIÐRIK A. FRIÐRIKS-
SON, prófastur á Húsavík, á-
kvað í vor að hætta prestskap.
Tveir umsækjendur eru um
brauðið, þeir séra Örn Friðriks-
son á Skútustöðum og séra
Ingimar Ingimarsson á Sauða-
nesi.
Kosning fer fram 26. ágúst.
Frá Húsavík
Húsavík, 21. ágúst. Söltunar-
stöðin Barðinn hefur saltað 3540
tunnur, Söltunarstöð K. Þ. 3456
tunnur og Höfðaver, þriðja sölt-
unarstöðin, eitthvað minna. K.Þ.
hefur látið frysta 69 tonn síldar.
Fiskafli er fremur tregur eins
og er, og í sumar dálítið mis-
jafn. Fiskiðjusamlagið hefur þó
alltaf haft nóg að gera.
Askja hf. stofnaði nýja verzl-
un í verzlunarhúsakynnumStef-
áns Guðjohnsens. Aðalvörur
eru: Byggingavörur, búsáhöld,
fatnaður, húsgögn og teppi. —
Verzlunarstjóri er Páll Þór
Kristinsson. Verzlunin stendur
við Garðarsbraut og er nýtízku-
leg.
er að vinna að vegalegningu í
Bárðardal, austan Fljóts og
vestan. Þá eru bættir vegir á
Hólafjalli, Flateyjardal ogDetti-
fossleið að vestan. En vegabæt-
ur fjallveganna eru þó aðeins
miðaðað við að jeppar eðafjalla-
bílar komist þar leiðar sinnar.
Á nokkrum stöðum við fjöl-
farnar leiðir má sjá uppborin
hey of nálregt vegum og hefnir
það sín í vetur, þegar snjóalög
torvelda umferðina. Gildir hið
sama um skúrbyggingar og
skóg, sem haft er of nálægt veg-
um og skeflir af.
Múlavegurinn er erfiðastur
viðfangs allra norðlenzkra vega,
að jarðgöngunum gegnum
Stráka frátöldum. En þar er
líka til mikils að vinna, þar
sem þá verður aðeins 18 km.
leið frá Ólafsfirði til Dalvíkur
í stað 275 km., sem nú er stytzta
leið á bifreið á milli þessara ná-
grannastaða. □
og flótti
Akureyrarpiltarnir völdu nú
í snatri þann kostinn, sem þeim
þótti auðveldastur og lögðu á
flótta eins hratt og fæturnir
gátu borið þá. En aftur brást
þeim bogalistin, því að lögregl-
an tók þá brátt til athugunar.
Litlu áður tóku ungir menn
bifreið eina hér í bæ og renndu
henni undan brekkunni og upp
á gangstétt. En gangstéttarbrún-
in var há og urðu skemmdir á
bílnum.
Hinir ungu menn tóku nú til
fótanna, enda engin umferð sjá-
anleg og ekkert hægt að gera
meira með skemmdan bíl. En
kona ein sá til ferða sökudólg-
anna, er fóru fram í skip, og
gerði lögreglunni aðvart. Fund-
ust þeir þar.
Virðingarleysi ungmenna fyr-
ir öllum og öllu, einnig fyrir
sjálfum sér, mun algengari or-
sök slíkra óhappa en skemmd-
arfýsn eða beinn prakkaraskap-
ur. Svo mun einnig vera um
ofsahi-aðan akstur á götum bæj-
arins, sem er of algengur og
stórhættulegur. □
] Aflaliæstu skipin |
E SEX aflahæstu síldarskipin I
| um sl. helgi voru: Ólafur i
i Magnússon, Akureyri, 21.092 í
Í mál og tn, Víðir II, Garði, i
1 21.042, Seley, Eskif., 20.553, í
E Guðmundur Þórðarson, Rvk, E
í 20.516, Helgi Helgason, Vest- I
i mannaeyjum, 20.463, Höfr- i
í ungur II, Akranesi, 20.118 j
i mál og tunnur. □ E
ÁSGRÍMUR JÓNSSON, braut-
ryðjandi í íslenzkri málaralist,
sem andaðist fyrir fjórum ár-
um, gaf ríkinu málverkasafn
sitt. — Það er stærsta og dýr-
mætasta myndlistargjöf, sem
þjóðinni hefur verið gefin. Ás-
grímssafn í Reykjavík hefur
vakið bæði undrun og aðdáun.
Akureyri hefur verið sýndur
sá heiður, að mega hafa 50—60
listaverk úr Ásgrímssafni til
sýnis í tilefni af 100 ára afmæli
bæjarins.
Myndirnar á þessa sýningu
völdu þau frúBjarnveigBjarna-
dóttir, safnstjóri Ásgrímssafns,
og Jón, bróðir Ásgríms. Er þetta
í fyrsta sinn að lánaðar eru til
sýningar margar myndir úr
safninu.
Kristinn Jóhannsson, málari,
hefur sett þær upp í Oddeyrar-
skóla af mikilli smekkvísi.
Sýning þessi er mjög sérstæð
og fögur. Myndirnar eru olíu-
málverk, vatnslitamyndir og
teikningar.
Bænum er sómi að því að
hefja afmælishátíð sína með
sýningu á verkum eins af mestu
listamönnum þjóðarinnar, og ef-
laust er listþroski bæjarbúa og
gesta nægur til að njóta hennar
í ríkum mæli.
Sögusýningin í G. A.
SÖGUSÝNINGIN í Gagnfræða-
skólanum verður opnuð aðal-
hátíðisdaginn, miðvikudag 29.
ágúst. Hún er í tíu deildum á
tveim hæðum Gagnfræðaskól-
ans, sem undir hana er lagður.
Sögusýning þessi byggist á
útdrætti úr sögu helztu þátta
bæjarlífsins á breiðum grund-
velli, og er bæði í máli og mynd-
um.
Fyrsta deildin fjallar um
stjórn, bæjarins réttarstöðu,
lögsagnarumdæmi og fleira.
Önnur deildin sýnir skipulag
bæjarins, húsagerð, gatnagerð,
ennfremur mannfjölda og fjár-
mál.
Þriðja deildin sýnir sjósókn
og iðnað og sú fjórða er um sam
göngur og verzlun. — Þessar
deildir eru á neðri hæð.
Hin fimmtá er um bæjarstofn-
anir, svo sem slökkvilið, lög-
reglu, vatnsveitu, rafveitu, enn-
fremur um póst og síma og hafn-
armál.
Sjötta deildin er helguð
kirkju, heilbrigðismálum og
skólum bæjarins.
Sjöunda deildin fjallar um
prentsmiðjur, bækur og blöð,
og þar er myndasafn.
Áttunda deildin er um búskap
og ræktun. Hin níunda um í-
þróttir og sú tíunda um ýmis fé-
lög í bænum.
Sverrir Pálsson, ásamt Har-
aldi Sigurgeirssyni og Valgarði
Frímann hefur sett upp sögu-
sýninguna. □
Jafntefli á Húsavík
SL. laugard. komu til Húsavíkur
handknattleikskonur úr Kópa-
vogi og kepptu við kynsystur
sínar úr Völsungi. Jafntefli varð
7:7. Sunnankonur léku áður á
Akureyri og sigruðu þá með
14:6. D
Bæjakeppni á sunnud.
Á SUNNUDAGINN kl. 4 e. h.
fer fram bæjákeppni í knatt-
spyrnu milli Reykjavíkur og
Akureyrar. Keppni þessi er lið-
ur í hátíðahöldunum miklu, er
hefjast fyrr þennan dag. □
Ásgrímur Jónsson, málari.